Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 LJÚl. .92 ---- 13 útaf þegar við gátum ekki unnið lengur og vöknuðum svo til þess að vinna meira og lifðum á pítsum sem við létum senda okkur.“ Skúli segir að tölvur af þessu tagi þurfa óhemju stórt minni. „Við erum ekki að tala um nokkur megabyte heldur gigabyte. Við þurfum að gefa tölvunni flóknar skipanir til þess að vinna eftir og svo reiknar hún OZ hf. vann út og teiknar og þessa mynd sér- það tekur stund- staklega fyfir um talsvert blaðamann langan tíma. Morgunblaðs- Það seinvirk- ins. Tölvur voru asta í þessari látnar reikna út starfsemi eru hvernig geislar útreikningar frá ljósgjafa tölvunnar á (morgunsól) skuggum, ljós- myndu víxl- brotum og end- verka við hluti á urkasti ljóss. venjulegu Tölvumar vinna morgunverðar- allar nætur því borði, og mynd- verkefnin eru in syo byggð seinleg í upp samkvæmt vinnslu. Fyrir þvi. hveija sekúndu í hreyfimynd þarf tölvan að teikna 25 myndir og er frá 1 mínútu upp í 20 mínútur með hveija mynd.“ Nafnið á fyrirtækinu er sótt í tit- il hinnar frægu kvikmyndar, Galdra- karlinn í Oz. Það má líka með sanni segja að tæki þeirra félaga bjóði upp á möguleika sem eru galdri líkastir. „Það er til dæmis hægt að breyta mynd eins manns yfir í mynd af öðrum manni,“ segir Guðjón. „Þá skönnum við inn mynd af mannin- um, síðan eru valdir punktar í andlit- inu og þeir togaðir inn í mynd af öðrum manni. Við getum einnig teiknað hluti, t.d. úr, sent myndirnar til Kanada og fengið fljótlega ná- kvæma eftirmynd af hlutnum úr plasti úr stórri útskurðarvél sem til er þar. Nákvæmni hennar er 1/2000 úr tommu. I Hollywood er til fyrir- tæki sem býr til styttur af fólki með Sagt frá öflugu nýju tölvuteikni- fyrirtæki UMameiwim í eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur MITT í öllum umræðum um samdrátt og kreppu hafa þrír ungir og stórhuga menn fjárfest fyrir tæpar 30 milljónir króna í tölvum og forritum og sett á stofn þrívítt tölvuteiknifyrirtæki sem þeir nefna OZ. Tækjakostur þeirra er af bestu tegund sem völ er á í heiminum og einn sá öflugasti á Norðurlönd- um. Notkun slíkra tækja gefur ótrúlega möguleika, innanlands sem utan. Sem dæmi um getu þessara tækja má nefna að tæknibrellurnar í kvikmyndunum Terminator II og Batman II eru meðal þess sem unnið hefur verið með þeim. Menn ræða gjarnan um þörfina á nýjum vaxtarbroddum í íslensku atvinnu- lífí. Hér virðist einn slíkur hafa komið fram. „Verkefni okkar hafa verið mörg og margvísleg á skömmum tíma og það gefur ástæðu til bjartsýni á framhaldið. Við leggjum áherslu á að starfa óháðir og erum þakklátir fyrir drengilegan stuðning Nýherja," sögðu þessir ungu athafnamenn m.a. er blaða- maður Morgunblaðsins átti tal við þá fyrir skömmu. F.v. Skúli Mogensen og Guðjón Már Guðjónsson. Guðjón Már Guðjónsson, Skúli Mogensen og Aron Hjartarson eiga að stærstum hluta og reka tölvutei- knifyrirtækið OZ í Brautarholti 8. Starfsmaður hjá þeim er Kristján Valur Jónsson. Guðjón situr við tölv- uskjáinn að teikna gosdrykkja- flösku þegar blaðamann ber að garði. „Þetta er í raun og veru bara ný tegund af því hvernig fólk teikn- ar. Þetta er byggt þannig upp að það sem verið er teikna sést frá flórum hliðum. Einnig er í forritinu myndavél sem hægt er að beina að öllum hliðum flöskunnar. Ég byija á að teikna útlínur flöskunnar eins og víragrind, síðan bæti ég smám saman á yfirborð víragrindarinnar og enda með því að setja á hana mynd af miða sem skönnuð (varp- að) hefur verið inn í vélina. Síðan er hægt að láta flöskuna hreyfa sig fram og aftur, setja undir hana litla fætur og láta hana labba og svo mætti lengi telja,“ segir Guðjón og lætur flöskuna um leið beygja sig og hneigja. „Ég gef sem sagt tölv- unni fyrirskipanir um hvernig eigin- leika umrædd flaska á að hafa og hún sér svo um að reikna allt rétt út, endurkast ljóss og skugga og bætir inn í viðeigandi umhverfi og hreyfingum og fullgerir þannig myndina.