Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 Hafís ílok desember 1981 Kortið sýnir í megindráttum hafísinn milli Islands og Grænlands síðustu daga ársins 1981. Mánudaginn 28. desember kannaði Landhelgisgæsla Islands og hafís- rannsóknadeild veðurstofunnar jaðarsvæðið fyrir norðvestan land. Liðlega 500 km af jaðarlengjunni voru kannaðir. Isröndin hef- ur færst mikið til norðvesturs frá því sem verið hefur fyrr í vetur og er næst landi um 72 sjómílur (130 km) norðvestur af Straumnesi. Jaðarsvæðið er nú við miðlínu milli íslands og Grænlands. Auk ískönnun- ar Landhelgisgæzlunnar er stuðst við veð- urtunglamyndir við gerð kortsins. Brotalínur á kortinu tákna yfirborðshita sjávar samkvæmt verðurtunglamyndum. Gera þarf þó ráð fyrir allmikilli ónákvæmni í þeirri ágiskun. Rfkisstyrkur til blaðanna: Stjórnarlidiö felldi tillögu Alberts STJÓRNARLIÐIÐ felldi, að við- höfðu nafnakalli, breytingartillögu Alberts Guðmundssonar (S) við fjár lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, þess efnis, að liðurinn „Til blaðanna samkvæmt nánari ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að fengnum tillögum stjórnskipaðrar nefndar", kr. 2.550.000, félli niður. Þá felldi stjórnarliðið breytingartillögur frá sama þingmanni um hækkun á framlagi til Hins íslenzka biblíufé- lags úr kr. 115.000 í kr. 400.000 og hækkun á framlagi til Olympíu- nefndar úr kr. 75.000 í 100.000. Tillagan um niðurfellingu blaðastyrkja var felld með 38 at- kvæðum gegn 20 en 2 þingmenn vóru fjarstaddir. Með tillögunni greiddu atkvæði allir þingmenn Sjálfstæðisflokks, þ. á m. Eggert Haukdal, nema ráðherrarnir þrír, Gunnar Thor- oddsen, Friðjón Þórðarson og Pálmi Jónsson, sem greiddu at- kvæði gegn henni. Auk þingmanna Sjálfstæðisflokks greiddi Vil- mundur Gylfason (A) tillögunni atkvæði. Gegn tillögunni greiddu atkvæði allir þingmenn Alþýðubandalags og Framsóknar, þrír ráðherrar úr Sjálfstæðisflokki og þingmenn Al- þýðuflokks, utan Benedikt Grön- dal og Karl St. Guðnason, sem vóru fjarverandi, og Vilmundur Gylfason, sem fylgdi tillögunni, sem fyrr segir. Til sölu Eignarhluti Lögmannafélags íslands að Óðinsgötu 4, Reykjavík, (ca. 80 fm á 1. haeð) er til sölu. Heppilegt fyrir margs konar atvinnurekstur svo §em lögmannsskrifstofur, læknastofur, verkfræðistofur o.fl. Húsnæðið verður til sýnis í dag og næstu daga, þ. á m. laugardaginn 9. jan. nk. kl. 10—12. Kauptilboð sendist skrifstofu félagsins fyrir 20. jan. nk. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri félagsins í síma 19650. Lögmannafélag íslands Fasteignamarkaöur Fjárfestingarfélagsins hf SKÓLAVÖRÐUSTÍG 11 SÍMI 28466 (HÚS SPARISJÓÐS REYKJAVlKUR) Lögfræðingur: Pétur Þór Sigurðsson HVERFISGATA Nýstandsett góö einstaklings- íbúð. Allt sér. SKELJANES 2ja 'herb. 65 tm góö íbúð á 1. hæð í timburhúsi. Stór eignar- lóð. VALLARGERÐI — KÓP. 2ja herb. góð íbúð á 2. hæð í tvíbýlishúsi. Herb. i kjallara