Morgunblaðið - 19.06.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1981
5
Auðarbók Auðuns
kemur í dag -19. júní
AFMÆLISRIT til heiðurs Auði
Auðuns sjötugri kemur út i dag,
19. júni. Utgefendur eru Samtök
sjálfstæðiskvenna.
Afmælisritið, sem hefur hlotið
nafnið „Auðar bók Auðuns" og er
safn greina, flestra fræðilegs eðlis
eftir 18 höfunda, er 210 síður í
Skírnisbroti auk 16 myndasíðna.
Á 70 ára afmæli Auðar hinn 18.
febrúar sl. tilkynntu útgefendurn-
ir, Landssambands sjálfstæðis-
kvenna og Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, um afmælis-
ritið og að 19. júní hefði verið
valinn sem útgáfudagur.
Sá dagur minnir á baráttuna
fyrir réttindum kvenna, en þann
dag 1915 öðluðust íslenskar konur
kosningarétt og kjörgengi. Stund-
um hefur þótt á skorta, að konum
nýttust þessi réttindi, en á því
sviði er Auður Auðuns tvímæla-
laust brautryðjandi í hópi ís-
lenskra kvenna á 20. öld, bæði í
menntun og stjórnmálum.
Síldveið-
um Norð-
manna
mótmælt
RÍKISSTJÓRN íslands hefur
sent Norðmönnum mótmæli
vegna fyrirhugaðra síldveiða
Norðmanna i haust. Norðmenn
hafa leyft veiðar á 11 þúsund
tonnum af síld úr norsk-islenzka
síldarstofninum i ár, en fiski-
fræðingar hafa lagt til algjört
veiðibann á þessum stofni.
ítrekað hefur verið fjallað um
þennan síldarstofn í Alþjóða haf-
rannsóknaráðinu og hafa vísinda-
menn komizt að þeirri niðurstöðu,
að veiðar úr stofninum séu óæski-
legar. Þá hafa íslendingar mót-
mælt þessum veiðum í norsk-
íslenzku fiskveiðinefndinni, sem
sett var á laggirnar er Jan May-
en-samkomulagið var gert.
Auk þessara síldveiða Norð-
manna úr norsk-íslenzka stofnin-
um, hefur Efnahagsbandalag Evr-
ópu leyft mikla aukningu síldveiða
í ár, bæði í Norðursjónum og fyrir
norðan Skotland, en þar er um
aðra síldarstofna að ræða.
INNLENT
Ritnefnd skipuðu þau Elín
Pálmadóttir, Hannes Gissurarson
og Ragnhildur Helgadóttir, sem
stýrði verkinu og reit Ragnhildur
formála, þar sem gerð er grein
fyrir ævi og starfi Auðar Auðuns.
Fremst í bókinni er listi heilla-
óskenda og geta þeir vitjað bókar-
innar á skrifstofunni í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, næstu viku á
tímanum 9—17. Ennfremur verð-
ur afmælisritið til sölu í Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti 18.
Pálmi BA með 1160 tonn
Auður Auðuns
í skrá Morgunblaðsins í
Sjómannadagsblaði um þá
báta á landinu sem fiskuðu
yfir 1000 tonn, féll niður nafn
Pálma BA 30 frá Patreks-
firði, sem fiskaði 1160 tonn og
hefði því átt að vera nr. 14 í
röðinni yfir þá 24 báta, sem
fiskuðu yfir 1000 tonn.
Um-
rædd skrá Fiskifélags íslands
/ar birt með þeim fyrirvara
?rá Fiskifélaginu að hugsan-
ega hefðu ekki borist ennþá
tpplýsingar um alla báta sem
hefðu fiskað yfir 1000 tonn á
vetrarvertíðinni og var Pálmi
ekki á skrá Fiskifélagsins.
Olíumöl hf. lagt niður
Nýtt fyrirtæki tekur við
IIRAÐBRAUT hí. er nýtt fyrir-
tæki er stofnað hefur verið i stað
Olíumalar hf. sem lagt hefur
verið niður. Það voru stærstu
kröfuhafar Oliumalar hf. sem
stóðu að stofnun þessa fyrirtækis
en þeir eru: Framkvæmdastofn-
unin, rikissjóður, Útvegsbankinn
og olíufélagið Norsk Fina.
„Þetta var skárri kosturinn af
tveimur, en hinn var að láta
Olíumöl hf. verða gjaldþrota,"
sagði Benedikt Bogason verkfræð-
ingur hjá Framkvæmdastofnun-
inni er Mbl. spurði hann nánar út
í þessi mál.
„Við vildum alls ekki,“ sagði
Benedikt, „að fyrirtæki sem þetta
dytti uppfyrir vegna þess að það
yrði spor afturábak í þeirri tækni-
þróun er átt hafði sér stað með
stofnun Olíumalar hf. Aðrar
stöðvar framleiða einungis malbik
og er ekki hægt að nota það nema
á litlu svæði við stöðvarnar þar
sem malbikið þolir ekki langa
flutninga. Sveitarfélög þurftu með
öðrum orðum á þessu fyrirtæki að
halda. Sveitarfélög í nágrenni
Reykjavíkur hafa lagt bundið
slitlag á allt að 55 prósent vega og
með óbreyttu ástandi væri hægt
að reka þetta.
