Morgunblaðið - 13.10.1990, Síða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Sálina á vogarskálina
Til Velvakanda.
„Þinn líkami er fagur sem laufg-
uð björk, en sálin er ægileg eyði-
mörk.“ (D.S.) Oft höfum við nú að
vísu vanist þessu öfugt, þ.e. að
syndin saurgi líkamann, en sálin
skyldi þá helst vera saklaus og hrein
þegar hún losnar úr prísundinni á
hinum hinsta degi.
Menningin hvílir á gömlum merg.
Hún er eins og úthafsaldan, djúp
og þung. Skipbrot verða frekast á
grunnsævi. Hefð og siðir eru yfir-
hafnir menningarinnar. Við klæð-
umst sama siðgæðinu ár eftir ár,
eins og forfeður okkar, af hefð og
venju.
A fimm þúsund ára gömlu menn-
ingarsögulegum ferli okkar hefur
margt breyst. Eitt lífsviðhorf hefur
þó orðið öðrum lífsseigara, en það
eru hugmyndir okkar um sálina og
sögulegan þátt hennar i lífi okkar.
Tvískiptingin sál/líkami er uppi-
staðan í mörgum trúarbrögðum.
Menn tala jöfnum höndum um sál
og anda, þó er eins og andinn verði
eftir þegar menn andast, og sálin
yfirgefur líkamann.
Andartúarmenn eða spiritistar
hafa mestan áhuga fyrir lífinu
handan móðunnar miklu, og því
hvernig koma má á sambandi við
hina framliðnu.
Sálin virðist samkvæmt þessu
hafa lifað af dauðann, og lifi nú
áfram sjálfstæðu lífi.
Kristin kirkja kallar þetta kukl
og galdra (látið framliðna í friði)
en sjálflr segjast ókristnir spiritistar
vera að boða nýja trú sem leysa
muni kristindóminn af hólmi.
Spurt er um það hvort spiritismi
sé trú eða vísindi. Ef andartrúar-
menn eingöngu leitast við að safna
frásögnum um yfirnáttúruleg fyrir-
bæri, en reyna ekki að rannsaka
með hvaða hætti slík atvik eiga sér
stað, þá geta þetta a.m.k. ekki tal-
ist vísindaleg vinnubrögð.
Sálfræðingar hafa að vissu leyti
fastari jarðveg undir fótum. Þeir
hafa eingöngu áhuga fyrir lifandi
sál eða anda, og þeirra verkefni er
að rannsaka og útskýra hvernig
sálin/andinn verkar á líkamann og
öfugt.
En hvað er þá sál? Hún hefur
enga stærð lögun né lit. Hún verður
hvorki mæld né vegin, og hún hefur
engin ytri einkenni.
Það er erfitt að hrófla við gam-
alli hefð og trú
„Sígildum sannleika“ má líkja við
gamlar gróusögur, séu þær kveðnar
nógu oft og lengi, þá enda þær sem
„heilagur sannleikur“. Það er að
reiða hátt til höggs að vilja sálina
feiga, en orðaleikur getur valdið því
hvaða merkingu hver og einn legg-
ur í orðið sál. Hentisemi virðist
þannig ráða orðavali þegar talað
er um sál og anda.
Kraftaverk er ekki hægt að end-
urtaka, væri svo, væru þau ekki
lengur kraftaverk. Sönnunargildi
frásagnar byggist einmitt á því að
hægt er að sanna atvikið með end-
urtekningu.
Yfirnáttúrulegt er allt það sem
ekki lýtur náttúrulögmálum. Menn
tileinka því Guði hið yfimáttúrulega
af því að hann á að geta upphafið
og brotið eigin lögmál.
. Yfirskilvitlegt er aftur það sem
við ekki skiljum í dag, en sem beita
má dómgreind og reynslu til að
skilja etv. þótt síðar verði.
Hér eru því vatnaskil trúarinnar
annarsvegar, og reynslu og þekk-
ingar hinsvegar. Ég er ekki tækni-
fræðingur, þó skilst mér að beisluð
orka sem við þekkjum sem raf-
magn, talsíma, útvarp, sjónvarp,
o.s.frv. sé öll af manna völdum, og
það enda þótt þetta hefði allt verið
talin kraftaverk fyrir aðeins hundr-
að árum.
Já, hvað er sál og hvað er andi?
Frá páfagarði bárust þær fréttir
hér á árunum að „maðurinn“ gæti
tæknilega séð hafa orðið til fyrir
hreina hendingu, en bætti hans
heilagleiki við „Guð blés allavega
andanum í hann“. Kirkjuhöfðingj-
anum léðist þó að geta þess hvað
„andi“ er, og erum við því engu nær.