fylg- ir. Bílskursréttur. FURUGERDI 3ja herb. góð ibúð á jarðhæð. Þvottaherb. og geymsla innan íbúðar. Sér garður. KÓNGSBAKKI 4ra herb. 110 fm góð íbúð á 2. hæð. Þvottaherb. innan íbúðar. Stór geymsla. Góð sameign. KAPLASKJÓLSVEGUR 6 herb. góð íbúð á 4. hæð og i risi. Á hæðinni eru 2 svefnherb., stór stofa, eldhús og bað, en í risi eru 2 svefnherb. og sjón- varpsherb. GRETTISGATA Timburhús sem er kjallari, hæð og ris 50 fm að grunnfleti. Steinsteypt viðbygging er viö húsið og hægt að hafa sem sér íbúð eða vinnustofu. Húsið þarfnast standsetningar. DALSEL Fullbúið glæsilegt raðhús á tveimur hæðum. Á jarðhæö er húsbóndaherb., en möguleiki er á tveimur íbúðum í húsinu. Sér- smiðaðar innréttingar. Bílskýli. MOSFELLSSVEIT Höfum til sölu glæsilegt einbyl- ishús í Helgafellslandi. Húsið er á 2 hæðum samtals 200 fm og er allt furuklætt að innan. Inn- byggður bílskúr. 1200 fm. eign- arlóð. Fallegt útsýni. HRYGGJASEL 240 fm rúmlega fokhelt einbýl- ishús á 3 hæðum, 60 fm upp- steyptur bílskúr. Hægkvæm kjör. Verslunar- eða skrifstofuhúsnæði Höfum til sölu í vesturborginni 450 fm húsnæöi, sem er kjallari og hæð. Húsnæðið er í góöu ástandi. Hentar vel fyrir t.d. heildverslun. Skrifstofuhúsnæði við miðborgina Höfum til sölu 1000 fm skrifstofuhúsnæöi við Sigtún, sem afhendist fullfrágengið að utan en fokhelt að innan, hægt er að hafa lyftu í húsinu. Til afhendingar fljótlega. Góð lóö. Mikil bílastæði. Fokhelt einbýlishús og parhús Höfum til sölu fokheld einbýlishús og parhús fyrir Einhamar sf. við Kögursel í Breiðholti. Húsin verða fullfrágengin að utan með gleri og útihurðum, og einangruö að hluta. Lóð frágengin. Bílskúrsplata fylgir. Stærð parhúsanna er 136 fm. Staðgreiðsluverö er 722.500 kr. Stærð einbýlishúsanna er 161 fm. Staögreiösluverö er kr. 977.700. Teikningar á skrifstofu okkar. Fasteignaínarkaöur Fjárfestingarfélagsins hf SKÓLAVÖRÐUSTIG 11 SÍMI 28466 (HUS SPARISJÓÐS REYKJAVÍKUR) Lögfræðingur: Pétur Þór Sigurðsson íslendingablaðið Gustur: Fjórfalt dýrara að hringja frá Bandaríkj unum til íslands en annarra Norðurlanda FJÓRFALT dýrara er nú ad hringja frá Bandaríkjunum til Islands en annarra Nordurlanda, segir í frétt í Gusti, eina íslenzka fréttablaðinu, sem gefið er út í Bandaríkjunum og borizt hefur Morgunblaðinu. í frétt- inni segir að nýlega hafi símtöl frá Bandaríkjunum lækkað um 35%. Það gildi þó aðeins um önnur lönd en þau vanþróuðu og sé ísland talið með þeim. Orsakir þessa eru meðal annars raktar til þess að er sími var stofnaður á íslandi skömmu eftir síðustu aldamót var gerður samning- ur til 99 ára við Store Nordiske um einkarétt á símaþjónustu við ísland og hafi það staðið tækniþróun fyrir þrifum. I blaðinu er ennfremur sagt frá nýjum veitingastað í Santa Bar- FJÁRHAGSÁÆTLUN Njarðvfkurbæj- ar fyrir árið 1982 var lögð fram til fyrri umræðu á fundi Bæjarstjórnar Njarð víkur fyrir áramót og voru niðurstöðu- tölur áætlunarinnar