Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 + Eiginmaöur minn, GUDMUNDUR JÓNSSON, Eyöi-Sandvík, andaöist i Sjúkrahúsi Suöurlands aöfaranótt 26. febrúar. Fyrir hönd barna og annarra vandamanna, Kristín Bjarnadóttir. t Elskuleg móðir mín og tengdamóöir, DAGBJORT ÓLAFÍA ÞORSTEINSDÓTTIR, Langholtsvegi 73, lést 26. febrúar. Fyrir hönd vandamanna, Kristjana Guójónsdóttir, Aöalsteinn Stefánsaon. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUÐMANN SIGURJÓI SIGFÚSSON frá Ægissíðu, Lindargötu 42, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1. mars kl. 13.30. Katrín Guómannsdóttir, Steingrímur Guöjónsson, Matthildur Guömannsdóttir, Olga Steingrimsdóttir. + Útför móöur okkar og tengdamóöur, GUDRÚNARHELGADÓTTUR frá isafirói, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1. mars kl. 15.00. Valgeröur Stefánsdóttir, Aöalsteinn Jónsson, Sigríður Stefánsdóttir, Karl Guðmundsson. + PÁLL SIGURGEIRSSON, Hvassaleiti 153, Reykjavík, verður jarösunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 1. mars kl. 13.30. Steinunn Theódórsdóttir, Gylfi Pálsson, Ellen og Sverrir Pálsson, Helga 1. Helgadóttir. + Bróöir minn, JÓN STURLAUGSSON, Skúlagötu 58, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1. mars kl. 10.30. Þóröur Sturlaugsson. + Þökkum af alhug alla hjálp, hlýju og samúö viö andlát og jaröarför mannsins míns og fööur okkar, GUDLAUGS GUÐMANNSSONAR, Þorsteinsgötu 19, Borgarnesi. Guö blessi ykkur. Helga Haraldsdóttir og börnin. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför eigin- manns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, SVAVARSÁRNASONAR. Ingunn Ólafsdóttir, Árni Svavarsson, Guóbjörg Björnsdóttir, Ólafur Svavarsson, Þórdís Eyjólfsdóttir, Svavar Svavarsson, Stella Kristjánsdóttir, Gunnar Svavarsson, og barnabörn. + Þökkum auösýnda samúö og hlýju viö andlát og útför móður okkar og tengdamóöur, JÓHÖNNUGUNNLAUGSDÓTTUR frá Litla-Ósi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á sjúkrahúsinu á Hvammstanga fyrir góöa umönnun. Þorvaldur Björnsson, Unnur Agústsdóttir, Gunnlaugur Björnsson, Ursula Björnsson, Jón Björnsson, Hildur og Aöalsteinn Michelsen, Ingibjörg Björnsdóttir, Jón Stigsson, og barnabörn. Laufey Lilliendahl Selfossi - Minning Fædd 31. maí 1902 Dáin 21. febrúar 1982 I dag fer fram frá Selfosskirkju útför frú Laufeyjar Lilliendahl, en hún lézt í Landakotssspítala eftir alllanga vanheilsu, en stutta sjúkrahúsvist að morgni sunnu- dagsins 21. febrúar. Laufey fæddist á Vopnafirði 31. maí 1902 og var þvf á 80. aldursári, er hún lézt. Foreldrar hennr voru hjónin Ágústa Jónasdóttir frá Kjarna í Eyjafirði og Carl J. Lilliendahl kaupmaður á Akur- eyri. Hann var sonur Carls Lilliendahls, hafnsögumanns á Skálanesi í Vopnafirði, Jakobsson- ar Lilliendahls beykis á Vopna- firði, Lorenzsonar Lilliendahls, beykis á Akureyri, sem fluttist fyrstur sinna ættmenna til ís- lands og giftist íslenzkri konu. Hann var fæddur í Flensborg í Slesvig 1768 og dó á Akureyri 1841. Þeim Carli og Ágústu varð fjög- urra barna auðið. Auk Laufeyjar, þiggja sona, sem allir störfuðu sem símritarar. Elstur var Theo- dór, skrifstofustjóri ritsímans í Reykjavík, sem lést 25. nóv. sl., Jónas, fulltrúi bæjarsímastjórans í Reykjavík, lést 12. mars 1975 og yngstur var Alfreð, símritari á Siglufirði, lést 25. sept. 1969. Laufey var barn að aldri, er fjöl- skylda hennar fluttist búferlum til Akureyrar og faðir hennar tók við bókarastarfi hjá verzlun Ottós Thuliníusar. Að loknu venjulegu barnaskólanámi, hóf Laufey nám við gagnfræðaskólann á Akureyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi vorið 1920. Hóf hún þá störf hjá landsímastöðinni á Akureyri og starfaði þar samfellt næstu tíu ár- in, ef undan er skilin rúmlega misserisdvöl í Kaupmannahöfn við frekara nám og lauk þar námi í húsmæðraskóla. Veturinn 1929—’30 lágu leiðir Laufeyjar suður á land að heim- sækja æskuvinkonu sína, Ölfu Pétursdóttur, konu Eiríks Ein- arssonar