Málið er það, að Olíumöl hf.
lagði í miklar fjárfestingar við
stofnun þess og bjuggust við að
markaðurinn væri nægur til að
borga þær upp. Raunin varð hins
vegar sú, að markaðurinn reyndist
miklu minni, en þeir gerðu ráð
fyrir í sínum fjárfestingum og
lentu þeir í erfiðri greiðslustöðu
sem magnaðist upp. Ef markaður-
inn hefði verið eins og þeir
reiknuðu með, hefði ekki þurft að
koma til þessara erfiðleika. Fram-
leiðslan var ekki nógu mikil til að
borga afborganir og vexti.
Hraðbraut hf. verður ekki rekin
með alveg eins sniði og Olíumöl hf.
Við erum búnir að gera samning
nú á þessu ári við Miðfell hf. um
að reka þetta fyrirtæki í ár. Við
töldum ekki heppilegt að fara út í
að byggja eigið rekstrarlið í sumar
og gengum því frá rekstrarsamn-
ingi við Miðfell, en þeir hafa mikla
reynslu á þessu sviði.
Við teljum okkur hafa valið
öruggustu og bestu leiðina og
teljum að þetta geti gengið, þar
sem markaðurinn er þekktur og
nokkuð stöðugur á næstu árum.
Það er reiknað með heldur minnk-
andi framleiðslu næstu tvö ár, en
síðan aukningu aftur. Sveitarfélög
um alit land sem eru á miðri leið
að byggja bundið slitlag á sínar
götur, er helsti markaðurinn og
einnig er fyrirsjáanleg talsverð
vöntun á olíumöl hjá Vegagerð
ríkisins," sagði Benedikt að lokum.
Skiptir
„Flakkar-
inn“ um
eigendur?
Akureyri. 15. júní.
SKIPIÐ sem Slippstöðin hf. á og
legið hefur óselt við bryggju
mánuðum saman kynni nú brátt
að skipta um eigendur og fara að
draga björg i þjóðarbúið. að sögn
Stefáns Reykjalín, stjórnarfor-
manns Slippstöðvarinnar hf.
Nokkrir útgerðaraðilar eru að
velta fyrir sér kaupum á skipinu
án þess að nokkurt ákveðið tilboð
hafi komið fram enn.
Framkvæmdastjóri Slippstöðv-
arinnar hf., Gunnar Ragnars, er
væntanlegur heim frá útlöndum
eftir miðjan þennan mánuð og þá
munu málin skýrast og ákvarðanir
teknar. Ekki þykir koma til mála
að Slippstöðin hf. leigi skipið eða
geri það út á eigin spýtur.
Skipinu hefur ekki verið gefið
nafn, en það gengur almennt
undir nafninu „Flakkarinn", bæði
af því að skipsskrokkurinn hefur
oft skipt um eigendur og farið víða
og af hinu að hingað til lands var
hann dreginn frá Flekkefjord í
Noregi. Hann var lengdur á Akra-
nesi, en síðan var skipið fullsmíð-
að og frágengið í Slippstöðinni hf.
Sv.P.
„Þetta bónuskerfi er alltof strangt"
„ÞAÐ ERU næstum tvær vikur
síðan við sögðum þcssu bónus-
kerfi upp. en þeir hafa ekki haft
samband við okkur síðan.“ sagði
Ilerdís Gisladóttir, trúnaðarmað-
ur starfsfólksins á saumastof-
unni Akraprjóni á Akranesi, er
Mbl. hafði samband við hana
vegna neitunar starfsfólks þar
að vinna eftir Isinuskerfi sem
átti að setja i gang á saumastof-
unni.
„Það var bara ætlast til of
mikils af okkur. Við hefðum þurft
að ná 40 prósent meiri afköstum
til að fá eitthvað í okkar vasa.
Þetta bónuskerfi, sem er enskt, er
svona strangt. Við viljum hafa
það eins og þeir í Borgarnesi og
víðar, en þar eru verkin tíma-
mæld. Þeir voru í sjö eða átta
mánuði að koma þessu kerfi hér á
og við unnum eftir því í einn
mánuð en hættum því svo. Núna
erum við á tímakaupi. Ég held,“
sagði Herdís, „að þeir hafi varla
efni á að láta okkur vinna eftir
bónuskerfi hér vegna verkefna-
skorts. Annars bíðum við bara
eftir þeirra viðbrögðum. Það má
kannski taka það fram, að með
þessu kerfi hefði orðið 100 prósent
framleiðsiuaukning en aðeins 16
prósent kaupaukning," sagði Her-
dís að lokum.
Svæðismót í
Kaupmannahöfn:
Islendingar
mega senda
3 skákmenn
ÍSLENDINGAR hafa rétt til að
senda þrjá keppendur á svæðis-
mót, sem haldið verður í ná-
grenni Kaupmannahafnar i
haust. Aðrar þátttökuþjóðir á
þessu móti verða Danir, Norð-
menn og Sviar, með 2 skákmenn
hver þjóð, og Finnar og Færey-
ingar með 1 skákmann hvor.
Mótið hefst 5. september og
greiðir danska skáksambandið
kostnað við mótshald, en þátt-
tökuþjóðir greiða ferðakostnað
sinna keppenda. í skáktíðindum
frá SÍ segir, að þrír keppendur
verði að öllum líkindum sendir á
mót þetta.
litni bfll-STÖR BlLL?
Þaó gildir einu...._
Philips framleiðir bíltækið í bílinn hvort sem
hann er lítill eða stór, gamall eða nýr.
Þú getur valið milli útvarpstækja, kassettutækja,
eða sambyggöra útvarps- og kassettutækja i
fjölmörgum mismunandi geröum og
verðflokkum.
✓ *~r~'
Þú getur verið viss um gæðin ...
ef tækiö er frá PHILIPS.
i rKí E
c*««rTe »tmco
.12JSð 1JL-, ,
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655