Morgunblaðið - 24.01.1993, Síða 17
MORG.liNBMÐIÐ SUNNUDAGUH 2,4. ,1,993^17
Hópatriði úr Blóðbræðrum.
Söngleikur
Leiklist
Súsanna Svavarsdóttir
Borgarleikhúsið
BLOÐBRÆÐUR
Höfundur: Willi Russell
Þýðandi: Þórarinn Eldjárn
Leikstjóri: Halldór E. Laxness
Leikmynd: Jón Þórisson
Lýsing: Lárus Björnsson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Dansar: Henný Hermannsdóttir
Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson
„Ég vil skrifa söngleik,“ segir
höfundurinn, Willy Russell, í við-
tali sem haft er við hann í leik-
skrá. Hann hefði betur bara viljað
það áfram og látið ógert að fram-
kvæma það.
Semsagt, þetta heitir söngleik-
ur, en byrjar sem bamaleikrit,
næstum fram að hléi, breytist þá
í Evróvisjónprógram, verður að
unglingaleikriti eftir hlé og endar
eitthvað í ætt við grískan
harmleik. Svo er nánast sama lag-
ið sungið út í gegn — ofsalega
hátt.
Það er auðvitað ekki Willy Russ-
ell að kenna, en efniviður verksins
er niðurdrepandi og leiðinlegur:
Tvíburabræður era aðskildir rétt
eftir fæðingu, vegna þess að móð-
ir þeirra á svo mikið af börnum,
enga peninga og karlinn farinn.
Rík frú vélar út úr mömmunni
annan soninn, varpar mömmunni
(sem þrífur hjá henni) á dyr og
gefur henni dálitla peninga. En
drengimir þefa hvor annan uppi,
ganga í fóstbræðralag, ríku
mömmunni til stórs angurs, svo
hún flytur. En fátæka mamman
flytur bara líka — óvart — og
drengirnir hittast aftur, verða óað-
skiljanlegir, en líf þeirra þróast í
sitthvora áttina og að lokum era
þeir óvinir, frammi fyrir dauðan-
um. Að vísu byijar leikritið á því
að þeir era dánir, svo maður bíður
ekki einu sinni eftir að vita hvern-
ig þetta fer allt saman.
Þetta á líklega að vera drama-
tískur söngleikur, en hann er full-
ur af væmni og „banalítetum,"
sem kannski gera sig á enska
tungu — ekki íslenska, jafnvel
þótt textinn sé lipurlega þýddur.
Tilfinningatjáningin í verkinu er
bara ákaflega óíslensk, svo mjög
að leikararnir komu henni tilgerð-
arlega til skila. Ef þetta væri ís-
lenskt verk, yrði það örugglega
flokkað sem afþreyingarefni og
fengi engin verðlaun. Og við
myndum öragglega hafa þá sóma-
tilfinningu að vera ekki að troða
því upp á erlendar þjóðir.
Ekki var nú uppfærslan til að
hjálpa þessum óskapnaði. Útsetn-
ingin á tónlistinni svo fáránleg,
að ekkert í henni minnti á leik-
hús, en þeim mun meira á Evróvi-
sjónkeppni, með öllum þeim til-
gerðar hressleika sem henni fylg-
ir. Dansatriðin vora fullkomlega
útfærð í þeim leiðindastíl. Þetta
var í hópatriðunum. í einsöngs-
atriðunum var hinsvegar nánast
engin hreyfing. Leikaramir stóðu
sem negldir við sviðið og veinuðu
lögin út í sal.
Leikstíllinn var í hægum amat-
ör-anda og var það heldur til
vansa, þar sem svo lítið gerist
fyrir hlé, að þegar tjaldið fellur,
er stykkið ennþá mjög nærri upp-
hafspunkti. Þetta var eins og að
vera í draumi, þar sem maður
hleypur og hleypur en kemst ekk^
ert áfram.
Ég gat ekki séð að neinn leik-
ari nyti sín í sýningunni. Ragn-
heiður Elfa Arnardóttir, sem leik-
ur fátæku móðurina var skást.
Hún hefur flotta söngrödd, en lag-
ið við textann sem hún syngur er
déskoti eintóna til lengdar. Það
þyrfti að vera annað lag eftir hlé.