“ Með þessum búnaði er hægt að herma eftir vatni, eldi, reyk og ýmsum öðrum náttúrufyrirbrigðum svo nákvæmlega að teikningin verð- ur eins og skýrasta ljósmynd. Hinir færustu vísindamenn á hveiju sviði hafa reiknað út og sett inn í forrit- ið allflesta þá eiginleika sem um- rædd fyrirbrigði eru gædd og þann- ig gert þetta mögulegt. „Að baki svona forriti liggur flókin samvinna færustu sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum. Það sameinar þannig þekk- ingu og færni hinna fremstu manna í hverri grein,“ segir Guðjón. „Forrit- ið veit t.d. flestalla eiginleika viðar og getur teiknað hann upp í sam- ræmi við þá vitneskju." Upphafið að stofnun fyrirtækisins OZ má rekja til samstarfs Guðjóns og Arons, sem hófst fyrir rösku ári. „Við vorum þá með mun einfaldari tæki í höndunum. I september í fyrra fórum við svo að hugleiða frekari tækjakaup,“ segir Guðjón. „Við byijuðum á að senda fyrir- spurnir með faxi (myndsíma) út um allan heim, til þess að kanna mark- aðinn, m.a. sendum við fyrirspurnir til NASA, þar sem við komumst í samband við mjög háttsettan mann. Menn sýndu okkur mikinn velvilja, ekki síst af því að við vorum frá íslandi, það vakti forvitni," segir Skúli. „í framhaldi af þessum fyrir- spurnum urðum við þekkt faxfyrir- tæki og margir umboðsaðilar buðust til að koma hingað og kynna okkur búnað sinn. Aðilar frá Belgíu, Dan- mörku, Bretlandi, Ítalíu, Hollandi og Svíþjóð sendu hingað menn sem héldu innanhússsýningar fyrir okkur og kepptust um að selja okkur bún- að. Við ræddum einnig við IBM á Islandi. Eftir að hafa grandskoðað markaðinn keyptum við öflugar tölv- ur, Unix-vinnustöðvar, hjá IBM, sem nú heitir Nýheiji, það fyrirtæki hafði milligöngu um að útvega okkur hug- búnað frá Alias í Kanada og sýndi okkur mikið traust með góðu lána- fyrirkomulagi. Við erum með þjón- ustusamninga við Nýheija og Alias." Búnaður okkar er mjög öflugur. Tæknilega séð getur enginn annar veitt sambærilega þjónustu hér á landi, og raunar varla á hinum Norð- urlöndunum. Við störfum sem óháð- ur aðili og erum alls ekki auglýs- ingastofa. Það er lykilatriði hjá okk- ur að vinna sem undirverktaki fyrir þær auglýsingastofur sem þörf hafa fyrir okkar þjónustu. Við erum einn- ig að kynna nýja þjónihtu fyrir arki- tekta sem felst í því að við getum teiknað í tölvunni stórar byggingar eftir frumgögnum og sýnt í smáatr- iðum hvernig þessar byggingar muni líta út fullsmíðaðar, með réttri lýsingu og í fyrirhuguðum litum. Með búnaði okkar hefðum t.d. getað sýnt bæði Ráðhúsið og Perluna eins og þau hús líta út nú, að utan sem innan, áður en hafist var handa við byggingu þeirra. Þessi þáttur í starf- seminni hefur þó enn sem komið er ekki verið fyrirferðarmikill, því mjög mikið hefur verið að gera í sam- bandi við auglýsingar. Einnig höfum við unnið ýmis verk fyrir kvikmynd- ir.“ Meðalaldur starfsmanna OZ er aðeins 22 ár. „Því er ekki að neita að sumir alvarlegir kaupsýslumenn hafa orðið dálítið hissa á ungum aldri okkar, þegar þeir koma til við- ræðna við okkur,“ segir Guðjón.