Morgunblaðið - 16.05.1991, Page 35
.. M(fl{GC]^jáb&:raMiJC£)AúúÍi' Mlímal:!
Stjórnarskrá og þingsköp:
Endurskoðun og tíma-
bærar breytíngar
I GÆR voru fundir í efri og neðri deild Alþingis. Til umræðu voru
frumvörp sem varða Alþingi, starf þess og stöðu; að Alþingi starfi
framvegis í einni deild. I efri deild var frumvarp um breytingu á
sljórnarskránni rætt. Og í neðri deild var frumvarp um þingsköp
Alþingis til umræðu. Bæði frumvörpin fengu jákvæðar undirtektir.
Þingsköp
Páll Pétursson (F-Nv) mælti í
neðri deild fyrir frumvarpinu um
þingsköp Alþingis en fulltrúar allra
þingflokka standa að því. Framsög-
umaður benti á, að vegna afnáms
deildaskiptingar Alþingis yrði að
endurskoða og gera nokkrar aðrar
tímabærar breytingar á þingsköp-
unum. Páll gerði síðan grein fyrir
helstu breytingum og nýmælum,
m.a. má nefna að varaforsetar
þingsins verða fjórir og mynda
ásamt aðalforseta forsætisnefnd
þingsins. Verkefni forsætisnefndar-
innar verður að gera starfsáætlun
fyrir hvert þing og skipuleggja störf
þingsins nánar.
Verulegar breytingar verða á
nefndastörfum þingsins. Fasta-
nefndum fækkar úr 23 í 12. En
lagt er til að í ölium nefndum sitji
9 þingmenn í stað 7 áður. Af þess-
um 12 nefndum hafa 11 starfað
áður en nýrri nefnd, umhverfís-
nefnd, verður komið á fót. Heiti
tveggja nefnda breytist, fjárhags-
og viðskiptanefnd verður efnahags-
og viðskiptanefnd og fjárveitinga-
nefnd verður fjárlaganefnd.
í frumvarpinu er það nýmæli að
fjárlaganefnd skal að jafnaði vísa
til annarra fastanefndaa þeim þátt-
um fjárlagafrumvarpsins sem fjalla
um málefnasvið þeirra. Gert er ráð
fyrir því að fastanefndirnar geti
annast viðtöl og tekið við erindum
sem fjárveitinganefnd hefur hingað
til haft á sinni hendi. Framsögu-
maður tók skýrt fram að við athug-
un á fjárlagafrumvarpinu störfuðu
fastanefndirnar í umboði fjárlaga-
nefndar.
Form umræðna breytist nokkuð,
m.a. verður heimilt að veita stutt
andsvör við ræðum eins og tíðast
á þjóðþingum erlendis. Er megintil-
gangur þeirrar breytingar að gera
umræður líflegri, skoðanaskipti
hraðari en jafnframt styttri. Við
meðferð venjulegra þingmála gilda
sömu reglur og verið hafa að öðru
leyti en því að hinn ótakmarkaði
réttur ráðherra til þáttöku í umræð-
um er nú bundinn við þann ráð-
herra sem flytur mál eða ber ábyrgð
á þeim málaflokki sem er til um-
ræðu. Ræðutími í þingskaparum-
ræðu verður takmarkaður. Enginn
þingmaður má tala lengur en fimm
mínútur í senn um þingsköp. Utan-
dagskrárumræður verða takmark-
aðar þannig að málshefjandi og
ráðherrar mega ekki tala lengur en
í hálftíma og aðrir þingmenn ekki
lengur en í stundarfjórðung en allir
mega tala tvisvar.
Reglur um meðferð þingmála
breytast verulega, t.a.m. er það
nýmæli að skylt verði að vísa máli
til nefndar, ef einhver þingmaður
eða ráðherra krefst, hafi það tekið
breytingum við 2. umræðu á annan
hátt en þann sem þingnefnd leggur
til.
