Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 18
X 8 MORGUNBLAÐfÐ, LAUGAJiRMiURí27. FEBRÚÁR,1982 Skattheimta og vöxtur ríkisvaldsins hefiir leitt til stöðnunar Hér fer á eftir í heild setn- ingarræda Hjalta Geirs Kristjánssonar, fráfarandi formanns Verzlunarráðs ís- lands á adalfundi ráðsins sl. fimmtudag: Gódir félagar og gestir. Um leið og ég býð ykkur vel- komna til þessa aðalfundar vil ég alveg sérstaklega bjóða velkomna gesti okkar á þennan aðalfund, þá dr. Curt Nicolin og dr. Gylfa Þ. Gíslason. A þeim tima, sem liðinn er frá því við komum saman til aðal- fundar fyrir tveimur árum, hafa nokkrir félagsmanna látist. þeir eru: Gunnar J. Eyland, Einar Kristjánsson, Baldvin Einarsson, Jón A. Bjarnason, ísleifur Jóns- son, Davíð Sigurðsson, Björn Snæ- björnsson, Sveinn Valfells og Sveinbjörn Jónsson. I virðingu við þessa látnu fé- lagsmenn Verzlunarráðs Islands vil ég biðja viðstadda að rísa úr sætum. Merkisár í sögu VÍ Arið í ár er merkisár í sögu Verzlunarráðs Islands í ýmsum skilningi. G5 ára afmæli. Aðalfund Verzl- unarráðsins ber nú upp á 65. af- mælisár ráðsins, en það var stofn- að 17. september árið 1917. Enn er ekki afráðið með hvaða hætti þessara tímaóta verður minnst, en það fellur í hlut næstu stjórnar ráðsins að ákveða það. Nýtt húsnæði. Það er skemmtileg tilviljun, að starfsemin flytur í nýtt húsnæði okkar í Húsi verzl- unarinnar einmitt á þessu afmæl- isári, en ákveðið er að skrifstofur ráðsins opni á hinum nýja stað 1. júlí nk. Unnið er nú ötullega að öllum undirbúningi þessara breyt- inga, en að mörgu er að hyggja bæði varðandi skipulag og innrétt- ingar á hæðinni sjálfri, svo og eðlilegri endurnýjun á ýmsum skrifstofubúnaði. Gólfpláss 7. hæðarinnar, sem er séreignarhluti Verzlunarráðs er rúmlega 500 fer- metrar, en í húsakynnunum að Þverá hefur starfsemin farið fram í töluvert þrengra húsnæði og á þremur hæðum. Brottflutningur frá Þverá er okkur vissulega nokkur söknuður, en þar hefur skrifstofa ráðsins verið frá árinu 1962. Verzlunarráð eignaðist húsið Þverá með kaup- um af Fríðu Proppé, ekkju Páls Stefánssonar, frá Þverá, en fyrir það fé var stofnaður sjóður til minningar um þau sæmdarhjón, sem ber nafn þeirra. Umhyggja þeirra Páls Stefáns- sonar og Frípu Proppé og áhugi fyrir framgangi Verzlunarráðs verður seint að fullu þakkaður. Hefur framkvæmdastjórn ráðsins, í virðingarskyni við þau, hreyft þeirri hugmynd, að munum úr búi þeirra verði komið fyrir i hinum nýju húsakynnum. Nýtt merki. Þriðja atriðið, sem gerir árið 1982 að merkisári í sögu ráðsins, er, að nú tekur Verzlun- arráð í notkun nýtt félagsmerki, sem hér er í fyrsta sinn á öllum prentuðum gögnum. Merkið er teiknað hjá einum af félíMfum ráðsins, Auglýsingaþjónustu Ólafs Stephensen. Þetta nýja merki sýnir okkur ekki einungis stafina VÍ á mynd- rænan hátt, heldur er það einnig táknrænt fyrir markmið Verzlun- arráðsins. Það minnir okkurx'á / blómið, sem táknar vöxtinn og eld- inn, sem er tákn frelsisins. Er það vel við hæfi, því að Verzlunarráð er kyndilberi frjálsra atvinnu- hátta og vill stuðla að vexti og grósku í atvinnulífi landsmanna. Er það von mín, að þetta nýja merki eigi eftir að falla félögum ráðsins jafnvel og það gamla hef- ur gert. Ný stefna. Loks er rétt að nefna fjórða atriðið sem markar tíma- mót í sögu ráðsins, en það er, að nú leggur Verzlunarráð fram stefnu sína í efnahags- og at- vinnumálum í endanlegri útgáfu, eins og hún var samþykkt á Viðsk- iptaþingi sl. haust. Verzlunarráð