Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 41
I I HOLLANDI Jóhann Valdimarsson: „Ekki veit ég hvort að sköpun sú sem haft hefur hönd mína sem jarðveg megi teljast til einhverra stórvirkja, en eitthvað hefur hugur minn hneigst að málverkinu sökum litaskorts í sálartetrinu. Sem stend- ur stendur yfir athugun á sveigðum þríhyrningi og spöröskjum og kannski má tengja litasétterínguna við heim andanna.“ Elsa D. Gísladóttir: „Ég hef verið á beit í ýmsum hólfum, sé það ekki fyrir mér að bindast einum staur og rótnaga þann blett. í verkum mínum dreg ég því fram huglæga munúð efni- viðarins sem verður fyrir valinu hveiju sinni. Hugmyndin að baki getur verið mismunandi eðlis, allt frá því að vera vitsmunaleg yfir í persónulega innlifun eða ósk- hyggju." Guðrún Hjartardóttir: „Ég reyni að svara hverri hug- mynd á réttan hátt og hefti þær ekki í einum miðli. Einn draumur getur orðið kveikja að heilli innstill- ingu, einn dagur að málverki, einn litur að gerningi og augnablik að framhaldssögu.“ Bokki: „Ég leik mér með hugmyndir mínar og sögur og kem þeim frá mér á hentugan máta sem gefur mér gleði í sköpuninni, gef mér þannig rými fyrir nýjar. Ég set mér engar reglur svo ég læsi mig ekki inni í lokuðum heimi og ormétnum hugmyndum um hvernig eigi að vinna sér inn réttindi til að kallast listamaður, þar sem ekki virðist hafa skilist að þjálfunin kemur með sköpuninni, en ekki sköpunin með þjálfuninni. Með þessu fæ ég að síeppa mér lausum og koma mér inn í verk mín. Ég er enn nógu ungur til að halda að ég geti breytt einhverju." Pétur Orn Friðriksson: „Verk mín vinn ég yfirleitt í hreyfiskúlptúr sem er ansi marg- fléttaður. Hann er mér eiginlegri frekar en þröngur miðill sem gleyp- ir hugmyndir oft í innantómar út- færslur. Allir hafa sömu eiginleika til að upplifa þær kenndir sem manneskjan er samsett úr, nema hvað misjafnt er hvernig viðkom- andi gleymir eða man. Þegar ég set upp verk ætla ég því að endurvarpa eigin útgáfu þess sem sér, frekar en mína að þeirri stemmningu sem í verkinu felst. Fólk speglast og lit- ast af umhverfinu og breytist ein- ungis af sjálfu sér í ævintýrunum." MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 Nýtt blað fyrir útlendinga Morgunblaðið/RAX. Ritstjórar blaðsins, Sigríður Þorsteinsdóttir og Róbert Mellk. Foreign Living er blað, sem kom- ið er út og er ætlað útlendingum á íslandi og fjallar um útlend- inga, einkum þá, sem sest hafa að hérlendis. Blaðið verður að mestu leyti skrifað á ensku, en að hluta til á öðrum tungumálum. Það er í dagblaðsformni og kemur út aðra hveija viku. Efni þess verður viðtöl, greinar, hagnýtar upplýsingar, tilkynningar, ráð- gjöf, lesendadálkur og fréttir, sem hafa gildi fyrir þennan ákveðna hóp sérstaklega. Um útgáfu blaðsins segir útgefend- urnir Róbert Mellk og Sigríður Þor- steinsdóttir ritstjórar: „Það er erfitt að koma frá öðru menningarsamfé- lagi og aðlaga sig nýju umhverfí, ekki síst er sest er að hjá smáþjóð, þar sem vina- og fjölskyldubönd eru jafn sterk og hér á landi. Ákveðin einmanakennd og saknaðartilfinning er til staðar, hvort sem einstaklingur er nýfluttur hingað eða hefur búið hér árum eða jafnvel áratugum sam- an. Hlutverk Foreign Living er að þjóna öllum þessum hóp,“ segja þau. Ritstjórnarnir sögðu að fyrsta tölublaðið yrði sent til allra einstakl- inga 16 ára og eldri, sem fælddir eru erlendis, en búsettir á íslandi. Nákvæmar tölur um fjölda útlend- inga búsettra í landinu liggja ekki fyrir, en samkvæmt aðgengilegum gögnum er fjöldi þeirra nálægt 10 þúsund. Víkveiji, útgáfuþjónusta gefur blaðið út. Haukadalur við Heklurætur: Eldunnn blossaði allt i einu upp Slökkvitækið virkaði ekki en betur fór en á horfðist Selfossi. „MÉR FANNST dálítið kalt inni og ætlaði að hlýja mér með vél- inni en þá blossaði allt upp,“ sagði Jónína Hafliðadóttir hús- freyja á bænum Haukadal við Heklurætur. Slökkviliðið á Hellu var kvatt að bænum klukkan 17.00 á miðvikudag vegna elds í Sóló oliueldavél. Jónína, gestir hennar og nágrannar náðu að slökkva eldinn í vélinni og áður en hann breiddist út en eldhúsið fylltist af reyk. Snarræði þeirra bjargaði bænum sem skemmdist lítið, aðallega af reyk. Jónína, sem er níræð að aldri og dvelur á dvalarheimilinu Lundi á Hellu, var ásamt dóttur sinni, syni hennar og annarri konu heima í Haukadal. Konurnar voru inni í stofu að skoða myndir og bréf frá fýrri tíma og pilturinn nýkominn inn frá því að að gæta að lambám þeg- ar