Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.07.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JUU 1992 Tjaldbúðir vísindamannanna. UTSYN AFTURI eftir Sigrúnu Dovíósdóttur myndir: Pólína Kristinsdóttir, Sigfús Johnsen og Þorsteinn Þorsteinsson MEÐAN flestir íslendingar bitu á jaxlinn yfir veturinn og hugsuðu ura það eitt að þrauka þorrann og góuna og hlakka til sumarblíðunn- ar, var til fóik sem beið sumarsins til að komast í sumardvöl upp á Grænlandsjökul í 20-30 gráða frost. Þetta voru þau Sigfús Jóhann Johnsen eðlisfræðingnr sem hefur undanfarin mörg ár unnið við rann- sóknir á Grænlandsjökli yfir sumarið, og kona hans, Pálína Kristins- dóttir sem undanfarin tvö sumur hefur unnið þarna með honum, og bæði voru þau ájöklinum nú á dögunum þegar þeim langþráða áfanga var náð að borinn var kominn gegnum íshelluna. Þessi vinna er hluti af rannsóknarverkefni, sem hefur staðið í nokkur ár og er nú á loka- stigi með því að borað hefur verið niður á um 3.000 m sem eru niður á bergið. Verkefnið gengur undir því góða nafni GRIP, sem segir íslendingum nóg til að þeir þurfa vart á því að halda að skammstöfun- in er dregin af Greenland Ice Core Project. Eins og enska nafnið segir til um snýst verkefnið kringum borkjarna úr jöklinum. Kjarninn er fenginn með bor, sem Sigfús hefur hannað og smíðað, svo það er óhætt að segja að hann sé einn af lykilmönnunum í verkefninu. Pólína og Sigfús við litla borinn. Hjónin Sigfús Johnsen og Pálína Kristinsdóttir hata nýverið lokið borun í gegnnm íshettu Grænlands og þau segja hér frá sérstæðri sumardvölsinniá jöklinum og rannsóknunum á hví hvað jökullinn hefur aó geyma Stofnanir frá átta löndum leggja fé í verkefnið og taka þátt í því, frá Belg- íu, Bretlandi, Dan- mörku, Frakklandi, Þýskalandi, íslandi, Ítalíu og Sviss. Verkefnið er á vegum evrópska vís- indasjóðsins. En áður en spurt er um vísindalegt takmark verkefnisins, þá leita óneitanlega á spurningar um hvemig sé eiginlega að lifa uppi á miðjum Grænlandsjökli í um tvo mánuði. Hvernig er lífinu lifað við þessar óvenjulegu aðstæður. Þau Sigfús og Pálína voru tekin tali skömmu áður en þau héldu á jökul- inn í þetta skiptið. Pálína bytjar frá- sögnina......Við sofum í tjöldum, sem eru reyndar mjög góð, líta út eins og braggar og eru með tré- botni. Þetta era einingatjöld, 2ja til tólf manna tjöld. Þau eru ekki upphit- uð, svo það getur orðið ansi kalt yfir nóttina. Eina upphitaða húsið hýsir eldhúsið og þar er einnig bað- herbergi og svefnpláss fyrir nokkra menn. I eldhúsinu er þvottavél, svo þarna er svona nokkum veginn það sem maður er vanur að hafa í kring- um sig. Það er kokkur, sem sér um að elda, en við skiptumst á að þvo upp og þrífa. Við erum um þrjátíu þama að staðaldri, en eram flest Qöratíu, þegar nýir koma og aðrir eru að fara. Þeir sem koma í fyrsta skipti fá aðeins að vera stutt í einu, því það eru ekki allir sem þola dvöl- ina. Sumir fá hæðaveiki, við erum þarna í 3.200 m hæð, aðrir þola ekki kuldann og víðáttuna. Þeir fyrstu hafa farið á jökulinn um miðjan maí til að koma öllu í lag eftir veturinn og þeir síðustu fara niður um miðjan ágúst. Við Sigfús fórum t.d. í fyrra sumar á jökulinn 3. júní, þegar komið var að sjálfri borvinnunni og af jöklinum 7. ágúst, þegar svo til var búið að pakka nið- ur. Við vinnum alla daga vikunnar frá því snemma á morgnana og fram á kvöld, utan hvað við tökum „langa helgi“ sem við köllum, því á laugar- dögum hættum við að vinna kl. 17 og byrjum ekki fyrr en kl. 10 á sunnudagsmorgnum. Eftir vinnu á laugardögum reynum við að gera eitthvað skemmtilegt, fara í poka- hlaup og aðra leiki. Það veitir ekki af að skemmta