útibússtjóra Landsbank- ans í hinni nýju byggð við Ölfus- árbrú. Það átti síðar fyrir hinni norðlenzku heimasætu að liggja að eiga þar heima næstu 4 áratug- ina sem mikilsvirt húsmóðir og una hag sínum vel. Við bankann starfaði þá systursonur Eiríks, Einar Pálsson, frá Hlíð í Gnúp- verjahreppi. Felldu þau hugi sam- an og giftust sumardaginn fyrsta 1931. Bjuggu þau fyrsta misserið í lítilli íbúð í Bankahúsinu. Þá var Selfoss ekki til í þeirri mynd, sem við þekkjum í dag. Norðan þjóð- vegarins voru þá ekki önnur hús komin en Tryggvaskáli, Pósthúsið Bankahúsið og Mjólkurbúið. Allt svæðið norðan vegarins voru þess utan móar og melabörð sem biðu nýrra landnema. Og þarna riðu hin ungu hjón á vaðið, keyptu iandspildu norður við ána og reistu þar fallegt íbúð- arhús og nefndu Svaibarð. Örlögin höguðu því svo, að það var einmitt faðir minn, Kristinn Vigfússon, sem þau réðu til þess að reisa hús- ið. Oft minntist hann þessa sumars með mikilli ánægju — sem eins þess bezta, sem hann hefði lifað. Hann svaf þar í tjaldi og veðrátt- an var með eindæmum góð. Allan júlímánuð kom ekki skúr úr lofti. Annað tjald höfðu þau Einar og Laufey þar á barðinu, og þar eld- aði hún um sumarið. Lax var þar oft á borðum, því laxveiði var þá með eindæmum í Ölfusá, svo að menn mundu ekki annað eins. Minntist faðir minn þess oft síðar, hvað sér hefði liðið þarna vel við smíðarnar og viðurgerning Lauf- eyjar og þeirra hjóna. Taldi hann að þetta hefði ráðið úrslitum, að hann afréð að setjast að á Selfossi og kaus að eiga þau að sínum næstu nágrönnum. Reisti sitt eigið hús þá um haustið og lauk því um vorið. Þá hófst sú nágrannavin- átta, sem ekki varð betri á kosin. Einkum vou þær Aldís, móðir mín, og Laufey, sérlega samrýndar og mikill trúnaður á milii þeirra. Og í skjóli þeirrar vináttu ólumst við bræðurnir upp. Oft minntist Laufey á æsku- stöðvar sínar, Akureyri, sem olli því, að í huga okkar bræðranna í Árnesi var í æsku okkar meiri ljómi yfir Akureyri en nokkrum stað öðrum norðan fjalla. Laufey var myndarleg og elsku- leg húsmóðir, sem laðaði fólk til sín og með henni fluttist ferskur og gamall menningarblær frá Ak- ureyri. Á heimili þeirra Laufeyjar og Einars var því oft gestkvæmt. Einar þekkti marga og bauð óspart ferðamönnum og gömlum sveitungum heim í mat og kaffi, og alltaf tók Laufey jafn elskulega á móti öllum, hvernig sem á stóð. Auk húsmóðurstarfsins tók Lauf- ey nokkurn þátt í félagsmálum og var kosin í fyrstu stjórn Kvenfé- lags Selfoss, þegar það var stofnað 1948. Þeim Laufeyju og Einari varð fjögurra barna auðið. Þau eru: Gestur f. 16. marz 1933, ljósmynd- ari í Reykjavík, Ágústa f. 11. sept. 1935, stúdent og kennari, gift Guð- jóni Styrkárssyni hrl., Páll, f. 1. febr. 1937 d. 15. maí s.á. og Einar Páll f. 26. okt. 1939, vélstjóri, verk- stjóri hjá Stálvík í Garðabæ. Einar hóf starf við útibú Lands- bankans á Selfossi í nóvember 1921 og varð útbússtjóri í sept. 1935. Hann lét af því starfi 1. des. 1971 og hafði þá starfað við útibú- ið í 50 ár. Þá fluttust þau til Reykjavíkur, þar sem þau Laufey bjuggu síðan að Dyngjuvegi 12, en hann lézt 19. júní 1980. Ég vil að leiðarlokum þakka Laufeyju ævilanga vináttu og ótal ánægjustundir, bæði á æskuárun- um í hinu góða nágrenni og síðar, er ég gerðist starfsmaður bank- ans. Vandaðri konu í viðkynningu og sérstaklega í umtali hef ég ekki kynnst. Ég óska henni blessunar í nýjum heimkynnum og sendi börnum hennar og fjölskyldum þeirra alúðarkveðjur. Guðm. Kristinsson Með þessum fáu línum vil ég minnast Laufeyjar K. Lilliendahl, sem lést 21. febrúar sl. eftir skamma sjúkrahúslegu. Síðasti dagur í lífi hennar var bjartur og hlýr eins og fagur vor- dagur og var það vel, því birtan og hlýjan einkenndu Laufeyju alla tíð. Er mig rekur fyrst minni til, fyrir um 30 árum, höfðu þau Lauf- ey og Einar heitinn Pálsson, föð- urbróðir minn, búið í húsi sínu í rúm 20 ár. Oft minntust þau hjón- in á þær ánægjustundir þegar þau hófu búskap sinn