Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 11 Miðhúsum: Hyggjast reka dvalarheimili fyrir aidraða að Reykhólum Úr sýningu Alþýðuleikhússins á Illum feng. Sýningar hefjast á ný á „Illum feng“ Á fimmtudagskvöld hefjast á ný sýningar í Alþýðuleikhúsinu á gam- anleiknum Illum feng eftir breska höfundinn Joe Orton. Illur fengur er gallsvartur glæpafarsi, þar sem ýmislegt óvenjulegt og krassandi gerist inni á heimili siðprúðs og strangtrúaðs ekkjumanns. Með hlutverkin í leiknum fara Arnar Jónsson, Bjarni Ingvarsson, Bjarni Steingrímsson, Borgar Garðarsson, Helga Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson, leikmynd og búninga gerir Jón Þórisson. Næsta sýning er á laugardag. Á morgun, föstudaginn 8.1., hefjast aftur sýningar á leikriti Vitu And- ersen, Elskaðu mig, sem sýnt var við mikla aðsókn fyrir jól, en höf- undurinn er einmitt staddur hér á landi um þessar mundir. Hún verður viðstödd sýninguna á Elsk- Bókmenntaverð- laun Norður- landaráðs ákveð- in 22. janúar llthlutunarnefnd Bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs kemur saman í Stokkhólmi 22. janúar og ákveður þá hvaða bókmenntaverk hlýtur verðlaunin. Af íslands hálfu sitja í nefndinni þeir Hjörtur l’álsson og Njörður I’. Njarðvík. Það eru fulltrúar frá fimm Norðurlöndum sem nefndina skipa en Færeyjar hafa þar ekki fulítrúa. Þau tvö íslensk verk sem lögð hafa verið fyrir nefnd- ina eru: „Heimkynni við sjó“, eftir Hannes Pétursson og „Sag- an af Ara Fróðasyni og Hug- borgu konu hans“, eftir Guðberg Bergsson. Skákþing Kópavogs á laugardaginn Skákþing Kópavogs hefst nk. laugardag, 9. janúar 1982, kl. 14.00. Teflt verður að Hamraborg 1, kjallara, á laugardögum og mið- vikudagskvöldum, alls 7 umferðir eftir Monrad kerfi. Tímamörk verða 2 klukku- stundir á 40 leiki og síðan 1 klst. á hverja 20 leiki þar framyfir. Þátttökugjald hefur verið ákveðið kr. 100,- fyrir fullorðna, en kr. 50,- fyrir unglinga (19 ára ogyngri). Sérstakt drengjameistaramót (14 ára og yngri) hefst að þessu móti loknu. aðu mig á sunnudagskvöldið og mun ræða við áhorfendur á eftir um verk sín. Barnaleikritið Sterkari en Súp- ermann er einnig komið úr jólafríi og á sunnudag kl. 15.00 hefjast sýningar á því á ný. (Króttatilkynning) Mióhúsum, 4. janúar. í GÆR var stofnfundur í sjálfseign- arfélagi, sem hyggst reisa og reka dvalarheimili fyrir aldraða á Reykhólum. Með þessum fundi var lagt inn á nýjar brautir, því að full- trúaráðið er kosið af velflestum fé- lögum í Geiradals- og Reykhóla- hreppi. Áuk hreppanna tveggja má nefna eftirtalin félög í þessum hreppum: Búnaðarfélag Geira- dals- og Reykhólahrepps, Kvenfé- lagið Liljan í Reykhólasveit og Kvenfélagið í Geiradal, söfnuðir Garðsdals- og Reykhólakirkju, Verkalýðsfélagið . Brandur, Reykhólum og Kaupfélag Króksfjarðar, en það nær yfir þrjá hreppa í Austur-Barða- strandarsýslu, Gufudalshrepp, Reykhólahrepp og Geiradals- hrepp. Sennilega eiga eftir að bætast við fleiri félög og hreppar og má þar til nefna Flateyjarhrepp, en hann hefur sýnt jákvæðan vilja, en á þessum tíma árs eru sam- göngur erfiðar milli lands og eyj- ar. Þá má gea þess, að oddviti Gufudalshrepps var mættur á stofnfundinn, en var ekki sam- mála undirbúningsnefnd, sem hafði undirbúið þennan fund, um leiðir i öldrunarmálum, en áhugi var mikill hjá honum fyrir mál- efnum aldraðra. Hins vegar eru allar leiðir opnar fyrir hreppa og aðra, sem vilja stuðla að fram- gangi þessa máls. Fyrirhugað er að reisa íbúðir fyrir 14 manns, fern hjón og sex einstaklinga. Stofnunin verður sjálfseignarstofnun. í aðalstjórn voru kosnir, auk sóknarprests, en það er bundið í lögum félagsins, að Reykhólaprestur skuli eiga sæti í stjórninni, vegna þess að hann er sameiningartákn allra sýslubúa, Halldór Gunnarsson, útibússtjóri Samvinnubankans í Króksfjarðarnesi, Guðlaug Guð- mundsdóttir, Tindum, starfsmað- ur símans í Króksfjarðarnesi, Halldór Kristinsson, bóndi Skerðingsstöðum og Sveinn Guð- mundsson, Miðhúsum. í vara- stjórn voru kosnar: Eygló Bjarnadóttir, Reykhólum, Ingi- björg Kristjánsdóttir, hjúkrun- arkona, Garðsdal og Indíana Ólafsdóttir, Reykhólum. Stjórnin kaus séra Valdimar Hreiðarsson, Reykhólum, fyrir formann stjórnar. Þess má geta, að undir- búningsnefnd hefur starfað í því sem næst tvö ár. Hún hefur safn- að gögnum, kynnt sér viðhorf fólks og rekstur stofnana, svipuð- um þeirri sem fyrirhugað er að reisa. Ólafur E. Ólafsson, fyrr- verandi kaupfélagsstjóri, hefur alltaf verið reiðubúinn að leggja undirbúningsnefnd allt það lið, sem hann hefur getað. Fréttaritari er alkunnugur þessum málum og minnist þess ekki, að nokkru máli hafi verið tekið með meiri skilningi og vel- vilja í þau 26 ár, sem hann hefur starfað fyrir Morgunblaðið í Austur-Barðastrandarsýslu. Framundan eru mikil verkefni, sem vonandi tekst farsællega að leysa. Gleðilegt ár. — Sveinn. Frumsýning Nýr 127 special 3 dyra Sýndur í fyrsta sinn utan Italíu Gúmmíkantar á hliöum Nýtt grill og studarar 170 lítra farangursgeymsla Fiat 127 hefur löngum sannað ágæti sitt og verið mest seldi bíll Evrópu, samfleytt 6ár ekki að ástæðuiausu. Hér á íslandi hefur umboðið til þessa ekki annað eftirspurn, enda bíllinn skilað einu hæsta endursölu- verði á markaðnum. Glæsilegt mælabord og innrétting, m.a. fallega tau- bólstrad sæti, teppalagöur í hólf og gólf, niöurfellanleg aftursæti, rúllubelti, og margt fleira. Fiat 127 special 3 dyra. Nú er rétti tíminn til aö gera bestu bílakaupin í ár. Veró á götu 82.898.- / FÍAT EINKAUMBOO A ISLANDI DAVÍÐ SIGURÐSSON hf. / SMIÐJUVEGI 4, KÓPAVOGI. SÍMI 77200. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.