Morgunblaðið - 26.07.1992, Side 31

Morgunblaðið - 26.07.1992, Side 31
MORGÚNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1992 31 Verður barátta - segir íslandsmeistarinn ÚlfarJónsson Eg stefni auðvitað að því að gera mitt besta og ef það verður | nógu gott til að jafna met Björgvins þá verð ég himinlifandi," sagði Úlf- ar Jónsson íslandsmeistari þegar I hann var spurður hvort hann ætlaði sér að jafna met Björgvins Þor- steinssonar. „Mótið 1990 var erfiðasta mótið sem ég hef tekið þátt í og ég á von á að mótið í ár verði mjög jafnt. Menn hafa verið að spila vel í sum- ar og það er alveg ljóst að menn, hvorki ég né aðrir, sigra ekki nema spila mjög vel. Það var hægt áður að komast í gegnum mót með þokkalegri spilamennsku en það er ekki hægt í dag,“ sagði Úlfar. Hann segist ekki hafa æft eins lítið um áraraðir, aðeins um tvær klukkustundir á dag. „Það dugar ekki ef menn ætla að taka einhverj- . um framförum en ég kem vel undir- I húinn til leiks og hef nú fengið mun meiri reynslu en ég hafði áður og hún vegur þungt. Upphafshöggin hafa ekki verið nógu. góð og ég verð að laga þau því í Grafarholtinu verða þau að vera í lagi,“ sagði Úlfar. Hann tók fram að menn yrðu að standa sig vel á Landsmóti. „Þó svo menn leiki vel allt sumarið en gangi síðan illa á Landsmóti þá eru menn fyrst og fremst dæmdir eftir frammistöðunni þar,“ sagði Úlfar. Aðspurður hverja hann teldi lík- legasta til að vera í tveimur síðustu riðlunum síðasta daginn sagðist hann ekki vilja segja til um það en hann teldi fjóra kylfinga geta unnið og nefndi síðan sig, Siguijón Arn- arsson og Sigurður Hafsteinsson úr GR og félaga sína hjá Keili þá Guðmund Sveinbjörnsson, Bjöm Knútsson, Björgvin Sigurbergsson og Tryggva Traustason. 1 Verð að spila vel I - segir Karen Sævarsdóttir, íslandsmeistari Forgjöfin segir ekki allt og ég verð vonandi með í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn. Bæði Ragnhildur og Þórdís eru sterkar á Grafarholtsvellinum og í þetta eina sinn sem ég hef leikið hér í sumar gekk mér ágætlega,“ sagði Karen Sævarsdóttir; Islandsmeistari kvenna. „Það er alveg ljóst að ég verð að spila vel til að vinna. Ef mér gengur illa þá vinn ég ekki og ég geri ráð fyrir spennandi móti. Það væri gaman áð jafna met Jakobínu en það þarf ekkert endilega að ger- ast núna. Ég á vonandi eftir að vera í golfinu í fjölda ára enn og jafna metið vonandi einhvern tíma,“ sagði Karen. Hún segist æfa um tvær klukku- stundir á dag. „Ég reyni að æfa tvo tíma á dag en oft æfi ég ekkert, það fer eftir veðri og svo getur líka verið að ég sé ekki í skapi til að æfa einhvern daginn og þá er ég ekkert að því,“ sagði Karen. Keppendur á mótinu. Frá vinstri: Jón Birgir, Orri, Ásgeir, Linde, Enoksen, Martensson, Tilberg og Isaxon. , KR-ingar í þremur i efstu sætunum JÓN Birgir Valsson, KR, sigraði alla mótherja sína á glímumóti, sem haldið var í Malmö í Sví- þjóð um helgina til að minnast þess að 80 ár eru liðin síðan ■slendingar kepptu í glímu á Olympíuleikunum — í Stokk- hólmi 1912. Félagar hans úr KR, Orri Björnsson og Ásgeir Víglundson, voru í næstu sæt- um, en síðan komu fimm sænskir glímumenn. Glímah fór prýðilega fram og var ágæt skemmtun hinum sænsku áhorfendum, sem kunnu vel að meta tilþrif Jón M. glímumannanna. ívarsson . Jón og Orri glímdu skrifar snarplega og lögðu andstæðingana á glæsilegum hábrögðum. Asgeir átti langa og harða viðureign við Lars I Enoksen, stóðst raunina og lagði kappann á góðum hælkrók og síðan alla hina Svíana. Bestir