kr. 19.679.000. Hækkun frá fjárhagsáætlun fyrra árs er 56 prósent. Helstu tekjuliðir eru: Útsvar kr. 10.300.000. Aðstöðugjald kr. 3.295.000. Fasteignagjöld kr. 2.625.000. Jöfnunarsjóður kr. 2.108.000. bara í eigu Magnúsar Björnsonar og öðrum íslenzkum veitingastöð- um í San Gabriel Valley og New York. Þá eru meðal annars í blað- inu greinar og umræða um ferða- mál og ritstjórnargrein um víg- búnaðarkapphlaup stórveldanna og möguleika forseta Islands til að draga úr því. Blaðið hóf göngu sína fyrir ári og er gefið út ársfjórðungslega og selt í áskrift, aðallega í Bandaríkj- unum og á íslandi. Ritstjóri er Jakob Magnússon og gjaldkeri Sigurjón Sighvatsson, en auk þeirra starfa nokkrir íslendingar við blaðið, sem gefið er út af ís- lenzk-ameríska-félaginu í Kali- forníu. Helstu gjaldaliðir eru: Fræðslu- mál kr. 2.927.000. Almannatr. og fé- lagshj. kr. 2.608.000. Æskul. og íþróttamál kr. 2.251.000. Hreinlæt- ismál kr. 827.000. Til eignabreytinga og gatna- og holræsagerðar verður varið 5,5 milljónum, en frestað var til 2. um- ræðu að skipta því fé. Fjárhagsáætluninni var vísað til 2. umræðu sem fram fer 2. febrúar nk. Tjarnargata 14. Bankamenn í eigið húsnæði SAMBAND íslenzkra banka- manna hefur fest kaup á húseign- inni Tjarnargötu 14. Kaupsamn- ingur var undirritaður í nóvember sl. og er kaupverð 2,1 milljón króna. Fyrri eigandi hússins var Félag íslenzkra stórkaupmanna, sem flytja mun starfsemi sína í hús verzlunarinnar. Tjarnargata 14 er tvær hæðir, ris og kjallari, um 95 fermetrar að grunnfleti. Hæðirnar tvær eru innréttaðar sem skrifstofu- húsnæði, en í risi er stór og rúmgóður fundarsalur. Húsið er byggt á árunum 1912 og 1913. Það hefur nýlega verið endurbyggt að miklu leyti og mikið endurnýjað. Risið er ný- legt og var byggt samkvæmt upphafiegri teikningu. Húsið hentar mjög vel fyrir starfsemi SÍB og þarf engar breytingar að gera á því. Fyrsta hæðin verður afhent SÍB hinn 1. mars 1982 og mun sambandið þá flytja starfsemi sína þangað. Njarðvíkurbær: Um 20 milljónir á fjár- hagsáætlun fyrir ’82 Mogens Camre Fyrirlestur um dönsk stjórnmál DANSKI þingmaðurinn og sósíal- demókratinn Mogens ('amre er væntanlegur í heimsókn fimmtu- daginn 7. jan. og dvelur hér á landi til mánudagsmorguns. Mogens Camre hefur í mörg ár staðið framarlega í dönskum stjórnmálum. Hann hefur verið lengi þingmaður sósíaldemó- krata, og í síðustu ríkisstjórn var hann pólitískur málsvari flokksins á þingi. Því embætti gegnir hann nú einnig í hinni nýmynduðu minnihlutastjórn sósíaldemókrata. Mogens Camre er þekktur fyrir einarðar skoðanir og er óhræddur við að halda þeim fram, enda þótt þær séu af mörgum taldar umdeilanlegar. Morgens Camre heldur fyrir- lestur í Norræna húsinu sunnu- daginn 10. jan. kl. 14.00 og ræðir um nýjustu þróun í dönskum stjórnmálum og á eftir mun hann svara fyrirspurnum áheyr- enda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.