Morgunblaðið - 07.07.1991, Síða 25
:MDk6tjNB LÁgíg- -WIWNIWOARi-WgHBgAflUtff'WliítWi...... ':t
25
Jóna Krísijáns-
dóttír — Mhming’
Fædd 5. september 1911
Dáin 1. júlí 1991
Jóna Kristjánsdóttir var fædd í
Syðra-Langholti í Hrunamanna-
hreppi næst yngst af sex börnum
hjónanna Gróu Jónsdóttur frá
Sandlækjarkoti og Kristjáns Magn:
ússonar frá Syðra-Langholti. í
Langholti ólst hún upp í mjög sam-
heldnum systkinahópi og hjá ástrík-
um foreldrum við fremur óblíð kjör
og mikið vinnuálag eins og þá gerð-
ist víða, en æskuáranna var samt
alltaf minnst með ánægju. Rúmlega
tvítug kynntist Jóna ungum manni,
Þórði Kárasyni úr Landeyjum og
mun hugur þeirra hafa staðið til
hjónabands og framtíðarsambúðar,
en það fór á annan veg þar sem
Þórður fórst með línuveiðaranum
Papey í febrúar 1933 en í því slysi
fórust níu menn. Þau eignuðust einn
son, Þórð Þórðarson bónda í Syðra-
Langholti, sem kvæntur er Sigur-
jónu Siguijónsdóttur. Bamabörnin
eru fjögur og langömmubömin níu
talsins.
Árið 1946 giftist Jóna Óskari
Sigurðssyni skipstjóra og útgerðar-
manni á Stokkseyri, en allt fram
að þeim tíma vann hún á heimili
foreldra sinna og Bjama bróður síns
af mikilli ósérhlífni og dugnaði. Þau
Óskar settust að á Stokkseyri og
bjuggu þar allan sinn búskap.
Hjónaband þeirra var farsælt og
þau áttu fallegt og notalegt heim-
ili. Eftir að þún giftist vann hún
mikið utan heimilis, lengst af í
frystihúsinu á Stokkseyri. Mann
sinn missti Jóna snemma árs 1990
og fluttist hún seinna það ár að
Álftarima 9 á Selfossi, þar sem hún
var b úin að koma sér vel fyrir, en
fékk því miður ekki að njóta þess
nema skamma stund.
Þannig er í fáum orðum nær átta-
tíu ára lífshlaup Jónu frænku eins
og við systkinabörnin kölluðum
hana jafnan. Þegar ég var sendur
í sveit á bemskuárunum til afa og
ömmu í Langholti var hún mér eins
og móðir. Á ég margar góðar minn-
ingar frá þeim summm, sem við
vorum samtíða í Langholti. Hún var
ólöt, að lesa fyrir mig á kvöldin,
hafa ofan af fyrir mér í inniveðri
og hlúa að mér á allan hátt. Hún
var dugnaðarforkur til allra starfa
úti sem inni, verklagin og velvirk.
Eftir að hún giftist kom hún oft í
sumarfríinu í Langholt, ekki til að
hvílast, heldur var hún óðar komin
út á tún með hrifu í hendi eða til
ÁS-TENGI
Allar gerðir.
Tengið aldrei stál - í - stál,
hafið eitthvað mjúkt á milli,
ekki skekkju og titring
milli tækja.
Vosluigttu 16 - Stmar 14C80-132W
Cterkurog
kJP hagkvæmur
auglýsingamióill!
annarra verka. Við krakkarnir
fögnuðum alltaf komum hennar, því
það var eins og allt gengi rniklu
léttar þegar hún bættist í hópinn.
Á seinni ámm áttum við allt of
fáar stundir saman en þó nokkrar
í síðustu veikindum hennar, sem
hún tók með mikilli ró og æðru-
leysi. Hún var dul og seintekin og
naut sín aldrei í margmenni en þeim
mun skemmtilegri að tala við hana
í einrúmi. Fyrir allt þetta vil ég
þakka nú að leiðarlokum og votta
nánustu aðstandendum innilega
samúð mína.
Þegar egg dauðans blá,
sú er allt bítur á,
ljúfan ástvin oss höggur frá síðu:
hvað mun hugga oss þá?
hver mun liðsemd oss ljá, -
sárið lykja með hendinni þýðu?
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu vegna andláts móður okkar
og tengdamóður,
MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Guðbjörg Helgadóttir,
Marfa Hjálmarsdóttir,
Sólveig Helgadóttir,
Árni Helgason,
Einar Sigurðsson,
Sverrir Ingólfsson,
Arnór Þórðarson,
Sigrfður Jónsdóttir,
Fanney Ottósdóttir.
