Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANUAR 1982 19 Norskir bátar leggja net þrátt fyrir þorskveiðibann Osló, 5. janúar, fri Jan Krik l>aure fréltaritara Mbl. UM 20 BÁTAR lögðu í gær net þrátt fyrir þorskveiðibann yfirvalda, og þar sem fiskvinnslan mun verða við fyrirskipunum yfirvalda og ekki taka við aflanum, verða sjómennirnir annað hvort að fleygja aflanum eða selja hann einkaaðilum á bryggjunni. Alls eru um 100 sjómenn á bátunum 20, en fleiri bátar eru á leið á miðin. StrandKæzlan hefur eftirlit með bátunum sem brjóta þorskveiði- bannið og verður skýrsla um veiði- brot þeirra send lögregluyfirvöld- um. Þegar hefur verið ákveðið að þeir bátar sem bannið brjóta fái ekki ríkisstyrk þann sem aðrir bátar fá vegna veiðibannsins, sem samtals verður í tíu vikur á árinu. Verður bannið framkvæmt í áföngum, nú fyrst í tíu vikur. Fregnir hafa þegar borist af því að bátar hafa varpað aflanum fyrir borð til að mótmæla veiði- banninu, en aðrir munu reyna að selja aflann við bryggju, eða jafn- vel gefa mönnum í soðið. Akveðið hefur verið að efna til viðræðna ráðamanna og fulltrúa sjómanna og kanna með hvaða hætti megi afstýra þessari alvar- legu fiskveiðideilu. Á sama tíma hefur óánægja sjómanna með leið- toga sína aukist og kröfur um að breytingar verði gerðar á forystu sjómannasamtakanna verða há- værari. Johan J. Toft, formaður sam- taka sjómanna og útvegsmanna (Norges Fiskarlag), mótmælti framferði bátasjómanna sem reru um helgina, sagði þá hafa tekið völdin í sínar hendur og væru á góðri leið með að leggja samtökin í rúst. Samtökunum hefði vaxið fiskur um hrygg síðustu misseri og áhrif þeirra aukist, þótt ekki hefði verið tekið tillit til mótmæla þeirra við fiskveiðibanninu, sem að mati samtakanna var alltof víðtæk. „Við verðum að virða janúarbannið, en megum ekki slaka á baráttunni fyrir því að hætt verði við fyrirhuguð þorsk- veiðibönn seinna á árinu,“ sagði Toft. Fiskifræðingar halda því fram, að nauðsynlegt sé að draga úr þorskveiðum, þegar hafi verið gengið um of á stofninn. Norð- menn muni af þessum sökum eiga við erfiðleika þegar á níunda ára- tuginn líði. Sjómennirnir sætta sig ekki við niðurstöður fiskifræð- inga, sem stjórnvöld hafa tekið til- lit til, segja nóg af fiski í sjónum og veiðibönn ástæðulaus. Hætta á frekari flóðum í York ^ork, 5. janúar. AIV ALLIR voru beðnir um að vera farnir úr miðharg bresku borgarinnar York í dag klukkan þrjú vegna mikillar flóða- hættu. Iler og lögreglulið aðstoðuðu neyðarsveitir við að byggja upp varn* argarða á bökkum árinnar Ouse í Yorkshire. Ilermenn notuðu báta til að bjarga strandaglópum og allir vegir til hinnar 2000 ára gömlu borgar voru lok- aðir, Ouse-áin var 5,6 metrum hærri en venjulega, en svo mikil hefur hún ekki verið síðan 1947. Mikil flóð urðu í borginni 1978 og þá voru varnar- garðar byggðir. Þeir héldu á sumum stöðum en gáfu sig á öðrum. Þrír drukknuðu í flóðunum á Bretlandi á mánudag. Þau koma til vegna mikilla rigninga og leysinga undanfarið en desember var mjög snjóþungur á Bretlandi. Skólar