Morgunblaðið - 23.07.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1982
7
Innilegar þakkir til allra, sem glöddu mig meö heim-
sóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli mínu, 16.
júlí s.L
Bára Sigurjónsdóttir,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Hjartanlega þakka ég öllum sem glöddu mig á 85 ára
afmæli mínu þann 3. júlí sl. Sérstaklega þakka ég böm-
um mínum, tengdabömum, bamabömum, frændfólki
og vinumfyrir gjafir og alla vináttu.
Guö blessi ykkur ölL
Guörún Ólafsdóttir
frá Unaösdal.
Rafsuðu- Rafkapals-
tæki tromlur
Súlu- Málningar-
borvélar sprautur
Verkfæra-
kassar
Þráðlaus
borvélmeð
hleðslutæki
Loftpressur
Smerglar
Hleðslutæki
Cmhell
vandaðar vörur
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 81722 og 38125
*
„Island að
verða
gjaldþrota"!
ITpphaf leiðarans hljóðar
svo:
„ísland er að verða
gjaldþrota, meðan gersam-
lega ábyrgðarlausir lands-
herrar spjalla um, hvort
veita eigi 80 milljónum
króna í styrki til útgerðar
og 30 milljónum í viðbót-
arstyrkj.'til landbúnaðar.
I*vir ' haga sér sem þeir
ytfru á tunglinu.
Fyrir aðeins þremur ár-
um, 1979, fóru 13% af út-
flutningstekjum okkar t að
greiða vexti og afborganir
af erlendum lánum. í ár
munu 19—20% af útflutn-
ingstekjum hverfa í þessa
híL Þetta er rosalegt stökk
á aðeins þremur árum.
Heildarskuldir íslands
hafa á þessu skamma ára-
bili hækkað úr 35% i 40%
þjóðarframleiðslu eins árs.
I>ær jafngilda nú orðið
ftmm mánaða þjóðarfram
leiðslu og nema um 80.000
nýkrónum á hvert manns-
barn i landinu, þar á meðal
börn og gamalmenni.
Svo virðist sem þetta
ástand eigi enn eftir að
versna. Landsherrarnir
hafa fyrir framan sig tölu
Þjóðhagsstofnunar, þar
sem spáð cr 7,5% viðskipta-
halla á næsta ári og 7,5%
árið þar á eftir. Fyrír þess-
um halla þarf að slá erlend
lán.
Þetta getur aðeins endað
með skelfingu, nema
landsherrarnir vakni af
sætum draumum skuttog-
arakaupa og annarra fyrir-
greiðslna Framkvæmda-
stofnunar og Byggðasjóðs.
I>eir verða að hætta að
ímynda sér, að þeir vaði í
peningum.“
„Landsherr-
arnir veðsetja
bömin okkar“!
Jónas Kristjánsson segir
áfram:
„Landsherrarnir eru að
veðsetja börnin okkar. Þeir
spara sér erfiðið við að
I m lctð i»g »tð Ityortuni (x nn.vn glastlega velkominn, skulum við hropa ferfalt hurra fyrir
lilskjaranirturlalningunni!!
„Hallar undan fæti...“
Jónas Kristjánsson, ritstjóri, var ekki einn
þeirra sem spáöu núverandi ríkisstjórn óför-
um, er henni var ýtt úr vör. Þaö kemur
hinsvegar annað hljóö úr hans horni í leiöara
Dagblaösins og Vísis, 20. júlí sl., þegar hann
felur framtíð ríkisstjórnarinnar í fyrirsögninni
„Hæg leið til helvitis". Þar höföar ritstjórinn
til þjóökunnrar stöku Bólu-Hjálmars:
„Oft hefur heimsins gálaust glys
gert mér ama úr kæti;
hæg er leiö til helvítis
— hallar undan fæti“l
stjórna eins og menn með
því að varpa ábyrgðinni á
þá, sem eiga að taka við á
næstu áratugum. I>etta
mun örugglega leiða til
landflótta og hruns þjóðfé-
lagsins.
Það kemur ekki til
nokkurra mála, að við get-
um leyft landsherrunum að
halda áfram með þessum
hætti. Viðskiplahallinn á
næsta ári má ekki verða
neinn, né heldur árin þar á
eftir. Stöðva verður hina
hægu leið til helvítis.
Við getum hjálpað lands-
herrunum með því að við-
urkenna sjálf, að við lifum
um efni fram. Við kaupum
erlendan gjaldeyri á út-
söluvcrði til að afla okkur
lúxusvarnings. Við verðum
að átta okkur á, að fyrir
þessari eyðslu er ekki
nokkur grunnur.
Kn það má ekki nefna
orðið „gengislækkun" í
eyru sumra ráðheranna,
svo fjarri eru þeir hinum
efnahagslega raunveru-
leika. Ef skrá ætti gengið
rétt og stöðva útsölu gjald-
eyrís, mundi þurfa að
minnsta kosti 30% gengis-
lækkun.
Önnur aðferð til að
stöðva hrunið er að draga
úr fjárfestingu. Hún nemur
nú um 25% eða fjórðungi
þjóöarframleiðslunnar.
Þetta er of hátt hhitfall,
jafnvel þótt svo vel væri, að
fjárfestingin væri í nyt-
samlcgum og arðbærum
hlutum."
„Óhófleg
stækkun flski-
skipastólsins“
Leiðari DV lýkur með
þessum orðum:
„Arum saman hefur fjár-
festing í hinum hefð-
bundna landbúnaði,
offramleiðslunni á kjöti og
mjólkurvörum verið hin
sama eða meiri en fjárfest-
ingin í iðnaði. Þessi rán-
yrkja fær sjálvirk fjárfest-
ingarlán svo að styrkirnir
megi dafna og hlómgast.
A sama tíma hefur ríkið
stuðlaö að rányrkju hafsins
og óhóflegri stækkun fiski-
skipaflotans með því að út-
vega 95—105% lán til
skipakaupa. Ofan á þetta
eru landsherrarnir svo að
gamna sér við steinullar-
ver, sykurver og önnur
vonlaus ver.
Ef stöðvuð verður hin
geðveikislega fjárfest-
ingarstefna landsherranna
og þjóðin áttar sig á, að
gengið er rangt skráð, er
hægt að hindra þjóðar-
gjaldþroL En það verður
ekki gert með núverandi
japli, jamli og fuðri.
„Ami úr kæti“
Það var mikil „kæti“ hjá
framsóknarsósíalistum
þegar núverandi ríkisstjórn
var mynduð. I>eir töldu
Sjálfstæðisflokkinn end-
anlega klofinn og að velli
lagðan. „Cálaust glys“ á
hefðartoppi valdsins hefur
hins vegar verið að breyt-
ast í „ama". Það „hallar
undan fæti“ hjá ósam-
stæðri ríkisstjórn. Og það
munar um það þegar
„grafskrift" ríkisstjórnar-
innar, hjá fyrrum viðhlæj-
anda, hefur þessa hákarla-
legu yfirskrift: „Hæg er
leið til helvítis". Minna
mátti nú gagn gera!
)
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Sláttur í Norðfjarðarsveit
Ljósmynd JGK.
Sláttur er nú almennt hafinn í Norðfjarðarsveit, en spretta hefur verið fremur hæg vegna kulda. Síðan á
föstudag hefur verið mjög góður þurrkur og eru bændur þegar farnir að taka saman. Myndin er tekin
neðan Ormsstaða.