sér eitthvað líka og svo er alltaf haldið partí og oft dans- að um helgar. Við höfum líka reynt að koma því á að þá hafi fólk sig svolítið til, sem er svosem ekki meira en svo að fara bara úr vinnugallanum og í bað. Karlmennimir setja upp slifsi, konurnar fara í pils. Það veitir ekki af tilbreytingunni, því það er eins og að við þessar aðstæður dofni fljótt tilfmningin fyrir því að halda sér til. Við sjáum kringum okkur fólk sem eyðir kannski vetrinum á Suðurheimskautinu og sumrunum á Grænlandsjökii og slíkt líf markar fólkið óneitanlega." Átta tungumál á einum vinnustað Sigfús tekur undir þetta með til- breytinguna. „Það er mikilvægt að bregða á leik til að manni líði vel. Það er ekki sjálfgefið að það verði góður andi í svona hópi og að því þarf að vinna. Þetta er fjölþjóða verk- efni, þarna eru töluð átta tungumál og fólk kemur úr öllum áttum, en við vinnum saman og verðum að vinna saman allir sem einn. Eins og ein fjölskylda og þannig ætti það að vera víðar í heiminum. En hver hefur sína siði og sem dæmi má nefna að þarna eru bæði Frakkar og Italir, sem auðvitað geta ekki hugsað sér að borða mat án þess að fá vín með. Þess vegna er alltaf vín með matn- um. Vínið var keypt í Danmörku, eins og aðrar vistir. Við getum auð- vitað ekki verið með flöskur, svo vín- framleiðandinn á Ítalíu var beðinn um að setja það á femur. Hann harð- neitaði hins vegar að setja sitt góða vín í slíkar pakkningar, en sendi það í tunnum til Danmerkur. Vínkaup- maðurinn danski sá síðan um að setja það í fernur, sem voru merktar GRIP. I fyrrasumar kláraðist ekki vínið, svo það var geymt yfir veturinn uppi á jöklinum, þar sem frostið kemst í sjö- tíu gráður. Það merkilega var að það var mun betra eftir að hafa legið fros- ið um veturinn! Fyrir veturinn er öllu pakkað niður og það sem hægt er að skilja eftir, er látið liggja. Allt er skráð, svo hægt sé að ganga að öllu yísu. Dótið er sett upp á tunnur, svo snjórinn blási frá. Það snjóar ekki mikið þama inni á jöklinum, en það er fok. Tjaldbotnamir era í raun kass- ar, sem tjöldunum er pakkað niður í og þannig er fleira hugvitsamlegt.“ Það er vart um tómstundir að ræða uppi á jöklinum. Pálína tók með sér eina bók, sem hún opnaði aldrei. Sigfús hafði hins vegar tölv- una sína með og vann með henni úr gögnum. Um fatnað segir Sigfús að góð stígvél eða skór skipti mestu máli, góð undirföt og þar yfir dún- föt. „Við vinnum niðri í gryfjum í jöklinum, sem hefur verið reft yfir og þar er kaldara heldur en uppi. Það er reyndar hlýrra við borinn, vegna kröftugrar útloftunar, sem verður að vera vegna borvökvans. Veðrið er misjafnt. I hitteðfyrra var sól næstum allt sumarið, en sl. sum- ar sá vart til sólar og það var stöðug- ur næðingur. Við höfum alls kyns tækni í kringum okkur, meðal ann- ars fjarritasamband í gegnum gervi- tungl. Hingað til höfum við einungis haft talstöðvar, en þær eru stundum snardauðar vegna sólbletta, sem mikið var af sl. sumar, svo ég veit ekki hvernig við hefðum farið að án fjarritans. Það er eins gott að hafa gott samband við umheiminn, meðal annars vegna flugferða til okkar. Nokkram sinnum yfir sumarið koma Herkúles-flutningavélar til okkar með birgðir og hver slík ferð kostar tvær millj. íkr., svo það er betra að upplýsingar um veður nái fram. Það er dýrt að vera þarna og það þarf að flytja borkjarnana niður. I sumar fluttum við um 10 tonn af ís niður af jöklinum og þurftum að skilja annað eins eftir, sem verður tekið næsta sumar.