Það er trúin á Krist,
þann er fræddi oss fyrst,
og sem ferlegan sigraði dauða,
sem fær hjartanu dug,
veitir huganum flug,
svo vér hræðumst ei skamma stund nauða.
(Jón Thoroddsen)
Kristján Sigurjónsson
t
Móðir okkar, tengdamóðir, ammg og langamma,
STEINUNN AUÐUNSDÓTTIR,
Bústaðavegi 89,
andaðist að morgni 29. júní.
Jarðarförin ferfram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 9. júlí kl. 1 5.00.
Blóm afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hennar, láti líknarstofn-
anir njóta þess.
Ragnhildur Elfasdóttir,
Jón Elfasson,
Valgerður Elíasdóttir,
Höskuldur Elíasson,
Guðrún Elíasdóttir,
Hilmar Elíasson,
Elín Þorvarðardóttir,
Sigurður Þorleifsson,
Kolbrún Sigurðardóttir,
Haraldur Benediktsson,
Nanna Sigurpálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín, amma okkar og langamma,
ANNA KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR,
Háaleitisbraut 105,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Sigurrós Einarsdóttir,
Anna Guðný Brandsdóttir, Lennart Olsson,
Margrét Brandsdóttir, Finnur Sigurgeirsson,
Guðrún Brandsdóttir, Hörður Þ. Hafsteinsson
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við ykkur öllum,
sem sýnduð okkur samúð og vináttu
við andlát og útför elskulegs sambýlis-
manns, föður, tengdaföður og afa,
ÓLAFS M. MAGNÚSSONAR,
Grænuhlíð 18.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Magnús Ólafsson, Edda Árnadóttir,
Jafet S. Ólafsson, Hildur Hermóðsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför eiginmanns míns,
GUÐMUNDAR G. H. JÓHANNSSONAR,
Rituhólum 11.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Jóhannsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna
andláts og jarðarfarar eiginmanns, föður, afa og langafa,
HJARTAR ÞORSTEINSSONAR,
Eyri í Kjós.
Kristín Jónsdóttir,
Arnheiður Hjartardóttir, Pétur Sigurðsson,
Þorsteinn Hjartarson,
Haraldur Hjartarson,
Sigrún Hjartardóttir,
Jón Hjartarson,
Guðrún Einarsdóttir,
Helga S. Bachmann,
Skúli Guðlaugsson,
Stella Bæringsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð, vinátttu og hlýhug,
sem veitti okkur styrk við andlát og
útför okkar ástkæru eiginkonu, móður
og tengdamóður,
SIGURLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Sólheimum 32,
Reykjavik.
Hermann Helgason,
Jóna Hermannsdóttir, Haraldur Árnason,
Sigurður Hermannsson, Vilborg Sigurðardóttir,
Jón Óli Ólafsson, Ingibjörg Helgadóttir,
Soffía Jóhannesdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR GUÐJÓNSSONAR
sklpstjóra,
Reynimel 45„
Ivar Andersen,
Ingibjörg Ivarsdóttir, Kjartan Pálsson,
Guðmundur Ivarsson,
Erla ívarsdóttir, Haraldur Sigursteinsson,
Gretar Ivarsson, Anna Dís Sveinbjörnsdóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts sonar okkar,
BRUCEHENDERSON.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landgræðslusjóð (slands.
Eyja og Frank Henderson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
GUÐBJARTAR JÓNSSONAR,
Hlif II,
fsafirði.
Sigrtður Ó. Jónsdóttir,
Sveinn Árni Guðbjartsson, María Hagali'nsdóttir,
Benedikt E. Guðbjartsson, Edda Hermannsdóttir,
Jón Kr. Guðbjartsson, Sigríður Símonardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllúm þeim, «em sýndu okkur samúð
og'hlýhug við andlát og útför sonar mins og bróður okkar,
BJÖRNS SVEINBJÖRNSSONAR,
Kópavogsbraut 22.
Elín Helgadóttir,
Ómar Sveinbjörnsson, Helga Björg Sveinbjörnsdóttir,
Þórkatla Sveinbjörnsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnde -samúð við andlftt og utför móður
okkar, tengdamóðar, ömmu og iartgömmq,'
JÓNÍNU ÓLAFSDÖTFUR
frá Tungu f Svfnadal,
Rauðalæk 2, Reykjavík.
Guðrún Árnadóttir, Tómas Sigurþórsson,
Gréta Arnadóttir, Gilbert Sigurðsson,
Guðný Tómasdóttir, ÁrniTómasson
og barnabarnabörn.