Morgunblaðið - 14.07.1991, Síða 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1991
,Gætu listamenn gert betur?
MYNDLIST/Gœtu listamenngert
betur?
AÖ nýtafmmleikann
SNEMMA í júní voru staddir hér
á landi tveir útlendingar úr við-
skiptalífinu, sem virðast hafa
annað og meira álit á listum og
listamönnum en við eigum að
venjast meðal innlendra kollega
þeirra. Hinn frægi bandaríski
fyrirlesari, John Naisbitt, benti
á að miklu fleirfBandaríkja-
menn nýttu nú frístundir sínar
til að sækja söfn og listviðburði
en til að horfa á íþróttir, og
mundi samaþróun halda áfram
um allan heim. Þetta staðfestir
auðvitað það sem áður hefui-
verið nefnt á þessum vettvangi
um aðsókn að þessum greinum
hér á landi, en fréttir eru oft
merkilegri ef þær koma að utan.
Sænski auðjöfurinn Torsten
Lilja, sem safnar verkum nú-
tímalistamanna, sagði i blaða-
viðtali að það væri margt Iíkt
með því að vera góður stjórn-
andi stórfyrirtækis og að vera
góður listamaður, og taldi að
listafólk ætti mikilvægu hlut-
verki að gegna í efnahagslífinu.
— Islenskur atvinnurekandi eða
áhrifamaður, sem léti annað
eins út úr sér, yrði eflaust álit-
inn klikkaður.
effir Eirík
Þorlóksson
Báðir þessir gestir báru með sér
frískandi andvara utan úr
heimi. Eins og oft vill verða með
boðskap af þessu tagi, þá er hann
ekki nýr í sjálfu sér, heldur stað-
festir það sem menn telja sig vita
fyrir. En það er athyglisvert að
velta fyrir sér
hvernig þessar
fréttir snúa að
pkkur
íslendingum.
John Naisbitt,
sem hefur orðið
þekktastur sem
höfundur spábó-
kanna „Megat-
rends“ og „Megatrends 2000“ og
síðan sem líflegur fyrirlesari, er
afar bjartsýnn maður, sem gerir
lítið úr núverandi erfiðieikum
mannkyns, en þess meira úr fram-
tíðarmöguleikum þess. En hann
stendur ekki einn að þeirri skoðun,
að menning og listir séu nú þegar
tekin við hlutverki iþróttanna sem
helsta frístundaiðja fjöidans. Hann
bendir á, að á síðasta áratug hafa
verið opnuð yfir tvö hundruð ný
söfn í Japan, og um þrjú hundruð
og þijátíu í Þýskalandi; sama þró-
un eigi sér stað í Bandaríkjunum
og víðar. Á sama tíma hefur ný-
smíði íþróttamannvirkja um allan
heim dregist saman.
Hér á Islandi virðast flestir vera
áratug á eftir. Höfuðborgin og
Hafnarfjörður hafa stutt nokkuð
'vel við bakiA á myndlistinni og
byggt söfn og sýningarhúsnæði,
en aðrir stærstu kaupstaðir eru að
eltast við fortíðina. Kópavogur
eyðir hundruðum milljóna í íþrótta-
velli, sundlaugar og handboltahall-
ir, á meðan Listasafn Kópavogs
stendur uppsteypt sem gapandi
tóft í miðbænum, og algjörlega
óvíst um framhaldið. Akureyri hef-
ur byggt upp margföld' íþrótta-
svæði og nú er í smíðum íþrótta-
hús á methraða, á sama tíma og
ekkert sýningarhúsnæði fyrir
myndlist er til í bænum. — Bæði
þessi bæjarféiög (og mörg, mörg
fleiri) þurfa að fara að huga að
stefnumörkun á sviði lista og
menningarmála, þar sem verkin
verða látin tala í náinni framtíð.
Torsten Lilja telur að heimar
viðskiptalífsins og Iistanna eigi að
tengjast, því kaupsýslumenn geti
lært margt af hinum síðarnefndu.
Slík tengsl hafa til þessa ekki ver-
ið til hér á landi, þannig að gagn
væri að, þrátt fyrir að ýmsir
frammámenn viðskiptalífsins hafi
verið helstu stuðningsmenn menn-
ingarlífsins, og nægir þar að benda
á Ragnar Jónsson í Smára, sem
nýlega var minnst sérstaklega
vegna stofnunar Listasafns ASÍ;
fleiri mætti einnig nefna. En hlut-
verk listamanna gæti verið marg-
falt stærra og áhrifameira.
í blíðviðrinu undanfarnar vikur
hafa dunið yfir landsmenn fréttir
af efnahagslegum hörmungum,
þar sem hvert stórveldið af öðru í
atvinnulífinu er knúið til að horf-
ast í augu við veruleikann, og lýsa
því yfir að blaðran sé sprungin.
