Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 ITV \ er sunnudagur 24. maí, 145. dagur ársins 1992. Árdegisflóð kl. 11.53 og síðdegisflóð kl. 24.18. Fjara kl. 5.40 og kl. 17.51. Sólarupprás í Rvík kl. 3.44 og sólarlag kl. 23.08. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.25 ogtungliðí suðri kl. 7.19. (Almanak Háskólaís- lands.) Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. (Róm. 12,15.) ARNAÐ HEILLA GULLBRÚÐKAUP. Á morgun, mánudag 25. maí, eiga gullbrúðkaup hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Jón Þ. Einarsson, ábúendur í Neðridal í Biskupstungum, en þar er Jón fæddur, en hún er frá Böðmóðsstöðum í Laugar- dal. Þau verða á flandri með sonum sínum 8 og tengdadætr- um á gullbrúðkaupsdaginn. (\/\ára afmæli. Næstkom- í/U andi þriðjudag, 26. maí, er níræð Gunnvör Rósa Falsdóttir, hannyrðadama frá Bolungarvík, dvalar- heimilinu Felli, Skipholti 21, Rvík. Q /\ára afmæli. Á morgun, ÖV/ mánudaginn 25. þ.m., er áttræð Ólöf Sigur- björg Jóhannesdóttir frá Kvígindisfirði, A-Barð., Furugrund 20, Kópavogi. Hún tekur á móti gestum í safnaðarheimili Árbæjar- kirkju við Rofabæ eftir kl. 20 á afmælisdaginn. FRÉTTIR/MANNAMÓT FRETTIR ÞENNAN DAG árið 1788 fæddist stærðfræðingurinn Björn Gunnlaugsson. Þenn- an dag árið 1929 var Sjálf- stæðisflokkurinn stofnað- ur. í DAG er bænadagur, „dagur sem sérstaklega er helgaður fyrirbænum. Eftir siðaskipti voru yfirleitt fyrirskipaðir 3—4 bænadagar á ári sbr. kóngsbænadag. Þessi siður var endurvakinh að nokkru leyti árið 1952 með hinum KROSSGATAN E 9 33 13 T H_b= 122 . 23 24 HHH27 LOÐRETT: - 2 á húsi, 3 hold, 4 köttinn, 5 lítið skip, 6 púka, 7 spil, 9 skafrenningur, 10 furða, 12 tímabil, 13 nirf- ill, 18 hægt, 20 slá, 21 grein- ir, 23 guð, 24 tveir eins. LÁRÉTT: — 1 óþæg, 5 versna, 8 gufa, 9 afturenda, 11 ánægja, 14 ótta, 15 ávöxt- ur, 16 alda, 17 leðja, 19 mjög, 21 ástundunarsama, 22 gramdist, 25 munir, 26 óhreinka, 27 kyrri. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 lúins, 5 vætan, 8 ýktir, 9 listi, 11 raska, 14 puð, 15 fjáða, 16 iðjan, 17 nær, 19 arma, 21 iðni, 22 aldraða, 25 aur, 26 óar, 27 nía. LÓÐRÉTT: - 2 úti, 3 nýt, 4 skipan, 5 virðir, 6 æra, 7 auk, 9 lífvana, 10 skálmar, 12 skjóðan, 13 afneita, 18 æðra, 20 al, 21 ið, 23 dó, 24 ar. Miðlunar- rrlw tillaga samþykkt almenna bænadegi þjóðkirkj- unnar, sem haldinn er 5. sunnudag eftir páska ár hvert,“ segir í Stjörnu- fræði/rímfræði. AÐSTOÐARSKÓLA- STJÓRAR. í Lögbirtinga- blaðinu auglýsir fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis lausar aðstoðarskólastjórastöður við fimm skóla í höfuðstaðnum, með umsóknarfresti til 5. júní nk. Þessir skólar eru: Hóla- brekkuskóli, Selásskóli, Hamraskóli, Húsaskóli og Grandaskóli. NORÐURBRÚN 1, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara. Á morgun, mánu- dag, kl. 14.15 verða tónleikar á vegum fræðsluskrifstofu Reykjavíkur: Ingibjörg Mart- einsdóttir syngur, Lára Rafnsdóttir leikur á píanó og Eiríkur Öm Pálsson leikur á trompet. Vegna vorsýningar félagsstarfsins verður tekið á móti munum á sýninguna í skrifstofunni í Norðurbrún 1 daga 25., 27. og 29. þ.m. en sýningin stendur yfir 30. maí—1. júní. Á Dalbraut 18—20 verður líka tekið á móti sýningarmunum. FÉL. eldri borgara. í dag verður spiluð félagsvist í Ris- inu eftir kl. 14 og dansað í Goðheimum kl. 20. Mánudag er opið hús í Risinu 13-17. Undirbúningi Reykjanesferð- ar er að ljúka. Hún verður farin nk. miðvikudag. Skrif- stofa fél. sér um skráningu þátttakenda. Lögfræðingur félagsins verður í Risinu til viðtals á þriðjudag. FRÍMERKI. Póstur og sími tilk. í Lögbirtingi um 'næstu frímerkjaútgáfu. Það verður 16. júní, sem gefin verða út tvö frímerki sem helguð eru útflutningsverslun og við- skiptum íslendinga. Þau verða í verðgildunum 30 og 35 krónur. FÉL. breiðfirskra kvenna efnir til vorferðar vestur í Dali. Þær Anna, s. 33088 og Halldóra, s. 45018, veita nán- ari úppl. KOPAVOGUR. Fél. eldri borgara heldur bingó-fund mánudagskvöldið kl. 20 á Digranesvegi 12. KVENFÉL. Hreyfils. Loka- fundur á starfsárinu verður nk. þriðjudagskvöld kl. 