Morgunblaðið - 24.01.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1993
KVIKMYNDIR/ Robert Redford og Sidney Poiter hafa haft hægt um sig um skeið
en eru nú komnir á stjá í Læðupokunum/ River Phoenix var fenginn tíl að leika á
móti gamlingjunum til að yngri kynslóðin fengi líka eitthvað fyrir sinn snúð.
„Sidney Poitier
ertalinntil
helgra mannau
„SIDNEY telst til helgra manna í bandarískri
kvikmyndagerð. Það var ótrúlegt lán að fá
hann til að vera með í þessum hóp,“ segir leik-
stjóri „Sneakers", Phil Alden Robinson, um
Sidney Poitier, sem leikur stórt hlutverk í
myndinni sem einn af mönnum Redfords.
Það eru engin leyndarmál til lengur
í „Sneakers“ leika River Phoenix, Robert Redford,
Dan Aykroyd og Sidney Poitier menn sem eru sérfræð-
ingar í því að grafa uppi leyndarmálin þar sem menn
halda að þau séu vel geymd.
Kvikmyndin „Sneakersu tjaldar
gömlum og ungum stórstjörnum
HÁSKÓLABÍÓ tekur væntanlega í lok vikunnar
til sýningar myndina „Sneakers“, með Robert
Redford í aðalhlutverki og stórleikara á borð
við Sidney Poitier, Ben Kingsley, Dan Aykroyd,
Mary McDonnell í öðrum aðalhlutverkum, að
ógleymdum River Phoenix. Þetta er gamansöm
spennumynd, léttari en flestar myndir sem Poit-
ier og Kingsley hafa leikið í til þessa.
Leikstjóri er Phil Alden
Robinson, sem leik-
stýrði „Field of Dreams“.
Hann skrifaði handritið
ásamt framleiðendunum
Lawrence Lasker og Walter
F. Parkes. Þeir unnu árið
1983 saman við gerð myndar
John Badhams „War Gam-
es“. Umfjöllunarefnið í
„Sneakers" er er ekki alls
óskylt, þótt miklu léttara sé
yfir efnistökunum; dökka
hliðin á tölvu- og upplýsinga-
byltingunni.
Redford leikur mann að
nafni Martin Bishop, tölvu-
snilling af 68-kynslóðinni.
Hann er foringi skrautlegs
og fjölhæfs hóps tæknisnill-
inga, sem leiknir eru meðal
annars af Poitier, Akroyd og
Phoenix. Þeir félagar lifa vel
af því að bijótast inn í tölvur
og hvers konar öryggiskerfi
sem menn hafa staðið í þeirri
röngu trú að væru algjörlega
örugg og gefa svo hönnuðum
og eigendum skýrslur um
gallana. Titill myndarinnar,
„Sneakers", vísar til enska
starfsheitisins yfir „sérfræð-
inga“ af þessu tagi. Starf-
semin virðist slétt og felld á
yfirborðinu en í fortíð Bish-
ops leynist óuppgerð mál við
réttvísina og honum er stillt
upp að vegg þegar tveir
leynilögreglumenn banka
upp á hjá honum og hóta
honum fangelsi nema hann
fallist á að taka þátt í leyni-
legri aðgerð á vegum stjóm-
valda.
Stal af Repúblíkönum
Brotið sem Bishop hefur á
samviskunni og fær nú tæki-
færi til að kaupa undan refs-
ingu fýrir er að sjálfsögðu
tölvuinnbrot sem hann
framdi í háskóla ásamt vini
sínum Cosmo, sem Ben
Kingsley leikur. Þeir félagar
brutust þá inn í tölvukerfi
Rebúplíkanaflokksins og
millifærðu stórfé af reikning-
um flokksins yfír á reikninga
Black Panther skæruliðanna.
í anda þess prakkarastriks
tekst Redford nú á við hið
háleynilega verkefni fyrir
ríkisstjómina, en svo mikil
leynd hvílir yfír málinu að
stjómarstofnunin sem stend-
ur fyrir aðgerðinni er opin-
berlega ekki til.
„Sneakers" var frumsýnd
vestanhafs í haust og þótt
Redford og Poitier séu ekki
daglegir gestir á hvíta tjald-
inu virðist aðdráttarafl þeirra
á áhorfendur fara lítið dvín-
andi með ámnum.
Til að tryggja að myndin
höfðaði einnig til yngri áhorf-
enda þótti framleiðendunum,
sem meðal annars hafa átt
þátt í gerð mynda eins og
„Awakenings" og
„Field of Dre-
ams“, þó örugg-
ara að tefla
einnig fram
ungu stór-
stjömunni Ri-
ver Phoenix,
sem hefur á
fáum árum leik-
ið í litlu færri
myndum
en Red-
ford
all-
Sidney Poitier, sem er
tæplega 69 ára, var
fyrsti blökkumaðurinn sem
fékk alvöm aðalhlutverk í
bandarískum kvikmyndum
sem ætlaðar vom til sýningar
á alþjóðlegum markaði og
átti þannig stóran þátt í því
að losa svarta leikara undan
oki staðnaðrar ímyndar og
hefur jafnan leikið menn sem
bera höfuðið hátt í samskipt-
um við hvíta.
