Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 37 Besti virkjunarkosturinn — hugleiðing um áramót Ingjaldur Tótnasson skrifar: „Eggert Haukdal lýsti því yfir fyrir jólaþinghlé, að árangurs væri ekki að vænta í virkjun- armálum, meðan núverandi orkuráðherra ornaði sér í ráð- herrastól. En hvers vegna styðja þeir sem nefna sig sjálfstæðis- menn þennan ómögulega ráð- herra? Ber það ekki vott um slæma samvisku Haukdals, að vera að ónotast út í Hjörleif? Hann hefir aðeins verið trúr margyfirlýstri stefnu Alþýðu- bandalagsins, með því að hindra alla meiriháttar orkubeislun og tryggja innreið sósíalismans í öll stærri fyrirtæki með meiri- hlutaeign ríkisins. Undir þetta jarðarmen gengu sjálfstæðis- menn í ríkisstjórn, með því að samþykkja neitunarvald komm- únista í öllum þýðingarmiklum málum. Hafa lagst á hnén Freistandi er að minnast á 7 ára stríðið við Húnvetninga um Blönduvirkjun. Þrír orkuráð- herrar úr þremur flokkum, þrjár ríkistjórnir ásamt öðru opinberu liði hafa lagst á hnén fyrir framan hina miklu hún- vetnsku höfðingja sem hafna öllum samningum og tilboðum. Svo skal alþjóð greiða mörg virkjanaverð í olíustyrki og langhunda að sunnan, sem missa 10—15% orkunnar út í loftið vegna spennufalls á allt of langri flutningsleið. Feimnismál yfirvalda? Eg lýsi undrun minni á um- mælum ýmissa stjórnarand- stöðumanna, að ein stórvirkjun sé óhugsandi, ef ekki fylgi stór- iðja, helst erlend málmiðja. Við Ingjaldur Tómasson höfum meir en nóg verkefni og nægan markað. Fjölmörg fyrir- tæki neyðast nú til að nota rán- dýra olíu. Það er hneyksli, að við skulum verða að kaupa mikinn áburð erlendis. Við höfum ótæmandi orku og hráefni fyrir stóra nýja áburðarverksmiðju. Nær óþrjótandi landsvæði bíða ræktunar hérlendis og stór hluti heimsins líður af áburðarskorti. En það er engu líkara en þessi sannindi séu feimnismál yfir- valda, hvað sem veldur. Stórsnidugir menn Eg verð að spyrja Hjörleif, hví hann hafi ekki sprengt jóla- bombu nú gegn álverinu í Straumsvík, vegna þjófnaðar í hafi. Það mál virðist nú hafa verið þaggað niður af stjórn- völdum. Otrúlegt. Það verður að viðurkennast að ráðherrar Al- þýðubandalagsins eru stórsnið- ugir menn, enda lærðir í undir- hyggjulist austantjalds. Þegar þeir neyðast til að fara frá völd- um, eru allir sjóðir tæmdir og lánstraust þrotið. Ný athafna- söm stjórn tekur við og fram- kvæmir nauðsynlegra orkubeisl- un ásamt alhliða endurreisn. Þá segja þeir bara: Þetta er allt okkur að þakka vegna góðs und- irbúnings tvö þúsund manna nefndanna, ráðanna og starfs- hópanna. Klókir menn kommar. Gleðilegt stórvirkjanaár." Morgunnámskeið í bútasaum 30 teg- undir bútasaums- blöð VIRKA Klapparstíg 25—27, simi 24747. Ameríska hand- klæðaúrvalið VIRKA Klapparstig 25—27, sími 24747. Læknar Umsóknarfrestur um dvöl í hinu nýja orlofshúsi lækna á Akureyri, nú í vetur rennur út föstudaginn 15. janúar nk. Húsiö veröur væntanlega tekiö í notk- un 12. febrúar. Skrifstofa læknafélaganna veitir allar nánari upplýs- ingar. Orlofsnefnd Kyrrsetning f atvinnuleysi Ásgeir R. Helgason hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér finnst ástæða til þess að vekja at- hygli á sérstöku vandamáli sem skapast vegna atvinnuleysis þess meðal fiskvinnslufólks, sem koma mun í kjölfar sjómannaverkfalls- ins og verkbanns atvinnurekenda. Eins og kunnugt er koma hingað til starfa á þessum vettvangi