Morgunblaðið - 23.07.1982, Side 1
56 SÍÐUR
159. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Iranir segjast hafa eyði-
skriðdreka Iraka
Bandaríkjamanna
lagt 380
Nikósíu, 22. júlí. AP.
ÍKANSKA stjórnin greindi frá því í
dag, að herir hennar væru komnir 22
kilómetra inn í írak og hefðu búið þar
um sig. Hefðu 2 þúsund iraskir her-
menn fallið og varnir íraka verið
brotnar á bak aftur. Af hálfu íraks-
stjórnar hafa þessar fréttir verið born-
ar til baka og segja írakar að innrás-
arliðið hafi verið „upprætt".
í tilkynningu írönsku herstjórn-
arinnar segir aö 380 íraskir skrið-
drekar hafi verið eyðilagðir í inn-
rásinni, þeirra á meðal 16 mjög
fullkomnir skriðdrekar af sovézkri
gerð.
Mjög erfitt er að henda reiður á
ástandinu í stríði írans og íraks þar
sem stríðsaðilarnir senda frá sér
mjög mismunandi yfirlýsingar og
hvorugur leyfir erlendum frétta-
mönnum að fylgjast með gangi
stríðsins.
Innrás írana nú, er önnur fram-
rás þeirra inn í írak frá því þeir
tóku frumkvæði í stríðinu fyrr í
þessum mánuði og sneru við taflinu
í þessu stríði, sem hófst fyrir tæp-
um tveimur árum með innrás íraka
í íran.
íraskar herþotur gerðu í dag loft-
árásir á tvær borgir í suðurhluta
írans til að hefna fyrir loftárás ír-
ana á olíuvinnslustöð i Bagdad í
gær.
París, W&shington, 22. júlí. AP.
FRANSKA stjórnin tilkynnti f dag
formlega að hún myndi virða að vett-
ugi ákvörðun Bandaríkjastjórnar um
að beita þau fyrirtæki refsiaðgerðum,
sem seldu búnað frá Bandaríkjunum í
gasleiðsluna frá Síberíu. Skipaði
franska stjórnin fyrirtæki einu i
Frakklandi, sem hefur framleiöslu-
lcyfi á bandarískum búnaði og hafði
samið um sölu í leiðsluna, að halda sér
við samninginn.
Franska stjórnin hefur með þessu
gengið lengra í máli þessu, en aðrar
ríkisstjórnir í V-Evrópu, sem enn
sem komið er hafa látið sér nægja
að lýsa andstöðu við ákvörðun
Bandaríkjastjórnar. Helmut
Schmidt, kanzlari V-Þýskalands,
sem nú er staddur í Bandaríkjunum,
sagðist í dag styðja ákvörðun
Frakka og myndu reyna að fá
Bandaríkjamenn ofan af fyrri
ákvörðun sinni í málinu.
Af hálfu Bandaríkjastjórnar var
sagt í kjölfar tilkynningar Frakka,
að sérfræðingar væru nú að kanna
leiðir til að framfylgja banninu við
sölu á bandariskum búnaði í leiðsl-
una. Búast má við aukinni spennu í
samskiptum helztu ríkja V-Evrópu
og Bandarikjanna vegna þessa máls
á næstunni.
í tilkynningu frönsku stjórnar-
innar segir að Frakkar „geti ekki
fallizt á einhliða aðgerðir Banda-
ríkjastjórnar sem tilkynntar voru
18. júní sl.“.
Yassir Arafat flytur bænir í minningu fallinna félaga sinna við minnismerki um liðna pislarvotta í Vestur-Beirút
í gær. (Símamynd AP)
„Bretar hlusta
ekki á annað en
sprengingar“
London, 22. júlí. AP.
„BRETAR hlusta ekki á annað en
sprengingar," segir talsmaður
írska lýðveldishersins, IRA, í viö-
tali við vikurit í Belfast, sem taliö
er hlynnt málstað lýðveldishers-
Góðgæti bíð-
ur særðu
hestanna
London, 22. júlí. AP.
HESTURINN Sefton, sem var
elztur þeirra klára sem urðu fyrir
barðinu á írskum sprengivörgum
i London fyrr i vikunni, er nú
allur að hjarna við. Hann særðist
á 38 stöðum á skrokknum, m.a. á
auga, en opnaði í dag i fyrsta
sinn augaö eftir árásina og gat þá
virt fyrir sér þær krásir sem
hestavinir í Bretlandi og aðrir að-
dáendur hafa sent honum.
