Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.05.1992, Blaðsíða 19
19 MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1992 Þórarinn Jónsson á Melnum var nærri níræður þegar Olafur K. Magnússon tók þessa mynd af honum í vinnu við að afferma Guilfoss í Reykjavíkurhöfn. Hann var i þjálfun, gekk lengst af heim til sín fram á Selljarnar- nes og inn í Reykjavík til vinnu og lifði á kartöflum og soðningu, stundum dálitlu af kjöti, sagði hann í viðtali. Landlæknir kveðst ekki í vafa um að fólk hafi betra af því að vinna lengur. En slíkt þurfi að vera við hæfi. Fólk verði rótlaust ef það vill vinna en fær það ekki. Hann bend- ir á að hver niðurstaðan af annarri sýni að eldra fólk er miklu hressara nú að það var áður fyrr. Nú hafa menn hollari og betri fæðu, stunda meira líkamsrækt og færri reykja. Þetta kemur m.a. fram í könnun Hjartavemdar sem gerð var á at- vinnu, lífháttum og heilsufari fólks 50-61 árs á Reykjavíkursvæðinu 1967-68 og 1985-86. Þar sést að heilsufar eldra fólks hefur batnað mikið á síðustu áratugum. í báðum aldurshópum hefur kólesterol í blóði og blóðþrýstingur lækkað en lungnaþol aukist marktækt og dán- artíðni úr hjarta- og æðasjúkdóm- um hefur lækkað verulega. Eðlileg afleiðing betra heilsufars er að fleiri aldraðir vilja hafa eitthvað fyrir stafni. Og þá er heilsusamlegt að vinna. Kveðst Ólafur eindregið þeirrar skoðunar að koma eigi á sveigjanlegum vinnutíma fyrir aldr- aða. Fólk eigi að geta sest í helgan stein en alls ekki of snemma. Vinnulok metin eins og örorka Þegar borin eru undir hann um- mæli Þórs Halldórssonar, yfirlæknis öldrunardeildar Landspítalans, hér í blaðinu nýlega um að hæfni fólks ætti að ráða vinnulokum og að hana megi meta eins og örorku, sömu lögmál yrðu látin ráða um örorku- og ellilaun, svaraði land- læknir: Því ekki það? Yrði þá auðvit- að að miða við það fólk sem vill halda áfram vinnu. Líka sé til fólk sem bíði eftir að fá að hætta vinnu og geti það. Hann kvaðst hafa veitt því athygli erlendis að auðugt fólk og fólk í einkarekstri haldi ótrautt áfram starfi sínu, setjist ekki í helg- an stein eins og það er kallað. Hvort heldur vinnulok verða við tilskilinn hámarksaldur eða fyrr leiða þau yfirleitt til skorts á verkefnum og óvirkni. Áður fyrr var rosknu fólki talið hollast að setjast í helgan stein og hvílast, en það kemur ekki heim við nútíma læknisfræðiþekkingu og verður að teljast með öllu úrelt. Til að fólk haldi líkamlegri og andlegri hæfni sem Iengst er líkamleg og andleg örvun nauðsynleg til að við- halda góðri sjón, heyrn og hreyfí- getu svo og félagslegri og sálrænni aðlögunarhæfni. Þótt heilsufar 65-74 ára fólks á Norðurlöndum hafí batnað hin síðari ár fer í vöxt að fólk láti af störfum jafnvel áður en eftirlaunaaldri er náð. En vinnu- lok við 65-70 ára aldur valda oft stöðnun og óvirkni. Slíkt er ekki læknisfræðilega réttlætanlegt, seg- ir Ólafur, og leiðir oft til ótímabærr- ar hrörnunar og innlagna á stofnan- ir. Meðferð öldrunar er ekki algjör hvíld heldur andleg og líkamlég örvun. „Minnkun starfsgetu skiptir meira máli heldur en vefrænar breytingar“,segir Ólafur ennfrem- ur. „Mörg líffæri búa yfír mikilli aukagetu. Sum þeirra má skerða um þijá fjórðu hluta án þess að nokkur greinileg starfsskerðing komi í ljós. Margs konar geta sem skiptir okkur máli nær hámarki um kynþroskaaldur en er síðan að mestu óbreytt í langan tíma þar til hægfara skerðing verður með háum aldri. Fram að 70 ára aldri er and- ieg hæfni flestra lítt eða ekki skert og má jafna henni við getu þrítugra eða fertugra. Þó verður að taka fram að snerpunni hrakar heldur. Eftirlaunaaldur á því að vera sveigj- anlegur og byggjast á læknisfræði- legu og félagsfræðilegu mati á starfsgetu og hæfni hvers og eins. Vitaskuld á ekki að skerða rétt manna til eftirlauna er þeir hafa áunnið sér. En það eru mann- réttindi a,ð halda óskertum starfs- réttindum svo lengi sem hæfni og starfsorka leyfa. Æskilegt er að eftirlaunaaldur verði mun sveigjan- legri en nú er, þannig að fólk geti vaiið um hvenær það hættir störfum á aldursbilinu 60-75 ára,“ sagði landlæknir. 