Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 48
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiðslunni er 83033 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 Vidskiptahallinn jafnvirdi árs- launa 13.700 verkamanna VIÐSKIPTAHALLI íslendinga 1981 nam 946 m.kr., eða sem svarar árslaunum 13.700 verkamanna í dagvinnu. Þessa dag- ana er Ragnar Arnalds fjármálaráðherra að undirrita lána- skjöl í Lundúnum, afborgunarlaus fyrstu fjögur árin, sem samsvara sameiginlegu fasteignamati alls íbúðarhúsnæðis í kjördæmi hans, Norðurlandskjördæmi vestra, að Hornafirði viðbættum. I’etta kom fram í ræðu Kjartans Jóhannssonar í umræðu á Alþingi í gær um „bandorm“ ríkisstjórnarinnar. Lárus Jónsson sagði stefnt í meiri skuldaaukningu 1982 en nokkru sinni fyrr í sögu þjóð- arinnar, þrátt fyrir ráðgerðan 40% samdrátt á árinu í orku- og iðjuframkvæmdum og 30% samdrátt í hitaveitufram- kvæmdum. Gaf út gúmmítékka fyrir hundruð þúsunda króna LANDSBANKI íslands hefur sent Kannsóknarlögreglu ríkisins kæru vegna þriggja innstæðulausra ávís- ana, sem hankinn keypti og stílaðar voru á Barcley’s-bankann í Lundún- um. Landsbankinn keypti í desem- ber þrjár ávísanir að upphæó liðlega 9 þúsund pund, eða sem nam um 150 þúsund krónum. Maðurinn hafði stofnað reikning, en hafði ekki Einar Hákonarson mótmæl- ir listkynningum í sjónvarpi Sjónvarpið fékk ekki að mynda sýningu hans á Kjarvalsstöðum Á BLAÐAMANNAFUNDI, sem Einar Hákonarson listmálari hélt í fyrradag vegna opnunar á málverkasýningu sem hann opnar á Kjar valsstöðum í dag, óskaði hann eftir því að sjónvarpsmenn héldu sig fjarri og bað hann fulltrúa sjónvarps, sem kom á fundinn, að víkja af honum. „Þetta mál allt á sér nokkurn aðdraganda," sagði Einar þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Þegar árið 1971 mótmælti Fé- lag íslenzkra myndlistarmanna fréttafiutningi sjónvarps frá myndlistarsýningum. Þá var sagt frá myndlist í lok frétta- tíma á föstudögum. Eftir þessi mótmæli kom Vökuþátturinn, sem nú er orðinn að mestu þátt- ur um kvikmyndir og leiklist. Síðast þegar ég hélt mál- verkasýningu, þá vildi ég ekki fara í þessa ruslakistu sjón- varps, sem myndlistarmenn kalla sín á milli, vegna þess að ekki er lagt neitt mat á myndlist í sjónvarpi, eins og gert er með leiklist, tóniist og svo framvegis. Fréttaflutningur sjónvarps af menningarviðburðum er al- mennt fyrir neðan allar helltjr, en ef bolta er lyft, þá er rokið upp til handa og fóta,“ sagði Einar. Þess má geta, að þegar Kjart- an Guðjónsson listmálari hélt sýningu á Kjarvalsstöðum í fyrra, óskaði hann ekki eftir nærveru sjónvarps, af svipuðum ástæðum og Einar. A fundi útvarpsráðs í gær vakti Erna Ragnarsdóttir máís á því að Ríkisútvarpið tæki upp einhverja stefnu varðandi gæða- mat á list vegna þáttarins „Á döfinni" í sjónvarpinu, en þar er vikulega greint frá helstu menningarviðburðum. Taldi hún rétt að þátturinn væri áfram á dagskrá til að sinna þessu hlut- verki sínu, en meiri háttar list- viðburðir yrðu teknir á dagskrá með öðrum hætti. Á fundinum gerði Erna að til- lögu sinni að starfsmenn sjón- varps legðu fram valkosti um efnismeðferð fyrir fundi út- varpsráðs, sem síðan tæki ákvörðun um hvaða leið skyldi farin. Hún benti á að ráða mætti sérstakan listráðunaut um myndlist sem hefði m.a. það verkefni með höndum að meta hvað teldist til meiri háttar listviðburða. Einnig kæmi e.t.v. til greina að fja.Ha sérstaklega um t.d. sýningar viðurkenndra sýningarsala þar sem ákveðið gæðamat hefði þegar farið fram. Ríkisútvarpið verður að leggja mat á gæði þess sem flutt er og gera ákveðnar kröfur. Hlutleysi í þessum efnum er í raun útþynn- ingarstefna. Fólk þarf að geta treyst því að það sem flu.tt er og fjallað er um í útvarpi eða sjón- varpi sé af ákveðnum gæðum. Is- lensk menning stendur og fellur með okkar bestu listamönnum og það er nauðsynlegt að gera þeim eitthvað hærra undir höfði en öðrum, sagði Erna að lokum. Gert er ráð fyrir að tillögur frá