Morgunblaðið - 23.07.1982, Qupperneq 30
30
•ORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1982
NK
LAUDA
Hann er kominn í hóp þeirra bestu
á nýjan leik eftir tveggja ára hlé
Það kom sem reiðarslag yfir menn í kappakst-
ursheíminum er Niki Lauda, ákvað í september
1979, að hætta keppni í kappakstri. Lauda var að
æfa í Montreal í Kanada, fyrir Grand-Prix keppni
sem þar átti að fara fram nokkru seinna. Á miðri
æfingu ók hann bíl sínum út af brautinni og renndi
til vinar síns Bernie Ecclestone. Síðan leysti hann
af sér öryggisbeltið í rólegheitum og skreið út úr
bílnum.
„Bernie“, sagði hann, „ég ætla aö hætta. Hér og
nú. Ég hef misst allan áhuga á því að aka kappakst-
ursbíl.“
Bernie kinkaði aðeins kolli, og vissi að ekkert
þýddi að reyna að telja honum hughvarf.
„Hver er ástæðan fyrir ákvörðun hans?“ spurðu
menn sig. „Á hún rætur að rekja til slyssins sem
hann lenti í 1976?“
„Það hefur runnið upp fyrir mér að kappakstur er
ekki það eina í lífi mínu,“ sagði Lauda er hann
tilkynnti ákvörðun sína opinberlega tveimur dög-
um síðar. „Nú mun ég snúa mér að fjölskyldunni,
og að því að byggja upp flugfélag mitt, Lauda Air.“
Eina tómstundagaman Lauda fram að þessu
hafði verið flug. Hann lagði sig allan fram við það
eins og allt annað sem hann tók sér fyrir hendur,
og flaug oft sem 2. flugstjóri í leigu- og áætlunar-
ferðum hjá félaginu.
• Lauda lenti í hræðilegu slysi áriö 1976 og var ekki búist viö aö hann
æki kappakstursbíl eftir þaö. Þaö geröi hann þó eftir tiltölulega stuttan
tíma. í slysinu brenndist hann m.a. mjög illa í andliti og eftír þaö notar
kappinn alltaf eldvarnargrímu i keppni eins og sjá má á efri myndinni hér
á síöunni. Annaö eyra hans skaddaöist einnig mjög alvarlega í slysinu og
einhvern tíma var hann spuröur hvort ekki væri óþægilegt aö hafa aöeins
eitt eyra. Lauda, sem er mikill bisnessmaður og talar mikiö í síma,
svaraöi aö bragöi: „Ég hef ekkert meö tvö eyru aö gera er ég tala í síma.“
Lauda byrjar aftur
Tveimur árum eftir þessa
skyndilegu ákvöröun hans, glað-
naöi yfir kappakstursunnendum á
ný. Niki Lauda haföi ákveöiö aö
snúa sér aftur aö kappakstri.
Margir fullyrtu aö þaö væri aöeins
vegna peninganna, þar sem flugfé-
lag hans haföi lagt upp laupana er
miklir erfiðleikar steöjuöu að flug-
félögum í Evrópu og Bandaríkjun-
um.
En ekki vill Lauda viöurkenna
þaö.
„Ég fór að hugsa minn gang, og
komst þá aö því aö ég haföi aldrei
getaö losnað viö tilhugsunina um
kappaksturinn," segir hann. „Það
gæti orðið spennandi aö sjá hvort
ég hefði breyst á þessum tveimur
árum sem ég haföi ekki sest upp í
kappakstursbíl. Var ég nógu góöur
til að etja kappi viö þá sem voru
nýir í greininni? Og hvernig myndi
mér ganga á móti gömlu keppend-
unum sem ég þekkti frá fyrri tíð?“
Lauda hefur u.þ.b. 35 milljónir
íslenskra króna frá sígarettufram-
leiöendunum Marlboro fyrir aö
auglýsa vöru fyrirtækisins á bíl sín-
um. Er þaö dágóöur peningur aö
flestra mati.
Ekki peningarnir
„Peningar fá menn ekki til aö
taka þátt í eins hættulegri íþrótt og
kappakstri," segir Lauda. „Til aö
standa sig á toppnum veröa menn
aö hafa vilja, og einnig aö vera í
góöri æfingu. Og ef manni gengur
vel koma peningarnir sjálfkrafa á
eftir. En eina ástæöan fyrir því aö
maöur er í þessu, er aö maöur hef-
ur vilja til þess.“
Menn eru sammála um aö
Lauda hafi geysilegan viljastyrk.
Hann vill vera besti ökumaöur í
heimi. Hann gerir allt til að hafa bíl
sinn fullkominn, hann undirbýr sig
svo vel fyrir keppni aö ekki er