90% vilja sleppa fullu starfi fyrir minnkað Hér hefur verið talað um slæm áhrif á heilsu og vellíðan aldraða sem vilja vinna fram yfír tilsettan Bruðlað með dýra menntun Á RÁÐSTEFNU um tengsl menntunar og atvinnulífs fyrr í mánuð- inum, þar sem fenginn var erlendur fyrirlesari auk innlendra, virtist aðaláherslan lögð á að það mundi skipta sköpum fyrir Islendinga að hafa í framtíðinni tiltækt fólk sem kann til starfa á sínu sviði í bland við vel menntað fólk til nýsköpunar. Það leið- ir hugann að því bruðli sem verður með kunnáttu og dýra mennt- un, sem kostað hefur stórfé, þegar starfsaldur hins vel hæfa nýtist í tiltölulega stuttan tíma áður en honum er ýtt út af vinnu- markaðinum. T.d. þegar hæft fólk kemur ekki til starfa fyrr en um eða eftir þrítugt og fer svo kannski að hætta 60-70 ára. Iatvinnuleysislöndunum í kring- um okkur fer vaxandi að hæfu fólki sé ýtt út. T.d. hitti undirritaður blaðamaður nýlega í Frakklandi 55 ára sálfræðing og litlu eldri mann hennar, sem munu hafa það eitt fyrir stafni það sem eftir er ævinnar að rækta blóm í garðinum sínum í Normandí. Þótt ekki sé svo langt gengið hér nema í undantekningartilfellum, vekur það spurningar um þjóðfélagslegt bruðl ef hæfni og menntun eru ekki betur nýtt. Eða öfugt, ef kost- að er svo miklu upp á skammvinna nýtingu? Höfum við efni á að van- nýta þessa stofna? Stefán Ólafsson prófessor var einn ræðumanna á fyrrnefndri ráðstefnu og hefur fengist mikið við kannanir á lífs- háttum og lífskjörum hér á landi. Við veltum því þessum spurningum upp við hann og við Sveinbjörn Björnsson háskólarektor. Algengt er að fólk komi til starfa á vinnumarkaðinn eftir hafa verið í háskólanámi í 8-13 ár, sem kem- ur þá ofan á framhaldsskólanámið. Stúdentar útskrifast hér 19-20 ára gamlir. Skemmsta háskólanám er 3-4 ár og síðan fara margir í fram- haldsnám, taka til dæmis 5 ár í vinnu við doktorsritgerð. Þá orðnir 28 ára. En margir koma líka seinna úr námi, svo sem læknar og þeir sem fara í framhaldsnám í útlönd- um. Má þá reikna með að þeir séu 35 ára þegar þeir eru tilbúnir til starfa. Ög svo er um fleiri. Svein- björn segir það alltaf mikinn missi að tapa svo þessu fólki 33-35 ára til starfa í í öðrum löndum. En það sé líka slæmt að missa það of fljótt úr störfum hér. Stefán segir að þetta megi kalla mikið fjárfest- ingabruðl, sérstaklega ef fólk er búið að mennta sig eða þjálfa til starfa lengi. Að nýta það ekki sé óskynsamlegt. Hveiju er þá búið að kosta til? Reikna má með að kostnaður við hvern námsmann sé upp undir milljón á ári. Meðalkostnaður við hvern nemanda í Háskóla íslands í kennslu er 300 þúsund kr. í dýr- ustu greinunum fer hann upp und- ir milljón. í ýmsum öðrum skólum er kostnaðurinn meiri, svo sem t.d. bændaskólunum, þar sem kennslu- kostnaður er 700-800 þúsund krónur á mann. Til framfæris metur lánasjóðurinn að hann þurfí 40-50 þús til að lifa og stundum bætast á skólagjöld, sem verður þá um hálf milljón á ári. Þetta kemur heim við aðra athugun sem sýnir að milljón kr. á mann á ári er ekki of ílagt. Eftir 8- 13 ár eru þetta orðin umtalsverð heildarút- gjöld þegar fjöldinn er orðinn svona mikill. Erlendis er kostnaður yfírleitt hærri og þar koma oft til dýr skólagjöld. Kennslukostnaður- inn við háskólann í Tromsö er t.d. rúm milljón og 600 þúsund í Gautaborg, sem kemur þá á reikn- ing frændþjóða okkar. Hagfræði og skynsamleg velferðarstefna Ekki virðist ágreiningur um að slíkur tilkostnaður skili sér ! þjóð- félaginu. En hve lengi? Er það ekki mikið bruðl að nýta hann ekki eins lengi og kostur er? Báðir taka þeir Sveinbjörn og Stefán undir það. Háskólarektor telur að verklok eigi að vera sveigjanleg eftir heilsufari, jafnvel frá sex- tugu. Verði fólk fyrir áföllum svo starfíð sé orðið því kvalræði, eigi það ekki að verða fangar starfsins en eiga möguleika á að hætta. En líka séu dæmi um að menn séu í fullum afköstum áttræðir. Svein- björn lítur sér nær og bendir á að margt hér á íslandi sé byggt upp í áhlaupum. Svo er um