Morgunblaðið - 13.10.1990, Qupperneq 15
að litlu leyti, og er því ekki nándar
eins umfangsmikið og eldra kerfið.
Að síðustu er vert að minna á
í þessu samhengi að ekki er hægt
að fullyrða samtímis að annað
kerfið standi og falli með opinber-
um framlögum, en hitt hins vegar
ekki auk þess sem það á að gefa
léttari greiðslubyrði. Spurningin
hér snýst um formið á kostnaðar-
þátttöku hins opinbera. Er hún í
formi niðurgreiðslu-á vöxtum hús-
næðiskerfisins eða í formi beinna
vaxtabóta til fasteignakaupenda.
Að lokum varðandi kostnaðar-
þátttöku hins opinbera þá er rétt
að minna á að það er hrein pólitísk
spurning hveijir eigi að njóta
kostnaðarþátttöku hins opinbera.
Eiga allir að vera jafnir gagnvart
þeirri aðstoð eða aðeins þeir tekju-
og eignaminni.
Lokaorð
Ef veikleiki húsbréfakerfisins
væri lagfærður eru þessi fjármögn-
unarkerfi áþekk. Bæði eru þau
fjármögnuð með sölu á skuldabréf-
um, sem þess vegna má staðla sem
húsbréf. I báðum kerfunum getur
kostnaðarþátttaka hins opinbera
verið í formi vaxtabóta eða í formi
niðurgreiðslu á vöxtum. Utlána-
geta beggja þessara kerfa ræðst
fyrst og fremst af því hversu vel
tekst að selja skuldabréf þeirra.
Það þarf ekki að koma flatt upp
á einn eða neinn nema illa upp-
lýsta menn að Byggingarsjóður
ríkisins myndi stefna í gjaldþrot
ef vaxtamunur milli inn- og útlána
hans er hafður of mikill eða ríkis-
framlög of lág. Enda segir í fram-
haldi af ofangreindri málsgrein úr
greinagerð með frumvarpinu frá
árinu 1986: „Á hinn bóginn er
einnig ljóst að framlag ríkissjóðs
ræður miklu um eiginíjárstöðu
Byggingarsjóðs ríkisins. Því er
óhjákvæmilegt að ákvarðanir um
framlög ríkissjóðs á fjárlögum til
Byggingarsjóðs ríkisins ár hvert
verði teknar með hliðsjón af hvoru
tveggja, útlánaþörf sjóðsins á árinu
og eiginfjárstöðu sjóðsins". Enn-
frémur segir: „ .. .verði mismunur-
inn á vöxtum á teknum lánum og
veittum við Byggingarsjóði ríkisins
meiri en 2-3% til lengdar muni
lánakerfið sligast".
Að síðustu er rétt að undirstrika
að veikleiki húsbréfakerfisins get-
ur orðið mikill skaðvaldur í
íslensku efnahagslífi ef það lána-
kerfi fær að starfa eitt og sér í
fullu umfangi, eins og greinarhöf-
undur hefur rökstutt ýtarlega í rit-
gerð sinni „Eru húsbréf peningar"
sem birtist í Efnahagsumræðunni
nr. 2 frá apríl 1989.
Kirkja Óháða safnaðarins.
Qháði söfnuðurinn:
Kirkjudagur
KIRKJA óháða safnaðarins verður
með hátíðarguðsþjónustu sunnu-
daginn 14. október kl. 14:00.
Kirkjudagurinn er ái-viss hjá Óháða
söfnuðinum og er ávallt haldinn hát-
íðlegur ,á sunnudegi í október. Guðs-
þjónustan er þungamiðja hátíðarinn-
ar. Góðir gestir koma í heimsókn:
Jóhanna Linnet söngkona og Jónas
Dagbjartsson fiðluleikari. Kvenfélag
safnaðarins selur kirkjukaffi eftir
messuna og þá gefst kirkjugestum
tækifæri til að ræða saman yfir kaffí-
bolla og góðu meðlæti.
Tekið skal fram að barnastarfið
verður á sínum stað og eru börn og
foreldrar hvött til að koma til kirkju.
Safnaðarprestur
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAQUR 13. OKTÓBEK ,19,99,
15
Danska kammersveitin sem halda mun tónleika í Háteigskirkju á sunnudagskvöld.
Dönsk kammersveit heldur tónleika
. Kammersveit Suzukiskólans í
Kaupmannahöfn er stödd hér á
landi vi.n þessar mundir og mun
næstkomandi sunnudag halda
tónleika í Háteigskirkju. Sveitin
samanstendur af 17 unglingum á
aldrinum 10 til 19 ára sem öll
eru nemendur Suzukiskólans í
Kaupmannahöfn.
