Morgunblaðið - 23.07.1982, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ1982
pltrgmniMalíííli
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
ht. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, simi 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 8 kr. eintakiö.
Hofmóður
í garð Flugleiða
Steinjrrímur Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, fór þess á leit við Flujíleiðir fyrir tveimur
árum, í ájíúst 1980, að félagið héldi áfram flugi milli Amer-
íku ofí Evrópu í eitt ár Regn opinberum fjárstuðningi frá
stjórnvöldum á íslandi og í Luxemborg. Félagið varð við
þessum tilmælum, sem síðar voru bundin ýmsum skilyrð-
um. Nú leyfir þessi sami Steingrímur Hermannsson sér að
nota það sem röksemd í bolabrögðum gagnvart F'lugleið-
um, að félagið sé á ríkisstyrk og skuli því bara halda sig á
mottunni og ekki vera að agnúast neitt út í embættisfærslu
Steingríms Hermannssonar. Þessi hofmóður er með ein-
dæmum og sýnir glöggt hið versta í fari stjórnmálamanna,
þegar þeir ætla að stjórna með skattpeninga almennings
að vopni.
Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir forráðamenn
Flugieiða, hvort ástæða sé til fyrir þá að verða lengur við
óskum Steingríms Hermannssonar um framhald á Atl-
antshafsfluginu, ef formaður Framsóknarflokksins ætlar
hvað eftir annað að nota samþykki félagsins við þessum
óskum til að gera því óleik. Flugleiðir geta auðvitað afsalað
sér þeim styrk sem Steingrímur bauðst til að veita sumarið
1980 og hagað Atlantshafsfluginu með þeim hætti sem
fyrirtækið telur skynsamlegt miðað við aðstæður og af-
komu félagsins. Steingrími Hermannssyni væri þá vænt-
anlega í lófa lagið að veita Arnarflugi styrkinn og fara þess
á leit, að það héldi uppi þeirri þjónustu sem formaður
Framsóknarflokksins vill að sé á milli Ameríku og Evrópu.
Steingrímur Hermannsson hefur hvað eftir annað sýnt,
að honum blöskra engin embættisverk sem miða að því að
treysta fyrirgreiðslu- og íhlutunarvald ráðherra. Fram-
sóknarmenn líta raunar á stjórnmál með það eitt í huga, að
þeir geti notað aðstöðuna sem umboð frá kjósendum veitir
til að hygla samherjum. Framganga formanns Framsókn-
arflokksins í flugmálum, hofmóður hans í garð Flugleiða
og tvískinnungur í yfirlýsingum staðfesta, að framsóknar-
menn velja ávallt þann kost að efla fyrirgreiðsluvald mis-
viturra stjórnmálamanna en þrengja svigrúmið fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki þeirra.
Mannaforráð í flugturni
Bandaríkjamenn stóðu straum af smíði nýs flugturns á
Keflavíkurflugvelli. Þeir hafa einnig keypt í hann full-
komin tæki. Meðferð tækjanna er í höndum íslendinga og
hafa þau verið notuð við flugumferðarstjórn á Keflavíkur-
flugvelli. Þessi tæki má einnig nota við stjórn á flugi til
Reykjavíkurflugvallar. Það hefur ekki verið gert vegna
deilu um forræði yfir þeim mönnum sem með tækin eiga að
fara. Þessi deila er alls ekki ný af nálinni. Utanríkisráðu-
neytið fer með yfirstjórn mála á Keflavíkurflugvelli. Vill
flugmálastjóri ekki sætta sig við það. Flugumferðarstjórar
frá Reykjavík og Keflavík hafa hist og rætt um nauðsyn-
legar ráðstafanir til að unnt sé að taka ratsjána í Keflavík
í notkun fyrir Reykjavíkurflugvöll. Til þess þarf í senn
viðbótartæki og flugprófanir.
Vegna hörmulegs flugslyss hefur þessi langvinna deila
um mannaforráð í flugturninum á Keflavíkurflugvelli
komist á hvers manns varir. Þessi deila er óþörf vegna
skýrra reglna um yfirstjórn mála á flugvellinum. Hún er
hins vegar dæmigerð um skrifborðsmál í kerfinu. Flug-
málastjóri skaut þessu máli inn á borð yfirmanns síns,
Steingríms Hermannssonar, nú í vor, þegar senda átti
menn úr Reykjavík til starfa á Keflavíkurflugvelli. Síðan
hefur ekkert gerst, þótt formaður Flugráðs líti svo á, að
þessi mál liggi alveg skýr fyrir miðað við bréf frá utanrík-
isráöuneytinu frá 1973.
