Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 ATVIN N MMAUGL YSINGAR Þýsk fjölskylda óskar eftir unglingi 18 ára eða eldri í eitt ár til umsjónar með 20 íslenskum hestum. Þýskukunnátta mjög æskileg. Uppplýsingar í síma 96-23950 milli kl. 16 og 20. Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á stærri bílum óskast. Starfið felst í viðhaldi og viðgerðum á verkstæði hjá traustu fyrirtæki í Reykjavík. Umsóknir, merktar: „Þ - 3480“, skilist á auglýsingadeild Mbl., fyrir fimmtudag. „Au pair“ - London íslensk fjölskylda í London óskar eftir „au pair“ til að gæta tveggja barna. Þarf að vera um tvítugt, með bílpróf og má ekki reykja. Nánari upplýsingar fást í símum 676705, 35528 og 38409. Danskennaranemar Nemar við danskennslu óskast frá og með 1. september. Aldurslágmark 17 ára. Upplýsingar veittar í síma 642535. Dagný Björk, danskennari, Smiðjuvegi 1, Kópavogi. Rafeindavirki óskar eftir hlutastarfi. Er vanur viðgerðum á öllum heimilistækjum og fleiru. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudag 29. maí nk. merktar: „Rafeind - 1201“. Mælingamaður Mælingastofa málara óskar eftir reiknings- glöggum manni til mælingastarfa. Umsóknir sendist til Mælingastofu málara, Lágmúla 5, 108 Reykjavík, fyrir 29. maí. Háskólamenntaðir starfsmenn Skrifstofa Alþingis óskar að ráða tvo háskóla- menntaða starfsmenn tímabundið til starfa fyrir fastanefndir þingsins. Æskilegt er að starfsmennirnir hafi þekkingu á Evrópumál- um eða alþjóðasamningum. Ráðningartími er frá 10. júní til áramóta. Umsóknir skulu sendar starfsmannastjóra Alþingis, Austurstræti 14, fyrir 3. júní nk. Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri nefndadeildar skrifstofu Alþingis. Alvöru sölumaður Við bjóðum reyndum sölumanni vel launað framtíðarstarf í verslun okkar. Við munum fara með allar umsóknir sem trúnaðarmál og jafnframt svara öllum umsóknum. Vinsamlega leggið umsóknir inn á augýsinga- deild Mbl., merktar: „Reyndur - 3476“. Hjúkrunarfræðingar athugið Hjúkrunarforstjóri óskast á hjúkrunar- og dvalarheimilið Hulduhlíð á Eskifirði frá og með 1. sept. ’92 (eða eftir samkomulagi). Einnig óskast hjúkrunarfræðingur frá sama tíma. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri í síma 97-61200 f.h. (heimasími e.h. 97-61344) eða framkvæmdastjóri í síma 97-61205. Eignaraðild og starf íbrauðgerð Framtakssamur og dugmikill bakari óskast til starfa í litlu en vel búnu bakaríi úti á landi. Eignaraðild kemur til greina en er ekki skil- yrði. Starfsumsóknum er tilgreina m.a. starfs- reynslu skal skila til auglýsingadeildar Mbl. merktum: „Bakarí - 1206“ fyrir 30. maí nk. ST. JÓSEFSSPtTAU HAFNARFIRÐI 113 Aðstoðárlæknir Staða aðstoðarlæknis á lyflækningadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði er laus til umsókn- ar frá 1. júlí 1992. Um er að ræða 28 rúma mjög virka lyflækn- ingadeild með bráðavakt fyrir Hafnarfjörð og nágrannabyggðir. Virk þátttaka í vísinda- störfum sjúkrahússins æskileg. Nánari upplýsingar hjá yfirlækni, lyflækninga- deild, í síma 50188. Framkvæmdastjóri. Kennarasamband íslands Félagsmálafulltrúi Kennarasambandið óskar eftir að ráða fé- lagsmálafulltrúa frá 1. ágúst nk. Starf félags- málafulltrúa er fólgið í samstarfi og aðstoð við aðildarfélög Kennarasambandsins um land allt. Viðkomandi þarf að þekkja vel til félags- og kjaramála kennara. Umsóknarfrestur er til 15. júní 1992. Nánari upplýsingar á skrifstofu Kennarasam- bandsins, Grettisgötu 89, sími 91-624080. Iþróttakennarar íþróttakennara vantar að Laugarbakkaskóla og Grunnskóla Hvammstanga. Kennt verður í nýju íþróttaúsi á Laugarbakka. Upplýsingar hjá skólastjórum í símum: Jó- hann 95-12901 eða 12985, Marinó 95-12417 eða 12368. REYKJALUNDUR Líffræðingur óskast í hálft starf við rannsóknir. Upplýsingar veitir Marta Guðjónsdóttir, líf- fræðingur, virka daga milli kl. 13.00 og 15.00 í síma 666200. Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð. <Q> Heimilisþjónusta í Mosfellsbæ Starfsfólk óskast í heimilisþjónustu við íbúð- ir aldraðra að Hlaðhömrum, Mosfellsbæ. Um er að ræða sumarstörf. Vinnutími er frá kl. 9 til 14 aðra hvora viku. Laun eru skv. kjarasamningi starfsmannafé- lagsins Sóknar. Allar frekari upplýsingar veitir Ásdís Hauks- dóttir, verkstjóri, í síma 666218 kl. 13.30 - 15.30, eða félagsmálastjóri í sama síma virka daga kl. 10-11. Fálagsmálastjóri. WtÆkXMAUGL YSINGAR HÚSNÆÐIÓSKAST Húsnæði óskast Vegna fyrirsjáanlegra stóraukinna umsvifa fyrirtækisins óskast til kaups eða leigu 800-1000 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð í Reykjavík. Góð aðkoma og bílastæði skil- yrði. Tilboð er greini frá stærð, staðsetningu o.fl. óskast send fyrir hádegi föstudaginn 29. maí til birgðaverslunar Gripið og greitt, Skútuvogi 4, 104 Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur Geir Harðarson, framkvæmdastjóri, í síma 689535. Húsnæði óskast Hjón með tvö börn óska eftir einbýlishúsi, raðhúsi eða stærri íbúð. Höfum góð með- mæli. Upplýsingar í síma 91-45676. Stórt einbýlishús óskast til leigu Við leitum að húsi á friðsælum stað á stór Reykjavíkursvæðinu. Má vera í allt að 30 km fjarlægð. Upplýsingar í síma 656617. Miðsvæðis í Reykjavík Framkvæmdastjóri hjá traustu fyrirtæki ósk- ar eftir 3ja-4ra herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík. Erum 2 í heimili (barnlaus). Vinsamlegast hafið samband í síma 33752. IMú er rétti tíminn til að tengja Alhliða rafverktaki óskar eftir verkefnum, s.s. nýlagnir, breytingar, tilboð o.fl. Upplýsingar í síma 985-27447. Raftæknirinn, sími91-76083.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.