“ - Hver er aðdragandinn að verk- efninu? „Sagan er löng og flókin. Ég vann í Danmörku fram til 1979, þegar ég flúttist til íslands. Árið 1975 hófs samvinna milli Bandaríkjanna, Sviss og Danmerkur um boranir í Græn- landsjökul. Djúpboran sem hófst 1979, með þátttöku íslands, þar sem ég sá um borinn. Þremur áram síðar var komið niður á botn. Isinn var ekki djúpur þarna, aðeins 2.100 m. Hann er allur á hreyfmgu þama, árlögin brotin þegar neðar dró, svo árangurinn gat verið betri. Þetta samstarf datt síðan upp fyrir, Banda- ríkin drógu sig út, en Évrópumenn tóku upp samstarf á vegum evrópska vísindasjóðsins, „European Science Foundation“.“ - En hvemig datt mönnum í hug að fara að bora í Grænlandsjökul? „Hugmyndin að því að bora í jökul- inn er gömul. Á sjötta áratugnum vora Bandaríkjamenn með nokkurs konar herstöð uppi í jöklinum og þangað kom ég fyrst 1969. Þar vora þá menn, tengdir hernum, sem ákváðu að reyna að nýta stöðina til að gera eitthvað af viti, nefnilega að bora í jökulinn og lesa upplýs- ingar um veðurfar og annað úr kjam- anum. Danir fengu þá að mæla kjarnann og í því var ég fyrst, 1969. Bandarísku brautryðjendumir í þessu voru Chester Langway og Lyle Hansen. Hansen er nú 75 ára og heimsótti okkur á jökul í sumar. Hann gekk um á jöklinum í þunnum gallabuxum og vindjakka og sýndi engin sérstök merki um kulda, utan hvað hann barði sér á stundum. Þeg- ar hann var spurður hvort honum væri ekki kalt, svaraði hann að það tilheyrði að vera kalt á jöklinum! Nokkuð til í því... Hansen smíðaði bræðslubor, sem var notaður í upphafi, en sýndi sig að vera ekki nægilega sniðugur. Hann bræðir sig niður og á ekki að fijósa fastur, en það getur komið fyrir vegna bilana og þá er ekkert hægt að gera. Það merkilega er að boróhöpp gerast undarlega oft þegar 13. dag mánaðarins ber upp á föstu- dag. Sumir vilja ekki bora slíka daga, en ég hef allt.af hundsað það.“ - En ekki er bara lent einhvers staðar á jöklinum og byijað að bora; hvernig er verkefnið undirbúið? „Sumrin 1984 og 1985 fórum við þrír saman vítt og breitt um jökulinn á þremur snjósleðum, keyrðum, stoppuðum og boruðum alls tíu kjama til að kanna ísinn. Þetta tók sinn tíma, því maður verður svifaseinn þama uppi, matreiðsla tekur sinn tíma og eins að koma sér fyrir yfir nóttina. Við sváfum í litlum tjöldum. Þetta var ferlega gaman, því við keyrðum bara út í bláinn eftir skýjum og komp- ás og tókum svo gervitunglamið, þar sem við slógum okkur niður. Við vor- um afskaplega heppnir með veður, það var stöðugt sólskin. Við enduðum uppi á toppi, því þar er talið að við komumst lengst aftur í tímann. Þama er enginn yfirborðshalli, ísinn veit ekki hvert hann á að fara og árlögin era óbrotin. Þegar kemur niður að botni er ísinn fullur af leir úr berg- inu. Þetta er einn af leyndardómum jökulsins hvemig hann getur klórað í sig bergið, þegar hann er alveg fros- inn og þéttur. Bergið undir var einnig kannað með radar og eftir þessar rannsóknarferðir fannst staðurinn, sem við vinnum á nú.“ Isinn er eins og bók, um fortíðina, þar sem enga blaðsíðu vantar - Hvað sjáið þið í ísnum? Sigfús verður fyrir svörum. „Við emm alltaf að læra betur og betur að lesa í kjarnana, getum skoðað fleiri og fleiri hluti og þurfum minna og minna af ísnum í rannsóknirnar. ísinn er eins og gagnagrunnur, sem við læram æ betur að fletta upp í og hann er merkilegur, því það vant- ar enga blaðsíðu í. í þessum grunni sjáum við hvemig umhverfið á jörð- inni hefur verið síðastliðin 200-300 þús. ár. í borkjörnum á Suðurheim- skautinu er væntanlega hægt að sjá */2-l millj. aftur í tímann, en veðurf- arslega segir Grænlandsjökull merki- legri sögu en Suðurheimskautið, því upptök veðurfarsbreytinga eru við Atlantshafið. ísaldir eru til dæmis i i i i 4 í 4 4 4 4 4 4 4 4 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.