Að sögn yfirdýralæknis kon-
unglega riddaraliðsins, sem
annast hefur Sefton og átta
aðra hesta sem komust lífs af
úr árásinni, hefur borizt mikið
magn af sykurmolum, gulrót-
um, eplum og öðru góðgæti frá
dýravinum nær og fjær. Einnig
hafa borizt peningar ætlaðir til
kaupa á góðmeti handa hestun-
um.
ins. Að sögn bresku lögreglunnar
Scotland Yard, bendir margt til
þess að ný herferð sprengjutil-
ræða sé i undirbúningi á vegum
IRA.
Leynilögreglumenn frá Scot-
land Yard settu í dag á svið at-
burðinn í Hyde Park á þriðju-
dag, og lögðu eins bíl á sama
stað í garðinum og þar var þá
með sprengju innanborðs. Von-
ast lögreglan til þess að myndir
af bílnum á þessum stað muni
auðvelda vitnum að átta sig á
því sem fyrir augu bar. Lögregl-
an hefur þegar fengið vitneskju
um manninn, sem lagði bílnum í
garðinum hálfri klukkustund
áður en sprengjan sprakk. Er
hans nú ákaft leitað.
Sjötíu og tveir borgarar hafa
látið lífið í sprengjutilræðum
IRA í Bretlandi síðastliðin tíu
ár, en atburðurinn á þriðjudag
var hinn fyrsti sinnar tegundar
í átta mánuði.
Riddaraliðsmenn minntust í
dag félaga sinna sem létu lífið í
Hyde Park. Var athöfnin hljóð-
lát og hátíðleg haldin í Hyde
Park. Tugir áhorfenda fylgdust
með athöfninni, þeirra á meðal
Nicola Daly, ekkja eins riddara-
liðanna sem létu lífið. Hún og
maður hennar höfðu verið í
hjónabandi í fjórar vikur þegar
hann féll frá.
Risaskipið
Hercules
sekkur
Á myndinni sést risaolíuskipið
Hercules hverfa í djúpið skammt
undan suðurhluta Brazilíu I gær.
Skip þetta varð fyrir loftárás Arg-
entínumanna langt undan strönd-
um Falklandseyja, á meðan stríðið
um eyjarnar geisaði, þótt það hafi
verið skráð í Líberíu og verið á
siglingu utan við hernaðarsvæðið.
Eigendur skipsins sáu þann kost
vænstan að sökkva skipinu eftir að
Ijóst varð að ekki mundi takast að
gera óvirka sprengju, sem festist í
vélarrúmi skipsins. (Stalmjnd Ap,
Gasleiðslan frá Síberíu:
Frakkar skeyta
ekki um hótanir
sínum í Jerúsalem í morgum þar
sem fjallað var um horfur á sam-
komulagi um brottflutning PLO-
skæruliðanna frá Beirút.
í tilkynningu Sýrlandshers seg-
ir að þotur ísraelsmanna hafi gert
árásir á stöðvar hersins í Bekaa-
dalnum og með því stefnt í voða
sáttastarfi Habibs. Sýrlendingar
segjast hafa tekið hraustlega á
móti árásarmönnunum.
Habib, hinn sérlegi sendimaður
Bandaríkjastjórnar í deilunni,
kom í dag í óvænta heimsókn til
Damaskus til viðræðna við sýr-
lenska ráðamenn. Var sagt í Dam-
askus að viðræðurnar væru mjög
„aðkallandi og mikilvægar".
Egypzka stjórnin fordæmdi
árásir ísraelsmanna í dag og sama
er að segja um önnur Arabaríki
svo og sovézku stjórnina.
Habib kominn til Sýrlands
Jerúsalem, Beirút, Damaskus, 22. júlí. AP.
ÍSRAELSKAR orrustuþotur og
skriðdrekar gerðu í dag harðar árás-
ir á stöðvar sýrlenzkra hermanna og
palestínskra skæruliða í austurhluta
Líbanons og í Beirút. Eru bardag-
arnir i dag þeir hörðustu sem orðið
hafa í mánuð.
ísraelsmenn segjast hafa gert
árásirnar í dag til að hefna fyrir
það að Sýrlendingar og Palestínu-
menn hafi 75 sinnum brotið
vopnahléð milli aðila á undanförn-
um tveimur vikum. Segja ísra-
elsmenn að árásirnar hafi verið
„takmörkuð aðgerð" og ekki ætl-
aðar til að hindra samningavið-
leitni Habibs, sendimanns Banda-
ríkjastjórnar.
Meðal skotmarka ísraelska
flughersins í dag voru aðalstöðvar
Frelsissamtaka Palestínu, PLO, í
vesturhluta Beirút. Skæruliðar
beittu Ioftvarnaeldflaugum sínum
gegn vélunum en fréttamenn í
borginni telja að engin eldflaug
hafi hæft.
ísraelska stjórnin ákvað árás-
irnar í dag á sérstökum aukafundi
Hörðustu bardagar
í Líbanon í mánuð