Það er e.t.v. engin furða. Menn
elta sálina eins Qg skuggann af
sjálfum sér. Þeir grípa þó alltaf í
tómt. Sálin verður ekki skilin frá
líkamanum frekar en skugginn.
Sálin er sólargeisli líkamans. Sál
og líkami eru eitt og hið sama.
Sálin/andinn er vottur þess að við
lifum. Sálin býr ekki í líkamanum
hún er líkaminn. Öll líffæri líka-
mans eru tengd saman í eitt kerfí.
Þau verka hvert á annað og frá
þeim öllum stafar útstreymi. Vegna
þessa er það sannað að menn geta
læknað sjálfa sig, jafnvel af alvar-
legustu sjúkdómum með hugarorku
einni saman. En einnig orkustreymi
utanfrá getur verkað bæði jákvætt
og neikvætt á okkur. E.t.v. gætum
við kallað alla samverkandi þætti
líkamans einu nafni — sál.
Þetta þriggja milljarða gamla
sprengjubrot úr sólinni sem við
köllum heimili okkar, einstætt í al-
heimi að því leyti að hvergi annars-
staðar finnst vottur af lífi.
Hér á jörðu kviknaði svo líf fyrif
300 milljónum ára, þegar við sem
einfrymingar börðumst fyrir lífí
okkar í einhverri forarvilpunni.
Þar eð andi er vottur um líf, og
sálin er starfandi andi, þá eru allar
lifandi verur gæddar anda, og að
þessu leyti aðskiljum við okkurekki
frá öðrum lífverum jarðar.
Já, „maðurinn" hefur verið „í
smiðju" í 300 milljón ár. Hvernig
litum við út eftir næstu 300 milljón
ár? Hefur andinn þá gegnum-
streymt allt hold og maðurinn þann-
ig orðið algjörlega meðvitaður um
sjálfan sig? Hvað bíður okkar: Nir-
vana, fullkomnun, guðdómur eða
ragnarök. Ég eftirlæt það öðrum,
mér getspakari, að spá í það.
Með ESP (extra sensory perc-
eption) rannsóknum hefur opnast
alveg nýr heimur. Enginn veit í dag
hvað rannsóknir á sjötta skilningar-
vitinu fjarhrif, fjarskyn og fjarsýn,
svo og áhrif andans á hinn lífvana
efnisheim, leiða í ljós. Fyrirbæri sem
virðast óháð tíma og rúmi, svo og
hinum fimm þekktu skilningarvit-
um
Við höfum barið á dyr, og opn-
ast hefur smá smuga inn í óendan-
leikann. Látum okkur því í lokin
gleðjast yfir því sameiginlega hvað
við eigum ennþá margt öreynt og
ólært — um sálina.
Richardt Ryel
FLUGLEIÐIR
»
HLUTHAFAFUNDUR
Hluthafafundur í Flugleiðum hf. veróur haldinn þriðjudaginn
23. október í Höfða, Hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst kl. 16.00.
DAGSKRÁ:
1. Breyting á samþykktum félagsins.
a) Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins um heimild
til stjórnar til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta til núver-
andi hluthafa eóa nýrra hluthafa, fáist ekki áskrift hjá núver-
andi hluthöfum fyrir allri aukningunni.
b) Tillaga um breytingu á 5. gr. b. þess efnis, að arður skuli
greiddur innan þriggja mánaða frá ákvörðun aóalfundar um
arðgreiðslu.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, reikningar félagsins og skýrsla
stjórnar munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum
til sýnis, 7 dögum fyrir hluthafafundinn.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild, 2. hæð, frá og með 16. október
nk. kl. 9.00-17.00, fundardag til kl. 15.30.
Sijórn Flugleióa hf.
Bridgenámskeið
Bridgenámskeið Bridgefélags Hafn-
arfjarðar og nágrennis hefst þriðju-
daginn 16. okt.
Skráning í síma 51983.
Svissneskur
hótel- og ferðamálaskóli
2 ára nám í hótelstjórnun. Lýkur með prófskírteini.
Eini skólinn í Sviss þar sem kennsla fer fram á
ensku og námið er viðurkennt af HCIMA.
Námið fæst metið í bandarískum og evrópskum
háskólum.
1 árs nám í ferðamálafræði. Lýkur með prófskírteini.
Námskeið í almennum ferðaskrifstofustörfum.
IATA réttindi.
Skrifið til:
HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL,
1854 D Leysin, Switzerland.
Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821.
HOSTR
31 árs rcynsla.
, ■■■■.. ................
PRÓFKjÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í REYKJAVÍK
Við höfum opnað
kosningaskrifstofu
að Nóatúni 17, 2. hæð.
Opið frá kl. 10-20 alla daga.
Símar: 26074 og 26076.
Lítið við - alltaf heitt
á könnunni!
*
JT.