Kammersveitin var sett á stofn
árið 1976 og hefur frá 1982 haldið
marga tónleika í Danmörku auk
þess að gera upptökur fýrir útvarp
og sjónvarp og fara í tónleikaferð
til Japan árið 1986.
Stjórnandi sveitarinnar Béla Det-
reköy fæddist í Ungverjalandi, en
hefur búið í Danmörku frá árinu
1945. Hann hefur starfað sem fiðlu-
leikari og kennari, meðal annars
við Tónlistarháskólann í Oðinsvéum
og Suzukiskólann í Kaupmanna-
höfn.
A efnisskrá tónleika sveitarinnar,
sem hefjast munu kl. 20:00 á
sunnudagskvöld, verða meðal ann-
ars verk eftir Corelli, Haydn, Bach
og Bartók.
Sýningu í
Norræna hús-
inu að ljúka
SÍÐASTA sýningarhelgi
Guðrúnar Gunnarsdóttur
og Sigrúnar Eldjárn í Norr-
æna húsinu er runnin upp.
Guðrún Gunnarsdóttir sýn-
ir þar bæði vefnað og verk
unnin úr handgerðum pappír
öll frá þessu ári. Sigrún Eld-
járn sýnir olíumálverk sem
flest eru frá þessu ári en nokk-
ur frá síðasta árí. Báðar hafa
þær Guðrún og Sigrún látið
náttúru og landslag hafa áhrif
á list sína en á mjög ólíkan
hátt.
Sýningin héfur verið mjög
vel sótt en hún er opin dag-
lega frá kl. 14 til 19. Síðasti
sýningardagur er 14. október.
(Fréttatilkynning)
10 GÓÐ RÖK FYRIR
1 DRAUMAELDHÚSIÐ PITT
Draumaeldhúsið þitt ó auðvitað að vera
fallegt, aðgengilegt og hannað ó réttan
hátt. Starfsmenn Innrétttngahússins vita
hvað þarf til þess að draumurinn rœtist.
AÐ FÁ SÉR HTH
3 FYRIRTAKS ÞJÓNUSTA
Við leggjum okkur fram um að veita
bestu þjónustu, sem völ er á, frá þeirri
stundu að eldhúsið þitt kemst á teikni-
borðið hjá okkur, ttl þess dags að upp
setningu er lokið.
ELDHÚSINNRÉTTINGU
3 GÓÐ OG ÖRUGG AFGREIÐSLA
Við afhendum þér nýja eldhúsið 6-8
vikum eftir að pöntun er gerð og afhend-
um við húsdyrnar þfnar ef þú býrð á
Stór-Reykjavíkursvœðinu.
4 Á RÉTTU VERÐI
Á hverju ári eru framleiddar fleiri en
milljón HTH-skápaeiningar og með
hagkvœmri fjöldaframleiðslu er verðinu
haldið niðri. Þessum sparnaði er komið til
viðskiptavina til að tryggja að þeir fái
góða vóru á réttu verðl.
5 SKYNSAMLEG FJÁRFESTING
HTH-innrétting eykur verðgildi fbúðarlnnar
og er því kjörin fjárfesting fyrir framtíðina.
6 GÆÐASTIMPILL
Allar HTH-eldhúsinnréttingar hafa hlotíð
hlnn þekkta gaeðastimpil „Dansk Vare-
fakta". Það þýðir að þœr hafa staðist
prófanir til að ganga úr skugga um
gœði, endingu og handbragð. Prófanirn-
ar framkvœmir sjálfstœð dönsk rann-
sóknastofnun.
T ÓKEYPIS RÁÐGJÖF
Við mœlum fyrir og aðstoðum við val á
HTH-innréttingum þér að kostnaðarlausu
og án skuldbindinga.
8 FAGMANNLEG UPPSETNING
Aðeins sérþjálfaðir fagmenn annast
uppsetningu HTH-innréttinga.
9 FUÓTLEGT OG
FYRIRHAFNARLAUST
HTH-einlngarnar eru afhentar sérpakkað-
ar með hurðum, ásamt teikningum til að
tryggja fljótlega og fyrirhafnarlausa
uppsetningu.
10 HEILDARLAUSN
Innréttingahúsið hefur ávallt kappkostað
að flnna bestu heildarlausnina fyrir
viðskiptavini sfna. Þannig má fá Blomberg
heimilistœki og vaska með eldhúsinnrétt-
ingunum, einnig fataskápa og baðinn-
réttingar. Allt þetta tryggir þér sem bestan
heildarsvip.
innréttingaliÉsiö
Háteigsvegi 3. Reykjavík. Sími 91-627474. Fax 91-627737.