Morgunblaðið - 16.05.1991, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1,6. MAÍ 1991
23
Hvað kostar eitt álver?
Ýmislegt skekkir þó þessa mynd
og það þarf að endurmeta nokkra
liði. Rétt að benda á að línurnar
gilda fyrir ákveðin fyrirtæki á
ákveðnum tíma og ekki fyrir orku-
ver og álver almennt. Arðsemi ál-
vers er mjög háð álverðinu. Álverð-
ið var hátt 1989 og arðsemi ÍSAL
er minni í dag. Línurnar eru einnig
brattari vegna þess að fyrirtækin
eiga verin aðeins að hluta. Fyrir-
tæki sem rétt stendur undir vöxtum
getur sýnt mikla arðsemi ef eigin-
ijárhlutfallið er nógu lágt. Fráleitt
virðist einnig eins og tölur Sigurðar
B. Stefánssonar sýna að (afskrifuð)
(járfesting og veltufé ÍSAL sé 4,029
millj./56% = 7,2 milljarðar en að
fjárfesting LV sé 22,988/38% =
60,5 milljarðar. Getur það verið svo
miklu ódýrara að reisa álver en
orkuver? Er ekkert að marka þessar
fullyrðingar ATLANTÁL um háan
byggingarkostnað álvera á íslandi?
Ætli ÍSAL sé nokkuð falt fyrir 7,2
milljarða? Fyrirtæki sem á miklar
inneignir og birgðir og seldi fyrir
meira en 10 milljarða 1989 eða
helmingi meira en öll sala LV til
allra? Er þetta ekki einungis dæmi
um það hvernig hagræða má bók-
haldinu til að komast hjá því að
taka á sig réttlátan hlut af skatta-
byrði þjóðfélagsins? Er þá ekki eðli-
legast að þjóðnýta fyrirtækið fyrir
bókfært verð og selja svo íslenskum
rekstraraðilum. Það er aumingja-
skapur að láta endalaust arðræna
sig.
Af ársskýslum ISAL má sjá að
stofnverð þess var um 16,7 milljarð-
ar (verðlag ’89) og því aðeins rúm-
lega helmingur af stofnverði orku-
veranna sem þarf til að sjá fyrir
nægri raforku. Núvirði er rúmir 18
milljarðar og samkvæmt þessu ætti
ATLANTÁL álverið a kosta um 40
milljarða en virkjanirnar sem það
þarf munu kosta 60 milljarða.
Byggingarkostnaður ATLANTÁL
álversins er þó almennt áætlaður
hærri eða 60 milljarðar. Hér ég
ekki skýringu á þessum mikla mun
en tel byggingarkostnað þess eitt-
hvað ofmetinn. Bókfært verð allra
fasteigna og véla ÍSAL er aðeins
3,1 milljarður.
Einn tuttugasti hlutinn af bók-
færðu verðmæti fasteigna LV en
tekjur ÍSAL eru helmingi meiri,
Afskriftir ÍSAL eru óeðlilega háar
og það er nauðsynlegt að endur-
meta eignir þess og hagnað. Það
er að lokum ekki rétt í þessu sam-
hengi að líta á arðsemi Landsvirkj-
unar í heild sinni. Megnið af tekjum
hennar kemur ekki frá ÍSAL og
nauðsynlegt að meta þann hluta
sem framleiðir rafmagn fyrir ÍSAL.
Þetta verður gert í seinni grein.
Hljómsveitin Inferno 5.
■ LISTMIÐL UN Inferno 5
gengst fimmtudaginn 16. maí fyrir
dagskrá í orðum, hljóðum og mynd-
um á veitingahúsinu Tveim vinum
við Frakkastíg. Þeir sem koma
fram eru hljómsveitin Inferno 5
sem leika_ mun eigin danstónlist og
kynna þijú splunkuný lög, hljóm-
sveitin Reptilicus og skáldin Sjón
og Þorri sem lesa munu upp úr
verkum sínum. Dagskráin hefst
stundvíslega kl. 22.00 og er að-
gangseyrir 500 krónur.
VOR OG
SUMAR TÍSKAN
CIAO KOMI
F
N
I
RÁ
SNORRABRAUT 56 C 13505 + C 14303
KAUPSTADUR
ÍMJODD
SKOÐADU
OG
ÍDAG
I dag er tilvalið að líta við í nýja sýningarsal
Gísla JÖnssonar & co. í Borgartúni 31 og
skoða nýju Camp-let tjaldvagnana, Royal,
Concorde og Apollo. Hörkugóðir tjaldvagnar
á mjög hagstæðu verði. Einnig eru á boðstól-
um margskonar ferðavörur, svo sem gasgrill,
gásvörur, borð og stólar, farangurskassar og
ýmsir aukahlutir. Camp-let er tjaldvagninn
sem reynst hefur best á íslandi.
Verið velkomin!
mPMwm.
Gísli Jónsson & Co.
Sundaborg 11 Sími 91-686644
Skrifstofa Gísla Jónssonar er í Sundaborg 11, ® 686644, Sýningarsalur Borgartúni 31, ® 626747. Opið alla virka daga frá kl. 10-6, laugardaga kl. 10-4.