Frumvarpið gerir ráð fyrir nýjum
og ítarlegri reglum um atkvæða-
greiðslur með rafeindabúnaði.
Kveðið er á um að slík atkvæða-
greiðsla jafngildi nafnakalli, þannig
að þeir þingmenn sem ekki greiða
atkvæði, teljist taka þátt í atkvæða-
greiðslunni. Jafnframt eru ákvæði
um að ekki sé skylt að skrá í þing-
tíðindi hvernig hver þingmaður
greiðir atkvæði nema fram komi
ósk um það. Þessar upplýsingar
verða þó aðgengilegar í skjalasafni
þingsins. Krafist er aukins meiri-
hluta til að veita afbrigði um þing-
mál; tvo þriðju hluta í stað einfalds
meirihluta áður.
Að endingu lagði Páll Pétursson
til að þessu frumvarpi yrði vísað til
sérnefndar sem enn væri ókosin.
Frumvarpið hlaut um flest góðar
viðtökur þingmanna, en það er ljóst
að það er málamiðlun margra sjón-
armiða. Anna Ólafsdóttir Björns-
son (SK-Rn) taldi fjölniargt vera
til bóta en Kvennalistakonur gerðu
þó fyrirvara um þau tímamörk sem
ættu að gilda um umræður utan
dagskrár. Hún brýndi fyrir þing-
heimi að hlutur stjórnarandstöð-
unnar væri virtur varðandi stjóm
þingsins og afgreiðslu þingmála.
Pálmi Jónsson (S-Nv) taldi breyt-
ingar á starfi fjárlaganefndar vera
um margt til bóta, s.s. að hún hefði
einnig til meðferðar lánsfjárlög auk
fjárlaga. En Pálma fannst fullfor-
takslaust kveðið á um að fjárlaga-
nefndin skyldi vísa hlutum fjárlaga-
frumvarpsins til annarra fasta-
nefnda. Stefnan væri rétt en ef
farið væri offari væri hætt við að
málsmeðferð flækti um of störf við
fjárlagagerðina. Ólafur Þ. Þórðar-
son (F-Vf) taldi að almenningi hlyti
að leika forvitni á að fá að vita
hvernig þingmenn greiddu atkvæði
með rafeindabúnaði og ættu þær
upplýsingar að vera aðgengilegar í
þingtíðindum. Ólafur taldi mjög
þrengt að þingskaparamræðu og
óskaði eindregið eftir viðveru Hall-
dórs Blöndals landbúnaðarráðherra
því leikni hans í túlkun ákvæða um
þingskaparumræður væri annáluð.
Ólafur taldi ljóst að samkvæmt
frumvarpinu yrði hraðinn meiri en
hann efaðist um að vinnubrögðin
bötnuðu; það yrði auðveldara að
gera vitlaus frumvörp að lögum.
Þingmenn ræddu mörg önnur
atriði frumvarpsins; kosti og lesti.
Auk fyrrnefndra tóku til máls: Jón
Kristjánsson (F-Al), Rannveig
Guðmundsdóttir (A-Rn), Hjörleif-
ur Guttormsson (Ab-Al) og Ólafur
Ragnar Grímsson (Ab-Rn).
Matthías Bjarnsson forseti neðri
deildar frestaði atkvæðagreiðslu um
frumvarpið til næsta fundar deiidar-
innar sem er boðaður kl. 13.30 í
dag.