sjónvarpsmönnum verði teknar upp á fundum útvarpsráðs fljót- lega. á löglegan hátt gert grein fyrir hon- um fyrir íslenzkum gjaldeyrisyfir völdum. Maður þessi var tekinn til yfir- heyrslu hjá RLR í vikunni og við- urkenndi hann að hafa vísvitandi gefið út innstæðulausar ávísanir á reikninginn, sem hann stofnaði í Lundúnum. Þá barst RLR kæra í gær vegna innstæðulausrar ávísunar, sem maðurinn gaf út á innlent ávís- anahefti. Mbl. er kunnugt um, að maðurinn stofnaði heildsölufyrir- tæki í desember síðastliðnum og komst yfir ávísanahefti með því að fá systur sína sem prókúru- hafa. Hann var síðan óspar á út- gáfu ávísana og var reikning hans lokað 29. janúar vegna yfirdráttar, en síðan reikningnum var lokað hafa borist innstæðulausar ávís- anir fyrir um 250 þúsund krónur. Við rannsókn kom í ljós, að mað- urinn hefur leyst til sín og samið um greiðslur á megninu af inn- stæðulausu ávísununum, sem hann gaf út á innlenda ávísana- heftið. Maður þessi á að baki langan feril fyrir fjármálamisferli. I>að var líf og fjör í rennibrautinni á nýju dagheimili við Ægissíðu í gær, þar sem Ijósmyndari Morgunblaðsins, Kristján Örn Elíasson tók þessa mynd. Morfínlyf fjarlægð úr gúmmíbjörgunarbátum ,Líklegast aldrei þurft ad nota þau við sjóslys,“ segir Hjálmar R. Bárðarson nrr i nnnii f naiKT n* i . r _n_! • ■ ' ■ r i_ e a u ? tt!/i STARFSMENN Siglingamálastofnunar ríkisins hafa nú haf- ist handa við að fjarlægja morfín og önnur vanabindandi lyf úr gúmmíbjörgunarbátum íslenzka flotans, en önnur lyf, sem ekki eru vanabindandi verða framvegis í bátunum, sem fyrr. „Læknar hafa almennt verið Ur aldrei þurft að nota þessi mjög á móti því, að morfín og ávanalyf verði fjarlægð úr gúmmíbjörgunarbátum, en ég lét gera könnun á því hve oft hefur þurft að nota morfín og önnur sterk vanabindandi lyf við sjóslys hér við land. Niður- staðan varð sú að líklegast hef- Mikil hækkanaskriða framundan: Hækkanir á bilinu 7 til 15% MIKIL hækkanaKkriða er nú fram- undan og koma flestar hækkananna til framkvæmda á næstu dögum. Mest er það ýmiskonar þjónusta sem hækkar, en það hefur aftur áhrif til hækkunar vöruverðs. Þær hækkanir, sem nú eru framundan eru almennt á bilinu 7,5% til 15%. Morgunblaðinu er kunnugt um eftirtalið, sem hækkar á næstu dögum: steypa hækkar um 12%, sement um 12%, sandur og möl um 12%, farmgjöld flutningaskipa um 8%, fargjöld olíuskipa innanlands um 13,5%, farmgjöld og fargjöld í innanlandsflugi um 7%, fargjöld á sérleyfisleiðum og í hópferðum um 12%, flutningataxtar Landvara um 15%, gjaldskrá vinnuvélaeig- enda um 14%, útseld vinna hækk- ar um 7,5% og neyslufiskur um 7,5%. lyf. Þegar það varð ljóst taldi ég augljóst að fjarlægja bæri morfín úr bátunum, enda er sí- fellt verið að brjótast í þá og stela morfíni og vanabindandi lyfjum. Ég er þeirrar skoðunar að mikilvægast sé að koma bát- unum heilum í sjó, heldur en að eiga á hættu að þeir séu óvirkir þegar á þarf að halda, vegna skemmdarverka," sagði Hjálm- ar R. Bárðarson siglinga- málastjóri þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Það sem réði þessari ákvörðun minni einnig, var að Ólafur Ólafsson landlæknir studdi mig í málinu og eru starfsmenn Siglingamálastofn- unarinnar þegar farnir að fjar- lægja morfín og önnur vana- bindandi lyf úr gúmmíbjörgun- arbátunum," sagði Hjálmar ennfremur. Siglingamálastofnun hefur nú gefið út rit um notkun gúmmíbjörgunarbáta og er rit- ið hið fyrsta í flokki sérrita sem Siglingamálastofnunin hyggst gefa út. í ritinu er nákvæmlega skýrt frá notkun bátanna, og hvað í þeim er. Ákveðið er að pakka riti Sigl- ingamálastofnunar í vatnsþétt- ar umbúðir og koma því fyrir í gúmmíbjörgunarbátunum og hafa menn því leiðbeiningarn- ar um borð þegar á þarf að halda. IttorjEjxtnblnfoib Frá og með 1. mars nk. kost- ar mánaðaráskrift Morgun- blaðsins kr. 110 og í lausasölu kr. 7. Grunnverð auglýsinga verð- ur frá sama tíma kr. 66 pr. dálksentimetra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.