Morgunblaðið - 13.10.1990, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Framarar selja
sjónvarps- og
auglýsingarétt
til Hollands
Framarar eru nú að vinna í að selja sjónvarpsrétt á leik sínum
gegn Barcelona og hafa þeir verið í sambandi við hollenskt fyrir-
tæki, sem sér um málið fyrir Fram.
Sjónvarpað verður beint frá leik Fram og Barcelona þriðjudaginn
23. október til Spánar. Síðast þegar félögin léku í Evrópukeppninni
var aðeins sjónvarpað til Kataloníu, en nú verður leikurinn sýndur um
allan Spán.
Samhliða sjónvarpsendingunni mun spænskt auglýsingafyrirtæki sjá
um að koma auglýsingaskiltum upp á Laugardalsvellinum.
Kvennalandsliðið á sex
þióða mót í Hollandi
KVENNALANDSLIÐIÐ íhand-
knattleik er á förum til Hol-
lands, þar sem það tekur þátt
í sex landa móti. Mótherjar ís-
lands eru Rúmenía, Angóla,
Holland, Pólland og Noregur.
íslensku stúlkurnar leika fyrst
gegn Hollendingum á miðviku-
daginn kémur - í Rotterdam,
er þar fer mótið fram.
Slavko Bambir, landsliðsþjálf-
ari, hefur valið landsliðshóp
sinn. Landsliðið er byggt upp í
kringum Víkingsliðið, en sex stúlk-
ur úr Víkingi eru í landsliðinu.
Landsliðshópurinn er þannig
skipaður:
Markverðir:
Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram
Halla Geirsdóttir, Bodö
Fanney Rúnarsdóttir, Grótta
Aðrir leikmenn:
Guðni Gunnsteinsdóttir, Stjörnunni
Herdís Sigurbergsdóttir, Stjörnunni
Sigrún Másdóttir, Stjörnunni
Inga Lára Þórisdóttir, Víkingi
Halla M. Helgadóttir, Víkingi
Heiða Erlingsdóttir, Víkingi
Matthildur Hannesdóttir, Víkingi
Svava Sigurðardóttir, Víkingi
Andrea Atladóttir, Víkingi
Inga Huld Pálsdóttir, Fram
Auður Hermannsdóttir, Selfossi
Hulda Bjarnadóttir, Selfossi
Inga Fríða Tryggvadóttir, Selfossi
Kolbrún Jóhannsdóttir
Iþróttir
um helgina
Handknattleikur:
1. deild karla:
Laugardagur:
Garðabær: Stjarnan - KA...16.30
Kaplakriki: FH - Haukar...16.30
Seljask.: ÍR - Grótta.....16.30
Sunnudagur:
Höll: Víkingur - Fram.....16.30
Höll: KR - Selfoss........20.00
1. deild kvenna:
Laugardagur:
Garðabær: Stjarnan - Fram ....15.00
Selfoss: Selfoss-ÍBV......14.00
Valsh.: Valur-Grótta......16.30
Sunnudagur:
Höll: Víkingur - FH.......15.00
2. deild karla:
Laugardagur:
Akureyri: Þór - Ármann....14.00
Seljask: ÍS - Njarðvík....13.30
Sunnudagur:
Húsav.: Völsungur - Ármann..l 4.00
Keflavík: ÍBK - IH........14.00
Varmá: UMFA - UBK.........14.00
Körfuknattleikur:
Úrvalsdeild:
Laugardagur:
Höll: KR - Snæfell........16.00
Sunrtudagur:
Akureyri: Þór - ÍBK.......20.00
Sauðárk.: UMIT - UMFG.....20.00
Mánudagur:
Hafnarf.: Haukar - UMFN 20.00
1. deild kvenna: '
Laugardagur:
Keflavík: ÍBK-KR.........14.30
Sunnudagur:
Seljask.: IR - Haukar....20.00
Mánudagur:
Kennarahásk.: ÍS - UMFG..20.00
Öskjuhlíðarhlaup ÍR
Hið árlega Öskjuhiíðarhlaup ÍR fer
fram í dag. Hlaupið er öllum opið
og fer skráning fram kl. 13 til 13.35
að Hótel Loftleiðum, en hlaupið
hefst rétt við hótelið kl. 14.
Karate
Landskeppni í karate fer fram í
Hagaskólanum á morgun kl. 17.
Landslið íslands, Skotlands og N-
írland keppa í sveitakeppni og opn-
um flokki.
SJONVARP
Vanefndir og klúður
BEIN útsending Sjónvarpsins
frá knattspyrnulandsleik
Spánverja og íslendinga í
Sevilla á Spáni sl. laugardag
olli slíku fári að óvenjulegt
má teljast og erum við starfs-
menn Iþróttadeiidar þó ýmsu
vanir. Aðdragandinn ein-
kenndist af svikum, klúðri og
vanefndum hvers konar. Hér
á eftir er ætlunin að rekja
þetta mál stuttlega þannig
að íþróttaáhugamenn geti
áttað sig á því umhverfi sem
okkur er nú gert að starfa í
að hluta.
