Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 27
kMt Li'ji HUUAUUWvujfc; HAfcj>tflÍI/ÍÍ/iÍÍtfÍ ttiöA.iavriJOHQM MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 Oii 27 Sigurgeir Þorgríms- son - Kveðjuorð Sigurgeir Þorgrímsson sagnfræð- ingur lést á sjúkrahúsi í Reykjavík að kvöldi 8. júlí, 48 ára að aldri. Það er um það bil hálfur annar áratugur liðinn síðan við vorum kynntir af sameiginlegum vini og kunningja. Mér var þá kunnugt um áhuga Sigurgeirs á bókmenntum og listum en það var ekki fyrr en nokkr- um árum síðar eða í byrjun níunda áratugarins er ég bjó í Skaftahlíð- inni og síðar á Miklubrautinni, í næsta nágrenni við heimili Sigur- geirs, að kunningsskapur okkar varð að vinnáttu sem ég mat ávallt mik- ils enda áttum við fjölmörg sameig- inleg áhugamál og höfðum gaman af að spjalla um lífíð og tilveruna. Það sem mér þótti hvað vænst um er ég kynntist Sigurgeiri nánar var hversu fróður hann var um menn og málefni, sögu lands og þjóðar og ættfræði sem hann ungur að árum tók að nema. Mestu skipti að Sigur- geir Þorgrímsson var ákaflega vand- aður maður, drengur góður sem lét sig skipta lífsbaráttu fólksins í land- inu og studdi af heilum hug þá sem halloka fóru í lífsbaráttunni og starf- aði ötullega í ýmsum félögum tengd- um mannúðarmálum- og trúmálum. Hann var mikill trúmaður og ungur að árum gerðist hann ötull fylgis- maður Jesú Krists og það var í sam- ræmi við hans eðli og góðu eigin- leika. Ævinlega var Sigurgeir reiðu- búinn að leggja sitt af mörkum þeg- ar einhver átti undir högg að sækja og róðurinn þungur. Sigurgeir var baráttumaður fyrir fegurra mannlífi. Hann gegndi emb- ætti stórritara í Góðtemplararegl- unni frá 1980-1992 og barátta gegn hvers konar vímuefnanotkun var hans hjartans mál meðan kraftar leyfðu. Því miður urðu samskipti okkar minni nú á síðari árum af ýmsum ástæðum. Fyir örfáum árum veiktist Sigurgeir heitinn af þeim sjúkdómi sem læknavísindunum hefur ekki enn tekist að sigrast á og dvaldi langdvölum á sjúkrahúsi þar til yfir lauk. Hann hafði lokið námi í sagn- fræði frá Háskóla íslands og er ekki að efa að ef honum hefði enst líf og heilsa þá hefði hann komið til með að sinna sagnfræðinni og sagn- fræðirannsóknum eins og hugur hans stóð tii. Kær vinur kveður nú langt um aldur fram. Ástvinum votta ég sam- úð mína, aldraðri móður, Ingibjörgu Sveinsdóttur, og bræðrum, Sveini og Magnúsi. Guð blessi minningu Sigurgeirs Þorgrímssonar. _ Ólafur Ormsson. Miðvikudaginn 8. júlí sl. lést góð- vinur minn, Sigurgeir Þorgrímsson, á Landspítalanum, eftir meira en hálfs annars árs baráttu við illvígan sjúkdóm, krabbamein. Kynni okkar Sigurgeirs hófust árið 1974, þegar hann vann að ætt- fræðirannsóknum fyrir föður minn, og stóðu óslitið síðan, þó að fundum okkar bæri að vísu sjaldnar saman hin seinni ár, mest vegna mikillar vinnu okkar beggja. Vorum við tíðir gestir hvor heima hjá hinum, og naut ég ávallt hinnar bestu gestrisni og alúðar Sigurgeirs og móður hans, Ingibjargar Sveinsdóttur, sem syrgir nú elsta son sinn, sem fallinn er frá á besta aldri. Sigurgeir bjó við fötlun frá fæð- ingu, en engu að síður var eljusemi hans, samviskusemi og ástundun slík, að margur maðurinn, sem bjó við óskerta starfsorku, hefði verið meira en fullsæmdur af. Áhugamál Gunnlaugur Finnboga son - Kveðjuorð Gunnlaugur Finnbogason fædd- ist 8. september 1928 í Flatey við Breiðafjörð. Hann lést 20. júní. Gunnlaugur var sonur hjónanna Þórunnar Gunnlaugsdóttur og Finnboga Guðmundssonar. Hann átti 3 systur og eru 2 þeirra látn- ar, en Þrúður eða Dúa, eins og hún er kölluð, er ein eftir. Foreldrar Gunnlaugs bjuggu um nokkurt skeið í Flatey, fluttust síðan til Grundarfjarðar og þaðan