Morgunblaðið - 24.01.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1993
19
kólavörðuholtið á
sér sterka sögu-
lega hefð og skip-
ar traustan sess í
hugum borg-
arbúa. Það er
ásamt Tjöminni
baksvið hinnar
gömlu Reykjavík-
ur, eins og vel
kemur fram í
stuttu sögulegu
yfirliti með tillög-
unni. Skólavörðuholtið var í fymd-
inni gróðursnautt, sérlega grýtt
og illt yfirferðar. Ymist nefnt Vík-
urholt eða Arnarhólsholt. Þjóðleið-
in til og frá Reykjavík lá um holt-
ið sunnanvert og áfram um Öskju-
hlíð, austur Bústaðaháls að Elliða-
ám. Þar var reist skólavarða 1793
af skólasveinum Hólavallaskóla en
sú varða sem flestir kannast við
var reist 1868. Eftir endurbygg-
ingu hennar um miðbik síðustu
aldar fór svæðið umhverfis hana
að verða vinsæll áningar- og sam-
komustaður bæjarbúa, en þó ekki
síst þeirra erlendu ferðamanna
sem sóttu landið heim. Skólavarð-
an vék fyrir styttunni af Leifi
heppna, sem Bandaríkjamenn
gáfu 1930. íbúafjöldi Reykjavíkur
óx mjög hratt upp úr síðustu alda-
mótum og fylgdu kröfur um bætt-
ar samgöngur og hafnaraðstöðu.
í tengslum við hana hófst gijót-
nám í Öskjuhlíð og Skólavörðu-
holti sunnanverðu og járnbraut
flutti gijótið til sjávar. Á ámm
fyrri heimsstyijaldar komu fram
hugmyndir um miklar byggingar
á Skólavörðuholti. Þar bar hæst
hugmyndir Guðjóns Samúelssonar
um „Háborg íslenskrar menning-
ar“, sem nánar er vikið að í með-
fylgjandi ramma. Þótt hugmyndin
um háborg íslenskrar menningar
hafi ekki náð fram að ganga varð
þó kjami hennar lífseigur - og leit
á endanum dagsins ljós í nokkuð
breyttri mynd, en það var bygging
kirkju á háholtinu. í dag, tæpri
hálfri öld frá því bygging kirkju
hófst, má heita að hún sé fullbúin.
Um líkt leyti og bygging Hall-
grímskirkju hófst var ráðist í
byggingu Gagnfræðaskóla Aust-
urbæjar, er síðar hlaut nafnið
Vörðuskóli, svo og Iðnskólans í
Reykjavík, en Austurbæjarskóli
hafði risið skömmu fyrir 1930. í
seinna stríði reis á Skólavörðu-
holti stór braggabyggð á vegum
setuliðsins, en hún var rifin að
stríðinu loknu.
Skipuleggjendur vekja athygli á
því að í dag fer fram fjölþætt starf-
semi á Skólavörðuholti, og þurfi
að huga vel að framtíðarþörfum
þeirrar starfsemi við skipulag
svæðisins. Leituðu þau því við
upphaf tillögugerðar til forstöðu-
manna skóla, safnaðar- og félaga-
samtaka á svæðinu til að kynnast
starfi þeirra og til samráðs, enda
ekki gert ráð fyrir að það víki.
Sú uppbygging, sem orðið hefur á
Skólavörðuholti fram á þennan
dag, hefur ekki byggt á fastmót-
aðri skipulagsstefnu og á það sum-
part rætur að rekja til atvinnu og
þróunar á þriðja áratugnum. Stór
hluti svæðisins er enn ófrágeng-
inn, en láta mun nærri að Skóla-
vörðuholtið sé í dag stærsta opna
svæðið í miðborg Reykjavíkur, ef
Tjörnin og Vatnsmýrin eru undan-
skilin. Það er ómissandi hlekkur í
útivistarkeðju borgarinnar og hef-
ur sakir legu sinnar og stöðu í
borgarlandinu ótvíræða sérstöðu.