Imaímánuði sl. var undirritaður
samningur á milli RUV og Knatt-
spyrnusambands íslands (KSÍ) um
réttindi til útsendinga, upptöku á
leikjum o.fl. Þar er m.a. klásúla um
að KSÍ eða umboðsaðili fyrirtækis-
ins skuli útvega RUV sjónvarps-
merki (e. ,,signal“) frá leikjum
íslenska landsliðsins erlendis. Skrif-
leg staðfesting þarf að hafa borist
RUV 14 dögum fyrir viðkomandi
leik. RUV greiðir fyrir þessi rétt-
indi með tvennum hætti, annars
vegar með beinum greiðslum og
hins vegar með því að taka upp og
senda leiki landsliðsins hérlendis til
erlendra sjónvarpsstöðva. Það hefur
verið gert í tvígang. í tengslum við
þennan samning framseldi KSI
síðan sjónvarpsrétt á landsleikjum
hér til umboðsfyrirtækis í Hollandi,
Inter Football að nafni og tryggði
í samningi aðila, að RUV fengi út-
sendingarrétt og sjónvarpsmerki
frá leikjum íslenska landsliðsins
erlendis. Þessi var staðan í björtum
maímánuði sl.
RUV hefur nánast hnökralaust
uppfyllt skilyrði samningsins sem
að stofnuninni snúa, m.a. með út-
sendingu til Frakklands og upptök-
um á leikjum 21 árs liðsins og lands-
leiknum við Albaníu. 26. maí var
komið að því hjá KSI/Inter Foot-
ball, að standa við samningana frá
því í maí þegar Tékkar léku við
Ingólf
Hannesson
okkar menn í smábænum Kovicé í
Tékkóslóvakíu. Staðfesting frá hol-
lenska fyrirtækinu barst ekki 14
dögum fyrir leikinn eins og stendur
svart á hvítu í samningi okkar við
KSÍ. Eftir mörg símtöl til Hollands,
japl, jaml og fuður kom staðfesting
þriðjudaginn 25. september, daginn
fyrir leik. RUV hafði með löngum
fyrirvara gengið frá pöntun á gervi-
hnattarsambandi frá Prag, en
þangað var KSÍ/Inter Football ætl-
að að skila sjónvarpsmerkinu
samkv. samningi. Þegar starfs-
menn íþróttadeildar höfðu samband
við tékkneska sjónvarpið kannaðist
enginn við að búið væri að ganga
frá því, að íslenska sjónvarpið hefði
rétt til þess að senda frá leiknum.
Ennfremur var vinum okkar ' í
Tékkóslóvakíu ókunnugt um að
þeir ættu að koma sjónvarpsmerk-
inu frá Kosicé til Prag, eins og Int-
er Football átti að ganga frá við
tékkneska sjónvarpið. Daginn fyrir
leik höfðu orðið vanefndir á öllum
atriðum í samningi okkar við KSÍ,
sem snerta slíka sendingu. Vegna
fjarvista undirritaðs hafði Bjarni
Felixson umsjón með útsendingunni
og sakir fádæma elju tókst honum
að fá allar staðfestingar á útsend-
ingarrétti á hreint, m.a. með ótelj-
andi símtölum til Tékkóslóvakíu,
Hollands og Austurríkis, en þar
hefur aðsetur umboðsfyrirtæki
tékkneska knattspyrnusambands-
ins. Á síðustu stundu tókst einnig
að fá aukaleið fyrir sjónvarpsmerk-
ið frá Kosicé til Prag, en þá var
langt liðið á leikinn og gæðin voru
fyrir neðan allar hellur. Svona var
staðið við gerða samninga í þessu
tilfelli.
Ég kom til landsins miðvikudag-
inn 3. október og boðaði til fundar
með forráðamönnum KSÍ daginn
eftir vegna Tékkóslóvakíumálsins
og fyrirsjáanlegra vanefnda vegna
leiksins við Spán sl. miðvikudag,
10. október. KSÍ-menn fullyrtu að
í öllum samningum við umboðs-
fyrirtæki væru ákvæði um rétt
KSÍ/RUV til beinna útsendinga frá
leikjum íslenska landsliðsins erlend-
is. Vanefndir væru ekki af þeirra
hálfu, heldur væru umboðsfyrir-
tækin ábyrg og KSÍ myndi reyna
að tryggja að þau stæðu við gerða
samninga. Reyndar er mér full-
kunnugt um að KSÍ-menn gerðu
sitt til þess að fá málin á hreint.