í tjaldi á bakka Ölfusár sumarið 1930 og reistu þar hús sitt. Það sumar skein sól oft í heiði og mér finnst eins og sú sól, er þar gaf þeim hjónum geisla sína hafi ávallt skinið yfir þeim eftir það. Mér er það í barnsminni hve til- hökkunin var rík að koma í heim- sókn á heimili þeirra hjóna. Þar ríkti í senn umhyggja og ástúð fyrir þeim yngstu, fáguð fram- koma og fas heimsborgarans, glaðværð og glettni þeirra er vildu og gátu öðrum gefið. Laufey flutti með sér á bakka Ölfusár akureyrska menningar- arfleifð og siðfágun og einkenndu þessir þættir hana alla tíð. Heim- ili þeirra hjóna var sannkallað menningarheimili, sem hverjum og einum varð hollt af að kynnast. Mér eru í fersku minni ýmsar kurteisisreglur, sem Laufey kenndi mér sem barni, sömuleiðis eru kurteisislegar málfarsábend- ingar Einars frænda míns mér hugstæðar. Menn kunna að halda að slíkar umvandanir við æsku- fólk hafi haft þau áhrif, að það laðaðist ekki að þeim, er þær gáfu. En það var öðru nær, enda gert á þann hátt, sem höfðingjum einum sæmir, með hógværð og lítillæti ellegar kerskni og gamni. Er leið að jólum hlökkuðum við frændsystkinin á Reynivöllum mest af öllu til jólaboðsins hjá Laufeyju og Einari, enda hvergi til sparað að auka á ánægju okkar barnanna. Fyrir 12 árum fluttu þau hjónin til Reykjavíkur, þegar Einar lét af störfum í bankanum. Fannst mér þá skarð fyrir skildi. Fyrir hug- skotssjónum mínum voru þau hjónin tákn þeirrar reisnar, sem einkenndi byggðarlag þeirra um langan aldur. Én þetta er lífsins saga. Laufey er okkur horfin á annað tilveru- svið. Fyrir allt, sem hún gaf mér vil ég þakka að lokum, alla um- hyggju, ástúð og hjartagæzku og hlýju. Fjölskylda mín, foreldrar og systkini biðja henni blessunar á guðs óförnu stigum með þökkum fyrir allt. Ágústu, Gesti og Páli ásamt þeirra fjölskyldum sendum við innilegustu samúðarkveðjur. Helgi Bjarnason. Ég held, að það hafi verið komið fram í miðjan ágúst árið 1931, að við sáum karl og konu koma áleið- is yfir engjarnar til okkar, þar sem við fólkið á Hæli vorum að slá og raka. Það hafði eitthvað rignt um morguninn, og það var vel rakt í og beit vel á og teigurinn stækk- aði ört, enda rakstrarkonur nægi- lega nærri til þess að við sláttu- mennirnir héldum okkur vel að slættinum og litum varla upp. En hvaða fólk gat þetta verið, sem átti leið um teiginn hjá okkur þennan síðsumardag, mildan og hlýjan og með vaxandi heiðríkju á suðurlofti að sjá yfir Þríhyrning og Vestmannaeyjar. Jú, þetta var enginn annar en Einar Pálsson frændi okkar frá Hlíð, bankaritari á Selfossi og unga konan, sem með honum var, nett og fríð og létt í spori var nátt- úrlega engin önnur en konan hans, Laufey Lilliendahl frá Akureyri, en þau giftust snemma vors þetta ár. Nú voru þau að heimsækja æskustöðvar Einars, höfðu komið með áætlunarbílnum að Geldinga- holti og þaðan var ekki nema klukkustundar gangur að Hlíð og því sjáifsagt að kynna okkur, frændfólkið á Hæli, fyrir henni laufeyju, strax og þau komu auga á okkur þarna á teignum. Unga konan bauð þegar við fyrstu kynni af sér svo góðan þokka, var svo blátt áfram, að þarna varð hún strax eins og ein af okkur, vingjarnleg og elskuleg, en þeir eiginleikar hafa fylgt henni þau rúm 50 ár sem liðin eru síðan. Þau Einar og Laufey reistu snoturt einbýlishús norður undir Ölfusá skammt frá bankahúsinu á Selfossi og nefndu það Svalbarð. Nafnið átti vel við staðinn, þegar þau hófust handa við að byggja þarna, en innan fárra ára urðu þarna mikil stakkaskipti bæði úti og inni, því að fljótlega gerðu þau fagran garð umhverfis húsið með fjölbreyttum og þroskamiklum trjágróðri og innan dyra voru þau hjónin samhent um að skapa hér eitt hlýlegasta menningarheimili í héraðinu. Nafnið á húsinu varð því hið mesta öfugmæli, enda féll það að mestu í gleymsku, en þang- að komu margir, því að húsráð- endur voru einstaklega gestrisnir og var heimili þeirra, á meðan þau

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.