Hallgrimskirkja er og verður
þungamiðja Skólavörðuholts. Allar
hugmyndir um skipulag á holtinu
hljóta að taka mið af henni og
þeirri augljósu þörf að skapa henni
fastan ramma, er undirstrikar
mikilvægi hennar og sérstöðu. í
tillögunni er gert ráð fyrir að þessu
markmiði verði náð með myndun
sporöskjulaga torgs (elipsu) er
umlykur kirkjuna. Form sporöskj-
Morgunblaðið/Sverrir
Skipulagshöfundarnir Ögmundur Skarphéðinsson og Ragnhild-
ur Skarphéðinsdóttir á Skólavörðuholtinu.
TÍMABÆRT AB
GANGA FRÁ HOLTINU
- SEGJA SKIPULEGGJENDUR
HÖFUNDAR hinnar nýju skipulagstillögu um Skólavörðuholt-
ið eru systkinin Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt og Ragn-
hildur Skarphéðinsdóttir landslagsarkitekt. Má segja að starf-
ið gangi í ættir, því faðir þeirra var Skarphéðinn Jóhannsson
arkitekt og móðir þeirra er Kristín Guðmundsdóttir hýbýla-
fræðingur og arkitektar víðar í nánustu fjölskyldu. Að undan-
förnu hafa þau unnið saman að tillögum og tekið þátt í skipu-
lagssamkeppnum á fslandi. Og nú þegar Ögmundur er að
flytja heim frá Bretlandi eru þau að opna arkitektastofu
saman, þó með aðskilinn rekstur. Skipulagstillögunni fyrir
Skólavörðuholtið skiluðu þau í októbermánuði sl.
Ogmundur lauk arkitekta-
námi í Bandaríkjunum, vann
í 3 ár hjá Ingimundi Sveins-
syni eftir heimkomuna og hefur
starfað í Bretlandi síðan 1986.
Ragnhildur er landslagsarkitekt
frá Bretlandi, var þar við nám og
störf í 6 ár og svo aftur í 6 ár,
en vann í millitíðinni hjá Reyni
Vilhjálmssyni. Hún flutti heim sl.
sumar. Þrátt fyrir fjarvistir hafa
þau á undanfömum árum unnið
til verðlauna í skipulagssam-
keppnum á íslandi, þar á meðal
fyrstu verðlauna í samkeppni um
miðbæ á Álftanesi og skipulag
forsetasetursins á Bessastöðum.
Þegar haft var orð á því að syst-
kinum komi ekki alltaf svona vel
saman, sögðu þau samstarfið
ganga vel í stórum dráttum. Það
sé skemmtilegt að geta nýtt sam-
an þessa þætti sem felast í sitt
hvoru fagi þeirra.
Við hittum þau að máli á heim-
ili móður þeirra á Laufásveginum
og löbbuðum með þeim upp á
Skólavörðuholtið. Þau sögðu orðið
ipjög tímabært að skipuleggja og
ganga frá Skólavörðuholtinu eftir
að byggingu Hallgrímskirkju er
lokið. Á svæðinu séu ýmis vanda-
mál sem þurfi að leysa. Því var
þeim falið af Borgarskipulagi að
vinna þessa tillögu. Þau kváðust
hafa skoðað þær umræður sem
orðið hafa í langa hríð í Reykja-
vík um þetta svæði og haldið
áfram út frá þeim. Þama sé
margs að gæta. Starfsemin á
holtinu sé svo fjölbreytt. Þau hafi
reynt að leita aðferðar til þess að
nauðsynleg bílastæði yrðu ekki
áberandi fyrirferðarmikil, t.d. á
sumrin. Umhverfisþátturinn hefði
verið þeim ofarlega í huga, svo
og umferðaröryggið. Að skóla-
börnin og kirkjugestir, sem eru
margir aldraðir í nágrenninu,
komist ferða sinna og geti notið
útivistar þama. Einnig var minnst
á Iðnskólann, sem er þama og
þau telja æskilegt að sé þar áfram
og styrki hverfið. Því sé gert ráð
fyrir nýbyggingu sem nægi hon-
um og miðað sé við tengsli skóla-
húsanna. Að öðru leyti er vísað í
tillöguna sjálfa.
Morgunblaðið/Sverrir.
Líkan að skipulagi frá 1942. Þar er Hallgrímskirkja komin í
núverandi mynd.
unnar annarsvegar afmarkað með
mynstraðri hellulögn en hinsvegar
með röð 50 ljósasúlna er umlykja
hana - og skírskota til jafnmargra
passíusálma Hallgríms Pétursson-
ar. Ljósasúlurnar eru óbein lýsing.