hefur lagt mikla vinnu í gerð þess- arar stefnuskrár, og þar hafa margir lagt hönd á plóginn: Félag- ar ráðsins, stjórn og starfslið. Stefnan felur í sér heildarvið- horf Verzlunarráðs til efnahags- og atvinnumála, bæði markmið og leiðir. Er stefnan mikilsvert inn- legg í þjóðmálaumræðuna og til- lögur Verzlunarráðs til nýrrar sóknar í atvinnulífinu á grundvelli frjálsra atvinnuhátta. Helztu störf 1980 og 1981 í ársskýrslu Verzlunarráðsins, sem hér liggur frammi, er ítarlega greint frá störfum ráðsins á árun- um 1980 og 1981. Engin tök eru á því að rekja efni hennar hér, en þó langar mig til að drepa á nokkur atriði. Á tveimur síðustu árum hefur starfsemi skrifstofu Verzlunar- ráðsins verið með líku sniði og undanfarin ár. Ráðið annast rekstur upplýsingarskrifstofu og telexþjónustu, sem 32 fyrirtæki nýta sér, og veitir hagfræðilega og lögfræðilega ráðgjöf. Framkvæmdastjórnin hélt alls 58 fundi á síðasta starfstímabili og aðalstjórn 21 fund. Þá voru haldnir almennir félagsfundir meðal annars um skattamál og verðlagsmál og Verzlunarráðið stóð að ráðstefnum í samvinnu við önnur samtök og félög. Sérstakt átak var gert til að afla nýrra félaga og hefur þeim fjölgað um 64 frá síðasta aðalfundi. Aðil- ar að Verzlunarráði eru nú orðnir um 430 og er sérstök ástæða til að fagna þessum árangri. Verzlunarráð hefur sem fyrr lagt áherzlu á málefnanlega um- fjöllun og sjálfstæða tillögugerð, sem byggir á stefnu þess í efna- hags- og atvinnumálum. Verzlun- arráð hefur lagt sérstaka áherzlu á að fylgjast náið með störfum al- þingis. Á síðustu tveimur þingum mun Verzlunarráðið hafa sent umsagn- ir um eða gert athugasemdir við um ein 40 þingmál svo eitthvað sé nefnt. Kannsóknarverkefni. Verzlun- arráð hefur staðið að nokkrum rannsóknarverkefnum á starfs- tímanum og vil ég geta tveggja þeirra sérstaklega. Seint á árinu 1979 var skipuð nefnd til að taka fyrir starfsemi Pósts og síma. Nefndin gerði tillógur um úrbætur á þjónustu Pósts og síma. Þar má nefna tiUögu um afnám einkaleyf- is á sölu notendabúnaðar, niður- fellingu 30% aukaálags á verzlun- ar- og atvinnusíma og tillögu um endurskoðun á afsláttarkerfi póstsins. í framhaldi af starfi- nefndarinnar náðist sá árangur að frjálsræði var aukið í innflutningi símtækja, sem er nú á síðustu misserum að skila sér í fjölþætt- um nýjungum á markaðnum. Einnig hefur afsláttarkerfi pósts- ins verið breytt. Þar hefur nefnd um opinber innkaup unnið mikið starf. Grein- argerð nefndarinnar er því sem næst tilbúin og þar á eftir að koma margt athyglisvert fram. Ekki gefst tóm til að kynna niður- stöður hennar hér. Það fellur í hlut næstu stjórnar ráðsins að taka afstöðu til niðurstaðna ncfndarinnar og hvernig þær skuli kynntar. Samningur VÍ og VSÍ. í desember síðastliðnum var undirritaður samningur milli Verzlunarráðs ís- lands og Vinnuveitendasambands íslands um samstarf, verkaskipt- ingu og tengsl milli samtakanna. Með þeim samningi er kveðið á um, að Verzlunarráð hafi einkum efnahags- og viðskiptamál með höndum gagnvart stjórnvöldum, en Vinnuveitendasambandið efna- hags- og kjaramál. Með samn- ingnum hættir Verzlunarráðið beinni aðild að gerð kjarasamn- inga, þótt það haldi áfram tengsl- um við Lífeyrissjóð verzlunar- manna og Félagsheimilasjóð. Verzlunarráð lætur það hins vegar félögum sínum eftir að ákveða með hvaða hætti þeir vilja tengj- ast kjarasamningum, en tryggði þeim einungis rétt til að eiga beina aðild að VSÍ, ef þeir óska. Gerðardómur