En þá eldast drengirnir hratt, svo
syngja þeir stundum pínulítið. Það
era þeir Magnús Jónsson og Felix
Bergsson sem leika bræðuma
Mikka og Edda og er þeim vor-
kunn. Þetta era óttalega karakter-
lausir strákar og meginviðfangs-
efni þeirra í verkinu er að láta
hjátrú fátæku móðurinnar ganga
upp. Sú hjátrú hellist líka yfir þá
ríku, með tilstuðlan sögumanns,
sem Harald G. Haralds leikur.
Hann syngur váboð sín af miklum
þrótti, en hann er alltaf að segja
það sama. Endurtekningarnar í
gegnum verkið eru svo miklar að
mig granar að verkið hafi í raun-
inni verið skrifað fyrir fólk með
ákaflega skert langtímaminni.
Allavega hefði mátt stytta verkið
til muna ef gert hefði verið ráð
fyrir að áhorfendur væra með
normal minni og góða heyrn.
Ekki skil ég hvað hefur komið
Leikfélagi Reykjavíkur til að velja
þetta stykki til uppsetningar. Það
er langdregið og leiðinlegt; þar
gerist ekkert gleðilegt. Og til að
kóróna vitleysuna, klúðra leik-
stjórinn og tónlistarstjórinn því
sem klúðrað verður: Leikurinn er
meira og minna svipbrigðalaus,
það er að segja þar til einhver
svipbrigði verða, þá era þau of-
gerð; persónurnar verða ofsalega
hissa, mjög harmi slegnar, rosa-
lega heimskulegar í framan þegar
þær verða glaðar og ég gat ekki
séð að nein hugsun væri hjá leikur-
unum á bak við það sem þeir voru
að gera. Augun voru alveg jafn-
dauð á hveiju sem gekk. Hreyfíng
í sýningunni er mjög takmörkuð
og hæg og vantar allt söngleikja-
fjör og hraða. Á ég að trúa því
að leikstjórinn sjái þetta ekki?
Tónlistin er sem fyrr segir útsett
fyrir eitthvað allt annað en leik-
hús, svo út í hött að annaðhvort
vissi tónlistarstjórinn ekki hvar
hann var staddur, eða þá að hann
hefur ekki séð of marga söngleiki.
Leikmyndin samanstendur af
ýmsum framhliðum húsa á fram-
sviði en margar ágætis lausnir era
á henni uppsviðs, og gefa mynd
af borgarhverfi, verksmiðjuhverfí
og tívolíi. Búningar eru hálfgert í
sauðalitunum og gera ekkert sjón-
rænt fyrir sýninguna.
Heildarmyndin er því eintóna,
líflaus og óáhugaverð.
SERTILBOÐ
4 stjörnuborgir
London Amsterdam Glasgow Baltimore
14.-17. janúar 14.-17. jan. 19.-23. jan. 29. jan.-l. feb.
29. jan.-l. feb. 29. jan.-2 feb. 30. jan.-2 feb. 19. feb-22. feb.
5. feb.-8. feb. 11. feb.-14. feb. 13. feb.-16. feb. 12. mars-15. mars
18. feb.-21. feb. 26. feb.-2.mars 16. feb.-20. feb.
12. mars-15. mars 13. mars-16. mars
25. mars-28. mars 16. mars-20. mars
Verð frá:* Verð frá:* Verð frá:* Verð frá:*
25.600 kr. þrjár nætur 28.000 kr. þrjár nætur 21.500 kr. þrjár nætur 34.900 kr. þrjár nætur
30.800 kr. fjðrar nætur 23300 kr. fjórar nætur
Hotel Hospitality Inn Picadilly. Hotel Estherea. Hotel Central. Hotel Sheraton Towson.
Almennt verð í þrjár nætur er Almennt verð í þrjár nætur er Almennt verð í þrjár nætur er Almennt verð í þrjár nætur er
frá 31.500 kr.':' frá 32.700 kr.::' frá 25.700 kr.;:' frá 39.200 kr.*
Hafðu sambard við söluskrifstofur Flugleiða eða farskrárdeild í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18).
*Verð á mann í tvíbýli miðað við gengi 7. janúar 1993. FLUGLEIDIR/V
Flugvallarskattar era ekki innifaldir, ísland 1.250kr., USA 1.365 kr., Holland 230 kr. Traustur tslenskur ferðafélagi áR.