eldurinn kom upp. „Ég heyrði eitthvert hljóð og hljóp fram og sá þá að allt logaði. Það var mikill hiti og hávaði í skor- steininum. Það bokstaflega logaði í öllum rörunum og svo bullaði og sauð í hitakútnum uppi á lofti,“ sagði Heiða Magnúsdóttir, dóttir Jónínu. Konurnar hringdu strax á næstu bæi eftir hjálp. Sonur Heiðu, Atli Haukur, greip slökkvitækið á bæn- um en þegar til átti að taka virkaði það ekki. Með hjálp nágrannanna, sem komu fljótt á vettvang, tókst þeim að kæfa eldinn og bjarga bænum. „Við urðum virkilega hræddar þegar slökkvitækið virkaði ekki. Leitar að fyrirsætum Hinn þekkti tískuljósmyndari og fyrrum fyrirsæta Huggy, eða Hugrún Ragnarsdóttir, verður hérlendis næstu vikuna í leit að fyrirsætum, en hún tekur m.a. myndir fyrir stærstu fyrirsætu- skrifstofuna í London. Hún kemur hér í myndatökuleið- angur fyrir Tímaritið 3T og hyggst einnig mynda fyrirsætur, sem hafa á því áhuga. Huggy uppgötvaði m.a. Bertu Maríu Wagfjörð sem hefur vakið mikla athygli ytra og Bryndísi Bjarnadóttir sem nýlega vann Elite keppnina. Þær stúlkur sem hafa áhuga á myndatökum geta leitað upplýsinga hjá Módel 79, Icelandie Models eða 3T. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Jónína Hafliðadóttir húsfreyja, Heiða Magnúsdóttir, Elín Teitsdóttir og Atli Haukur Haraldsson við gömlu Sólóeldavéiina þar sem eldur- inn blossaði upp. Hávaðinn varð strax svo mikill í skorsteininum sem trekkti gífur- lega,“ sagði Elín Teitsdóttir. Jónína húsfreyja hélt ró sinni enda ýmis- legt borið við gegnum tiðina við Heklurætur. „Ég er sko ekki hrædd við neitt,“ sagði hún. Það var held- ur ekki á henni að sjá eftir að allt var um garð gengið. Það sem hún hafði áhyggjur af var að trygging- arnar þyrftu að mála eldhúsið og það sem fyrst. „Við vorum dauðhrædd um að það yrði sprenging þegar við sáum þetta í fullum loga og þetta var óhugnalegt í byijun," sagði Atli Haukur. Ásamt nágrönnunum helltu þau vatni á sótið undir eldvél- inni en áréðu ekki að skvetta vatni inn í vélina sem greinilega hafði yfirfyllst af olíu. Þar sem slökkvi- tækið virkaði ekki notuðu þau lítinn brúsa með uppþvottalegi til þess að sprauta inní vélina og drepa í síðustu logunum í brennaranum. Slökkviliðsmenn frá Hellu voru komnir á vettvang 28 mínútum eft- ir útkallið en Haukadalur er 30 kíló- metra frá Hellu. Þeir grandskoðuðu húsið og reykháfinn en hvergi leyndist glóð. Þá yfirfóru þeir slökkvitækið og lýstu eins og aðrir furðu sinni á því að það virkaði ekki þar sem það var einungis ríf- lega ársgamalt. Sólóeldavélin var yfirfarin, lokað fyrir leiðslur og ráðstafanir gerðar. Vélin fékk þann dóm að haria þyrfti að hreinsa áður en hún væri notuð aftur en rafmagnshitun er í húsinu og gamla vélin því aðeins notuð til að skerpa á hitanum ef þarf. Útkall- inu lauk með því að slökkviliðsmenn settust við eldhúsborðið og gerðu sér ásamt öðrum viðstöddum að góðu tvær vænar tertur sem Jónína og konurnar báru á borð. Þeir höfðu á orði að þetta væri óvenjulegur endir á útkalli, að drekka kaffi við upptök eldsins. Yfir kaffibollanum og tertunum varð niðurstaðan af bilun slökkvitækisins sú að réttast væri fyrir fólk í sveitum að hafa alltaf tvö slökkvitæki tiltæk á bæn- um. Það væri ekki víst að Þvol- brúsi dygði í öllum tilfellum. Sig. Jóns. Lamba frá kr. 990.- Nautasteikur frá kr. 1090.- LAUGAVEGI 34 S: 13088 Nýr og glæsiiegur veitingastaöur ** sem kemur spánskt ffyrlr sjónlr „Svo á jörðu sem á himni“ eftir Jóhann Valdimarsson. Úrklippa úr hol- Iensku blaði þar sem greint er frá eldsvoðanum og sýnd mynd af byggingunni þar sem íslensku ung- mennin höfðu sam- an vinnustofu. Skömmu eftir að greinin var skrifuð gerðust þeir válegu atburðir í borginni Enschede, að brennuvargur fór á stúf-. ana og kveikti í á fjórum stöð- um í „Nino-hverfinu“. Milljóna tjón varð í eldsvoðan- um og byggingar á um fimmtán þúsund fermetra svæði urðu eld- inum að bráð. Margir listamenn urðu fyrir tjóni í eldsvoðanum og þar á meðal íslensku nemarn- ir í listaakademíunni AKI. Húsið, þar sem þau eru saman með vinnustofu, stóð af sér eld- inn, en flest verkin eyðilögðust af sóti, reyk og vatni. Gunnar Straumland missti til dæmis öll 16 verkin sem hann var búinn að vinna og ljúka við. Pétur Örn Friðriksson missti alla hreyfi- skúlptúra sína nema einn, og hin fengu eitt til tvö verk heil úr eldinum. Þar með er öll vinna þessara ungmenna í vetur farin forgörðum. -klp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.