Atvinnufyrirtæki til lands og sjáv-
ar eru að fara á hausinn, sjóðir
eru tómir, bankar standa höllum
fæti. Hveijir hafa stjórnað þessum
ósköpum? Því er einfalt að svara:
Það hafa verið lærðir (karl)menn
úr hópi lögfræðinga, hagfræðinga,
viðskiptafræðinga, verkfræðinga
og fiskeldisfræðinga. — Það verður
nú að teljast sannað mál, að í
menntun þessara stétta felst engin
trygging fyrir hæfileikum á sviði
atvinnurekstrar, og því er eftirfar-
andi hugmynd vel þess virði að
íslensk atvinnufyrirtæki taki
hana alvarlega:
Fyrirtæki og stofnanir ráði
myndlistarfólk og aðra hugsuði til
ábyrgðarstarfa við stjórnun og
stefnumörkun. Hlutverk þess verði
að koma með hugmyndir um fram-
leiðsluvörur, söluaðferðir, almann-
atengsl og aðra þætti starfseminn-
ar, þar sem frumleg hugsun er
lykilatriði, og hefðbundnar leiðir
hafa skilað litlum eða takmörkuð-
um árangri.
ísland er nefnilega komið á það
stig í atvinnusögu sinni, að hrá-
efnaframleiðsla mun ekki skila
nægilega miklu til að standa undir
batnandi lífskjörum stækkandi
þjóðar; nú ríður á að nýta frumleik-
ann, og þar ættu myndlistarmenn
að geta unnið betur en margur
annar.
DJRSS/Far tilgóds aó leita á
svörtumió?
Djassþota Tótnasar
NÝI diskurinn hans Tómasar
R. Einarssonar heitir íslands-
för og er hér vitnað til íslandsf-
arar W.H. Audens, en tvö lög
eru samin við kvæði hans — og
svo hingaðkomu hins blakka
básúnublásara m.m., Frank
Lacy. Með Tómasi leika auk
Franks þeir sömu og á Nýjum
tóni að frádregnum Jens Wint-
her: Sigurður Flosason, Eyþór
Gunnarsson og Pétur Östlund.
PS músik gefur út.
Islandsför og Nýr tónn eru um
margt líkir diskar en ólíkir þó.
Báðir bera höfundareinkenni Tóm-
asar, en á Nýjum tóni blés í tromp-
et og flýgilhorn sá danski Jens
Winther þar sem
sá blakki Banda-
ríkjamaður
Frank Lacy blæs
í básúnu og
flýgilhorn, auk
þess að syngja, á
Islandsför.
Ég var staddur
í djassför erlendis
eftir Vemharð
Linnet
þegar Frank kom til landsins, en
mér segja djassfróðir og traustir
menn að hann hafi farið á kostum
með Tómasi og félögum í Púlsinum
um það leyti sem diskurinn var
hljóðritaður. Kom mér það ekki á
óvart þar sem ég hafði barið hann
augum með Djasssendiboðum Art
Blakeys. Hann er sjómaður hinn
ágætasti og tónatryllir. Slíkt nýtist
ekki á agaðri skífu Tómasar og
mér finnst Jens Winther falla mun
betur að stíl hans. Tómas er sterk-
astur í ljóðinu og hefur á vissan
hátt tekist að ná norrænum blæ í
djass sinn.
Diskurinn upphefst á stuð-
mannablús: Taugaveiklaður og
trylltur, tættur og ber að ofan.
Tryllingurinn er kannski enn meiri
í Húlaboppinu á Nýjum tóni, en
hér ríkir feiknastuð og undirleikur
Eyþórs og trommusláttur Péturs
ýta mönnum fram á hengiflugið.
Er svo víðar á diskinum.
Vaki, vaki vaskir menn, er langt
tónverk, en hefði gjarnan mátt
vera styttra og laust við frjáls-
djasstilburðina sem eru jafn utan-
gátta þarna og gömlu spænskgarri-
soníkuklisjurnar í bassasólói Tóm-
asar. Sem betur fer er ekkert slíkt
að finna í öðrum ópusum plötunnar.
Tómas gerist æ betri bassaleik-
ari og sér í lagi er bassatónn hans
orðinn tær. Helst að hann vanti
snerpu og svo mætti hann gefa
tauminn lausan og láta gamminn
geysa. Láta fyrirfram hugsunina
lönd og leið.
Sigurður Flosason hefur unnið
vel úr því hamsleysi er einkenndi
hann á yngri árum. Hann nær flug-
inu oftar en ekki en oft skortir hin
fínni blæbrigði. Kannski gætir hér
áhrifa Lacy, en Sigurður þarf að
gæta sín að blása ekki alltaf á
útopnu sé hiti í leiknum. Allir sem
til þekkja vita að hann hefur næmt
tónskyn og ótrúlegt vald yfir hljóð-
færi sínu.
Flest bestu verk Tómasar R.