20. Verður haldinn í rútubíl en ekið verður til Hveragerðis og verður lagt af stað frá Hreyfilshúsinu kl. 20. Tilk. þarf þátttöku til Þorbjargar, s. 671389 eða Elísu, s. 36324, á mánudag. FRIÐUN æðarvarps. í Lög- birtingi hafa sýslumaður Húnavatnssýslu og lögreglu- stjórinn í Barðastrandarsýslu tilkynnt friðlýsingu æðar- varpslanda og fuglafriðun í landareign fjölmargra jarða í sýslunum. Éinnig sellátra, í tilk. sýslumannsins á Blöndu- ósi. Bæjarfógetinn í Ólafsvík tilk. í Lögbirtingi friðun lagna, látra og varplanda í lögsagnarumdæminu Snæ- fellsnes- og Hnappadalssýslu og Ólafsvíkurkaupstað. Loks hefur sýslumaður N-Múla- sýslu tilk. í blaðinu friðun æðarvarps fyrir jörðinni Skálanesi í Seyðisfirði. BANDALAG kvenna í Reykjavík. Afmælisfagnað heldur bandalagið á föstudag- inn kemur, 29. þ.m., á Kjar- valsstöðum. Minnst verður 75 ára afmælis bandalagsins. Þær Guðrún, s. 37151 og Auður Stella, s. 612297 taka á móti þátttökutilk. HEIÐAVALLASVÆÐIÐ í Kópavogi. Skipulagsstjóri tiik. í Lögbirtingablaðinu að gerð hafi verið tillaga að deili- skipulagi svæðisins en það afmarkast af Melaheiði, Tunguheiði, Lyngheiði og efri Víghólum. Hefur tillagan ver- ið lögð fram til sýnis í skrif- stofu bæjarskipulagsins og verður þar til sýnis til 1. júlí, segir í tilk. KIRKJUSTARF HÁTEIGSKIRKJA. Biblíu- lestur mánudagskvöld kl. 21.00. SELTJARNARNES- KIRKJA. Fundur í æskulýðs- félaginu í kvöld kl. 20.30. ÁRBÆJARKIRKJA. For- eldramorgunn þriðjudag kl. 10-12. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fundur í æskulýðsfélaginu mánudag kl. 20.30. Söngur, leikir, helgistund. SKIPIN reykjavíkurhöfnT Togararnir Már og Snæfugl fóru á veiðar í gær. Kyndill fór á ströndina. í dag fer fer Grundarfoss til útlanda og togarinn Ásbjörn er væntan- legur inn til löndunar. MORGUNBLAÐIÐ FYRIR 50 ÁRUM Alþingi samþykkti í gær að greiða starfsmönnum ríkisins, er hafa undir 650 kr. mánaðarlaun 300 kr. uppbót á ári með hverju barni innan 16 ára aldurs, þó þannig að samanlögð laun og upp- bót mega ekki fara yfir 650 kr. á mánuði. Hér hefur verið stigið spor sem telja verður mjög merkilegt og þýðingar- mikið. Störfum Alþingis lýkur í dag, þingfundum frestað og Alþingi rofið, en þannig að þingmenn halda umboði sínu til kjördags. Ákveðið hefur verið að þingkosningar fari fram sunnudaginn 5. júlí. Er það viku síðar en kosningalög ráðgera. Hreppsnefndarkosning- um, sem vera áttu síð- asta sunnudag í júní, verður frestað til 12. júlí. Ekki þótti rétt að láta þær kosningar fara fram á undan þingkosningun- um. ☆ Sex blaðamenn frá dag- blöðunum í Reykjavík og Ríkisútvarpinu fór í gær í flugferð um nágrenni Reykjavíkur. Flugmaður var Órn Johnson. Var flogið í 37 mín. og farið á þeim tíma m.a. til Þing- valla. Hæst var flogið í 1.200 m hæð og há- markshraði var rúmlega 200 km á klst. ORÐABÓKIN Bráð Af sjálfu sér leiðir, að þeir, sem tjá sig í Qölmiðl- um, hvort sem það er á prenti eða í mæltu máli, komast ekki hjá því að segja oft sömu hugsunina með svipuðu eða jafnvel sama orðalagi. Slíkt verð- ur vitaskuld þreytandi bæði fyrir þann, sem orðin velur og ekkert síður fyrir hinn, sem les eða hlýðir á. Þá er auðvitað ekki annað að gera en freista þess að færa hugsanir sín- ar í sem fjölbreyttastan búning, enda þótt hið sama felist í þeim orðum, sem valin eru hveiju sinni. En hér er það, sem vanda þarf vel til orðalags og þá ekki sízt til þess, að orðin geti ekki valdið mis- skilningi og verði umfram allt ekki tvíræð. Ég kunni t.d. ekki við þetta orðalag í fréttum Ríkisútvargsins, meðan á stríðinu við Iraka stóð í fyrra: „Þeir komu 140 flugvélum undan til írans, svo að þær yrðu ekki Bandamönnum að bráð.“ Þannig er, að frummerking no. bráð er „veitt dýr, (hrátt) kjöt af veiddu dýri, æti, fengur“, enda er merkingin mat- föng einráð í fornu máli og að ég hygg að mestu leyti enn í dag. í OH eru fjölmörg dæmi um þessa nierkingu allt frá 16. öld. Af framansögðu er eðli- legast að halda þessari fornu merkingu orðsins, þótt merkingin herfang almennt þekkist í nútíðar- máli. - jaj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.