Morgunblaðið - 23.07.1982, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982
PÓLÝFÓNKÓRINN
Á SPÁNI
X • RLUTI
Sungið
í Malaga og
Texti: Arnaldur Indridason
Myndir:: Ragnar Axelsson
Marbella
Pólýfónkórinn og hljómsveit fóru til Spánar i byrjun júli'. Haldnir voru
tónleikar i fimm borgum, Malaga, Marbella, Nerja, Granada og Sevilla.
Tónleikarnir voru haldnir i stórum kirkjum þeirra Spánverja og alltaf var
húsfyllir. Hellarnir i Nerja voru skoðaðir, Alhambrahöllin i Granada,
Spænski garðurinn í Sevilla og margt annað. Það var ekið i marga klukku-
tíma fram og til baka, til Granada og þaðan til Sevilla og aftur til Malaga,
stundum á daginn og stundum á nóttunni. Fólkið var á einu máli um að aldrei
hafi samhentari og skemmtilegri hópur ferðast i söngferðalagi. Og það
gerðist svo margt. Veislan eftir síðustu tónleikana i Sevilla, þar sem skálað
var minnst 100 sinnum og ferðin til Malaga um nóttina eru ógleymanlegar og
lokahófið á hótel Alay og fyrstu tónleikarnir, næturlifið, kirkjurnar og fólkið
sjálft. Frá sumu verður aldrei sagt. En það er best að hefja ferðasöguna.
Klukkan var rúmlega 10
fimmtudagsmorguninn 1. júlí þeg-
ar Flugleiðavélin hóf sig á ioft af
Keflavíkurflugvelli og stefndi til
Spánar. Það var rok og rigning í
Keflavík. Hreint ágætisveður
fyrir Spánarfara. Flugvélina
fyiltu kringum 90 meðlimir Pólý-
fónkórsins og um 50 manna
hljómsveit á leið í fimm daga
söngferðalag, til Spánar í tilefni
af 25 ára afmæli kórsins. Syngja
átti í fimm borgum, Malaga,
Marbella, Nerja, Granada og Sev-
illa, allar syðst á Spáni, við Mið-
jarðarhafið ekki langt frá Gíbralt-
arsundi. Þessi hópur tónlistar-
fólks frá Islandi var eitt af fleiri
atriðum, sem Spánverjar lögðu
áherslu á að fá í heimsókn á með-
an að heimsmeistarakeppnin í
fótbolta stóð yfir.
Hljómleikaskráin
Eftir um tveggja tíma flug var
borinn fram gómsætur matur eins
og vera ber. Flogið var í um 30.000
feta hæð og Pólýfónkórinn var
rétt eins og í stofunni heima hjá
Fólk reis úr sætum og klappaöi vel og lengi að fyrstu tónleikum Pólýfónkórsins á Spáni
loknum. Var mikill mannfjöldi í dómkirkjunni í Malaga þar sem tónleikarnir voru haldnir.
sér. Fólkið gekk á milli sæta og
spjallaði saman, tók lagið og
skellihló. Maður fékk það fljótt á
tilfinninguna að meðlimir Pólý-
fónkórsins létu alltaf eins og þeir
væru heima hjá sér. Jafnvel á
tunglinu.
Vel vönduð hljómleikaskrá var
prentuð sérstaklega fyrir ferðina
og hafði hún að geyma efnisskrá
og kynningu á tónlistarfólkinu,
fallegar litmyndir frá íslandi og
svipmyndir af starfi Pólýfónkórs-
ins. Gluggaði ég lauslega í hana á
leiðinni. A efnisskrá var tónlist
fyrri alda, sem og verk tónskálda
þessarar aldar, bæði íslensk og
erlend. Efnisskráin hófst á Vatna-
músík eftir Hándel og síðan flutt
kantatan „Befiel dem Engel dass
Er kornrn," fyrir kór og strok-
hljómsveit eftir Buxtehude. Þá
tveir fiðlukonsertar, þar sem Unn-
ur María Ingólfsdóttir lék einleik í
þeim fyrri eftir Bach, en Þórhallur
Birginsson einleikari í þeim síðari.
eftir G. Tartini. Síðast fyrir hlé
voru kórar úr Messíasi eftir Hánd-
el og arían „The trumpet shall
sound“, og söng þar Kristinn Sig-
mundsson, bassi, einsöng. Er það
barrok-tónlist, sem fyllir þennan