endurreistur. Verzlunarráð endurreisti Gerð- ardóm sinn í viðskiptamálum á síðasta starfstímabili. Gerðar- dómurinn hefur þann tilgang að skera úr um ágreiningsmál, sem geta komið upp í viðskiptum, og eru niðurstöður hans bindandi. Kostir Gerðardómsin8 eru meðal annars þeir, að málsmeðferð tekur skemmri tíma en fyrir venjulegum dómstólum auk þess sem íslenzk- um fyrirtækjum gefst kostur á að reka mál, sem upp kunna að koma vegna ágreinings í viðskiptum við erlenda aðila, fyrir innlendum -gerðardómi, sé þess gætt að koma ákvæðum þar um inn í viðskipta- samninga. Kéltarverndarsjóður. Á árinu 1981 gekkst Verzlunarráð fyrir stofnun sérstaks Réttarverndar- sjóðs í vörzlu ráðsins. Tilgangur- inn með þessari sjóðsstofnun er að hvetja einstaklinga og fyrirtæki til að leita réttar síns fyrir dóm- stólum gagnvart ákvörðunum stjórnvalda og annarra opinberra aðila, sem ætlað er að brjóta gegn ákvæðum laga, reglugerða eða stjórnarskrár svo og hvers konar valdníðslu, sem beint er gegn at- vinnurekstri í landinu. Nú þegar hefur verið ákveðið að Réttarverndarsjóður styrki málss- ókn eins af félögum Verzlunarráðs á hendur ríkisvaldinu vegna ál- agningar kjarfóðurgjaldsins. Gildi slíkra málssóknar felst ekki að- eins í því að hjálpa einstaklingum til að ná rétti sínum, heldur felst það einnig og ekki sízt í því að veita stjórnvöldum aðhald og gæta þess að þau fari ekki út fyrir verksvið sitt. Viðskiptaþing. Verzlunarráð hélt fjórða Viðskiptaþing sitt 15. október 1981 og var þar fjallað um framtíð einkarekstrar. Helztu niðurstöður þingsins voru þær, að nauðsynlegt væri að efla einka- reksturinn í landinu og skapa hon- um stærra starfssvið, bætt starfsskilyrði og aukið frjálsræði. Stefna Verzlunarráðsins í efna- hags- og atvinnumálum var einnig samþykkt á Viðskiptaþinginu. Til þeirrar stefnuyfirlýsingar hefur verið vel vandað og er það von mín að hún eigi eftir að reynast drjúgt veganesti í starfsemi Verzlunar- ráðsins á næstu árum. Ég ætla ekki að tíunda efni hennar hér, en um þessar mundir er stefnan að koma út í vönduðum búningi og næsta skrefið er að kynna hana vel fyrir stjórnvöldum og almenn- ingi. I tengslum við Viðskiptaþingið var gerð nokkur úttekt á einka- rekstri og umsvifum hins opin- bera. Því starfi verður haldið áfram og er það eitt af þeim meg- inverkefnum sem sett hafa verið á framkvæmdaáætlun fyrir næsta starfstímabil. Kfnahags- «g vidskiptamál Ég hef hér að framan drepið á nokkur atriði úr almennri starf- semi ráðsins. Þótt þessi viðfangs- efni séu mikilvæg, lætur Verzlun- arráðið sig þó mestu skipta, þau starfsskilyrði, sem atvinnulífinu eru búin á hverjum tíma. Allar aðgerðir í efnahags- og viðskipta- málum, stjórn þessara mála og sú stefna, sem fylgt er á þessu sviði, snertir kjarnann í starfsemi Verzlunarráðsins. Verðbólgan. Verðbólgan er viss mælikvarði á gæði hagstjórnar, enda er stöðugt verðlag yfirleitt yfirlýst markmið í efnahagsmál- um og nauðsynleg forsenda heil- brigðrar efnahagsstarfsemi. Frá ársbyrjun 1972 til ársloka 1981 — á 10 árum — hefur verðlag hér- lendis 30faldast, eða m.