heimamanna voru Per Linde og Enoksen og þættu báðir bærilega liðtækir á íslandi. Jón Birgir fékk sjö vinninga, Orri sex, Ásgeir fimm, Per Linde fjóra, Lars Enoksen 3 og Per Ola Martensson (+2), Jon Tilberg (+1) og Torbjörn Isaxon (+0) sinn vinninginn hver. íslendingum tókst því að halda uppi heiðri landans og feta í fótspor Hallgríms Benediktssonar og félaga á Svíagrund 1912. Þá sýndu íslend- ingar glímu og kepptu innbyrðis um bikar, sem gefinn var af íslend- ingum í Danmörku. Hallgrímur, hinn frægi glímukappi úr Ármanni, sigraði, en Siguijón Pétursson keppti í grísk-rómverskum fang- brögðum við góðan orðstír og vakti framganga Islendinga mikla at- hygli. Lars Enoksen, hinn áhugasami formaður sænska glímufélagsins í Malmö, átti mestan þátt í að til mótsins var nú stofnað, en hann og félagar hans hafa æft glímu af krafti að undanförnu og tekið mikl- um framförum. Glíman virðist hafa náð fótfestu í Svíþjóð og má vænta meiri samskipta við frændur vora þar í framtíðinni. Afmæliskveðja: Vilhjálmur Pálsson Næstkomandi þriðjudag, 28. júlí, verður Vilhjálmur Pálsson, Naustahlein 15,210 Garðabæ, sjö- tugur. Er hann yngstur af tólf systkinum. Foreldrar hans voru Elín Guðrún Þorsteinsdóttir og Páll Níelsson sem bæði eru látin. Alls staðar sem Vilhjálmur hefur starfað hefur hann verið hrókur alls fagnaðar og hefur átt gott með að koma fólki til að hlæja með sínum léttleika. Vilhjálmur kvæntist Valgerði Oddnýju Ág- ústsdóttur, ættaðri frá Vest- mannaeyjum, 28. október 1943 og eigum við þijú börn, en þau eru Inga Indiana Svala, gift Páli Trausta Jörundssyni trésmíða- meistara; Kára Hrönn, gift Sig- mundi Smára Stefánssyni bakara- meistara; og Vilhjálmur Þór hár- skerameistari, var giftur Ástu Lovísu Leifsdóttur sem er látin. Vilhjálmur hefur alltaf verið tilbú- inn með útrétta hönd til að hjálpa þeim sem eiga við erfiðleika að stríða. Nú vinnur hann hjá Landsbanka íslands en verður að hætta þar vegna aldurs og er það frekar erf- itt fyrir hann því næg er starfsork- an ennþá og heilsan góð. En hann lærði góða bæn sem hefur hjálpað honum að sjá hlutina í réttu ljósi og hljóðar hún svona: „Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ Við hjónin höfum staðið saman í blíðu og stríðu og vil ég þakka manni mínum fyrir allt það góða sem hann hefur gefið mér þó stundum hafi á móti blásið. En svona er lífið, við gétum ekki ætl- ast til að okkur sé fært allt á silfur- bakka. Lífíð er að kunna að tak- ast á við erfiðleikana og vinna úr þeim á réttan hátt enda erum við búin að vera gift í tæp 50 ár. Við verðum með heitt á könn- unni í safnaðarheimili Langholts- kirkju frá kl. 17-20 fyrir vini og vandamenn. Eiginkona. TAXI HVERTSEM ER HVENÆRSEM ER LEIGUBÍLL ER ÓDÝRARI EN ÞÚ HELDUR Ertu íbílahugleiðingum? • 4 dyra stallbakur. •131 eða 143 hestafla vél. • 2000 DOHC 16 ventla eða V6 3000 vél. • Tölvustýrð fjölinnspvting. • 5 gíra beinskipting eða 4 þrepa tölvustýrð sjálfskipting. • Rafdrifnar rúður og samlæsing á hurðum. • Hvarfákútur. HYUnOBI ...til framtiðar SKUTBILL Daglegt amstur gerir ólíkar kröfurtil bifreiða. Lada station sameinar kosti fjöl- skyldu- og vinnubils, ódýren öflugur þjónn, sem mælir með sérsjálfur. Veldu þann köst, sem kostar minnaí Bifreíðarog landbúnaðarvélar hf, Ármúla 13, Suðurtandsbraut 14, Sími681200. Við lögum litinn þinn á úðabrúsa Er bíllinn þinn grjótbarinn, eða rispaður? Dupont lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 38000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.