Poitier hlaut Óskarsverð-
laun árið 1964 fyrir hlutverk
í „Lilies of the Field". Hann
Sidney
Poitier
ásamt River
Phoenix í
vann einnig mikinn leiksigur
árið 1967 í myndinni „In the
Heat of the Night“, sem gerð
var á óróatímum í samskipt-
um kynþáttanna í Bandaríkj-
unum en í henni lék hann á
móti Rod Steiger, hlutverk
svarts alríkislögreglumanns
við störf í Suðurríkjunum.
Frá sjöunda áratugnum er
einnig „To Sir with Love“,
sem hlaut miklar vinsældir.
Helstu myndir Poitiers
sem leikara á síðari ámm era
„Shoot to Kill“ og „Little
Nikita" báðar frá 1988.
Undanfarin ár hefur Sidn-
ey Poitier hins vegar verið
nokkuð áberandi sem leik-
stjóri, við misjafnt gengi, og
sem slíkur átti hann
meðal annars þátt
tveimur mynda
Gene Wilders og
Richard Pry-
ors, „Stir
Crazy“ og
„Hanky
Panky“.
Redford verið spar á andlitíð undanfarin ár
Leikarinn
Robert Red-
ford í hlut-
verki tölvu-
mannsins
Bishops
„Sneakers".
ROBERT Redford, sem er fæddur árið
1937 og því á 55. ári, á að baki lang-
an og glæsilegan leikferil, sem spann-
ar um þrjátíu kvikmyndir. Þótt það
þyki ekki mikið á svo löngum ferli
teljast nú margar mynda hans sígild-
ar. Ferill Redfords sem leikara hófst
á Broadway árið 1959 og eftir að
hafa leikið smærri hlutverk sló hann
í gegn á sviði árið 1961 í aðalhlut-
verkinu I uppfærslu Mike Nic-
hols á leikriti Neils Simons,
„Barefoot in the Park“.
Undanfarinn áratug
ndanfarinn áratug
hefur svo lítið borið á
Redford sem kvikmynda-
leikara að myndir þar
sem hann er í aðalhlut-
verki hafa ávallt þótt
sæta nokkrum tíðindum.
Fyrsta kvikmyndin
sem hann lék í hét „War
Hunt“ frá 1962, en þar
lék hann á móti Sidney
Pollack, sem síðan hefur
leikstýrt sjö kvikmynda
Redfords. í kjölfarið
fylgdu m.a. tvær myndir
þar sem hann lék á móti
Natalie heitinni Wood;
„Inside Daisy Clover" og
„This Property is Con-
demned". Næstu ár lék
hann meðal annars á
móti Marlon Brando í
„The Chase“ og Jane
Fonda í „Barefoot in the
Park“.
Stóra stökkið á ferlin-
um tók svo Robert Red-
ford þegar hann árið
1969 lék á móti Paul
Newman í myndinni
„Butch Cassidy and the
Sundance Kid“. Á átt-
unda áratugnum lék
hann svo í nokkrum
myndum sem tryggt hafa
til dagsins í dag stöðu
hans sem einnar helstu
stjörnu kvikmyndaheims-
ins. Þeirra á meðal eru
„Downhill Racer“, „The
Candidate“ „Jeremiah
Johnson", „The Sting“,
þar sem hann hlaut til-
nefningu til Óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í
aðalhlutverki á móti Paul
Newman. Frá þessum
tíma má einnig nefna
„The Way We Were“,
„The Great Gatsby" og
„Three Days of the Cond-
or“.
Það var svo árið 1976
að Robert Redford lék á
móti Dustin Hoffman í
myndinni „All the Presid-
ent’s Men“, sem byggð
var á bók blaðamann-
anna Woodwards og
Bernsteins um Water-
gate-hneykslið og fall
Nixons úr forsetastóli.
Næstu ár lék Redford
ekki í eftirminnilegri
myndum en „A Bridge
Too Far“, „Brubaker" og
„The Electric Horseman“
en árið 1980 kvaddi hann
sér hljóðs á nýjum vett-
vangi og uppskar Óskars-
verðlaun árið eftir sem
leikstjóri myndarinnar
„Ordinary People“.
Undanfarinn áratug
hefur lítið borið á Robert
Redford á hvíta tjaldinu.
og hefur hverrar kvik-
myndar verið beðið með
nokkurri eftirvæntingu
sem þær hafa ekki allar
reynst standa undir. Frá
þeim tíma eru þó mynd-
irnar „The Natural,"
„Legal Eagles" og einnig
„Havana“, að ógleymdri
„Out of Africa", þar sem
hann og Meryl Streep
fóm á kostum.
Hins vegar hefur hann
átt þátt í leikstjórn og
framleiðslu ýmissa
mynda á þessum tíma,
en í margar þeirra hefur
verið ráðist til að vekja
athygli á pólitískum mál-
efnum, einkum á sviði
umhverfísmála, en þau
em Redford einkar hug-
leikin. Robert Redford er
fráskilinn, á þrjú börn og
dvelst ýmist í New York,
Connecticut, Utah eða
Kalifomíu.