Morgunblaðið - 16.05.1991, Síða 2
2
ieei IAM .91 HUOAaUTMMn SIQA.iaHUOHOI/
MORGÚNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGÚR Í6TmmT99T
Skipstjórinn á
Eleseusi:
Fékk munn-
legt leyfi
frá Siglinga-
málastofnun
Ólafsvík.
SKIPSTJÓRINN á Eleseusi BA
328, sein færður var til hafnar á
þriðjudag vegna þess að iiaffær-
isskírteini bátsins var runnið út,
segist hafa fengið munnlegt leyfi
frá Siglingamálastofnun til að
fara þennan túr. Hann segir þetta
sóun á pcningum skattborgar-
anna.
„Mér finnst asnalegt að sóa pen-
ingum skattborgaranna í svona has-
ar misviturra embættismanna, að
senda varðskip og flugvél alla leið
úr Reykjavík. Þetta hlýtur að vera
tilbreytingalaust líf hjá þessum
mönnum. Ef þeir hefðu beðið eftir
okkur þar til við kæmum næst til
hafnar hefðu þeir getað sparað eina
til tvær milljónir,“ sagði Níels Adólf
Ársælsson skipstjóri á Eleseusi.
„Ég hefði aldrei farið á sjó án
þess að tala við Siglingamálastofnun
áður. Það gerði ég að kvöldi sunnu-
dagsins 5. maí og fékk munnlegt
leyfi frá deildarstjóra hjá Siglinga-
málastofnun með því fororði að skip-
ið yrði tekið út næst þegar það kæmi
til hafnar," svaraði Níels Adólf, þeg-
ar hann var spurður hvemig stæði á
því að hann færi á sjó án haffær-
isskírteinis.
Haffæriskírteini bátsins rann út
23. mars. „Það er ekki sama hvernig
menn innan stofnunarinnar túlka
reglumar. Það er til dæmis ekki sama
hvar á landinu skipið er skoðað.
Skipið hefur verið í klössun síðan í
febrúar og við fórum ekki út fyrr en
á uppstigningadag," segir Níels
Adólf.
Siglingamálastofnun setti út á'
ýmislegt um borð í Eleseusi. Merkja-
töflur og rofar í stýrishúsi uppfylla
ekki reglur, útleiðsluaðvörun þarf að
vera á hverju sjálfstæðu rafkeri.
Merkja þarf aðaltöflu í vélarrúmi
samkvæmt reglum og rauð strik
vantar þar á ýmsa mæla. Auk þessa
þarf að setja handrið á stiga niður
í vélarrúm.
Morgunblaðið náði ekki sambandi
við umræddan deildarstjóra Siglinga-
málastofnunar í gær.
Alfons.
Hugað að hraðanum
Morgunblaðið/Sverrir
Lögreglan í Reykjavík var í gær við hraðamælingar á götum borgarinn-
ar. í hvert sinn, sem slíkt er gert, reynast allmargir ökumenn fara
of hratt. Þá segir lögreglan áberandi, að þegar veður batnar fara
menn sér hraðar og verða verstu slysin oft þegar færð er með besta móti.
Beðið eftir vaxtahækkun á verðbréfamarkaði:
Bruninn á Lindargötu 45:
Eigendurnir gera húsið upp
EIGENDUR hússins á Lindargötu 45 í Reykjavík, sem skemmdist
illa í eldsvoða á þriðjudaginn, kveða tjón sitt vegna brunans til-
finnanlegt, en eru samt sem áður staðráðnir í að gera það upp.
Húsið á Lindargötu 45, Bakka- sagði Sveinbjörn, að þau hefðu
búð, var reist árið 1884 af Þor-
steini Þorsteinssyni skipstjóra.
Húsið hefur staðið autt undanfar-
in ár en í fyrra eignuðust þau
Sveinbjörn Gunnarsson og Kol-
brún Mogensen það.
í samtali við Morgunblaðið
áformað, að gera húsið upp og
flytja það að Bakkastíg 3. Þau
hefðu ætlað sér að gera á því
nokkrar breytingar, sem einkum
miðuðu að því að færa útlitið í
upprunalegt horf. Undirbúningur
þeirra hefði staðið í heilt ár og
byijað hefði verið að grafa grunn-
inn núna á þriðjudaginn.
„Það varð auðvitað mikið tjón
í brunanum," sagði Sveinbjörn.
„Húsið var ekki tryggt. Við feng-
um hvergi að tryggja það vegna
þess að það var ekki búið í því.
Efri hæðin og risið brunnu illa,
þannig að þakið, og svo gólfið
milli hæðanna, fór mjög illa út
úr þessu. Auk þess veldur það
miklu tjóni fyrir okkur að allar
áætlanir varðandi endurbygging-
una raskast."