Spænska ríkissjónvarpið, TVE,
■átti útsendingarrétt á leiknum í
Sevilla sl. miðvikudag og stöðin var
ekki tilbúin til þess að senda hann
til íslands nema að til kæmu kaup
á útsendingarrétti á leik þjóðanna
hérlendis á næsta ári. En svo
óheppilega vildi til að KSÍ hafði
framselt þann rétt til Inter Fóot-
ball í Hollandi, sem seldi til umboðs-
fyrirtækis á Spáni (Edit Media),
sem seldi áfram tiL einkasjónvarps-
stöðvarinnar Canal Plus í Frakk-
landi og á Spáni. Einbjörn togaði í
tvíbjörn, sem togaði í þríbjörn ...
Nú byijaði ballið fyrir alvöru. RUV
pantaði allar línur og fékk samband
um gervihnött og hefði síðan átt
að bíða í rólegheitum eftir stað-
festingu. Það var ekki gert og reynt
að toga í alla spotta alls staðar.
Hið sama gerði KSÍ, en hvorugur
aðilinn hafði nauðsynlegt vald til
þess að knýja aðila til samninga.
Eftir óteljandi símtöl, hótanir um
lögsókn og miskabætur og telefax-
samskipti hvers konar varð ljóst á
feikdegi að eina lausnin væri fólgin
í því að Inter Football rifti samning-
um við Edit Media og Canal Plus
og semdi síðan beint við spænska
ríkissjónvarpið. Á undraskömmum
tíma á miðvikudaginn tókst að
koma því í kring. Tveimur tímum
fyrir leikbyrjun fengu KSf og RUV
staðfestingu á því að málið væri
komið í höfn. Ruglið, vanefndirnar
og svikin voru á enda að þessu sinni.
Dagskrá Sjónvarpsins var breytt
nokkrum sinnum vegna þessa máls
og það varð m.a. til þess að nokkr-
ir íþróttaáhugamenn misstu af
leiknum margumtalaða, m.a. ágæt-
ur Víkveiji Morgunblaðsins, sem sá
ástæðu í föstudagsblaði (12/10) til
að atyrða Ríkisútvarpið fyrir fram-
gönguna í málinu. Hins vegar
hringdu hundruð sjónvarpsáhorf-
enda til okkar á leikdegi til þess
að frétta af gangi mála og reynt
var að koma tilkynningum á fram-
færi í Utvarpinu og í Sjónvarpinu.
Slagur sjónvarpsstöðva víðs veg-
ar í Evrópu um sjónvarpsréttindi
er alveg með ólíkindum og inn í
þá orrahríð blandast tugir umboðs-
fyrirtækja, sem sum hver eru ekki
vönd að virðingu, eins og dæmin
sanna. í slagnum frameftir vikunni
rákust fullyrðingar á og ekki var
hikað við að bera samningsaðila
þungum sökum, m.a. um lygar.
Samningar voru túlkaðir eins og
best. hentaði hveiju sinni. Vissulega
þarf þetta ekki að koma á óvart
því undirritaður hefur í alþjóðlegu
samstarfi undanfarin tvö ár heyrt
ótal dæmi sem hníga í sömu átt.
Þó verð ég að fullyrða að við hjá
RUV héldum og trúðum því, að
nákvæmur og vel undirbúinn samn-
ingur okkar við KSÍ myndi halda.
Því miður hefur það ekki orðið raun-
in. KSÍ er í raun vorkunn vegna
þess að sambandið gerði samning
við umboðsfyrirtæki, sem síðan
seldi „vöruna" til næsta aðila. Þar
með eru málin að hluta komin úr
höndum KSÍ. Formanni og fram-
kvæmdastjóra sambandsins vil ég
segja þáð til hróss, að þeir lögðu
sitt af mörkum til þess að lausn
fengist í slagnum útaf Spánarleikn-
um. Formaðurinn hefur ennfremur
fullyrt að þessi staða komi ekki upp
aftur, en við eigum að keppa við
Albani og Frakka á næsta ári. Við
skulum vona að hann sé maður
forspár.
Ingólfur Hannesson er íjjróttastjóri RÚ V
GETRAUNIR
STJARNAN
KNATTSPYRNUDEILD
Uppskeruhátið 1990
verður haldin í Garðalundi sunnudaginn 14. október
kl. 15.00-17.00.
Dagskrá:
Afhending viðurkenninga og verðlauna.
Veitingar: Gos, kaffi og kökur.
Allir iðkendur, foreldrar og velunnarar Stjörnunnar
eru hvattir til að koma.
Stjórnin.
ftfr- Staðan á ýmsum tímum Hálfleikur Úrslit Mín spá 1 x 2 12 réttir
Blackburn : Watford 2. deild
Charlton : Leicester City 2. deild
Hull City : Oldham 2. deild
Ipswich Town : Port Vale 2. deild
Middlesboro : Míllwall r 2. deild
Notts County : Wolves 2. deild
Oxford Utd. : Newcastle 2. deild
Portsmouth : Barnsley 2. deild
Sheffield Wed. : Plymouth 2. deild
Swindon : Bristol Rovers 2. deild
W.B.A. : Brighton 2. deild
Birmingham : Southend 3. deild