Stj órnarskrárbreytingar
í efri deild var frumvarpið til
stjórnsýslulaga um breytingu á
stjórnarskránni rætt. Það framvarp
var samþykkt á síðasta þingi með
allgóðri samstöðu en tii að það verði
Páll Pétursson
að lögum verður nýkjörið þing að
samþykkja það á nýjan leik. Nýir
þingmenn virðast ekki síður fylgj-
andi stjórnarskrárbreytingunum en
þeir sem sátu á síðasta þingi. Björn
Bjarnason (S-Rv) taldi — í sinni
fyrstu þingræðu — breytinguna í
eina málstofu vera framfaraspor og
ný ákvæði um setningu bráða-
birgðalaga vera til bóta. Umræður
í deildinni snerust því nokkuð um
þingsköp og starfsaðstöðu þingsins,
STJÓRNARSKRÁ
LÝÐVELDISINS ÍSLANDS
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
1981
kosningadag Alþingis o.fl. Ýmsir
stjórnarandstæðingar gerðu bygg-
ingaframkvæmdir og húsakaup
Reykjavíkurborgar í nágrenni við
Alþingishúsið að umtalsefni. Mátti
skilja að niðurstaða þeirra viðskipta
væri Alþingi ekki hagkvæm.
Ekki tókst að ljúkja umræðu um
framvarpið en henni lýkur væntan-
lega á næsta deildarfundi sem er
boðaður kl. 13.
Síðasta deildaskiptingin
í FYRRADAG var valið í efri
og neðri deild Alþingis. Það
verður að teljast næsta liklegt
að það hafi verið í síðasta sinn
og eftir að þessu þingi lýkur
muni þingismenn ræða málin í
einni málstofu.
Til efri deildar völdust 12 stuðn-
ingsmenn ríkisstjórnarinnar og 9
stjórnarandstæðingar: Karl Stein-
ar Guðnason (A-Rn), og er hann
forseti deildarinnar, honum er til
fulltingis Kristín Einarsdóttir (SK-
Rv) fyrri varaforseti og Egill Jóns-
son (S-Al) síðari varaforseti. Skrif-
arar era Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir (SK-Vf) og Lára Margrét
Ragnarsdóttir (S-Rv). Auk fyrr-
greindra eiga sæti í deildinni: Bjöm
Bjarnason (S-Rv), Eiður Guðnason
(A-Vl), Eyjólfur Konráð Jónsson
(S-Rv), HalldórÁsgrímsson (F-Al),
Jón Helgason (F-Sl), Margrét Frí-
mannsdóttir (Ab-Sl), Ólafur G.
Einarsson (S-Rn), Salome Þorkels-
dóttir (S-Rn), Sigbjörn Gunnars-
son (A-Ne), Stefán Guðmundsson
(F-Nv), Steingrímur J. Sigfússon
(Ab-Ne), Sturla Böðvarsson (S-Vl),
Svavar Gestsson (Ab-Rv), Tómas
Ingi Olrich (S-Ne), Valgerður
Sverrisdóttir (F-Ne) og Þorsteinn
Pálsson (S-Sl).
í neðri deild eru 24 stuðnings-
menn ríkisstjórnarinnar og 18
stjórnarandstæðingar. Matthías
Bjamason (S-Vf) er deildarforseti,
Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al)
fyrri varaforseti og Össur Skarp-
héðinsson (A-Rv) sá síðari. Skrif-
arar eru Gunnlaugur Stefánsson
(A-Al) og Kristinn H. Gunnarsson
(Ab-Vf). Auk þessara þingmanna
sitja í neðri deild: Anna Ólafsdótt-
ir Björnsson (SK-Rn), Árni R. Árn-
ason (S-Rn), Árni Johnsen (S-Sl),
Árni Mathiesen (S-Rn), Davíð
Oddsson (S-Rv), Eggert Haukdal
(S-Sl), Einar Kr. Guðfinnsson
(S-Vf), Finnur Ingólfsson (F-Rv),
Friðrik Sophusson (S-Rv), Geir H.
