Morgunblaðið - 13.10.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990
7
50 þúsund tonn eft-
ir af þorskkvótanum
25 þúsund tonnum minna en í fyrra
ÞORSKAFLINN var 260 þús-
und tonn fyrstu 9 mánuði árs-
ins, eða 19 þúsund tonnum
minni en á sama tíma í fyrra,
samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Fiskifélagi íslands. Þorsk-
aflinn verður um 310 þúsund
tonn í ár, þannig að um síðustu
Kærði nauðg-
unartilraun
KONA um fimmtugt kom snemma
í gærmorgun á miðbæjarstöð lög-
reglunnar í Reykjavík og kærði
tvo menn i'yrir tilraun til nauðgun-
ar. Konan var . með talsverða
áverka eftir barsmíðar mannanna
og föt hennar voru rifin.
Konan sagðist hafa hitt mennina
við Bjórhöllina í Breiðholti og tekið
leigubíl með þeim að húsi í Vestur-
bænum. Samkvæmt frásögn konunn-
ar réðust mennimir á hana er þang-
að var komið og börðu hana. Hélt
annar maðurinn konunni síðan á
meðan hinn reyndi að koma fram
vilja sínum við hana. Konunni tókst
þó að sleppa frá þeim og náði hún
1 leigubfl, sem flutti hana á lögreglu-
ítöðina.
Leit að mönnunum hófst þegar,
fen síðdegis í gær hafði enginn verið
handtekinn vegna málsins. Konan
vissi ekki nákvæmlega í hvaða húsi
atburðurinn hefði átt sér stað. Það
var talið myndu auðvelda leitina að
mönnunum að konan átti í fórum
sínum greiðslukortakvittun fyrir far-
inu með leigubflnum ofan úr Breið-
holti. Að sögn lögreglu var vonazt
til að leigubílstjórinn gæti staðfest
að hvaða húsi var ekið.
mánaðamót var eftir að veiða
um 50 þúsund tonn af þorskk-
vótanum, sem er 25 þúsund
tonnum minna en veitt var af
þorski síðustu þrjá mánuðina í
fyrra. Heildaraflinn í ár er ein-
ungis tæplega 4 þúsund tonnum
minni en fyrstu 9 mánuðina í
fyrra, eða 1,148 milljónir tonna.
Um síðustu mánaðamót voru
19 þúsund tonn óveidd af ýsu, 22
þúsund tonn af ufsa, 26 þúsund
tonn af karfa og 13.600 tonn af
grálúðu. Á sama tír i í fyrra voru
21 þúsund tonn óvr dd af ýsu, tæp
26 þúsund tonn af afsa, 29 þúsund
tonn af karfa og 4 þúsund tonn
af grálúðu.
Smábátar veiddu rúm 37 þús-
und tonn af þorski fyrstu 9 mánuð-
ina í ár, eða tæplega 7 þúsund
tonnum meira en á sama tíma í
fyrra. Þorskafli báta var hins veg-
ar tæp 102 þúsund tonn, sem er
um 20 þúsund tonnum minna en
í fyrra og togarar veiddu 121 þús-
und tonn af þorski, eða 4 þúsund
tonnum minna en á síðastliðnu ári.
Ýsuaflinn var 46 þúsund tonn
fyrstu 9 mánuðina í ár, eða 5
þúsund tonnum meiri en á sama
tíma í fyrra og veidd voru 68.500
tonn af ufsa, sem er 14 þúsund
tonnum meira en á síðastliðnu
ári. Rækjuaflinn var 5 þúsund
tonnum meiri en í fyrra, eða 22
þúsund tonn og hörpudiskaflinn
var 2.600 tonnum meiri, eða 6.700
tonn. Grálúðuaflinn var aftur á
móti tæplega 23 þúsund tonnum
minni en í fyrra, eða tæp 32 þús-
und tonn.
Morgunblaðið/Birgir
Charles E. Cobb, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, og Pétur Bjarnason, myndlistarmaður, með
frumgerð höggmyndar Péturs.
Gefa Reykvíkingum hög’gmynd
BANDARÍSKU sendiherrahjónin á íslandi, Charles E. Cobb og Sue
kona hans, hafa ákveðið að færa Reykvíkingum að gjöf höggmynd
í tilefni af því að 1. júlí á næsta ári verða fimmtíu ár liðin frá því
að Islendingar og Bandaríkjamenn tóku upp stjórnmálasamband.
Gert er ráð fyrir að höggmyndinni verði valinn staður við Sæbraut-
ina fyrir neðan Ingólfsstræti, en hún verður um fjórir metrar að
hæð. Höfundur verksins er Pétur Bjarnason, myndlistarmaður.
Charles E. Cobb segir að þau en þá hefði Sigurður sýnt honu'm
hjónin hafi um nokkurt skeið haft
í huga að minnast 50 ára afmælis
stjórnmálasambands íslands og
Bandaríkjanna með því að gefa
höggmynd, sem á einhvern hátt
minnti á tengsl ríkjanna.
Skriður hefði komist á málið í
sumar, þegar hann hefði verið á
ferð á Akureyri með Sigurði Helga-
syni, stjórnarformanni Flugleiða,
höggmyndina „Farið“ eftir Pétur
Bjarnasoh, sem Flugleiðir gáfu
Akureyringum í tilefni þess að
fimmtíu ár voru liðin frá því sam-
fellt atvinnuflug var hafið á íslandi.
Cobb segist hafa hrifist af verk-
inu og ákveðið að leita beint til
Péturs um að hann gerði verkið, í
stað þess að efna til samkeppni,
eins og upphaflega hefði verið hug-
myndin. Pétur hefði nú lokið við
frumgerð verksins og væri byijaður
að stækka það upp í endanlega
stærð.
Hann leggur áherslu á það, að .
1. júlí árið 1941 hafi náðst merkur
áfangi í samskiptum íslands og
Bandaríkjanna. Þá hefði forsætis-
ráðherra íslands, Hermann Jónas-
son, farið þess á leit við Franklin
D. Roosevelt, forseta Banda-
ríkjanna, að Bandaríkin lofuðu að
virða fullt sjálfstæði og fullveldi
Islands og samdægurs hefði Roose-
velt svarað því erindi hans játandi.
í kjölfar þess hefðu ríkin skipst á
sendiherrum og formlega hafið
stjórnmálaleg samskipti.
Efþú hittirfœrðu milljónir
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
SAMEINAÐA/SÍA