lokuðu snemma í York í dag og flestir verða lokaðir á morg- un. Sfldarmjöl í kúafóður Krá frétlarilara Morj'unblaðsinN í Osló, i>. janúar. í NOREGI hefur reynst vel að hlanda sfldarmjöli saman við kúa- fóður. Sérfræðingar fuliyrða að mjólkin verði mun betri og orku- ríkari við þetta. Tilraunir í þessa átt hafa staðið í fimm ár. Heisti vandinn hefur verið að sjá hversu miklu síldarmjöli á að blanda við aðra fæðu kúnna svo bestur árangur náist. Ef of mikið síldarmjöl er notað kemur það fram í bragðinu af mjólkinni. En ef blandan er rétt verður árang- urinn mjög góður, mjólkin verð- ur hollari og gefur meiri ost. rfsmenn hann vera hæfur í hið nýja emb- ætti svaraði hann: „Eg læt forseta Bandaríkjanna — manninn sem tók ákvörðunina um að ráða mig — um að dæma það.“ Clark er 50 ára. Hann er rómversk-kaþólskur og var gagn- njósnari í seinni heimsstyrjöld- inni. Hann er lögfræðingur að mennt og sat í hæstarétti í Kali- forníu áður en hann hóf störf fyrir Bandaríkjastjórn. Hermenn reyna að bjarga kindum sem lentu í flóðunum í kringum York á mánudag. Bein útsending um „franska kfmni“ endar með ósköpum Flugust á og hótuðu hver öðrum limlestingum og dauða Farís, 4. janúar. Al\ BKIN útsending úr sjónvarpssal frá umræðum um „franska kímni og tjáningai frelsid", sem franska sjónvarpið sendi frá sér sl. laugardagskvöld, endaði með því, að þátttakendurnir flugust á, jusu hver annan svívirðingum og einn hótaði jafnvel að stytta öðrum aldur frammi fyrir alþjóð. Reyndar voru margir þátttak endanna svo kófdrukknir, að fjarlægja varð þá með valdi úr sjónvarpssal, en það hindraði þó ekki stjórnendurna í að sýna þáttinn þar til „yfir lauk“. Veður viða um heim Akureyri -11 skýjað Amsterdam -7 rigning Aþena 18 heiðskýrt Barcelona 20 mistur Berlín 9 rigning BrUssel 10 skýjað Chicago 0 skýjað Dyflinni 12 skýjað Feneyjar 6 skýjað Frankfurt 11 rigning Gent * 10 rigning Helsinki -8 skýjað Hong Kong 19 lóttskýjað Jerúsalem 11 rigning Jóhannesarborg 27 lóttskýjað Kaupmannahöfn 1 snjókoma Kairó 17 rigning Las Palmas 23 lóttskýjað Lissabon 17 rigning London 12 skýjað Los Angeles 14 rigning Madrid 12 skýjað Malaga 20 heiðskýrt Mallorka 18 heiöskýrt Mexikóborg 22 léttskýjað Miami 27 skýjað Moskva -17 skýjað New York 15 skýjað Nýja Delhí 19 léttskýjað Osló -15 léttskýjað Paris 13 skýjað Reykjavik -13 heiðskirt Ríó de Janeiro 24 rigning Rómaborg 15 léttskýjað San Francisco 12 rigning Stokkhólmur -5 snjókoma Sydney 24 skýjað Tel Aviv 16 rigning Tókýó 17 léttskýjaö Vancouver -2 snjókoma Vinarborg 7 skýjað Tilefni þáttarins var það, að viku- ritið „Charlie Hebdo“ hafði lagt upp laupana en það hefur haft það á stefnuskrá á 13 ára ferli sínum að gagnrýna ef ekki beinlínis níða niður allt það, sem liklegt er, að Frökkum sé einhvers virði — klerkana og kynlífið, menninguna og mennta- mennina og jafnvel þótti ástæða til að draga dár að dauða og útför Charles de Gaulle á sínum tíma. Á síðustu árum hefur stöðugt hall- að undan fæti fyrir „Charlie Hebdo“ og svo virtist sem það væri ekki lengur í takt