Haarde (S-Rv), Guðjón Guðmunds-
son (S-Vl), Guðmundur Bjarnason
(F-Ne), Guðmundur Hallvarðsson
(S-Rv), Guðni Ágústsson (F-Sl),
Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv), Halí-
dór Blöndal (S-Ne), Ingi Björn
Albertsson (S-Rv), Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir (SK-Rv), Ingibjörg
Morgunblaðið/Sverrir
Pálmadóttir (F-Vl), Jóhann Ár-
sælsson (Ab-Vl), Jóhanna Sigurð-
ardóttir (A-Rv), Jóhannes Geir
Sigurgeirssbn (F-Ne), Jón Baldvin
Hannibalsson (A-Rv), Jón Krist-
jánsson (F-AI), Jón Sigurðsson
(A-Rn), Kristín Ástgeirsdóttir (SK-
Rv), Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-
Rn), Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf),
Páll Pétursson (F-Ne), Pálmi Jóns-
son (S-Nv), Ragnar Arnalds (Ab-
Nv), Rannveig Guðmundsdóttir
(A-Rn), Sighvatur Björgvinsson
(A-Vf), Sigríður A. Þórðardóttir
(S-Rn), Sólveig Pétursdóttir
(S-Rv), Steingrímur Hermannsson
(F-Rn) og Vilhjálmur Egilsson
(S-Nv).
Reykjavík:
Ráðstefnugestum fjölgaði
um rúmlega 50% milli ára
RÁÐSTEFNUGESTUM fjölgaði í Reykjavík um rúmlega 50% milli
áranna 1989 og 1990. Árið 1989 voru haldnar í borginni 54 erlendar
ráðstefnur og fundir af ýmsum toga, sem 7.756 erlendir gestir sátu,
en árið 1990 sóttu 11.735 útlendingar 84 ráðstefnur, fundi og hvata-
ferðir í Reykjavík.
í fréttatilkynningu frá ferðamál-
anefnd Reykjavíkur kemur fram að
á árinu 1990 var fjöldi gistinátta á
gistihúsum borgarinnar vegna ráð-
stefna og funda samtals 49.594,
eða að meðaltali 4,2 nætur fyrir
hvern þátttakanda. Áætlaðar
brúttótekjur vegna ráðstefnúhalds
í Reykjavík á árinu nema tæplega
einum milljarði króna, sem er lið-
lega 84 þúsund krónur fyrir hvern
ráðstefnugest.
Ferðamálanefnd Reykjavíkur
hefur látið gera sérstakt kynningar-
rit um ráðstefnuborgina Reykjavík,
sem þegar hefur komið út á ensku,
frönsku, þýsku og japönsku, en nú
er verið að undirbúa útgáfu á
sænsku, norsku og dönsku. Þessum
ritum hefur verið dreift ásamt öðr-
um ferðaupplýsingum um land og
þjóð til þúsunda fyrirtækja í Bret-
landi, Frakklandi, Þýskalandi, Belg-
íu, Hollandi, Bandaríkjunum, Japan
og víðar, með sérstöku kynningar-
bréfi frá borgarstjóra, sem hvetur
forráðamenn umræddra fyrirtækja
til að kynna sér kosti Reykjavíkur
sem ráðstefnuborgar. I haust hefst
sambærilegt átak til að kynna borg-
ina fyrir forráðamönnum fyrirtækja
og samtaka á hinum Norðurlöndun-
um.
Safnað fyrir sjúkrabíl
Patreksfirði.
RAUÐA kross deild V-Barðastrandarsýslu sem orðin er tólf ára göm-
ul vinnur nú að því að endurnýja sjúkraflutningabílinn á Patreksfirði.
Ýmis félagasamtök- önnur leggja
þeim lið við þetta mál en nýi bíllinn
er dýr og mikið má ef duga skai.
Sunnudagskvöldið 4. maí lagði Li-
onsklúbbur Patreksfjarðar fram sinn
skerf þegar varaformaður klúbbsins
afhenti formanni Rauða kross deild-
arinnar, Símoni Símonarsyni, tvö
hundrað þúsund.
- Hilmar
Morgunblaðið/Hilmar Ámason
lÉÍll.Í’......
Frá afendingu styrksins.