Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 27 Alþjóðamótið f Ljubljana: Síðasta umferðin skipti sköpum Alþjóðlega mótinu í Ljubljana í Júgóslavíu í desember lauk með því að júgóslavneski alþjóðameist- arinn Djuric varð hlutskarpastur með tíu vinninga af þrettán mögu- legum. Hann náði jafnframt seinni áfanga sínum að alþjóðlegum stormeistaratitli og mun því hljóta útnefningu sem slíkur á næsta FIDE-þingi. Ég, undirritaður, barð- ist lengst af um efsta sætið við Djuric, en undir lok mótsins tók nokkuð að halla á mig og er við mættumst í síðustu umferð varð ég að vinna til að eiga möguleika á efsta sæti. llm hreinan úrslitaleik var því að ræða og framan af mátti ég vel við una með svörtu. Eins og í fleiri skákum sínum á mótinu tókst Djuric hins vegar að þræða einstigið og eftir að ég hafði misst af afar vænlegum leik blasti við jafnteflislegt endatafl. Slík úrslit hcfðu hins vegar ekki þjónað nein- um tilgangi, því ég hafði þegar tryggt mér annað sætið, þannig að ég hélt vinningstilraununum áfram með andstæðum afleiðingum eins og oft vill reyndar verða. Eins og á mótinu í Subotica mánuði áður, missti ég þarna af gullnu tækifæri til að ná efsta sæti á alþjóðlegu móti. Eftir sex umferðir var ég t.d. efstur með fimm vinninga og þurfti aðra fimm vinninga úr sjö síðustu skákunum til að hljóta áfanga að stórmeistaratitli. Þá hafði ég ekki lengur vindinn í bakið og í næstu skák tapaði ég slysalega, er ég lék mig í mát í aðeins ein- um leik gegn júgóslavneska kandídatmeistaranum Mencing- er, eftir að hafa verið búinn að bjarga mér úr erfiðri stöðu. Þar með komst Djuric upp fyrir mig, en strax í næstu um- ferð tókst mér að ná honum með því að sigra Sznapik í bestu skák minni á mótinu, en hún fer hér á eftir. Síðan tefldi ég langa og erfiða skák við Barle þar sem Skák Margeir Pétursson mig vantaði alltaf herzlumuninn til að ná sigri. Þá var þreyta nokkuð farin að há mér, því nær allar skákir mínar höfðu farið í bið. Eg tefldi þá slaka skák gegn Forintos, tapaði peði, en rétt undir lok setunnar lék hann af sér og mér tókst að ná mótspili. Þá gekk síðan heppnin til liðs við mig á jafn tilþrifamikinn hátt og hún hafði yfirgefið mig í skák- inni við Mencinger. Forintos hafði skrifað skákina vitlaust niður og í stað þess að leika 40. leiknum féll hann á tíma eins og kom í Ijós eftir að við bárum skorblöð okkar saman. Það er auðvitað ekki sérlega skemmtilegt að þurfa að taka við vinningi á þennan hátt og mér varð hugsað til skákmótsins í Lone Pine fyrir tveimur árum, en þá urðu mér á sömu mistök og Forintos nú, í gjörunninni stöðu gegn bandaríska stórmeistaran- um Tarjan. En hvað um það, hvort sem það var samvizkubiti að kenna eða ,-ekki tefldi ég næstu skák mína sem var við Rakic mjög illa og sá aldrei til sólar. Þar með var stórmeistara- árangur úr sögunni, þótt ég ynni Wittmann í 12. umferð, og frí- deginum fyrir síðustu umferðina varði ég til að tefla biðskákina við Barle, en hún endaði með jafntefli sem áður segir. Ég var því í þeirri óskemmtilegu að- stöðu í síðustu umferð að þurfa að vinna með svörtu, enda fór sem fór. En hvað um það, mótið var af- ar skemmtilegt, aðstæður