Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 Faðir okkar og tengdafaðir, KRISTINN VIGFÚSSON trésmíöameistari, Bankavegi 4, Selfossi, lést i sjúkrahúsi Suöurlands, aðfaranótt 5. janúar. Guómundur Kristinsson, Ásdis Ingvarsdóttir, Sigfús Kristinsson, Sólveig Þóróardóttir, Hafsteinn Kristinsson, Laufey Valdimarsdóttir. + Hjartkær eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir, amma, lang- amma og systir, ALETTA SOFFIA JÓHANNSSON, (fædd Mjátveit), Álftahólum 4, lést aö morgni mánudags 4. janúar á Landspítalanum. Jaröarför auglýst síöar. Samúel Jóhannsson, Lilly A. Samúelsdóttir, Margeir Jóhannsson, Karl J. Samúelsson, Berit I. Samúelsson, Anna M. Samúelsdóttir, Garðar Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn, Maria Jónsson. Faöir minn, BJARNI GUDBJARTSSON, Bergstaðastræti 33, lést á heimili sinu 22. desember. Veröur jarösunginn frá Foss- vogskapellu fimmtudaginn 7. janúar 1982 kl. 3.00 e.h. Jóhann Þ. Bjarnason + Fósturmóðir okkar og tengdamóöir okkar, ÁSA VÍGLUNDSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 7. þ.m. kl. 10.30. Sígríöur Guómundsdóttir, Árni Sigurösson. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓNASJÓNSSON frá Bessastöðum, Kambsvegi 21, sem lést á Borgarspítalanum á aöfangadag jóla veröur jarösung- inn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. janúar kl. 13.30. Erla Kristín Jónasdóttir, Birgir Sveinbergsson, Jón Jónasson, Gunilla Skaptason og barnabörn. Útför + ÁRMANNS JÓNSSONAR, hæstaréttarlögmanns, Rauöalæk 38, Reykjavík, fer fram í Laugarneskirkju föstudaginn 8. janúar nk. og hefst athöfnin kl. 10.30 f.h. Margrét Siguröardóttir, Siguröur Ármannsson, Jón Ármannsson, Sigmar Ármannsson, Guðmundur Ármannsson, Jóhanna Ármannsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Minning: Jónas Jónsson frá Bessastöðum Fæddur 20. apríl 1907. Dáinn 24. desember 1981. Umgur má en gamall skal, var víst stundum sagt hér áður, þegar dauðinn skáraði oft breiðar og óvæntar með köflum en nú er tíð- ast. Ég býst við að fleirum en mér hafi orðið hverft við þriðjudaginn 15. desember. sl., þegar við frétt- um að Jónas mágur minn hefði skyndilega fengið slag og lægi á gjörgæzlu milli heims og helju. Þótt hann bæri það ekki utan á sér, var hann orðinn nær hálfátt- ræður, lúinn eftir langan vinnu- dag og hafði stundum að undan- förnu talað um að hann væri hálf- lasinn, en það gerði hann á sinn hægláta hátt. Jónas fæddist á Bessastöðum í Fljótsdal og þar ólst hann upp, sonur hjónanna Jóns Jónassonar og Önnu Jóhannsdóttur, sem þar bjuggu allan sinn búskap og hún þó öllu lengur, síðast í skjóli barna sinna. Jónas var hinn áttundi í hópi nítján alsystkina, sem fædd- ust á árabilinu 1898—1924. Það ræður af líkum, að á þess- um tímum hafi hvert og eitt barn- anna þurft að fara að taka til hendi jafnskjótt og þroski, vit og orka leyfði. En þessum systkinum var það flestum eða öllum sameig- inlegt að vera sérlega handlagin — sum einnig listhneigð — og gef- in fyrir smíðar og hannyrðir eða að fást við véiar. Urðu þess háttar störf æviviðfangsefni sumra þeirra, en önnur höfðu slíkt í hjá- verkum með búskap eða öðru. Faðir Jónasar dó sumarið 1936, en þá var Jónas farinn að heiman. Vann hann fyrst við bústörf hjá ýmsum, fyrst í átthögum sínum; en síðar í fjarlægum héruðum. I Eiðaskóla var hann veturna tvo, rétt fyrir 1930 í skólastjóratíð síra Jakobs Kristinssonar, síðar fræðslumálastjóra. Um það leyti sem Jónas er að hleypa heimdraganum er bíllinn að halda innreið sína á Austur- landi. Varð úr að hann sneri sér að þeim viðfangsefnum, sem þar buð- ust, og gerðist hann á fjórða ára- tugnum einn hinna fyrstu áætlun- arbílstjóra þar um slóðir; ók hann lengst af milli Reyðarfjarðar og Akureyrar. Yngstu systur hans er það minnisstætt, þegar hann fyrstur manna komst á bíl alla leiðina heim að Bessastöðum, og sá hún þá í fyrsta skipti þess hátt- ar farkost, orðin 10 ára gömul. Marga hef ég heyrt bera lof á Jónas fyrir lipurð, greiðvikni og geðprýði í þessum störfum, en allt voru það eiginleikar.sem vel kom sér að vera gæddur fyrir þá, sem í þá daga börðust við að koma fólki, flutningi og farartækjum eftir þeim tröllavegum, sem þá lágu víða milli byggða á íslandi. En allt blessaðist þetta öllum vonum framar eins og kunnugt er. Árið 1943 réðst Jónas í það fyrstur systkina sinna að flytjast búferlum til Reykjavíkur. Má raunar geta þess.að flest áttu þau systkinin lungann af starfsævi sinni fyrir austan. En