til Reykjavíkur og bjuggu þau þar til æviloka. Þeir, sem þekktu foreldra hans, sögðu þau afar ljúfar og heilsteyptar manneskjur. Það var því ekki að undra, þó Gunnlaugur værieins og hann var. Það var svo þægilegt að vera í návist hans. Hann var svo rólegur, talaði hægt og hlustaði á aðra. Hann var einn- ig mjög skapgóður og talaði aldrei illa um nokkurn mann. Gunnlaugur var hlédrægur og ekki allra. Hann var samviskusamur, traustur og stálheiðarlegur. Þessir kostir hans voru vel metnir og komu sér vel á hans starfsferli svo og i lífinu sjálfu. Gunnlaugur lærði rennismíði og var það hans starf mestan hluta ævinnar. Gunnlaugur vann lengi hjá' J.B. Pétursson, starfaði hjá íspan hf., var verkstjóri í Stál- smiðjunni hf. og að lokum vann hann hjá Búnaðarbanka íslands sem vaktmaður. Mér hefur verið tjáð að á öllum þessum vinnustöð- um sakni fólk hans sárt. Gunnlaugur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigríður Krist- jánsdóttir, hjúkrunarkona. Þeim varð ekki barna auðið en ættleiddu þau dreng, Ragnar Kristján, f. 13. mars 1962. Hann var mikill sólar- geisli í lífi þeirra beggja. Gunn- laugur og Ragnar voru mjög sam- rýndir og miklir vinir. Sigríður elskaði Ragnar einnig mikið og var honum góð móðir. Gunnlaugur sagði mér margt um Ragnar og var það mér mikils virði. Þegar Ragnar var lítill kútur sagði Gunn- laugur mér frá því brosandi, hversu margt fólk sem ekki þekkti vel til mála, hefði talað mikið um það hvað drengurinn væri líkur pabba sínum. Sigríður lést af banvænum sjúkdómi 28. maí 1972, þá tæplega fimmtug. Sú kona var einstaklega sterk andlega og var hún búin að undirbúa sína eigin jarðarför í öll- um smáatriðum. Seinni kona Gunnlaugs er Hulda Pálsdóttir frá stórri fjölskyldu í Vestmanna- eyjabæ. Hún á einn son, Birgi. Hann er stýrimaður og býr hann með fjölskyldu sinni í Vestmanna- eyjum. Hulda og Gunnlaugur áttu mjög fallegt heimili saman. í mörg ár bjuggu þau á Borgarholtsbraut 70, Kópavogi, en fyrir nokkrum árum fluttust þau í algjöra draumaíbúð í Engjaseli 70 í Breið- holti. Allt var svo smekklegt, fágað og vandað. Hulda og Gunnlaugur voru afar samhent og á sínu heim- ili leið þessum heimakæra manni lang best. Þegar einhver, sem manni þykir vænt um deyr, förum við ósjálfrátt að hugsa um eilífðar- málin. Hvers vegna erum við hér og hvað gerðist eftir dauðann? Flestir þekkja þá tómleikakennd sem fylgir fráfalli ástvina. Þú ert hrygg(ur) og finnst þú hjálpar- vana. Ekki er nema eðlilegt að spyija: „Hvað verður um manninn þegar hann deyr? og Er til eilíft líf?“ Þegar ég nú, sem þetta rita, hugsa til baka og ætti að minnast einhvers, sem mér líkaði ekki í fari þessa vinar mínar, þá myndi ég segja: Gunnlaugur var áhrifa- gjarn, lét jafnvel stjórnast ef þrýst var fast og mikið á og eigin dóm- greind varð þá að engu. En Gunnlaugur, sem var svo örlátur á rósir, er nú í stórri skóg- arhöll fullri af rauðum rósum, sem anga, með sína rauðu vanga. Leiðarlokum skal það skýrt tek- ið fram, að samband okkar Gunn- laugs var eingöngu andlegt og háleitt, sbr. Platón. Lít ég það margt, er þér líkjast vill guðs í góðum heimi: brosi dagroða, blástjömur augum, liljur ljósri hendi. (J. Hallgrímsson - Söknuður) Eiginkonu, syni, öðrum ættingj- um og vinum votta ég innilega hluttekningu. Guðrún M. Guðjónsdóttir. er látinn. + BJÖRN EINARSSON bóndi, Bessastöðum, Eiginkona og börn. + Móðir okkar, MARGRÉT ÁGÚSTSDÓTTIR, Víöimel 52, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 24. júlí. Fyrir hönd annarra ættingja, Sigríður Einarsdóttir, Guðmundur Einarsson, Ágúst Einarsson. Elskuleg móöir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET VILHELMÍNA MAGNÚSDÓTTIR, Ölduslóð 40, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 28. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinn- ar látnu er bent á Sjálfsbjörgu. Guðmundur Örn Guðmundsson, Björk Guðmundsdóttir, Kristinn Axelsson, Magnús Þ. Guðmundsson, Sólveig J. Karlsdóttir, Elísabet Margrét Kristinsdóttir, fris Hrönn Magnúsdóttir. hans voru afar fjölbreytt - stundum helst til um of, fannst mér - fyrir utan ættfræðirannsóknirnar, sem hann var kunnastur fyrir, var hann vel heima í myndlist, tónlist, sagn- fræði, pólitík, trúarbragðasögu, svo ekki sé minnst á, hversu mörgum mönnum hann var málkunnugur, eða þekkti einhver deili á. Hann hafði lokið prófi í sagnfræði frá Háskóla íslands, og stefndi að BA- ritgerð, sem átti að fjalla um sögu Góðtemplarareglunnar á íslandi, en í henni var Sigurgeir starfandi um margra ára skeið og gegndi embætt- um innan hennar. Sigurgeir var góður drengur og góður félagi. Hann mátti ekki vamm sitt vita í neinu, var greiðvikinn og örlátur, jafnt við ættmenni sem vandalausa, og mátti ekkert aumt sjá. Geðríkur var hann þó, og sagði sína meiningu umbúðalaust, ef því var að skipta. Trúhneigður held ég líka að hann hafi verið, þó að hann flíkaði því lítt. Árið 1987 hóf Sigurgeir störf við Dagblaðið-Vísi, við umsjón afmæla- og ættfræðisíðu blaðsins. Urðum við þá „kollegar", báðir starfandi við dagblöð - hann á DV, ég á Tíman- um. Reyndist Sigurgeir þar hinn nýtasti starfsmaður, vann oft alla sjö daga vikunnar og langt fram á nætur. Kvartaði hann stundum um þreytu, en aldrei um hann þó hafa hugleitt að gefast upp eða hlífa sér meira. Hann sinnti sínum störfum meðan hann gat, eða allt þar til hann lagðist inn á sjúkrahús snemma árs 1991. Þegar ég nú kveð Sigurgeir vin minn, er mér efst í huga hryggð vegna þess, hve snemma hann fór. Hann átti svo mörgu ólokið, svo margir draumar sem áttu eftir að rætast. Hann hafði ferðast töluvert síðustu árin, og þau voru eflaust ófá löndin og borgirnar sem hann hefði langað til að sjá, en fær ekki nú þgar hann er lagður upp í ferðina miklu, sem bíður okkar allra. Ég mun sakna Sigurgeirs, og það tóma- rúm, sem hann skilur eftir sig í lífi mínu, verður vandfyllt. Ég mun sakna prúðmennsku hans, glettni og gamansemi, en þó fyrst og fremst einlægrara vináttu hans. Fari hann vel og megi Drottinn blessa minn- ingu hans. Aldraðri móður hans og bræðrum hans sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Steinn Bjarki Björnsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför STEFÁNS Þ. GUÐMUNDSSONAR. Fyrir hönd aöstandenda. Guðrún Níelsen. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför, VALEYJAR BENEDIKTSDÓTTUR, Sandabraut 11, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Akraness. Jónmundur G. Guðmundsson, og fjölskylda. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar JÓHÖNNU JENSEN frá Eskifirði. Hannes Gamalfelsson, Sólveig Hannesdóttir, Friðbjörn G. Jónsson, Jón Þór Hannesson, Valgerður Lárusdóttir, Guðlaug Rún og Hanna Dís Margeirsdætur, Hannes Lárus og Árni Þór Jónssynir, Sofffa Huld og Hannes Heimir Friðbjarnarbörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, sonar og bróður, SVEINS GÍSLA EIRÍKSSONAR kennara. Svanhvft Magnúsdóttir, Daði Sveinsson, Una Guðlaug Sveinsdóttir, Eirfkur Stefánsson, Una Guðlaug Svelnsdóttir, Stefán Eirfksson, Guðrún Eirfksdóttir, Þórný Eirfksdóttir. + Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför éstkærs eiginmanns míns, föður, tengdasonar og afa, BALDVINS HARALDSSONAR múrara, Heiðarási 24, Reykjavfk. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Steina Guðrún Guðmundsdóttir, Tómas Aldar Baldvinsson Lára Hammer, og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.