„En þegar við setjumst við tölvurnar og sýnum hvað hægt er að gera hverf- ur þeim allt hik. Við höfum frá upp- hafi notið trausts, t.d. hjá IBM. Þar var fyrirspurnum okkar tekið af al- vöru og trausti þrátt fyrir að við værum rétt innan við tvítugt þegar við leituðum fyrst til þeirra. Fjárfesting okkar liggur í tækjum og forritum. Þegar við keyptum Alias-kerfið vorum við ekki aðeins að kaupa kerfið sem slíkt, heldur líka áskrift að því og fáum því senda nýjustu útgáfuna af því tvisvar á ári. Það tryggir okkur gegn því að dragast aftur úr. Vélarnar sjálfar úreldast auðvitað þegar fram í sæk- ir. Sífellt eru að koma fram hraðvirk- ari tölvur með stærra minni. End- urnýjunar á því sviði verður því þörf eftir nokkur ár. Rekstur fyrirtækis- ins er hins var tiltölulega einfaldur í sniðum, því birgðahald er nánast ekkert. Helsti kostnaðurinn hjá okk- ur er afborganir af lánum vegna kaupa á búnaði og svo kaupgreiðsl- ur. Símreikningar eru líka háir, því við þurfum að hringja mikið til út- landa til þess að fylgjast vel með öllum nýjungum á þessu sviði. Einn- ig höfum við verið að kanna mögu- leika á verkefnum erlendis frá og komið hefur í ljós að þeir eru fyrir hendi, það eru engin landamæri til í svona vinnslu," segir Guðjón. „Við höfum komið okkur upp nokkuð glöggri verkaskiptingu innan fyrirtækisins, sem hefur þróast út frá samstarfi okkar og tilraunum með tækin,“ segir Skúli. „Við erum með þijár móðurtölvur og getum því sinnt þremur aðskiljanlegum verk- efnum í einu. Fyrsta verkefnið sem við unnum var fyrir auglýsingastofu sem var í vandræðum með að finna leið til þess í mynd að láta umslag svífa inn um bréfalúgu. Við leystum þetta umsvifalaust í nýja búnaðinum. Kosturinn við tækin frá Alias er að í þeim er hægt að búa til svo raun- verulega hluti að varla er hægt að sjá að þeir séu teiknaðir í tölvu. Fljót- lega fengum við svo mörg verkefni að við vorum á vinnustað öllum stundum. Fleygðum okkur svo rétt þessari aðferð. Við getum einnig sent fólk til Kanada og látið skanna inn í þrívídd mynd af því þar. Það getur svo komið með þrívítt módel af sér á tölvudiski til baka. Við get- um svo stungið þessum diski í tölv- una hér og breytt formi hinnar þrí- víðu myndar fólksins (eða hlutar) á allar lundir. Þessari aðferð hefur t.d. verið beitt í áhættuatriðum í kvikmyndum. Þá er mynd aðalper- sónunnar skönnuð inn og teiknað úr frá henni. Þannig er hægt að láta persónuna vaða eld og ganga gegnum járn eins og sjá má í tæknib- rellum nýjustu kvikmynda. Með þessum búnaði er líka hægt búa til persónur og láta þær leika, með því einu að skanna mynd þeirra inn í tölvu og láta svo tölvuna teikna út frá því. Þannig væri hugsanlegt að láta látna leikara leika á ný, t.d. Marilyn Monroe." Þeir Guðjón og Skúli voru sam- mála um að svo viðamikið starf sem þeir hafa haft með höndum undan- farið geri kröfur til mikillar þolin- mæði frá hendi þeirra nánustu. „Svona mikil vinna gerir menn ekki vinsæla á heimilum," segir Skúli. „Það bjargar mér að kærastan mín er í læknisfræði og þarf mikið að lesa.“ Og Guðjón bætir brosandivið: ,,„Ég vildi stundum óska að mín kærasta hefði eins mikið að gera.“ Þeir félagar sögðust hafa lagt áherslu á að fá einhleypan mann til starfa þegar þeir auglýstu eftir starfsmanni. „Við vildum ekki gera nokkrum fjölskyldumanni þann grikk að koma hingað til starfa, við viljum ekki hafa það á samviskunni að eyðileggja heimilislíf hjá fólki,“ segja þeir hlæjandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.