Sporaskjan er brotin upp við kór
kirkjunnar, þar sem landi hallar
nokkuð til austurs og breytist þar
í stoðvegg. Hefur sú hugmynd
vaknað að hluti sporöskjunnar við
kór kirkjunnar gæti verið neðan-
jarðarbygging fyrir starfsemi
kirkjunnar.
SÓKNARGARÐUR OG
GRÓÐURBELTI
Utan sporöskjunnar era annars-
vegar græn svæði, en hins vegar
sambland grænna svæða og bíla-
stæða, en meginumferðaræðar eru
á jaðarsvæðum. Grænu svæðin
fyrir framan kirkjuna eiga að vera
mjög yfirlætislaus; mótvægi við
strangt form sporöskjunnar. Gert
er ráð fyrir að hreinsað verði ofan
af klapparsvæðunum fyrir framan
kirkjuna, sem holtið dregur nafn
sitt af, og það látið halda sér eftir
því sem aðstæður leyfa. í ákveðn-
um tilvikum munu klappirnar
ganga inná sporöskjuna þar sem
því svo háttar. Aðkoman er á aust-
ur-vestur ásnum er liggur beint
upp af Skólavörðustígnum. Af
þeim sökum er gert ráð fyrir að
Leifsstyttan verði flutt til, svo að
aflíðandi halli myndist frá gatna-
mótum Njarðargötu og Skóla-
vörðustígs heim að kirkjudyrum.
Verður styttunni af Leifi fundinn
nýr staður. Era komnar nokkrar
hugmyndir um staðsetningu stytt-
unnar í miðborginni, m.a. á Skóla-
vörðuholti og víðar. M.a. bent á
að vel geti verið við hæfi að sæfar-
inn Leifur Eiríksson taki á móti
erlendum ferðamönnum í hafnar-
mynninu ellegar við hina nýju
bryggju fyrir skemmtiferðaskip,
sem nú er verið að koma upp á
Miðbakka við höfnina.
Til suðurs við kirkjuna er gert
ráð fyrir litlum gróðurreit á spor-
öskjunni, sóknargarði, er tengist
beint safnaðarheimili kirkjunnar.
Er þessum sóknargarði ætlað að
vera kyrrlátt athvarf þar sem
einna skjólbest er á svæðinu, vett-
vangur ijölbreyttra athafna á góðu
dægri. Garðurinn er umluktur
gróðurveggjum og opinn öllum
undir eftirliti kirkjunnar. Austan
við kór kirkjunnar er grænt svæði
með öðram gróðri, að stórum hluta
brekka mót suðri. Milli Iðnskólans
og kirkjunnar eru bílastæði, en það
svæði brotið upp í minni einingar
með lágum gróðurveggjum. Uti-
samkomuhald gæti einkum farið
fram á þremur stöðum: fyrir fram-
an kirkjuna fyrir stærri hátíðar-
samkomur, í sóknargarðinum og
milli skóla og kirkju, þar sem gert
er ráð fyrir óformlegum uppákom-
um, svo sem staðsetningu mark-
aðstorgs fyrir ferðamenn á sumrin
þegar skólar eru lokaðir og mætti
þá tjalda yfir hluta þess til að
mynda skemmtilega stemmningu
á þessum hluta holtsins.
Gatnakerfi svæðisins fylgir enn-
þá í höfuðdráttum aðalskipulaginu
frá 1924-28 og annar tæplega
þeim umferðarþunga sem þar fer
í dag. Eðli þeirrar starfsemi sem
fram fer á holtinu skapar einnig
töluverða umferð. Gatnakerfi
Skólavörðuholts er því endurskoð-
að. Skipulagstillagan gerir ráð
fyrir tilfærslu gatnamóta Njarðar-
götu og Eiríksgötu, enda era þau
gatnamót vafasöm vegna skerts
sjónarhorns. Eiríksgata er sveigð
til norðurs að Skólavörðustíg og
fylgir þar formi sporöskjunnar
kring um Hallgrímskirkju. Þessi
útfærsla skapar ekki síst aukið
svigrúm fyrir Listasafn Einars
Jónssonar fyrir aðkomu og rýmk-
un sýningarsvæðis. Aðkoma að
Hallgrímskirkju er annarsvegar
bílastæði af Eiríksgötu (safnaðar-
aðkoma) en hinsvegar í tengslum
við bílastæði af Njarðar-
götu/Frakkastíg. Hægt verður að
aka að kirkjudyrum með farþega
og þaðan aftur í bílastæði, en ekki
gert ráð fyrir gegnumakstri fyrir
framan kirkjuna nema fyrir líkbíl
og vegna sérstakra athafna.