háskólann, þar sem nemendum fjölgaði gífur- lega upp úr 1970 og kennurum þá líka. Stærstur hópur prófessor- anna er því úr um 15 árgöngum, fjölmargir fæddir upp úr 1930. Þegar kemur fram um 2000 er hópurinn farinn að nálgast sjötugs- aldurinn. Slíkt er ekki hagkvæmt. Kemur að því að stór hópur kenn- ara nær a svipuðum tíma 67 ára markinu. Sumir eldast vel og eru virkir fram á hættutíma og fram yfír það, en aðrir búa við skerta heilsu og þverrandi orku. Svigrúm- ið sé því æskilegast. Mikilvægt sé að rífa starfandi fólk ekki upp úr sínU umhverfí og ekki megi gleyma því að þetta fólk sitji oft inni með mikla starfsreynslu og þekkingu. „Ég lít svo á að fólk eigi að geta gengið að störfum á hvaða aldri sem er meðan það er fullf- rískt,“ segir Stefán.„Það er búið að fjárfesta í þvi og það hefur reynslu. Ekki síst ef það er velferð- aratriði fyrir það sjálft. Í þessu er bæði hagfræði og skynsamleg vel- ferðarstefna og gerist ekki oft að þetta tvennt fer saman." Hann bendir á að eitt af því sem mælt sé með í Evrópubandalaginu í umræðum um fækkun í hópi yngra fólks til að bera framfærslubyrgð- ina af vaxandi íjölda eftirlauna- fólks, sé að hagkvæmt sé að leyfa fólki að halda áfram að vinna. Skynsamlegt geti verið að hækka eftirlaunaaldur og gefa um leið svigrúm fyrir þau 5-10%, sem ekki séu vel færir um það. Það verði meginstefnan á næstu áratugum. Hvar liggja þá mörkin? í þessu samhengi er fróðlegt að skoða skýrslu Stefáns Ólafssonar um könnun Félagsvísindastofnunar HÍ og Hagstofunnar um Lífskjör og lífshætti á íslandi á árinu 1990, sérstaklega með tilliti til svara fólks á aldrinum 65-75 ára. Þar kemur fram að 36,7% þeirra stund- uðu launaða vinnu. Þegar þeir eru spurðir, sem ekki eru í launaðri vinnu, kemur í ljós að flestir, eða 62%, hafa hætt vegna aidurstak- markana. Aðeins 21% vegna veik- inda eða fötlunar. Bendir þetta ekki til þess að þeir gætu stundað vinnu? Af vinnandi fólki starfa yfir 40% hjá hinu opinbera, en eft- ir greinum má sjá störf við þjón- ustu, landbúnað, fískveiðar og fiskvinnslu, byggingariðnað og al- mennan iðnað, samgöngur og verslun. Helmingurinn af þessu fólki er í fullri vinnu og nær 40% af þeim sem eru í vinnu hafa 37 stunda vinnuviku að meðaltali en vjnna 43,3 stundir. Eru semsagt ríflega fullvinnandi. 80% telja þetta hæfilegan vinnutíma. Og þá kemur merkilegt í ljós, nær 70% svara því neitandi að þeir séu útkeyrðir eftir vinnudaginn, aðeins 12% segj- ast vera það. Mun færri 65 til 75 ára telja sig þreytta að fullum vinnudegi loknum en yngra fólkið, þar sem 51% af aldurshópnum 16-24ra ára segjist koma þreytt heim og 59% af fólki á besta aldri eða 25-66 ára. Kannski er eldra fólkið harðara af sér, en í það minnsta finnst því sjálfu það ekki vera útkeyrt. Meiri hlutinn af þessu fólki 65-75 ára telur sig semsagt geta unnið fulla vinnu án þess að þreytast of mikið. Ekki virðist fjár- hagsafkoman hafa þarna afger- andi áhrif, því aðeins tæplega 13% segjast vera fremur eða mjög óánægðir með íjárhagsafkomu sína. Ef litið er á fyrrnefnda könnun kemur í ljós að aðeins lítið brot af 65-75 ára gömlum segjast eiga erfitt með að hreyfa sig um og 88% segjast ekki eiga í neinum erfið- leikum með að fara ferða sinna með strætisvögnum né með þát- töku í félagslífi. Þegar tekið er til- lit til þess að 80% aldraðra telur fullan vinnutíma hæfílegan og ekki er verið að þvinga það til að vinna, virðist það styðja það sem Stefán Ólafsson sagði, að skynsamlegt sé og góð hagfræði fyrir samfélagið að leyfa öldruðum að vinna áfram, en hafa gott svigrúm fyrir þau 5-10 % sem ekki eru vel færir um það. Fæðingarár fastráðinna kennara í Verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla íslands 1980 Fæðingarár kennara Fjöldi Aldur 1980 1910-19 1920-29 1930-39 1940-49 1950-59 Fæðingarár 1910 3 4 26 20 0 I I I 1920 Aldur 2000 61-70 51-60 41-50 31-40 21-30 Emeriti Emeriti 61-70 ára 51-60 ára 41 -50 ára 1930 1940 1950 Stór hluti kennara í Háskóla íslands kemur á eftirlaunaaldur á sama tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.