Morgunblaðið - 13.10.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990
13
eftir mér að skrif hans séu sprottin
af a.nnarlegum hvötum og jafnvel
í auglýsingaskyni á eigin persónu.
Þar er málað út fyrir rammann því
þessar fullyrðingar er hvergi að
finna í grein minni, né heldur að
Bragi sé á móti táknmáli og vinni
gegn því. Ég væri vís með að veita
fundarlaun þeim sem gætu bent
mér á þesar fullyrðingar í skrifum
mínum.
Þó okkur Braga Ásgeirssyni
greini á um ýmislegt veit ég að um
flest gætum við orðið sammála. Og
Heyrnleysingjaskólinn á hauk í
horni þar sem Bragi er þegar og
ef til þess kemur að stjómvöld gera
alvöru úr þeim hugmyndum sínum
að flytja nemendur nauðungarflutn-
ingum inn í sérdeild í almennum
grunnskóla og þar með leggja
Heyrnleysingjaskólann niður. Þá
veit ég að Bragi leggst á árarnar
með okkur til að forða því stórslysi
að „sturta öllu heyrnarlausu fólki
út í almenna skólakerfið", eins og
hann orðaði það svo ágætlega sjálf-
ur.
Höfundur er skólastjóri
Heyrnleysingjaskólans.
Athugasemd
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Birni Haraldssyni framkvæmda-
stjóra Glámu hf.:
„Vegna viðtals við Óttar Proppé
um T-Line, vil ég undirritaður upp-
lýsa (hann) um eftirfarandi:
Ófrágengnar lóðir í Hafnarfjarð-
arhöfn og hús uppi í bæ, leysa ekki
faglega hlið skipaútgerðar hvað
varðar aðstöðu, ef ætlunin er að
vera samkeppnisfær. Um leið og
Óttar upplýsti hvernig Eimskip not-
ar Hafnarfjarðarhöfn, hefð mátt
fylgja, hversu mikið af þeirra gáma-
flutningum kemur til Hafnarfjarð-
arhafnar."
FRÉTTALJ Ó SMYNDIR
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
„World Press Photo“ nefnist
ljósmyndasýning, sem árlega er
sett upp í húsakynnum Listasafns
ASÍ.
Það er öldungis óþarfi að kynna
þessa sýningu, því að svo vel er
hún kynnt og tilgangur hennar,
enda var þröngt á þingi, er mig
bar að garði sl. sunnudag.
Sýningargestirnir voru ekkert
að flýta sér og stöldruðu lengi við
margar myndanna og skoðuðu af
innlifun og athygli — taldist mér
til að fólk stæði mun lengur við
en á flestum myndverkasýningum,
og eru þó myndverk mun seinunn-
ari í viðkynningu en ljósmyndir,
og kannski var það einmitt þess
vegna.
Það er spilað á marga strengi
á þessum sýningum, enda er til-
gangur sýningarinnar svo sem
segir í inngangi Ólafs Jonssonar:
„að opna mönnum sýn inn í heim
gleðí og harms þeirrar jarðar sem
við byggum."
Af nógu var að taka um heims-
sögulega viðburði á sl. ári og má
þess geta, að þetta úrval mynda
var valið úr hvorki meira né minna
en 11.043 myndum frá Ijósmynd-
urum í 64 löndum. Er þá vita-
skuld bæði tekið til greina frétta-
gildi þeirra sem ljósmyndræn
gæði.
Efst á baugi má telja viðburðina
í Austur-Evrópu svo og stúdenta-
uppreisnina í Kína, en báðir við-
burðirnir sýna nýja hlið á mannin-
um, er hann rís vopnlaus gegn
einræði, miðstýringu og kúgun
með niðurbælda heiftina og frels-
isþrána að leiðarljósi.
En ljósmyndirnar tjá líka aðra
og óhugnanlega hlið, sem eru
umhverfísspjöll af manna völdum,
en maður stendur sem lamaður
fyrir framan myndir af viðlíka við-
urstyggð og olíumengun í höfun-
um, t.d. við strendur Alaska.
Hið óvænta, skopið og gleðin
fá einnig sinn skerf, og er hér t.d.
eftirminnileg myndaröðin af
munkunum í Tilburg, sem sýna,
að líf þeirra er um sumt annað
en margur hyggur.
Þrautseigja mannfólksins, er
býr við harðan kost hátt uppi á
fjöllum Himalaja, leiðir hugann til
hirðingjanna, er tóku sig upp frá
Mongolíu fyrir árþúsundum og
mjökuðust smám saman yfír norð-
urpólinn til meginlands Ameríku.
Hirðingjamir fundu lífsham-
ingjuna i harðri baráttu sinni fyrir
lífínu, og ekki efa ég að þeir hafí
fundið til djúprar lífsnautnar þrátt
fyrir heimskautsfrerann, og þetta
fólk í Himalajafjöllunum hlýtur að
vera mjög stolt og í beinu jarðsam-
bandi við náttúruöflin.
Þetta fólk í þorpinu Zanskar í
hjarta Himalaja, er einangrað í 8
mánuði á ári og það er einungis,
þegar frostið fer niður fyrir 30
gráður, að fært er til næstu borg-
ar og tekur ferðin 12 daga. Þættu
það sumstaðar afleitar samgöng-
ur!
Ferðast er um ævintýralegt
landslag við óblíðar, háskasamleg-
ar aðstæður og á stundum
veðravíti.
Á þennan hátt heldur sýning
fréttaljósmyndara heimsins áfram
að kynna okkur heiminn í fegurð
sinni, gleði, reisn og því miður
einnig óhugnanlegri niðurlæg-
ingu.
Sýningin minnir okkur á fegurð
jarðarinnar,' sem við búum á, en
einnig að eyðileggingaröflin eru í
sókn og þau geti fyrirvaralaust
náð undirtökunum, taki maðurinn
ekki við sér.
Mannlegi þátturinn gengur
þannig eins og rauður þráður
gegnum -sýninguna alla og það
gefur henni framar öllu öðru
lífrænt inntak, og þannig séð á
hún erindi til hvers einasta ábyrgs
einstaklings á jörðu hér.
' SÍL
ÞAÐ SEGIR SIG SJÁLFT
Siguröur
Ólafsson
\
PARKETGÓLF HF. er sérhæft þjónustufyrirtæki í öllum
þáttum er varða parket. PARKETGÓLF HF. er grundvallað
á verklegum metnaði og meira en 25 ára reynslu við
parketlagnirv efnlsval, frágang og vibhald,
Okkur þykir á engan hallað, þó að við fullyrðum að
þjónusta okkar sé meðal þess besta sem völ er á !
Um það vitnar stór og ánægður hópur fastra
viðskiptavina um land allt.
Við viljum bjóða alla velkomna á sýningu um
helgina í Skútuvogi 11.
OPIÐ: á laugardag kl.10 - 16
á sunnudag kl. 13 -17
mmsm&MMo
SKÚTUVOGI 11 • SlMI: 67 17 17
o
AW,
%
//m\