Morgunblaðið - 13.10.1990, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990
LÖGREGLAN OG
ALMENNIN GUR
eftir Ómar Smára
*
Armannsson
í lögum um lörgreglumenn segir
að ríkið haldi uppi starfsemi lög-
regluliðs, sem hafi það verkefni að
gæta almannaöryggis og halda uppi
lögum og reglum, stemma stigu við
lögbrotum og vinna að uppljóstran
brota, sem framin hafa verið. Is-
lenska lögreglan .er ríkislögregla og
æðsti yfirmaður hennar er dóms-
málaráðherra. Hann ákveður ijölda
lögreglumanna í hveiju umdæmi.
Lögreglumenn vinna það heit að
rækja starf sitt af kostgæfni og
vinna að því af fremsta megni að
viðhalda stjórnarskránni og lögum
landsins. Þeim ber að sýna árvekni
í starfí og kunna glögg skil á ábyrgð
þeirri er starfinu fylgir.
Lögreglumenn þjóna fyrst og
fremst hagsmunum fólksins í
landinu. Þeir þurfa iðulega að rétta
fólki hjálparhönd og ieysa marg-
vislegan vanda. Einnig þarf lögregl-
an oft að gera nauðsynlegar varúð-
arráðstafanir gagnvart þeim sem
bijóta á öðrum, enda leitast samfé-
lagið við að tryggja að fólk geti
verið í friði fyrir ónæði og áreitni.
í öllu þessu starfi sínu nær lögreglan
því aðeins árangri að almenningur
beri traust til hennar og líti á hana
sem vin sinn en ekki andstæðing.
Stundum reyna einstaklingar eða
hópar að gefnu tilefni að „skapa“
skarpar andstæður og stilla lögregl-
unni upp gegn þeim málstað, sem
talað er fyrir, og er þá gengið þvert
á raunveruleikann.
Starf lögreglunnar er afar ijöl-
breytilegt. Auk þess að sinna eftir-
liti þarf hún að sinna beiðnum eða
kærum fóiks vegna hinna ýmsu til-
vika. Þá heldur hún uppi umferðar-
eftirliti, umferðarfræðslu, annast
rannsóknir brotamála og sinnir ýmis
konar þjónustustarfsemi. Hún skerst
í leikinn þar sem verið er að fremja
afbrot, kemur í veg fyrir framgang
þess og handtekur brotamenn. Hún
leitar brotamanna eða þeirra, sem
grunaðir eru. Hún hefur uppi á sjón-
arvottum og öðrum þeim sem upp-
lýsingar kunna að geta gefið um
málsatvik. Hún leggur hald á muni
eða varnar því að þeim sé raskað
eða spillt. Hún verndar vettvang þar
sem frekari rannsóknar þarf við.
Hún færir grunaða menn til töku
blóð- og þvagsýna. Hún gerir rann-
sóknarlögreglunni viðvart og kallar
til sérfræðilega aðstoð þar sem
hennar þarf við. Hún aðstoðar hina
ýmsu aðila við framkvæmd starfa
þeirra, s.s. slökkvilið og tollgæslu.
Lögreglumenn hafa heimild til að
þröngva mönnum til hlýðni eða beita
valdi til að knýja menn til hlýðni við
lagaboð, úrskurði eða yfirvaldsboð.
En aðgerðir lögreglunnar þurfa þá
að vera nauðsynlegar og lögreglu-
menn mega ekki ganga lengra en
efni standa til. Lögreglumönnum er
skylt að taka mann fastan ef þeir
standa hann að refsiverðri háttsemi,
enda sæti brotið opinberri ákæru,
ef maður er grunaður um brot og
gefur lögreglumanni ekki skýrslu
um nafn sitt og heimilisfang eða
reikar um heimilislaus, ef það þykir
nauðsynlegt grunuðum manni eða
öðrum til varnar, ef það þykir nauð-
synlegt til þess að aftra grunuðum
manni frá því að spilla sönnunar-
gögnum, ef hann hefur leyfislaust
farið úr gæslu eða firrt sig eftirliti,
sem honum hefur verið löglega sett,
ef maður hefur ekki forfallalaust
gegnt kvaðningu lögreglumanns til
þess að gefa skýrslu í opinberu
máli og ef maður ærist á almanna-
færi eða veldur þar hneyksli eða
hefur hér ekki landvistarleyfi.