um þessar mundir hafði heimsstyrjöld og hernám raskað öllu jafnvægi hér- tendis eins og alkunna er. Þegar til Reykjavíkur kom var Jónas fyrst leigubílstjóri hjá Steindóri, en síðan allt til dauða- dags á eigin snærum og ók þá hjá Hreyfli. Árið 1947 staðfesti hann ráð sitt og stofnaði heimili. Gekk hann þá að eiga Aðalheiði Pétursdóttur frá Reyðarfirði. Lengst af áttu þau heima á Kambsvegi 21 hér í bæ, þar sem þau voru samvaldir Útför JÓNU ALEXANDERSDÓTTUR Úthlíö 5, fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 7. janúar kl. 3 e.h. Ingvi Þóröarson. + Útför systur minnar, GUDNÝJARPÁLSDÓTTUR fró Húsavík, Álftamýri 4, sem lést 28. des. sl., fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. jan. kl. 10.30. Kristbjörg Pálsdóttír. + Móöir okkar, GUÐRUN ÞÓRSTÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Hóli, Eskifiröi, sem lést 25. desember í Landspítalanum veröur jarösungin frá Eskifjaröarkirkju fimmtudaginn 7. janúar kl .14.00. Börnin. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, EINARS SÍMONARSONAR múrarameistara. Jónína V. Eiríksdóttir, Marel Einarsson, Stefanía Einarsdóttir, Stefán Árnason, Margrét Einarsdóttir, Sigurjón Ólafsson, Hafdís Einarsdóttir, Einar V. Einarsson og barnabörn. + Innilegustu þakkir til allra þeirra er auösýndu samúð og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, HALLDÓRS EINARSSONAR frá Kárastööum. Margrét Jóhannsdóttir, Einar Halldórsson, Ólöf Harðardóttir, Guófinna Halldórsdóttír, Hilmir Elísson, Jóhann Halldórsson, Olga Guómundsdóttir og barnabörn. + Þökkum au’ösýnda samúö viö andlát og útför móöur okkar, BJARGAR GUOMUNDSDÓTTUR frá Hofsósi. Synir hinnar látnu. gestgjafar hinna mörgu vina og kunningja, sem þangað lögðu leið sína. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið, og geta engir foreldr- ar kosið sér fegurri vitnisburðar en þau systkinin eru, jafnt um upplag sem uppeldi. Þau eru Jón, tannlæknir, kvæntur, Gunillu Skaftason, sem einnig er tann- læknir, og eiga þau þrjú börn, og Erla Kristín, bókavörður, gift Birgi Sveinbergssyni, og á hún tvö börn. Aðalheiður dó 24. júlí 1979, eftir langvinna vanheilsu, sem hún bar af hinu mesta æðruleysi. Eftir það átti Jónas heimili hjá dóttur sinni og tengdasyni á Kambsveginum. Þriðjudaginn 15. desember sl. fékk Jónas snögglega slag, þegar hann var nýkominn á fætur. Ung dótturdóttir, sem þá var nær- stödd, brá við af mikilli röggsemi og hringdi til móður sinnar, þar sem hún var við vinnu. í snatri var Jónas fluttur á sjúkra hús. En enginn fær til langframa vikið sér frá samfundunum við manninn með ljáinn, og á aðfangadag, af- mælisdag sonar síns, var Jónas allur. Um leið og góður drengur er kvaddur að loknu farsælu dags- verki, vil ég samhryggjast ástvin- um hans, börnum, tengdabörnum — og þó umfram allt barnabörn- unum, sem mér býður í grun að mest hafi misst. Bergsteinn Jónsson. í dag, á síðasta degi jóla, er til moldar borinn minn ástkæri tengdafaðir, Jónas Jónsson. Það var á aðfangadag jóla, laust fyrir hádegi, er fjölskyldan var saman komin hjá okkur í Mos- fellssveit vegna afmælis Jóns, að okkur barst fregnin um það, að hann afi væri dáinn. Alla setti hljóða og við hugsuðum, hvað get- um við gert. En svarið var auðvit- að: ekkert. Kall hans kom snöggt, þar sem hann var hress og kátur meðal okkar rétt fyrir jól, en guð almátt- ugur ræðúr ferðum okkar og því valdi verðum við að lúta. Hann afi var fæddur 20. apríl 1907 á Bessastöðum í Fljótsdal, einn af nítján systkinum. Nú, þeg- ar hann er farinn frá okkur, koma upp í huga manns ýmsar góðar minningar frá liðnum árum. Mér var hann góður tengdafað- ir, það var alltaf hægt að treysta á hann. Við áttum góðar stundir saman, þegar þau Aðalheiður heitin heimsóttu okkur í Berlín, enda var oft vitnað í þann tíma meðal okkar. Okkar bestu stundir saman voru þau skipti nú í vetur, er Jónas heimsótti mig, eftir að litla dóttir okkar fæddist. Það er ljúft að minnast þeirra samræðna, sem við áttum saman um lífið og tilver- una, en sjaldan hef ég talað við raunsærri mann en hann. Á sunnudögum kom afi alltaf í mat qg munum við öll sakna þess að hafa hann ekki hjá okkur leng- ur, því hann var barnabörnum sínum góður afi. Ég er viss um, að hann var sæll, er hann kvaddi þennan heim, sæll og ánægður með sitt ævistarf. Einn kemur þá annar fer, þann- ig er lífið. „Far þú í friði, far þú í ró, í frelsarans Jesú nafni.“ Guniila.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.