Morgunblaðið - 13.10.1990, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990
5
Seltjarnarnes:
Stjórn safn-
aðaríns segir
öll af sér
Stjórn Seltjarnarnessafnaðar
sagði af sér og gekk í kjölfar
þess út af fundi seni hún hafði
boðað til í fyrradag vegna djúp-
stæðs ágreinings sem ríkt hefur
innan safnaðarins síðastliðið ár
um fyrirkomulag safnaðar-
starfs, messutíma og óeiningar
um hlutverkaskipan prests og
saf naðarstjórnar.
„Við teljum okkur verða að víkja
þar sem við störfum augsjáanlega
í óþökk hluta safnaðarins,“ sagði
Kristín Friðbjamardóttir fyrrver-
andi formaður safnaðarstjórnar í
samtali við Morgunblaðið.
Undirskriftalistar sem safnaðar-
stjórninni bárust fyrir skömmu
urðu til þess að hún tók ákvörðun
um að segja af sér. í listunum var
farið fram á að fyrirkomulag guðs-
þjónusta yrði aftur fært til þess
horfs er séra Solveig Lára Guð-
mundsdóttir safnaðarprestur kom
á fyrir um það bil ári, er barna-
guðsþjónustur og almennar guðs-
þjónustur voru sameinaðar. Þessu
fyrirkomulagi var breytt fyrir til-
stuðlan safnaðarstjórnarinnar fyrir
skömmu.
Að sögn sr. Solveigar Láru Guð-
mundsdóttur snýst málið um
ágreining sem ríkt hefur um það
hvert hlutverk prests annars vegar
og safnaðarstjómar hins vegar eigi
að vera og hveijum beri að ákveða
messutíma og tilhögun safnaðar-
starfsins.
Séra Guðmundur Þorsteinsson
dómprófastur mun á næstunni
kalla saman fund þar sem kjörin
verður ný safnaðarstjórn.
Sjálfstæðisflokkur-
inn á Austfjörðum:
Tíu gefa
kost á sér
/ /1*1 • •• •
í protkjon
Egilsstöðum.
TÍU MANNS gefa kost á sér í
opnu prófkjöri sjálfstæðis-
manna á Austurlandi, sem verð-
ur haldið 27. október næstkom-
andi. Framboðsfrestur rann út
á hádegi í gær.
í hópi þeirra, sem gefa kost á
sér í prófkjörinu, em alþingis-
mennirnir Egill Jónsson og Krist-
inn Pétursson ásamt Hrafnkatli
A. Jónssvni varaþingmanni. Einn-
ig gefur Guðni Nikulásson rekstr-
arstjóri á Egilsstöðum kost á sér,
en hann skipaði 1. sætið á lista
Þjóðarflokksins við síðustu kosn-
ingar.
Aðrir sem gefa kost á sér í próf-
kjörinu era: Arnbjörg Sveinsdóttir,
skrifstofustjóri, Seyðisfirði, Dóra
Gunnarsdóttir, húsmóðir, Fá-
skrúðsfirði, Einar Rafn Haralds-
son, framkvæmdastjóri, Egilsstöð-
um, Guðjón Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri, Höfn, Rúnar Páls-
son, umdæmisstjóri, Egilsstöðum,
og Stella Steinþórsdóttir, verka-
kona, Neskaupstað.
Að sögn Garðars Rúnars Sigur-
geirssonar, formanns kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisflokksins á
Austurlandi, er stefnt að því að
kjörnefnd komi saman að morgni
sunnudags, daginn eftir prófkjör,
og telji atkvæði. Fundur kjör-
dæmisráðsins verði svo kallaður
saman á sunnudagskvöld, þar sem
borin verði upp tillaga kjörnefndar
um skipun framboðslista.
- Björn
Varanlegt
SLITLAG Á UMFERÐAR-
ÞUNG STIGAHIJS
Stigahús eiga það sameiginlegt með
[jöirörnum vegum að á þau dugir
aðeins varanlegt slitlag. Þegar stigahús
eru annarsvegar er þó um mun fleira
að velja í litum og áferð en það sem við
eigum að venjast á íslenskum vegum.
í Teppalandi-Dúkalandi er
geysimikið úrval af níðsterkum,
fallegum, þrifléttum og vönduðum
teppum fyrir stigahús. Fagfólk
okkar tekur vel á móti þér með
fyrsta flokks þjónustu.
Gólfmeistarar í meira en 20 ár
Tkppaland’ Dúkaland
Grensásvegi 13 • sími 83577