Þegar lögreglumenn eru að störf-
um reynir oft á dómgreind þeirra
og heilbrigt mat á öllum aðstæðum
og þeim hagsmunum sem í húfi eru.
Þannig þurfa lögreglumenn oft á
tíðum að taka skjótar ákvarðanir og
framfylgja þeim og bera síðan
ábyrgð að lögum ef mat þeirra reyn-
ist rangt í verulegum atriðum. Lög-
reglumenn sýna festu og ákveðni
við framkvæmd handtöku, en jafn-
framt gæta þeir þess að koma fram
af fullri kurteisi og beita ekki meira
harðræði en nauðsynlegt er til að
vinna bug á mótþróa þess, sem hand-
taka skal.
Tilvist lögreglu ein sér eða að
minnsta kosti nærvist lögreglu-
manna skapar mönnum oft nægilegt
aðhald. Eins og fram hefur komið
er kjarninn í hlutverki lögreglu-
manna að skapa varnað um að fylgt
sé viðurkenndum leikreglum og sam-
búðarháttum þjóðfélagsins, eða með
öðrum orðum; fyrirbyggjandi starf-
semi. Þetta kemur skýrt fram í þejm
þáttum hlutverksins þar sem lög-
reglumönnum er ætlað að halda
uppi lögum og reglu og stemma stigu
við ólögmætri hegðan. Uppljóstran
brota veit ekki einvörðungu að hinu
liðna tieldur horfir og með nokkrum
hætti fram á við. Atvinnu- og tækni-
bylting síðustu áratugi hefur leitt
af sér fjölda lagafyrirmæla, sem
víkkað hefur hlutverk löggæslunnar.
Eftirlit á mörgum sérhæfðum svið-
um er þannig í höndum sérfróðra
manna, s.s. bifreiðaeftirlits, vinnu-
eftirlits og heilbrigðiseftirlits.
Það er hlutverk lögreglumanna
að greiða götu manna þar sem það
á við. Það hlutverk er nátengt því
að halda uppi lögum og reglu. Lög-
reglan stuðlar að sem greiðustum
og öruggustum samskiptum manna
á almennum vettvangi og er til halds
og trausts þegar á bjátar. Hún veit-
ir almenningi hjálp innan hóflegra
marka, þ.e. þeirra sem til hennar
leitar eða eru hjálparþurfi. Um
margs konar aðstoð getur verið að
ræða, einkum aðstoð á almannafæri
s.s. við umferðarstjórn, björgunar-
störf við slys, við náttúruhamfarir,
leiðbeiningar ýmiss konar og upplýs-
Ómar Smári Ármannsson
„Lögreglan gætir
reglna, sem gilda um
samskipti þjóðfélags-
þegnanna, verndar líf
þeirra og eignir og
heldur'uppi eftirliti.“
ingar, aðstoð við ökumenn vegna
ófærðar, varðstaða við útifundi og á
skemmtunum og þeir þurfa að gæta
þess að slasaðir verði ekki fyrir
meiri hnjaski og komist sem fyrst
undir læknishendur. Aðstoð er einn-
ig veitt fólki í heimahúsum, þó
sjaldnast nema heimamaður óski
slíkrar aðstoðar, t.d. vegna slysa,
ófriðar eða átaka. Yfirleitt er lög-
reglan ekki að skipta sér af hreinum
einkahagsmunum eða einkamálum
fólks, nema refsivert brot hafi verið
framið eða venileg hætta sé á því.
Oft þarf að taka ölvaða menn úr
umferð þar sem þeir geta verið
hættulegir sjálfum sér og öðrum.
Getur þá á stundum verið álitamál
hvort aka eigi þeim heim til sín eða
setja þá í fangageymslu. Oft dugir
ekki annað en næturgisting á lög-
reglustöð, en stundum þurfa menn
frekari aðstoðar við og reynir lög-
reglan að sinna þeim þörfum eftir
bestu getu.