Vegna jarðarfara og minningarat-
hafna er gert ráð fyrir að aðstand-
endur geti lagt bílum sínum sem
næst kirkjunni til norðurs. Að-
koma að Iðnskólanum er einkum
um Egilsgötu, en gert ráð fyrir
að þar verði sérakstursleið fýrir
skólann í tengslum við bílastæði
hans og flutning þungamiðju
starfseminnar austar á Skóla-
vörðuholtið. Aðkoma verður þó
áfram af Njarðargötu, Frakkastíg,
Bergþóragötu og Vitastíg.
Alls er gert ráð fyrir 500 stæð-
um á svæðinu og það meginsjón-
armið hefur verið látið gilda við
hönnun bílastæðasvæða að þau
verði jafn aðlaðandi hvort heldur
þau era í notkun eða ekki. Áfram
er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
leigubifreiðar á Skólavörðuholti,
enda slík þjónusta nauðsynleg,
m.a. vegna eldra fólks og ferða-
manna. Uppbygging gróður- og
útivistarsvæða á Skólavörðuholti
er veigamikill hluti þessarar skipu-
lagstillögu með gróðri og tijá-
rækt. Og um svæðið er þéttriðið
net göngu- og hjólreiðastíga sem
hríslast um svæðið.
IÐNSKÓLINN Á
AUSTURSVÆÐI
Allar hugmyndir um nýbygg-
ingar á Skólavörðuholti hljóta að
mótast af návist Hallgrímskirkju
og að ekki sé um of að henni
þrengt, segir í skipulagstillögunni.
Er ekki talið koma til greina að
leyfa byggingar ofanjarðar milli
Hallgrímskirkju og Iðnskólans ut-
an léttar tengibyggingar milli hans
og Vörðuskóla, sem yrði að mestu
neðanjarðar. Það nýbygginga-
svæði sem eftir stendur er því
fyrst og fremst austan kirkjunnar.
Við Barónsstíg og í nánasta ná-
grenni Iðnskólans. Tillagan gerir
ráð fyrir að byggja megi meðfram
Barónsstíg tvö 2ja hæða hús,
ásamt kjallara. Þau eru staðsett
neðan Vörðuskóla, sem Iðnskólinn
notar nú að miklu leyti og við
Templarahöllina. Byggingamar
yrðu einkum ætlaðar fyrir starf-
semi Iðnskólans, sem á þann hátt
leysir húsnæðisþörf sína. Þunga-
miðja starfseminnar færðist þá á
austurhluta svæðisins og félli það
vel að hugmyndum um endurskoð-
un aðkomu og umferðar. Aðrir
valkostir í byggingarmálum Iðn-
skólans snúast um svæðið sunnan
Bergþóragötu. Um svæðið framan
við Austurbæjarskólann er gengið
út frá því að þar verði í framtíð-
inni fyrst og fremst útivistarsvæði
skólabama og íbúa hverfisinr
enda æskilegt að halda ásýnd skól-
ans frá Barónsstíg óskertri.
Loks er þeirri hugmynd varpað
fram hvort ekki megi reisa nýja
skólavörðu og velja henni stað efst
á Egilsgötu á athafnasvæði Iðn-
skólans. Ekki yrði það þó gamla
skólavarðan heldur bygging sem
yrði fremur táknræn, e.t.v. útlínur
útfærðar í stál og gler en gegn-
heilt mannvirki.
Þorvaldur S. Þorvaldsson,
skipulagsstjóri Reykjavíkurborg-
ar, upplýsti að borgarfulltrúar
hefðu fengið tillögurnar og væra
þær í umfjöllum. Þeim hefði verið
vel tekið í skipulagsnefnd og um-
hverfismálaráði. Sagði hann að
tillagan gerði ráð fyrir mjög
ákveðinni áfangaskiptingu. Hægt
væri t.d. að byija á að laga um-
ferðaræðar og nánasta umhverfi.
Fengju þær brautargengi stæði
hugurinn til þess að hefjast handa
á árinu 1994.