Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.02.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1982 27 AFMÆLISTÓNLEIKAR FÍH: Árai Khrar ttegir aögukatla tr jassinum. Hauki Morthens fylgdi sannkölluð Broadway-stemmn ing Björn R. rifjaði upp sögu um Sibaba Sibaba og minnti á að þegar hann söng þetta lag á sín- um tíma fyrir 30—40 árum hafi menn gagnrýnt það opinberlega að nú stefndi í það að börnin syngju Sibaba Sibaba í staðinn fyrir Bí bí og blaka, en þrátt fyrir það hefur hið síðarnefnda lifað bærilega af. Það var sannkölluð Broadway-stemmning eins og hún gerist bezt við þá rómuðu götu í New York þegar Haukur Morthens gafí á sviði skemmtistaðarins Broadway á afmælishátið Fé- lags íslenskra hljómlistarmanna sl. fimmtudagskvöld þegar tekinn var fyrir ferill íslenzkra hljómsveita frá árunum 1942 til 1952. Húsið var þétt setið gestum sem skemmtu sér vel, enda gamalreyndir listamenn sem voru á ferðinni með fágað- an stíl og glæsilegan. Rómantíkin sigldi í sal- inn með gömlu dönsunum Ij.íkerhihtilegir hljómlistarmenn og söngvarar eru til hér á landi, listamenn sem væru í fremstu röð hvar sem er í heiminum þar sem hinn vestræni stíll er við lýði. Björn R. Einarsson og hljóm- sveit tóku næst til við árarnar og var ekki að spyrja að leiks- lokum. Þeir fylgdu vel eftir stuði Hauks og rifjuðu upp kunn lög, bæði sungin og leikin án söngs. Það var ofsa stuð á þeim félögum og skemmtilegt að sjá þá enn einu sinni í réttu ljósi, þ.e. öndvert við aðalstarf þeirra nú, að leika með Sin- fóníuhljómsveit Islands. Þegar Björn R. söng Sibaba Sibaba fór kliður um salinn, því þar var á ferð eitt af hinum gömlu góðu lögum sem margar kynslóðir hafa raulað af vörum fram og einnig má nefna lögin Twelfth Street Rag og Alexanders Rag Time Band. Haukur Morthens í dúndrandi stuði. Ijóamyndir \lhl. EmiUt Björnadóllir. Það var óskemmtilegt fyrir gesti Broadway að heyra í bor- Sigg* Maggj og Áageir Srerriaaom. Björn R. Kinarsson meó vinu stna, bisúnunn. Það var Grettir Björnsson harmonikkuleikari sem reið á vaðið með miklu trukki, enda er hann orðinn sígildur snillingur á nikkuna. Hljómsveit hans lék með sveiflustílnum svokallaða, eins og Hrafn Pálsson kynnir kvöldsins orðaði það, og nikkan naut sín vel. Lög hljómsveitar Grettis Björnssonar komu strax við hjartað í gestum Broadway og gömlu góðu dagarnir rifjuð- ust upp, þessir gömlu góðu sem eru þó síungir eins og sú tónlist sem Grettir og hans lið léku. Asgeir Sverrisson og hljóm- sveit með söngkonunni Siggu Maggý kom næst fram, dæmi- gerð hljómsveit gömlu dans- anna, sem hætti fyrir nokkrum árum eftir áratuga sífelldan leik á dansleikjum og skemmt- unum við góðan orðstír. Sigga Maggý lék á als oddi eins og aðrir félagar sveitarinnar og líf og fjör var þeirra aðall. Þá kom til sögu Árni Elvar með tríó sem sagði sögu jassins í stórum dráttum og hóf Árni lotuna á því að leika Scott Jopl- in, en það er með ólíkindum sú leikni og þekking sem Árni býr yfir á þessu sviði, enda var flyg- illinn eins og hugur hans og hvern „söguþátt" túlkaði hann af frábæru öryggi. Hánn sýndi skemmtilega og fjölbreytta mynd af jassinum en umfram allt ljóðræna og lagvissa. Með hljómsveit Braga Hlíð- bergs sigldi rómantíkin í salinn, enda léku þeir félagar af fingr- um fram eins og það gerðist bezt á gömlu dönsunum bæði fyrr og síðar. Þeir hófu leik sinn á blíðu tónunum og síðan fór stemmningin stigvaxandi, enda allt miklir listamenn sem koma við sögu í hljómsveit Braga. Þótt segja megi að margar stjörnur í íslenzkum hljómlist- arheimi hafi komið fram á Broadway í gærkvöldi má segja með sanni að Haukur Morthens hafi verið stjarna kvöldsins. Þessi síungi söngvari sem er bú- inn að syngja samfleytt opin- berlega í 36 ár var í dúndrandi stuði og kom fram með miklum glæsibrag og af þeim léttleika sem hann er þekktur fyrir. Hann söng alkunn lög eins og Lóu litlu á Brún og fleiri góð sem allir kunna í hjarta sínu og viðbrögð áheyrenda spruttu fram eins og blóm á vori meðan Haukur lék á als oddi. Haukur fór í rauninni eins og eldur í sinu um salinn og undirstrikaði það hve margir snjallir og vélum ofan úr bíóhöllinni fyrir ofan Broadway, þar sem verið var að festa sæti í sal, en á með- an dagskráin fór fram var sú vinna þó stöðvuð. Að öðru leyti var rífandi fjör upp á gamla móðinn, enginn æsingur, en blik í augum fólks og bros á vör þeg- ar gömlu kempurnar voru í ess- inu sínu og menn hittu gamla „vini“ á ný. á.j. Illjomsvvit Áageirs Srerrissonnr og Siggn Mnggý. Hljómsveit Brngn HMÓberg ásnmt tiunnnri Kgik, t.uómundi R Kimnrssyni og Oeirum. iiretiir Björnsson þenur nikkunn meé tilþrifum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.