góðar og baráttugleði þátttakenda nær einsdæmi miðað við mörg önnur skákmót í Júgóslavíu. Það má síðan endalaust harma tækifæri sem fóru forgörðum, en fyrir- fram hefði ég auðvitað verið afar ánægður ef einhver hefði sagt mér að ég myndi lenda í öðru sæti eins og raun varð á. Með þessu móti lét ég lokið löngu skákferðalagi til Júgóslav- íu, því í stað þess að taka þátt í þriðja mótinu eins og mér var boðið upp á ákvað ég að halda í jólagleðina hér heima. Hvítt: Margeir Pétursson. Svart: Sznapik (Póllandi). Kóngsindversk vörn. 1. d4 — RfG, 2. c4 — gG, 3. Rc3 — Bg7, 4. e4 — dG, 5. f3 — 0-0, 6. Be3 — Rc6, 7. Rge2 — a6, 8. Dd2 — Hb8, 9. h4!? Hér er stundum leikið 9. Rcl eða 9. d5, en hér blæs hvítur strax til sóknar. — b5, 10. h5 — e5, 11. d5 E.t.v. sterkara en 11. 0-0-0 exd4, 12. Rxd4 — Rxd4, 13 Bxd4 — Be6, en þannig tefldu Ree, Hollandi, og Mortensen, Dan- mörku á síðasta Ólympíumóti. — Ra5, 12. Rg3 — b4, Eftir 12. — Rxc4, 13. Bxc4 — bxc4,14. 0-0-0 hefur svartur ekk- ert mótspil. 13. Rdl — c6, 14. Rf2 — Bd7, 15. b3! Hvítu peðin mynda nú geysi- sterkan fleyg sem gefa svörtum ekkert færi á mótspili. — He8, 16. Be2 — De7, 17. 04) — Rxh5?!, 18. Rxh5 — gxh5, 19. Hfbl! Sznapik er þekktur sem mikill sóknarskákmaður og í sautjánda leik gat hann ekki lengur setið á strák sínum og stofnaði til mjög snarpra vopnaviðskipta. Nú hót- ar hvítur illa 20. a3. — Rb7, 20. Dxb4 — f5!, 21. Ba7! Fyrst leizt mér ekki meira en svo á að hirða skiptamuninn.en bæði 21. exf5? — e4 og 21. Dc3 — f4 er hagstætt svarti. — Bh6, 22. dxc6 — Bxc6, 23. Bxb8 — Be3!, 24. Bxd6! — Rxd6, 25. c5 — Dh4, 26. Del — Kh8? Sznapik yfirsást 28. leikur hvíts. Bezta tilraunin var líklega 26. — fxe4, 27. cxd6 — Dg5, þó hvítur ætti að geta varizt eftir 28. Khl, 26. — Rf7 var of hæg- fara vegna 27. Bc4. 27. cxd6 — fxe4, 28. Bb5! Nú fær hvítur auðunnið tafl, því ekki dugir 28. — Bxf2+ 29. Dxf2 - Dxf2+ 30. Kxf2 - Bxb5 og hvítur er enn skiptamun yfir. — Dg5, 29. Bc6 — Hg8, 30. Dfl — Dg3, 31. Hel — Bf4, 32. Rxe4 — Dh4, 33. Df2 — Dh2+, 34. Kfl — h4, 35. d7 — h3, 36. g4 og svartur gafst upp. LJUOLJfíNfí 1Q8f STIG TIT- ILL 1 Z 3 V E & 7 8 9 10 11 12 13 /V VINN. KÓt> 1 DJURIC (Júgós/a/iu) 29(0 fíM i 1 iz iz Íz iz 1 Íz I 'iz 1 1 1 / 10 1 Z MARGEIR PÉTURSSOhl 2%0 m O 1 1 0 'íz 0 I / / iz 1 iz 1 / Siz 2 3 SZNAPIK (ftlletncli) 2Y7Ö fíM iz 0 W, iz iz iz Íz iz iz I 'k 1 / / 8 3 V MENCINGERCTLgös kv'iu 22?S Íz / iz YA, iz 0 O iz 1 0 1 0 1 / 7 V-7 5 bUKIC(JiL3ísla.y',u) IMS SM Iz ’/z Íz iz ’AA, W, iz íz 1 iz I 0 iz iz 'iz 7 V-7 (0 RAKIC (Jiígós/a/iu) 2 W0 m iz 1 iz 1 iz iz 0 Íz 0 / iz 0 / 7 Y-7 7 DANNER (ftustumki) 2Y/0 fíM 0 O iz 1 iz iz iz O I / iz iz / 7 Y-7 8 JELEN (júgosUy'.u) 2Y15 fíM Íz 0 iz iz 0 1 ,/ Iz 'A iz 'iz iz 1 iz b'iz 8-9 9 OSTOJIC (JúgóslaViu) IHS0 SM 0 0 iz 0 iz iz 1 íz iz 1 1 iz iz Vk 8-9 10 5ARLE (Jiigós/aviu) IH10 fíM iz iz 0 1 0 1 0 iz iz 1 iz iz 0 6 10 11 WlrrMfíNN (fíusturr) 2H1S fíM 0 0 iz 0 1 0 0 iz 0 O 1 1 / 5 11- fi 12 STEINEk (Tdgístav'u) 2325 0 Íi 0 1 iz Íz Íz iz 0 !z 0 iz iz S H-iz 13 F0RIN T0S (Unpnja.!) 