ö.o. hækk- að um 40% árlega til jafnaðar. Enn er ekkert lát hér á og virðist Verzlunarráðinu, að verðlag muni ___________________________________ hækka um 50% í ár og verðbólgan fari vaxandi í árslok. Orsakir verðbólgunnar eru í stórum dráttum kunnar: Röng fjarfesting, misbeiting verðjöfn- unarsjóðs fiskiiðnaðarins, erlend skuldasöfnun, vaxandi skatt- heimta og óraunhæfir kjarasamn- ingar. Öll þessi atriði má lagfæra og til eru leiðir til þess að vinna á verðbólgunni á skömmum tíma, án þess að atvinnuleysi hljótist af. Einmitt er æskilegt að fara leiðir eins og Verzlunarráðið bendir á í stefnuskrá sinni, þar sem sam- hliða er lagt til að ráðast í nýja framfarasókn til að efla atvinnu- lífið og fjölga arðbærum atvinnu- tækifærum, um leið og unnið er á verðbólgunni með snöggu mark- vissu átaki. Verðbólgan eyðir verðmætum og grefur jafnt og þétt undan at- vinnulífinu. Útfærsla landhelg- innar, aukinn afli og gott verð á afurðum okkar bjargaði miklu á síðasta áratug. Nú horfir ekki lengur svo vel. Undan því verður því ekki lengi skotizt að grípa til raunhæfra aðgerða gegn verðbólg- unni. Skýrsla starfsskilyrðanefndar. Nýlega skolaði áliti nefnd, sem ríkisstjórnin skipaði í september 1980 til að gera samanburð á starfsskilyrðum atvinnuveganna. Niðurstöður nefndarinnar eru ýmsar mjög fróðlegar og falla saman við málflutning og baráttu- mál Verzlunarráðs, að atvinnu- lífinu verði búin sömu starfsskil- yrði og því sé ekki mismunað í löggjöf og athöfnum stjórnvalda. Af tillögum nefndarinnar má nefna, að hún leggur til að jafna launaskatt milli atvinnugreina og afnema aðstöðugjald. Engin trygging er þó fyrir því, að tillögur nefndarinnar komist í fram- kvæmd. Þeim er t.d. ekki fylgt í því frumvarpi um launaskatt, sem nú er fyrir alþingi og við sáum hvað varð um afnám aðstöðu- gjaldsins fyrir áratug. Nefndir eru góðar, til síns brúks, þegar það á við. Á síðari árum virðist þó færast í vöxt, að nefndir séu skip- aðar til að fela stefnuleysi og slá ákvörðunum á frest. Stefnuleysið og aðgerðarleysið er að verða einkenni stjórnmálanna. Mörg fleiri dæmi má taka. Verðlagsmálafrumvarp. Fyrir al- þingi liggur nú frumvarp til breyt- inga á verðlagslögum. Einkenni þess er stefnuleysi. Þar er alþingi ekki ætlað að ákveða, hvort fylgt skuli frjálsri verðmyndun eða haftastefnu. Sú stefnuákvörðun er látin verðlagsráði eftir, sem jafn- vel getur einnig skotizt undan þeirri ábyrgð og falið þriggja manna nefnd undir forsæti verð- lagsstjóra allt ákvörðunarvald sitt. Tollkrít. Annað dæmi er greiðslufrestur á aðflutnings- gjöldum. í september á sl. ári skil- aði nefnd, sem fjármálaráðherra skipaði, tillögu um frumvarp ásamt greinargerð í ítarlegri skýrslu, hvemig innleiða mætti slíkan greiðslufrest. Vann nefndin mjög fljótt og vel, en fram- kvæmdastjóri Verzlunarráðs átti sæti í nefndinni fyrir hönd ráðs- ins. Enn hefur frumvarpið ekki komið fram á alþingi 5 mánuðum síðar. Þegar er þó farið að nota tilvist þess að einu leyti, og það án eðlilegs tilefnis, til að réttlæta nýja tekjuöflun fyrir ríkissjóð, svokallað tollafgreiðslugjald. Orkumál. Alvarlegasta dæmið um aðgerðarleysi og stefnuleysi er staðan í orkumálum. Hvar á að virkja? Hver á að kaupa orkuna? Þannig má spyrja, en engin svör er að fá. í orkumálum hefur ríkisvaldið lögverndaðan einkarétt sem mein- ar einkaaðilum að reisa virkjanir. Einkaaðilum eru einnig settar skorður í margvíslegri löggjöf, svo að þeir stofni ekki til stjóriðjuvera einir sér eða í samvinnu við er- lenda aðila til að skapa verðmæti úr þeirri orku sem framleidd er í landinu. Þessi skipan er einnig áhyggju- efni fyrir þá sök, að þetta svið býður okkur mesta möguleika á komandi árum. Ef ríkisvaldið á að reisa orkuverin og reka stóriðju- Ræða Hjalta Geirs Kristjánssonar á aðalfundi Verzlunarráðs íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.