Eins og fram hefur komið kreij-
ast löggæslustörf mikilla og marg-
víslegra samskipta við fólkið í
landinu. Þessi mannlegu samskipti
geta auðveldlega boðið upp á
árekstra af ýmsu tagi. Lögreglan
þarf að eiga samskipti við mjög ólíkt
fólk með afar óiíkar skoðanir í ákaf-
lega mismunandi ásigkomulagi við
ijölbreytilegar aðstæður. Þess vegna
er kannski ekki ólíklegt að einhvern
tímann geti eitthvað komið upp á
sem orkað geti tvímælis og skoða
þarf betur síðar.
Lögreglan er jafnan undir smásjá
og þarf að vera það þar sem henni
er fengið mikið og vandmeðfarið
vald, en hún á ekki síður en aðrir
rétt á að njóta sannmælis.
Starf lögreglumannsins byggir á
lögum og hann gerir sér betur Ijóst
en margir aðrir að nauðsynlegt er
að endurskoða reglulega lög og regl-
ur til þess að þær geti gegnt virku
hlutverki í uppbyggingu samfélags-
myndarinnar. Þeir gera sér einnig
betur ljóst en margir aðrir að virk
stefna stjórnvalda í fyrirbyggjandi
starfi skiptir miklu máli og að þeir
sem marka stefnur á öðrum sviðum
þjóðlífsins beri mikla ábyrgð þegar
ákvarðanir eru teknar sem áhrif
geta haft á afbrotatíðnina, beint eða
óbeint. Lögreglumenn eiga eftir að
láta meira að sér kveða í framtíðinni
með það fyrir augum að hafa áhrif
á að aðra þá sem áhrif hafa og stuðl-
að geta að betrumbótum og aukinni
skilvirkni á sviði löggæslunnar.
Lögreglan hefur kappkostað að
eiga sem besta samvinnu og sam-
starf við almenning. Eftir því sem
samstarfið er betra því meiri líkur
er á ánægjulegri úrlausn þeirra
vandamála sem upp kunna að koma,
stærri sem minni. Hagsmunir lög-
reglu og almennings fara saman í
öllum tilfellum og þess vegna er
nauðsyn á gagnkvæmum jákvæðum
skilningi þessara aðila.
Á morgun, 14. október, er sér-
stakur lögregludagur. Þetta er í
fyrsta sinn sem slíkut' dagur er hér
á landi. Að því tilefni verður fólki
um allt land sérstaklega boðið að
heimsækja lögreglustöðvar frá kl.
14-18 og skoða aðstöðu, búnað og
tæki. Allir eru velkomnir.
Höfundur er
aðstoðaryfirlögregluþjónn í
Reykjavík ogritari
Lögregludagsnefndarinnar.
Dagur lögreglunnar haldinn á morgun:
Lögreglan er þjónn en ekkí
herra almennings í landínu
- segir Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti, formaður undirbúningsnefndar
DAGUR lögreglunnar verður haldinn í fyrsta skipti á morg-
un, sunnudag, og gefst þá almenningi kostur á að heim-
sækja lögreglustöðvar hvarvetna um landið og skoða aðbún-
að lögreglunnar, húsakynni, tækjakost, fjarsldpti, lögreglu-
bifreiðar og svo framvegis. Ennfremur verður fólki gefið
tækifæri á að kynnast og ræða málefni sem tengjast lög-
gæslu, svo sem umferðarmál í heimabyggð og koma þar á
framfæri sjónarmiðum sínum um það sem betur mætti fara.
„Það er í samræmi við þessi sjónarmið sem táknorð dags-
ins voru valin „Lögreglan og almenningur,“ sagði Ásgeir
Pétursson bæjarfógeti í Kópavogi, formaður fimm manna
nefndar sem dómsmálaráðherra skipaði til að annast undir-
búning Dags lögreglunnar. Hann sagði að það sem einkum
vekti fyrir stjórnvöldum með degi lögrelgunnar væri að
veita fólki, ungum sem öldnum, færi á að kynnast verkefn-
um og starfsemi lögreglunnar í landinu.
„Lögreglan er þjónn almenn-
ings en ekki herra hans. Hlutverk
hennar er auðvitað að vernda
heildarhagsmuni fólksins. Þótt
lögreglan verði stundum að grípa
inn í háttsemi einstaklinga eða
hópa sem ekki virða reglur þá
er það allt byggt á því í okkar
lögum að vernda almannaheill
og frelsi. Aðaltilgangur dagsins
er að stuðla að gagnkvæmu
trausti jögreglu og almennings,"
sagði Ásgeir.