Flugumferðarstjórar við vinnu sína í flugturninum. Guðlaugur Kristinsson lengst t.v. og Hallgrlmur Sigurðsson er naestur hoi
„Menn eru löngu
ir að treysta á har
— segir Hallgrímur Sigurðsson, flugumferðarstjóri, um
ratsjána í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli
„HÉR eru ennþá notaðar sömu
starfsaðferðir og þegar ég hóf störf
fyrir 32 árum. Við notum blað, blý-
ant og reiknistokk," sagði Guðlaug-
ur Kristinsson flugumferðarstjóri er
Mbl. ræddi við hann og nokkra aðra
starfsmenn flugturnsins á Reykja-
víkurflugvelli í gær, m.a. Hallgrím
Sigurösson, sem var í sambandi við
vélina TF-FHJ er hún undirbjó
lendingu.
Flugslysið hræðilega í hlíðum
Esju á þriðjudagskvöld hefur valdið
óhug á meðal almennings. Umræður
hafa spunnist um öryggi flugvéla í
aðflugi og margar spurningar hafa
ennfremur vaknað. Sumum þeirra
verður vafalítið aldrei svarað, en við
fræddumst nánar um gang mála í
flugturninum.
[Jreltur tækjabúnaður
„Auðvitað vantar hér nauðsyn-
lega radar, en það er nú einu sinni
svo, að menn taka aldrei við sér
fyrr en í óefni er komið. Þetta
hefði aldrei gerst ef við hefðum
haft góðan radar hér,“ sagði Hall-
grímur. „Við erum búnir að berj-
ast fyrir því í ein þrjú ár að fá
hingað nýjan radar, en ekki er að
sjá að beiðnir okkar hafi borið ár-
angur. Það er hlægilegt, að á
sama tíma og við erum að fara
fram á jafn sjálfsagt öryggistæki
og radar, er svo að segja hver ein-
asti togari landsins búinn slíku
tæki og þykir ekki neitt tiltöku-
mál. Hér er stöðug flugumferð, en
við höfum ekki nema einn radar,
sem er orðinn svo lélegur, að hann
dettur úr sambandi þegar síst
varir. Menn eru löngu hættir að
treysta á hann.“
Ekki er talstöðvakostur þeirra
flugturnsmanna betri. Þeir notast
við meira en 20 ára gamlar
lampa-talstöðvar, sem eðlilega
eru farnar að gefa sig eftir stöð-
uga notkun. Til vara hafa þeir
talstöðvar, sem knúnar eru með
rafhlöðum. Fullkomnara er það
nú ekki. Við báðum Guðlaug að
skýra fyrir okkur hvernig þróunin
er eftir að flugvél kemur inn á
þeirra umsjónarsvæði.
„Turninn sér um allt sjónflug,
en aðflugsstjórn sér um allt
blindflug. Þegar við höfum ekki
lengur með flugvélina að gera af-
hendum við hana flugstjórnar-
miðstöðinni. Umrædd vél var af-
hent okkur þegar hún var stödd
yfir Þingvöllum og ekki var að
heyra að nokkuð væri athuga-
vert.“
„Nei, síður en svo,“ sagði Hall-
grímur. Ég var í sambandi við
vélina og allt virtist í stakasta
lagi. Flugmaðurinn tilkynnti sig
yfir Grófarvita og undirbjó lend-
ingu.“
Erfitt hefur reynst að finná
viðhlítandi skýringu á slysinu.
Flestir hallast þó að því að flug-
maðurinn hafi misreiknað sig illi-
lega í aðflugi eftir að hafa breytt
stillingu svonefnds RNAV-tækis,
sem getur auðveldað flug til
ákvörðunarstaðar. Flugvélar taka
lykkju upp af ytri höfninni á leið
sinni inn á flugbrautina og líkleg-
ast þykir að flugmaðurinn hafi
verið í botni aðflugslykkjunnar er
vélin skall í Esjuna.
Eölilegur tími
Mörgum hefur fundist sem
óþarflega langur tími hafi liðið
frá því slysið varð og þar til vélin
Radarinn á Reykjavíkurfhigvelli, sem er ekki ábyggilegri en svo að hann dettur
út þegar síst varir. Morgunbiaðíð/ köe