Morgunblaðið - 13.10.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGÁRDAGUR 13. OKTÓBER 1990
43
HANDKNATTLEIKUR
■ JOZEF Chovanec, sem leikur
með Eindhoven og Ivo Knoflicek,
sem leikur með St. Pauli, leika með
Tékkurn. Þeir léku ekki með gegn
Islandi vegna meiðsla.
FH-ingarfá Hauka í heimsókn í Kaplakrika
„ÞAÐ er mikil spenna í Hafnar-
firði fyrir leik Hafnarfjarðarlið-
anna, enda eru þrjú á liðin
síðan að félögin áttust við í 1.
deildarkeppninni," sagði Þorg-
ils Óttar Mathiesen, þjálfari
íslandsmeistara FH, sem glíma
við Hauka, en félögin hafa
margar baráttur háð.
að þarf ekki að fara mörgum
orðum um það að hart verður
barist að Kaplakrika í dag þegar
félögin mætast kl. 16.30. „Það er
hugur í mínum mönnum, en þeir
eru ákveðnir að snúa dæminu við
- hætta að vera í hlutverki litla
bróður," segir Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, en hann var einmitt
þjálfari FH síðast þegar félögin léku
í 1. deild. „FH vann þá stórsigur,
með nítján marka mun - og ég
gekk glaður af leikvelli. Nú mæti
ég ineð Hauka á heimavöll FH til
að hefna ófaranna," sagði Viggó.
„Ég veit að Haukar koma í heim-
sókn með það í huga að leggja
okkur að velli. Við munum taka vel
á móti þeim. Annars þekki ég ekki
að tapa fyrir Haukum,“ sagði
Þorgils Óttar.
„Auðvita er ég bjartsýnn. Það
hefur verið góður stígandi hjá
Haukaliðinu og ef strákarnir ná að
leika yfirvegað gegn FH - eru þeir
til alls líklegir. Þetta verður leikur
sem tekur á taugar leikmanna lið-
anna - sannkallaður stemmnings-
leikur,“ sagði Viggó.
„Leikurinn er mjög þýðingamikill
fyrir okkur. Við náðum okkur á
strik gegn KA og erum ákveðnir
að halda áfram á sömu braut.
„Haukamir verða erfiðir. Þeir fengu
mikinn liðsstyrk fyrir keppnistíma-
bilið og hafa leikið vel,“ sagði Þorg-
ils Óttar.
„FH-ingar eru að koma upp úr
lægðinni sem þeir fóru í eftir að
hafa misst Héðinn Gilsson og Þorg-
ils Óttar úr varnarleiknum. Þorgils
Óttar er kominn aftur á ferðina og
Guðjón Árnason hefur tekið skyttu-
hlutverkið hjá FH og hefur staðið
sig vel,“ sagði Viggó.
Það er reiknað með að um 2000
áhorfendur mæti í Kaplakrikan til
að sjá leik FH og Hauka, sem er
fyrsti stórleikur 1. deildarkeppninn-
ar.
Adams. Papin.
toðm
FOLK
■ TONY Adams, fyrirliði Arse-
nal, hefur verið valinn á ný í enska
landsliðshópinn. Hann tekur stæti
Steve McMahon, leikmanns Li-
verpool, sem er meiddur. England
leikur gegn Póllandi á Wembley
á miðvikudaginn.
■ IVAN Hasek, fyrirliði landsliðs
Tékkóslóvakíu, er meiddur og get-
ur ekki leikið með Tékkum gegn
Frökkum í Evrópukeppni lands-
liða í París í dag. Þá fær Vaclav
Danek, sem skoraði sigurmarkið,
1:0, gegn Islendingum á dögunum,
ekki frí frá Tíról í Austurríki, til
að leika.
■ MILAN Macala, þjálfari
Tékka, segir _að leikurinn gegn
Frökkum sé skemmtiiegasta próf'
sem hann hefur farið í. „Við munum
ekki leika varnarleik, heldur verður
leikið til sigurs.“
■ JEAN-Pierre Papin, marka-
skorari Frakka, segir að það sé
dauðadómur - ef Frakkar tapi
fyrir Tékkum.
Óskar Ármannsson
handar-
brotinn
*
Oskar Ármannsson, landsliðs-
maður úr FH, mun ekki leika
með FH-liðinu næstu tvo mánuðina.
Óskar varð fyrir því óhappi að hand-
arbrotna í leik gegn KÁ.
„Það er að sjálfsögðu slæmt fyr-
ir okkur að missa Öskar á sama
tíma og við höfum verið að koma
upp úr öldudal," sagði Þorgils Óttar
Mathiesen, þjálfari FH-liðsins.
Þorgils Óttar er nú byijaður að
leika á fullum krafti og hefur hann
kallað gömlu landsliðskempuna
Ragnar Jónsson til liðs við sig, en
Ragnar sér um innáskiptingar og
annað.
Gunnar Beinteinsson, homamaðurinn sterki hjá FH.
Peter Baunruk, tékkneski landsliðsmaðurinn, er einn af lykilmönnum Hauka-
liðsins.
Viggó fagnaði síðast
með FH - nú mætir
hann með Hauka til
til að hefna
Óskar