fjöl- margar stúlkur, margar alla leið frá Ástralíu. Oft eru þær á ferða- lagi um heiminn og koma í því augnamiða að vinna sér inn pen- inga til að standa straum af kostnaðinum. Nú lenda þessar stúlkur illa í því, þegar öll vinna stöðvast. Þá standa þær m.a. uppi með það, að flugmiðar þeirra eru teknir af þeim, þannig að þær eru beinlínis kyrrsettar hér í landinu. Þessi regla hefur verið sett til þess að þær geti ekki hlaupist undan merkjum, þegar þeim sýnist, en kemur sér illa þegar ástand eins og nú blasir við skellur yfir. Það er ekkert þægilegt að vera kyrrsettur í ókunnu landi, þegar engin vinna er fyrir hendi. Þessar stúlkur búa oft við illþolandi aðstæður, 3—4 í herbergi. Dæmi eru til að þær verði að þvo allan þvott af sér, jafnvel 17—18 manns, í einum vaski, og hafa enga eldunarað- stöðu nema e.t.v. eina hellu o.s.frv. Það er okkur til vansæmdar, ís- lendingum, að þetta skuli viðgang- ast svona og það hlýtur að spyrj- ast út. T.d. má búast við að skrifað verði um þetta í erlend tímarit sem fjalla um slík mál. Við ættum að athuga okkar gang í tíma og reyna að bæta úr. Ég veit til þess að stúlkurnar greiða allar gjöld til verkalýðsfélaga á hverjum stað og greiða auk þess skatta til hins opinbera, skilst mér, en hins vegar veit ég ekki til þess að þær eigi rétt á atvinnuleysisstyrkjum, meðan á vinnustöðvun stendur, þó að ég þori nú ekki að fullyrða það. En allavega er óhætt að segja að málefni þeirra séu í hers höndum eins og nú horfir. Um hvað snýst sagan? Haukur Haraldsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Við vorum nokkrir að spjalla saman og langar til að vita hvort þið get- ið grafið upp fyrir okkur stór- merkilegan hlut: Um hvað fjallar sagan sem verið er að lesa í út- varpið: Óp bjöllunnar mun hún heita. Er hægt að fá þetta upplýst einhvers staðar? Það virðist ekki nokkur maður fyrirfinnast, sem veit eða skilur um hvað sagan snýst. Og svo er annað: Því er haldið fram, að höfundur sögunn- ar sé á launum hjá okkur og sé á skáldastyrk. Er þetta rétt? Menn eru svolítið hissa á þessu „forholi" öllu saman eins og sagt er á nú- tíma íslensku. ? jazzBaLLettekóLi búpu^ Suðurveri Stlgahlíö 45, sími 83730. Bolholti 6 sími 36645. Dömur athugið Byrjum aftur eftir jólafrí 11. janúar ★ Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri Tímar tvisvar eöa fjórum sinnum í viku. Morgun-, dag- og kvöldtímar. Matarkúrar fyrir þær sem eru í megrun. Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk. Jazzdans Hinir vinsælu jazzdanstímar, einu sinni eöa tvisvar í viku í Bolholti. Stuttir hádegistímar meö Ijósum tvisvar í viku í Bolholti. Lokaöir flokkar Framhaldsflokkar ath.: Eitthvaö til af plássum í lokaða tíma. Sturtur — Sauna — Tæki — Ljós. Upplýsingar og innritun í síma 83730 Suöurveri og 36645 Bolholti. ö,njD9 no>lsqq©Tiogzzor 2 Dansskóli Kigmor Hanson. — Grímudansleikur verður haldinn á laugardaginn kemur fyrir alla nemendur skólans og gesti þeirra í K.R. húsinu. Kl. 5 er barna- dansleikur og eru foreldrar barnanna boðnir þangað ókeypis. Kl. 10 hefst dans- leikurinn fyrir fullorðna og gesti þeirra (sjá nánar í augl. í blaðinu í dag). 53^ SIGGA V/öGA £ WV)A, A9 \<VFfV5- avsko L\tmr< f'swmi mmm SKoflA L\Ýl- OWAf/ vtó/V Kf Vf(JK W W5Q \ WGUföb VFlR HANN <%\l\/ottT‘btvt \iOMUYl Lmtmmvm YlA YiAlV/VófftlSl/é? VílMLÍTA U9Pa iíL ÝEWAZÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.