Morgunblaðið - 26.07.1992, Side 14

Morgunblaðið - 26.07.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 Margt bendir til að Bill Clin- ton verði næsti forseti Banda- ríkjanna. Gangi það eftir er e.t.v. von meiri stefnubreyt- inga í Hvíta húsinu en marga grunar. Ekki þó endilega vegna stefnu Clintons sjálfs heldur vegna stefnumála varaforsetaefnisins sem, ef marka má nýja bók sem kom út í vor, mun boða nýjar áherslur í pólitík Hvíta húss- ins. Það vakti athygli þegar Clinton valdi A1 Gore öldungadeild- arþingmann frá Tennessee sem varaforsetaefni sitt. Clinton þótti bijóta þá hefð að forsetaefni kjósi sér til fylgilags mann sem er af ólíku sauðahúsi. Clinton og Gore eru nefnilega um margt líkir, báðir eru þeir menn á besta aldri, áþekkir á velli, þeir koma frá sama landshluta Bandaríkjanna og hafa svipaðar skoðanir á hefðbundnum átakamál- um í bandarískri pólitík. Mest ný- lunda eru þó afdráttarlausar skoð- anir A1 Gore á umhverfismálum. í nýútkominni bók Gore „Jörð í tvísýnu" (Earth in the Balance) gerir hann grein fyrir viðhorfum sínum til umhverfismála og setur í bókarlok fram tillögur um aðgerðir og hlutverk Bandaríkjanna í nán- ustu framtíð. Bókin er í senn per- sónuleg og afar fræðandi enda ljóst að höfundurinn býr yfir afburða- þekkingu á flestum sviðum um- hverfismála. Forsetaframboð 1988 Gore var einn af þeim sem sótust eftir útnefningu demókrata til for- setaframboðs árið 1988. Hann segir ákvörðun sína um forsetaframboð hafa byggst á einlægum ásetningi að gera umhverfiskreppuna að raunverulegu viðfangsefni í stjóm- málum. Þegar Gore tilkynnti fram- boð sitt í mars 1987 gerði hann gróðurhúsaáhrifin, þynningu ózón- lagsins og hnignandi ástand nátt- úrulegs unhverfis að umtalsefni og lýsti því yfir að þessi mál, ásamt með afvopnunarmálum yrðu megin- málefni kosningabaráttunnar af sinni hálfu. En Gore átti eftir að reka sig á. Enginn virtist hafa áhuga á þessum málum. Skoðana- könnuðir, ljölmiðlar og hvers kyns stjómmálatæknar voru fyrir löngu búnir að skilgreina hvaða mál yrðu kosningamál og þar voru umhverf- ismálin hvergi á blaði. Dálkahöfund- urinn George Will lýsti framboði Gore þannig: „Það er fram komið vegua óslökkvandi áhuga frambjóð- andans á málefnum sem í augum kjósenda eru ekki einu sinni jaðar- mál. Þetta eru málefni eins og svo- kölluð gróðurhúsaáhrif og hið þynnta óson.“ Gore lýsir angist sinni yfir því að geta ekki komið á dagskrá mál- efnum sem hann var sannfærður um að væru mikilvægust og'vörðuðu framtíð mannkyns. Hann lýsir einn- Ef Al Gore verður næsti varaforseti Bandaríkj- anna má búast við auknum áherslum á um- hverfismál í Hvíta húsinu. í nýrri bók sinni, „Jörð ítvísýnu", leggur hann til að að um- hverfisáætlun verði lögð fyrir heimsbyggðina í anda Marshall aðstoðarinnar ig þeim efa sem tók að læðast að honum um eigin dómgreind og hversu mikið erindi hann ætti í for- setaframboð með þennan boðskap. Kosningabarátta hans þróaðist þannig ósjálfrátt í svipaðan farveg og annarra frambjóðenda. Gore fór að tala um það sem aðrir töluðu um. Sumarið 1988 var yfirmáta þurrt og heitt í Bandaríkjunum, uppskera helstu landbúnaðrafurða dróst veru- lega saman vegna þurrkanna og víða varð vatnsskortur. í Bandaríkj- unum varð sú hugmynd áleitin að e.t.v. væru áukin gróðurhúsaáhrif ekki bara ímyndun. Umhverfismál- in, málaflokkur Gore, komust skyndilega á dagskrá síðsumars 1988. Það sem nokkrum mánuðum áður hafði verið skilgreint sem „ekki einu sinni jaðarmálefni", lagði nú undir sig kosningabaráttuna. En nú var Gore illa fjarri, því um vorið hafði Michael Dukakis tryggt sór útnefningu sem forsetaefni demó- krata. Bush og Dukakis reyndust hafa heldur litla innsýn í þennan málaflokk og kepptust við að yfir- bjóða hvor annan. George Bush tók að kalla sjálfan sig umhverfisvernd- arsinna. Hann sagðist ætla „að vinna á gróðurhúsaáhrifunum með Hvítahússáhrifunum“ og lofaði að taka foiystu í umhverfismálum, inn- anlands sem utan, loforð sem Gore telur hafa verið innantómt frá byij- un. Lýsing Gore á framboði sínu sýn- ir að stjórnmál snúast ekki bara um mismunandi viðhorf til málaflokka og valdabaráttu einstaklinga heldur ekki síður um það hvaða mál kom- ast á dagskrá. Með valinu á A1 Gore sem varaforseta núna hafa Clinton og demókratar í Bandaríkj- unum í raun tekið umhverfismál upp sem eitt meginkosningamálið. Þessi ákvörðun helgast e.t.v af úrtölum og áhugaleysi Bush stjómarinnar á alþjóðavettvangi sem kom berlega fram á umhverfisráðstefnunni í Ríó. Siðmenning í kreppu í bók sinni, sem ber undirtitilinn „Vistfræði og mannshugurinn" (Ecology and the Human Spirit), fer Gore vítt yfir og sýnir að hann hef- ur yfirgripsmikla þekkingu á afar ólíkum þáttum. Kafiar bókarinnar spanna svið eins og sögu loftslags á jörðinni, gagnrýni á hagfræðina, umfjöllun um heimspeki og siðfræði umhverfisverndar, sálfræði og trú- mál auk umfjöllunar um einstaka þætti umhverfismála. Gore er ós- meykur við að leggja á djúpið, hann kryfur hina andlegu þætti og sam- hengi þeirra við umhverfískreppuna. Hann skrifar m.a.: „Eftir því sem ég skyggnist dýpra eftir rótum kreppunnar því sannfærðari verð ég um að hún er ytri merki um innri kreppu, sem er, í vöntun á öðru orði, andleg.