við tímann. Rót- tæklingar stúdentauppreisnanna eru nú orðnir ráðsett fólk og æskan í dag hefur önnur viðhorf. „Stúdentar eru fífl,“ öskraði útgefandinn, „prófessor Choron", eins og hann kallar sig, að hópi ungmenna þegar eitt þeirra dirfðist að draga í efa, að rétt væri að varpa öllum fornum dyggðum fyrir róða. Vegna þessara tímamóta, að út- gáfu vikuritsins var hætt, ákvað stjórnandi þáttarins „Réttur til svars" að leiða saman starfslið blaðsins og nokkra hægrisinnaða blaðamenn til að fjalla um „franska kímni og tjáningarfrelsið" og ekki leið á löngu þar til „andskotinn var laus“ eins og stjórnandinn komst seinna að orði. „Það er rétt. Sumir þátttakend- anna voru útúrdrukknir," sagði hann í viðtali við blaðið Journal de Dim- anche. „En það var ekki mér að kenna. Þeir á „Charlie Hebdo" komu með sitt eigið viskí.“ Mestur var atgangurinn milli „háðfuglanna“ á „Charlie Hebdo" og tveggja hægrisinnaðra blaðamanna og þó að stjórnandinn reyndi að róa liðið kom allt fyrir ekki. Allan síðari hluta þáttarins, sem stóð í tvo tíma, gekk ekki á öðru en formælingum og klúrustu klámyrðum, gleraugu voru brotin og borðum velt og mönnum hótað jafnt limlestingum sem dauöa. Þegar þannig var komið „beinu út- sendingunni" var kallað á fíleflda karlmenn til að fjarlægja mestu fyllibytturnar, þ.á m. „prófessor Choron". Stjórnandi þáttarins hefur sætt mikilli gagnrýni i Frakklandi fyrir að sýna þessa uppákomu alla en hann svarar því til, að á þessu sé alltaf hætta í „beinni útsendingu". Hann gefur þó í skyn, að lítil hætta sé á að hne.vkslið endurtaki sig nk. laugardag, en þá verður umræðuefn- ið „undaneldi og kynbætur í frönsk- um landbúnaði". Ný kynslóð íQyiHlmögjiuK/- Vesturgötu 16. sími 13280. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: GOOLE: Arnarfell ....... 11/01 Arnarfell ....... 25/01 Arnarfell ........ 8/02 Arnarfell ....... 22/02 ROTTERDAM: Arnarfell ....... 13/01 Arnarfell ....... 27/01 Arnarfell ....... 10/02 Arnarfell ....... 24/02 ANTWERPEN: Arnarfell ....... 14/01 Arnarfell ....... 28/01 Arnarfell ....... 11/02 Arnarfell ....... 25/02 HAMBORG: Hvassafell ....... 5/01 Helgafell ....... 21/01 Helgafell ........ 7/02 Helgafell ....... 24/02 HELSINKI: Dísarfell ....... 4/01 Dísarfell ....... 5/02 LARVÍK: Hvassafell ...... 8/01 Hvassafell ...... 18/01 Hvassafell ...... 1/02 Hvassafell ...... 15/02 GAUTABORG: Hvassafell ...... 7/01 Hvassafell ...... 19/01 Hvassafell ....... 2/02 Hvassafell ...... 16/02 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ...... 6/01 Hvassafell ...... 20/01 Hvassafell ....... 3/02 Hvassafell ...... 17/02 SVENDBORG: Helgafell ........ 5/01 Hvassafell ...... 21/01 Helgafell ....... 23/01 Hvassafell ....... 4/02 Helgafell......... 9/02 Hvassafell ...... 18/02 GLOUCESTER, MASS.: Skaftafell ....... 8/01 Skaftafell ....... 8/02 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ...... 11/01 Skaftafell ...... 10/02 m SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reyk|avík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.