Einarssonar eru ballöður og hér
er ein gullfalleg: Vorregn í Njarð-
víkum við ijóð Guðbergs Bergsson-
ar. Minnir það um margt á það
yngsta af verkum Jóns Múla sem
hljóðritað er: Það vaxa blóm á þak-
inu. Ellen Kristjánsdóttir syngur
hér af mikilli smekkvísi.
íslandsför er alþýðlegur diskur
á djassvísu og fjórir ópusar sungn-
ir. Frank hefur skemmtilegan
söngstíl og í spunanum fylgir hann
þeirri sönghefð er Jon Hendricks
markaði. Um blástur hans er allt
gott að segja en mér þykja samt
sólóar Eyþórs Gunnarssonar helstu
perlurnar í þessari djasskórónu
Tómasar R. Einarssonar sem Pétur
Östlund hefur slegið ryþmagulli.
Um margt þykir mér íslandsför
ekki jafnast á við Nýjan tón — en
á hvorugum disknum þarf að
kvarta yfír fagmennskunni. íslend-
ingar eru orðnir gjaldgengir í djass-
útflutningi, sér í lagi njóti þeir inn-
flutningsbóta.
Eigirðu ekki þennan disk, les-
andi góður, náðu þá í hann, en
meðal annarra orða: Vantar nokk-
uð Nýjan ton í safnið?
Bassaþotan og piltarnir.
ÞJÓDLEG TÓWLIST/Hvenær sigrar
rafpoppió Burundi?
Frumskógatrommur
Burunditrymblar Ingoma-dans í
Lundúnum 1986.
lok áttunda áratugarins fengu ný-
bylgjupopparar í Bretlandi „að láni“
trommuleik hirðtrommaranna og
byggðu á tónlist sína með góðum
árangri. Dæmi um það er Adam
Ant, sem varð heimsþekktur m.a.
fyrir drynjandi trommugrunn tónlist-
ar sinnar. Þetta varð til að auka
áhuga á afrískri tónlist í Bretlandi
og Burundi-tommuleikaramir komu
til Bretlands í tvær tónleikaferðir,
ógleymanlegir öllu sem á hlýddu.
Besta samantekt þjóðlegrar tón-
listar frá Burundi er safndiskurinn
frábæri Burúndi: Musiques Traditi-
onelles sem Ocora gefur út. Þar á
er trommuflokkurinn áberandi, enda
var það fyrsta útgáfa þessarar plötu
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
1968 sem vakti fyrst athygli á þeim
í Vestur-Evrópu. Önnur tóndæmi á
plötunni eru ekki síður merkileg og
má þar nefna kveðjusönginn Al-
akaze, ótrúlega raddbeitingu tveggja
stúlkna, sem minnir helst á tvo saxó-
fóna, og einleik á inanga-hörpu
nautshúðarstrengja á viðargrunni.
Glöggt heyrist á disknum hvernig
tónlist Burundi á sér samafrískar
rætur, en einnig eru þættir sem ein-
göngu heyrast í Austur-Afríku og
aðrir sem einskorðast við Burundi.
Þeir sem vilja trommarana eingöngu
geta fest sér plötuna Les Maitres
Tambours du Burundi frá Arion, se'm
er skemmtileg þrátt fyrir daufa upp-
töku.
RAFPOPP hefur lagt undir sig
flest lönd Afríku; runnið saman
við þjóðlega tónlist hvers lands
og myndað sérstaka dægurtón-
listarhefð. I ýmsum löndum er
þjóðleg tónlist þó enn ráðandi
fyrir ýmsar sakir og þá aðallega
vegna þess hve þjóðfélagsþróun
hefur verið hæg sökum fátæktar
eða einangrunar. Burundi er eitt
þeirra landa, en tónlist þaðan
hafði nokkur áhrif á breska
popptónlist um tíma.
Burundi er fjalllent og afskaplega
þéttbýlt. Þar búa þijár þjóðir;
pygmíar, seu fækkar ár frá ári, hutu,
sem eru ríflega 80% íbúa, og tutsi,
sem eru i minnihluta en ráða því sem
þeir vilja. Landið
var landfræðilega
einangrað frá örófi,
en þar var kon-
ungsríki í fornöld.
Þjóðveijar lögðu
Burundi undir sig í
iok nítjándu aldar,
en eftir fyrri heims-
styijöldina komst
nýlendan í hendur Belgum. 1961
hlaut Burundi sjálfstæði og í dag
stjórnar herinn landinu, en hann er
eingöngu skipaður tutsi-mönnum,
sem halda hutu-mönnuin niðri af
mikilli grimmd. Atvinnuhættir eru
frumstæðir og íbúar flestir í sveitum.
Það hefur haldið þjóðlegri tónlist lif-
andi í landinu, þó rafpoppið eigi lík-
ast eftir að renna saman við hana
með tímanum.
Burunditónlist er þekktust fyrir
trommuleikara hirðar hins forna kon-
ungdæmis, sem aflagt er fýrir löngu,
en trommuflokkurinn starfar enn. I
eftir Árna
Matthíasson