“ Gore er sannfærður um að við- UMIVERFISMÁL IONDVEGI Samontekl: Bjórn óuöbrandur Joiijj|n horf iðnvæddrar siðmenningar til náttúrunnar sé að leiða mannkyn í blindgötu. Hann hættir sér inn á svið sálfræðinnar í kafla sem hann kallar „Vanhæf siðmenning" (Dis- functional Civilization). Hann notast þar við hugmyndir og kenningar frá ýmsum þekktum fræðimönnum, Alice Miller, Virginia Satir, Gregory Bateson, Erik Erikson, o.fl. um truflun á starfhæfni innan fjöl- skyldna sem rót að hvers kyns fíkn (addiction). Hann bendir á hversu margt er líkt með fíkn einstaklinga í eiturlyf, áfengi o.fl. og ýmsu neyslumynstri í siðmenningu nútím- ans sem heldur uppteknum hætti þrátt fyrir hvert stefni. Rót þessarar vanhæfni og truflunar í lífi einstakl- inga og samfélaga er afneitun á sársauka sem lífið óhjákvæmilega hefur í för með sér. Í stað þess að horfast í augu við sársaukann eða að ráðast að rótum hans fer lífið að snúast æ meir um að forðast sársaukann og gleyma honum í gegnum hvers konar fíkniefni og neyslu. Gore skrifar: „Tálsýnin um að hægt sé að Iifa lífinu eingöngu í gegnum hinar bjartari og líflegri hliðar þess án þess að komast nokkru sinni í snertingu við óttann og þjáninguna sem óhjákvæmilega eru og verða hluti tilverunnar, er kjarninn í allri fíkn.“ Innri rök tilver- unnar eru Gore hugleikin, ekki síst vegna persónulegra áfalla sem hann segist hafa orðið fyrir upp úr því að forsetaframboð hans rann út í sandinn 1988. Stærsta mótlætið var þó að 6 ára sonur hans lenti fyrir bíl og var ekki hugað líf lengi vel á eftir. Það væri hægt að dvelja lengi við þennan hluta bókarinnar sem fjallar um rætur umhverfiskreppunnar, vanda siðmenningarinnar og per- sónulega upplifun höfundarins af mótlæti. Það sem einmitt kemur giest á óvart er hversu hreinskilinn og óvæginn höfundurinn er þegar kemur að þessum viðkvæmu málum. Af stjórnmálamanni hefði allt eins mátt búast við öðrum efnistökum. En sem samviskusamur stjórnmála- maður setur A1 Gore fram tillögur til úrbóta og þær hafa nú öðast aukna þyngd í ljósi þess að Gore verður að líkindum næsti varafor- seti Bandaríkjanna. Hörð gagnrýni á Bush Gore lýsir yfir mikilli óánægju með frammistöðu Bush stjórnarinn- ar í umhverfismálum, ekki síst á alþjóðavettvangi. Hann krefst þess að Bandaríkin taki forystuna í sam- félagi þjóðanna. Hann spyr hvers vegna Hvíta húsið gangi eins langt í að hindra raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum, heima fyrir og á alþjóðavettvangi, eins og raun ber vitni. Hver sem ástæðan gé, þá muni stefnuleysi Bush forseta koma Bandaríkjunum mjög illa. Það sé hrakleg söguleg villa sem komandi kynslóðir muni ekki fyrirgefa. Gore hvetur eindregið til að Bandaríkin taki að sér forystuhlut- verk. í lok bókarinnar setur hann fram tillögur um nýskipan mála og hlutverk Bandaríkjanna í sam- ræmdu átaki þjóða heims við að finna lausnir á unhverfiskreppunni og koma á haldbærri þróun. Gore leitar fyrirmynda í hinni árangurs- ríku Marshalláætlun eftir stríðsár- anna þegar Bandaríkin unnu mark- visst og af rausnarskap að því að endurreisa Vestur-Evrópu úr rústum stríðsins. í dag sé þörf á sams kona einingu og vestræn ríki sýndu þá nema að í dag þarf heim- urinn allur að taka þátt og fleiri ríki en Bandaríkin að fjármagna áætlunina. Gore nefnir þar til Jap- an, Evrópu og hin auðugu olíuríki. Gore telur að eftirfarandi 5 lang- tímamarkmið verði að hafa að leið- arljósi í þessari vinnu. 1. Ná jafnvægi í fólksfjölda í heiminum. Hin nýja Marshall áætl- un taki m.a. mið af árangursríku átaki frá héraðinu Kerala á Indlandi og leggi áherslu á þrennt. a) Fjármunum verði varið til vel skipulagðra herferða gegn ólæsi sem fyrst og fremst taki mið af þörfum og aðstæðum kvenna í sam- félögum þar sem ljólksljölgun er mikil b) Verkefnum verði hrundið af

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.