Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 42
42____________ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 Í---------—-------------------------------PTT7 I----»—» :----rr r—-----k —f : -------j---------------- MOTORHJOLAKAPPAKSTUR Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Fyrsta beygjan og Ástralinn Michael Doohan hefur þegar tekið forystu. Hann vann flórða kappakstur sinn á árinu — hefur unnið þá alla — og er efstur í stigakeppninni um heimsmeistaratitilinn. Ofurhugar nútímans KVARTMILLJÓN áhorfenda, svipuðum fjölda og byggir ís- land, var þjappað inn á áhorf- endasvæðið við Jerez-kapp- akstursbrautina á Spáni, þegar liður íheimsmeistaramótinu t mótorhjólakappakstri fór þar fram fyrir skömmu. í 30 stiga hita og sól óku ofurhugar nú- tímans 175 hestafla og aðeins 130 kilóa mótorhjólum á þriðja hundrað kílómetra hraða. Utan hringsins voru þúsundir mótor- hjóla í eigu áhugasamra áhorf- enda, sem hver átti sína hetju á kappaksturshringnum. Sama stemmning var og á fótbolta- leik, áhorfendur fögnuðu sín- um mönnum og fylgdust hug- fangnir með toppmönnunum, sem fá 180 milljónir hver í tekj- ur á ári fyrir utan auglýsinga- tekjur og ýmiskonar bónusa fyrir góðan árangur. Morgun- blaðið fylgdist með keppninni og skoðaði þá bestu. Bandaríkjamaðurinn Wayne Ra- iney á Yamaha er heimsmeist- ari í flokki 500 cc mótorhjóla, sem eru þau hjól sem Gunnlaugur flestra augu beinist Rögnvaldsson að á svona kapp- skrifar akstri, þó baráttan sé oft enn meiri í flokki kraftminni hjóla, þar sem ungir ökumenn reyna að sanna sig. En í ár er það Ástralinn ungi Mich- ael Doohan, sem hefur unnið fyrstu fjögur mót ársins á Honda, en Rain- ey hefur þrívegis náð öðru sæti. Aðrir kappar í fremstu röð hafa verið Kevin Schwantz og Doug Chandler á Suzuki, sem eru nú í þriðja og fjórða sæti í stigakeppn- ’ inni til heimsmeistara. Þessir fjórir kappar aka öflugustu og best búnu mótorhjólunum, sem með aðstoð flókinna mælitækja og tölvubúnað- ar er stillt upp fyrir hveija af 13 brautum ársins, en lega brautanna gerir það að verkum að útfæra þarf hjólin misjafnlega í hvert skipti. I raun er ótrúlegt að sjá hve mikið er lagt uppúr því að ná árangri í kappakstri á mótorhjólum, en þó ekki. Arangurinn nýtist hjóla- verksmiðjunum í auglýsingaher- ferðum, og tæknilið keppnisliðanna prófa oft nýjungar sem notaðar eru í venjuleg götuhjól. Þróunin hefur reyndar orðið svo hröð að nútíma- hjól sem aka hérlendis á götum eru ekki ósvipuð í útliti og keppnishjól og ekki mikið kraftminni sum hver. Þessi kraftur leiðir til þess að þau ná svipaðri hröðun og straumlínu- 1 lagaðir Formula 1 keppnisbílar og Stóru liðin hafa 4-5 hjól tilbúin fyrir á æfingum eða í tímatökum. hámarkshraðinn er 320 km á klukkustund. Það er ekki lítið á tæki, þar sem stjórnandinn er ber- skjaldaður gegn veðri og vindum, lofmótstöðu og svo brautinni ef hann fellur við. Reyndar eru kapparnir í sterkum göllum, með hlífar á hnjám, olnbog- um og innan klæða á baki þeirra eru plastplötur sem verja hrygginn og þá eru hjálmarnir af bestu gerð, eins og reyndar allir akstursíþrótta- menn ættu að nota í keppni. Öku- mennirnir eru allir með sérstaka þjálfara, sem undirbúa þá líkam- lega, og þeir bestu hafa oftast menn sem geta aðstoða andlega; veitt þeim styrk og stuðning, að- stoða þá við hvernig þeir eigi að einbeita sér að vérkinu hveiju sinni, og jafnvel um fæðuval. Margir keppenda