Hann kvað aðstæður til þess
að taka á móti fólki ólíkar í hin-
um ýmsu lögregluumdæmum og
sagðist vilja biðja þá sem ætluðu
að heimsækja lögreglustöðvarnar
að taka tillit til þess. „Sumsstað-
ar eru nýleg húsakynni, með
ýmsum vönduðum útbúnaði, sér-
stökum íjarskiptastöðvum, ljós-
myndaherbergjum, bifreiða-
'geymslum o.s.fiv. Þar eru líka
hollustusamleg aðstaða fyrir
vakthafandi lögreglumenn svo
sem borðstofa og eldhús, hvíldar-
herbergi, böð og íþróttaaðstaða.
Á öðrum stöðum er aðstaðan
erfið og ofullnægjandi. En þessi
kynning á ekki að veijast í sykur-
hjúp. Rétt er að fólk sjái bæði
góðan aðbúnað og slæman. Lög-
reglan kemur því til dyra eins
og hún er klædd. En þá er rétt
að hafa í huga að stuðningur
fólks við umbætur þar sem að-
stæðan er verst, er Iíka mikilvæg-
ur,“ sagði Ásgeir Pétursson.
Aðspurður um dagskrá dags
lögreglunnar sagði Ásgeir að lög-
reglustöðvar yrðu opnar fyrir al-
menning frá klukkan 14-18. „I
Reykjavík verður aðallögi'eglu-
stöðin á Hverfisgötu opin al-
menningi og hverfastöðvar verða
líka opnar fólki þennan dag. Á
höfuðborgarsvæðinu er að öðru
leyti sama að segja. Lögreglu-
stöðvar í Kópavogi og Hafnar-
firði verða opnar með sama hætti
Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti.
og ráðgert er að svipaður háttur
verði hafður um allt land. Dóms-
málaráðherra flytur ávarp í út-
varpið í hádeginu. Lögreglukór-
inn syngur í anddyri lögreglu-
stöðvarinnar við Hverfisgötu
klukkan 15 fyrir þá sem áhuga
hafa á góðum karlakórssöng.
Sitthvað fleira er til kynningar
og allir sem koma fá ókeypis ein-
tak af „Lögreglumanninum",
blaði landssambands Lögreglu-
manna, sem helgað er deginum,“
sagði Ásgeir. Hann sagði að einn-
ig yrðu í lögreglustöðvum veittar
upplýsingar um forsendur þess
að komast í lögreglustarf og
einnig um lögregluskólann.
„Þýðingarmesti þáttur í starfi
löggæslunnar er verndun samfé-
lagsins gegn ofbeldi og afbrotum.
En hlutverk lögreglunnar er auð-
vitað víðtækara en svo að það
sé einvörðungu fólgið í vörn gegn
brotamönnum. Margháttuð
vernd er snertir heilsu og holl-
ustu, barátta gegn neyslu skað-
legra efna og vernd efnahags-
legra gæða og gæsla tiltekinna
siðferðismálefna geta lika varðað
starf lögreglunnar - og gerir það
vissulega þráfaldlega,“ sagði
Ásgeir Pétursson. „Þetta starf,
löggæslan í landinu, tengist því
býsna mörgum þáttum þjóðlífsins
og skiptir því að sjálfsögðu miklu
máli að almenningur viti og skilji
hlutverk lögreglunnar og læri að
meta verndunarhlutverk hennar
og virða viðleitni löggæslumanna
tií þess að halda uppi allsheijar-
reglu. Það er því afar þýðingar-
mikið að efla tengsl lögreglunnar
við borgarana, styrkja almenn-
ingsálit í garð lögreglunnar og
auðvelda þannig starfsemi henn-
ar við uppihald laga. Það eru ein-
mitt slík tengsl, sambandið við
samstarfið milli lögreglu og hins
almenna borgara, almennings í
landinu, sem eru í huga manna,
þegar skipulagður er Dagur lög-
reglunnar," sagði Ásgeir Péturs-
son, bæjarfógeti.