2Y 6C SM 0 0 0 0 Íz 1 iz 0 iz iz 0 iz V/A iz 4 /3 1H POLfíJZER (Jlí)óf/ay/u 1315 0 0 0 0 iz 0 0 iz iz / 0 iz \iA m 3 Íz m Aðalfundur Verslunarráðs íslands: Rætt verður um þáttaskil í þró- un atvinnulífsins NÝ ÞÁTTASKIL í þróun atvinnu- mála, hvert stefnir og hvað er fram- undan í atvinnulífinu er meðal efnis á dagskrá aðalfundar Verslunarráðs íslands, sem halda á 25. febrúar nk. Gestur fundarins er Curt Nicolin formaður sænska vinnuveitenda- sambandsins og mun hann ræða þessi mál. Þá verður á fundinum lýst úr- slitum stjórnarkjörs, sem lýkur daginn fyrir aðalfundinn og for- maður ráðsins til tveggja ára verður kosinn beinni kosningu. í frétt frá Verslunarráði segir m.a. að Curt Nicolin sé verkfræðingur að mennt og var hann árin 1961—1976 aðalframkvæmda- stjóri ASEA samsteypunnar. Síð- an hefur hann verið stjórnarfor- maður fyrirtækisins og átt sæti í stjórn margra fyrirtækja og er nú formaður sænska vinnuveitenda- sambandsins. Árin 1961-1962 var hann fenginn til að endurskipu- leggja rekstur SAS, sem þá stóð höllum fæti og sneri hann erfið- leikum upp í blómlegan hagnað. Þá segir einnig í frétt Verslunar- ráðs, að hann hafi hlotið marg- háttaða viðurkenningu fyrir störf sín. Bridge Arnór Ragnarsson Reykjavíkurmótið í sveitakeppni Skráning á Reykjavíkurmótið í sveitakeppni er nú hafin. Svei- tarforingjar eru beðnir að til- kynna þátttöku til Guðmundar Páls Arnarsonar (s. 33989) sem fyrst, en ekki síðar en 20. jan. Mótið byrjar 24. janúar, sem er sunnudagur. Fyrirkomulagið ve- rður svipað á þessu móti og verið hefur: 16 spila leikir, allir við alla, en síðan úrslit fjögurra efstu sveitanna. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgensen. Spila- dagar eru þessir: Sunnud. 24. j*n„ kl. 13.0(1 — Hrcyfikdiúuið. Sunnud. 24. jan., kl. 20.00 (með fvrirvara) — HreyfiMiÚHÍð. Midvd. 27. jan., kl. 19.30 — Dómus Mcdica. Fimmlud. 28. jan., kl. 19.30 — Dómus Medica. Sunnud. 31. jan., kl. 1.1.00 - Hreyrdshúsid. taugard. 13. feh., kl. 13.00 — llreyfilshúsið. Sunnud. 14. feb., kl. 13.00 — llreyfilshúsið. I^ugard. 20. feb., kl. 13.00 — llreyfilshúsið. Sunnud. 21. feb., kl. 13.00 — llreyfilshúsið. Úrslitin verða svo spiluð hel- gina 6.-7. marz. Bridgefélag kvenna Fyrsta spilakvöld BK eftir áramótin verður mánudags- kvöldið 11. janúar. Þá hefst aðalsveitakeppni félagsins og verða spilaðir tveir 16 spila iei- kir á kvöldi. Konur, vinsamle- gast hafið samband við Ingunni Hoffman (s. 17987) og skráið yk- kur í keppnina. Bridgedeild Barð- strendingafélagsins Mánudaginn 14. desember sl. lauk jólatvímenningi félagsins með þátttöku 20 para (2 kvöld). Staða 8 efstu para var þannig: Ari — ísak 263 Gunnlaugur — Arnór 250 Ragnar — Eggert 239 Gísli — Jóhannes 232 Viðar — Pétur 226 Jónas — Viggó 222 Sigurður — Hermann 219 Málfríður — Helgi 217 Mánudaginn 11. janúar nk. hefst aðalsveitakeppni félagsins. Þátttaka tilkynnist til Heiga Ei- narssonar í síma 71980 fyrir 10. janúar. Hringiö í síma 35408 fs ■ -h- Blaðburðarffólk óskast VESTURBÆR Tjarnargata I og II, Nýlendugata, Vesturgata 2—45, Skerjafjörður, sunnan flugvallar, Selbraut, Garðastræti, Tómasarhagi 32—57. AUSTURBÆR Miðbær I og II, Baldursgata, Háahlíð. UTHVERFI Ármúli. Mfri&mmMaMíh

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.