ferðast á milli móta í risavöxnum hjólhýsum og ófáir ferðast með alla fjölskylduna, konu og börn, lifa einskonar sígaunalífi í kringum kappakstursmótin. Risa- vaxnir trukkar flytja mótorhjólin og allt hafurtaskið milli staða, í þeim eru varahlutir, verkfæri ýmis- konar og tölvubúnaður sem notaður er til stillingar. Það er ótrúleg sjón að sjá 20-30 slíka trukka á sama svæði og hvert keppnislið með 12-14 keppnishjó! á einu og sama svæðinu. Kvartmilljón áhorfenda fylgdist með aðförum keppenda, sem óku oft á yfir 300 km hraða eftir brautinni og í beygjum á allt að 250 km hraða. eða menn farið útaf á æfingum, sem standa í tvo daga, áður en sjálf keppnin hefst. A fyrstu æfingunum reyna öku- mennirnir og tæknimenn þeirra að finna bestu uppstillinguna fyrir brautina, breyta vélar- og dempara- stillingum miðað við hvað ökumanni finnst eftir nokkra prufuhringi og hvað tölvubúnaður um borð í hjólun- um gefur til kynna, þegar hann er tengdur móðurtölvu í viðgerðar- skýlinu. Þegar menn eru orðnir sáttir við hjólin reyna þeir að aka eins hratt og kostur er, leggja lík- amann í takt við inngjöf bensíns. Hröðunin er gífurleg, bestu tækin eru innan við þijár sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km hraða. Þau eru mjög hágíruð; ná 130 km hraða í fyrsta gír og eru tíu sekúndur að ná 250 km hraða. Uppröðun kepp- enda í sjálfan kappaksturinn ræðst af því hvaða tíma þeir ná í tímatök- um, þannig að sá hluti undurbún- ingsins er mikilvægur. Ekkert er verra en að þurfa að taka framúr. Þó nýtist mönnum oft að aka fyrir aftan annan keppanda, sem klýfur vindinn og skjótast síðan framúr á síðustu stundu þegar hentar, en þá þurfa hjólin að vera svipuð að afli. Hitinn á Jerez brautinni gerði mönnum erfitt fyrir, dekkinn hitn- uðu og ökumenn þurftu að gæta þess að missa ekki gripið of fljótt með of ákafri inngjöf. Michael Doo- han náði langbesta tíma í tímatök- um og var því fyrstur í rásmarkinu hvern ökumann, ef eitthvað skyldi bila Til öryggis eru stóru liðin með 4-5 mótorhjól tilbúin í slaginn fyrir hvern ökumánn, vélar geta bilað í keppninni, með tæplega 30 kappa aðra fyrir aftan sig, sem allir vildu ná langt, en með misgóð tæki und- ir höndum. Þegar dró nær ræsingu fór kliður um áhorfendasvæðið, stemmningin varð rafmögnuð og þegar græna ljósið birtist sprakk múgurinn, hver gargaði í kapp við annan eins og um nautaat væri að ræða. Greinilega blóðheitir. þeir spönsku. Fólk var um allar hæðir, oft klætt í merktum treyjum liða sinna eða með húfur, merki eða fána. Mótorhjólaeign er mikil á Spáni og margir vilja meina að mótorhjólakapparnir séu vinsælli en bestu nautabanar landsins og þá er nú mikið sagt. Doohan náði strax forystu í keppninni, í raun hafði hann yfir- burði frá byijun, enda nú talinn vera með aðeins öflugri vél en helstu keppinautar hans, Wayne Rainey, Kewin Schwantz og Doug Chandler. Rainey fylgdi honum af fremsta mætti og hélt öðru sætinu af öryggi, en barátta var um næstu sæti á eftir milli Niall McKenzie, Schwantz og Chandlers, sem lauk með því að McKenzie náði í verð- launasætið, sem gladdi breska áhorfendur á keppninni. í flokki 250 cc mótorhjóla vann Loris Reggiani á Aprilia eftir æsispennandi keppni, sem var mun líflegri en keppni þeirra stóru, en Luca Cadalora hef- ur unnið þijú mót í þeim flokki, en hann ekur undir sömu merkjum og Doohan, fyrir Honda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.