Sveinbjörn sagði að þrátt fyrir
þetta tjón hefðu þau ekki fallið
frá áformum sínum um að endur-
reisa húsið. „Þetta verður bara
til þess að við brettum ermarnar
ofar, enda höfum' við tekið miklu
ástfóstri við þetta hús,“ sagði
hann.
Kaupendur verðbréfa fjárfesta
aðallega í skammtímabréfum
Kolbrún Mogensen og Sveinbjörn Gunnarsson.
Á myndinni, sem er tekin um aldamótin, stendur Þorsteinn Þor-
steinsson skipsljóri ásamt konu sinni við húsið á Lindargötu 45,
en núverandi eigendur þess hafa hug á að færa útlit þess í sína
upprunalegu mynd.
KAUPENDUR verðbréfa á verðbréfaþingi hafa undanfarið fjárfest í
skammtímabréfum, svo sem ríkisvíxlum og bankavíxlum, frekar en
langtímabréfum eins og spariskírteinum og húsbréfum. Verðbréfasal-
ar segja að þeir sem hyggist kaupa langtímabréf haldi að sér höndum
meðan þeir bíði eftir að vextir á þeim hækki.
Búist hefur verið við hækkun á í næstu viku. Forvextir ríkisvíxla
vöxtum spariskírteina ríkissjóðs, en
nafnvextir þeirra hafa verið 6%
meðan markaðsvextir á verðbréfa-
þingi hafa verið um og yfir 8%. Nú
hefur verið ákveðið að vöxtunum
verði ekki breytt fyrr en í fyrsta lagi
voru hins vegar hækkaðir fyrir
skömmu úr 11% í 14,5%.
Að sögn forsvarsmanna verð-
bréfamarkaða hafa menn undanfarið
frekar fjárfest í skammtímabréfum,
til að draga úr vaxtaáhættu. Friðrik
Jóhannsson framkvæmdastjóri Fjár-
festingarfélagsins sagði að þessi
þróun hefði verið greinileg síðustu
vikur þar sem margir hefðu greini-
lega gert ráð fyrir að vextir á lang-
tímabréfum myndu hækka.
Gunnar Helgi Hálfdánarson for-
stjóri Landsbréfa sagði að verðbréfa-
viðskipti hefðu verið frekar dauf frá
áramótum. Það hefði þó verið merkj-
anlegt að menn hefðu haft meiri
áhuga á skammtímabréfum en hald-
ið að sér höndum við kaup á lang-
tímabréfum. Og engin breyting hefði
orðið á því þótt vextir á slíkum bréf-
um hefðu verið að hækka á verð-
bréfaþingi undanfarið. „Það er eng-
inn vafi á því að menn eru að bíða
eftir því hvað ríkið gerir, og hvort
það muni hafa áhrif til leiðréttingar
á öðrum hliðum fjármagnsmarkaðs-
ins,“ sagði Gunnar Helgi.
Sigurður B. Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka sagði að þeir sem
hyggðust fjárfesta í skuldabréfum
með föstum vöxtum héldu greinilega
að sér höndum og biðu eftir að
vaxtaþróunin skýrðist. Sumir keyptu
ríkisvíxla eða bankavíxla í stuttan
tíma meðan þeir biðu átekta. Sigurð-
ur sagði að þetta hefði orðið hejdur
meira áberandi, eftir að umræða um
hækkun á vöxtum spariskírteina rík-
issjóðs fór í gang. Hins vegar hefðu
vextir verið á hraðri. uppleið í allt
vor og fjárfestar því beðið með
ákvörðun { von um ennþá hærri
vexti.
Samkvæmt upplýsingum frá fjár-
málaráðuneytinu hafa ríkisvíxlar
selst fyrir um 2,7 milljarða króna
síðan forvextir þeirra hækkuðu 6.
þessa mánaðar. Þar með eru nú 7,8
milljarðar útistandandi í ríkisvíxlum,
sem er um 500 milljónum minna en
um áramótin. Hins vegar hafa spari-
skírteini ríkisjóðs ekkert hreyfst
undanfarið.
Útsýnishúsið:
Perlan skal
það heita
BORGARRÁÐ Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum á
þriðjudag að útsýnishús Hita-
veitunnar á Öskjuhlíð hljóti
nafnið „Perlan“.
- Homsteinn var lagður að út-
sýnishúsinu á laugardaginn og
er vígsla þess fyrirhuguð í júní-
mánuði. Þá mun jafnframt hefj-
ast þar rekstur veitingahúss.