Morgunblaðið - 24.01.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
£ • • ; <-. >: t > : . . :;: ’: t: i
SUNNUDAGUR 24. JANUAR 1993
2 ,ii Í5ikíi<«
31
AUGLYSINGAR
Rafvirki
—SMÍIH& ------
NORLAND
Pósthólf 519, 121 ReyKjavík
óskar að ráða rafvirkja til afgreiðslustarfa í
heildsöludeild sem fyrst. Leitað er að dríf-
andi og snyrtilegum manni með vöruþekk-
ingu og áhuga á viðskiptum og þjónustu.
Æskilegt er að meðmæli fylgi.
Umsóknareyðubiöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Tjarnar-
götu 14, og skal umsóknum skilað þangað
fyrir 30. janúar nk.
GuðniTónsson
RÁÐCJÖF & RÁÐN l NCARNÓN LISTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
Hársnyrtifólk
Hársnyrtisvein eða meistara vantar á stóra
hársnyrtistofu í Vestmannaeyjum strax.
Upplýsingar í símum 98-11778 og 98-13089
frá kl. 9-18 alla virka daga.
Rafmagns-
tæknifræðingur
vanur almennri húsahönnun, óskast til
samstarfs.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi upplýsingar, sem
meðal annars tilgreini starfsaldur, reynslu
og fyrri vinnustaði, til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 28. janúar, merktar: „R - 8253“.
LANDSPITALINN
Reyklaus vinnustaður
KVENNADEILD
Hjúkrunarframkvæmdastjóri
Laus er staða hjúkrunarframkvæmdastjóra
við kvennadeild Landspítala. Starfið felst
m.a. í ábyrgð á rekstri, skipulagningu, stjórn-
un starfsmannamála, fræðslu og faglegri
ráðgjöf. Umsækjandi þarf að vera hjúkrunar-
fræðingur með Ijósmæðramenntun og hafa
lokið stjórnunarnámi eða sambærilegri
menntun. Staðan veitist til eins árs frá
1. mars nk. eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veitir Vigdís Magnús-
dóttir, hjúkrunarforstjóri.
Umsókn um starfið, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, berist hjúkrunarfor-
stjóra Landspítala fyrir 15. febrúar nk.
SÆNGURKVENNADEILD 22-A
Hjúkrunardeildarstjóri
Staða hjúkrunardeildarstjóra við sængur-
kvennadeild 1 (22-A) er laus til umsóknar.
Um er að ræða mjög áhugavert starf á deild,
sem er í mikilli þróun. Umsækjandi þarf að
vera hjúkrunarfræðingur með Ijósmæðra-
menntun og hafa reynslu í stjórnun.
Staðan veitist frá 1. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir Ásta B. Þorsteins-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601000 eða Edda Jóna Jónsdóttir, hjúkrunar-
deildarstjóri, í síma 601151.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, berist til skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra fyrir 15. febrúar nk.
KRABBAMEINSLÆKNINGADEILD
KVENNA 21-A ONC.
Aðstoðardeildarstjóri
Staða aðstoðardeildarstjóra við krabba-
meinslækningadeild kvenna er laus til um-
sóknar. Á deildinni, sem veitir mjög sér-
hæfða hjúkrun, ríkir mjög góður starfsandi
og gott skipulag.
Upplýsingar um starfið gefur Svava Gústavs-
dóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601113
og Ásta B. Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601000 eða 601300.
Staðan er laus nú þegar og veitist eftir
samkomulagi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf skulu berast til skrifstofu hjúkrun-
arforstjóra fyrir 15. febrúar nk.
BARNASPITALI HRINGSINS
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
barnadeild 1-lyflækningadeild. Um er að
ræða vaktavinnu, einnig vantar á fastar
næturvaktir. Hlutavinna kemur til greina.
Deildin er með 14 rúm og þjónar börnum
upp til 16 ára. Góður aðlögunartími með
reyndum hjúkrunarfræðingi, en fyrst og
fremst gott samstarfsfólk, sem lítur jákvætt
á starf sitt og finnst skemmtilegt í vinnunni.
Upplýsingar gefur Svana Pálsdóttir, hjúkrun-
ardeildarstjóri, sími 601020, eða Hertha W.
Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sími 601000/601033.
Fóstrur
Staða fóstru er laus til umsóknar nú þegar.
Staðan er afleysingastaða og veitist í eitt
ár. Starfið er fjölþreytt og skemmtilegt fyrir
þá, sem hafa áhuga á starfi með börnum á
ýmsum aldri.
Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 601000/601033.
HUÐ- OG KYNSJUKDOMADEILD
Hjúkrunarfræðingur
60% staða hjúkrunarfræðings á 5 sólar-
hringa legudeild húð- og kynsjúkdóma á Víf-
ilsstaðaspítala og göngudeild húð- og kyn-
sjúkdóma í Þverholti 18 er laus til umsóknar
nú þegar eða eftir samkomulagi. Starfsvett-
vangur er á báðum deildum.
Um er að ræða fjölbreytt og skapandi starf.
Starfsandi er mjög góður.
Upplýsingar gefur Bjarney Tryggvadóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602800
og deildarstjórarnir, Sigríður Heimisdóttir,
sími 602853 og Þuríður Sigurðardóttir,
sími 602325.
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD
LANDSPÍTALANS
Aðstoðardeildarstjóri
- hjúkrunarfræðingur
Staða aðstoðardeildarstjóra á legudeild
barna- og unglingageðdeildar Landspítalans
er laus til umsóknar. Einnig er laus staða
hjúkrunarfræðings á unglingadeild.
Möguleiki á húsnæði og barnaheimili.
Frekari upplýsingar gefur Anna Ásmunds-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
smi 602500 og 602550.
OLDRUNARLÆKNINGADEILD
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast sem fyrst. Fullt starf eða
hlutastarf eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir Anna Guðmundsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 602266
eða 601000.
RIKISSPIT ALAR
Rikisspitalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferö allra þeirra, sem viö störfum fyrir og meö,
og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Rikisspítala er helguð þjónustu við almenning og viö höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni aö leiöarljósi.
Löggiltur vigtar-
maður
Löggiltur vigtarmaður óskast til tímabund-
inna starfa í Reykjavík. Mikil yfirvinna mun
fylgja starfinu.
Svar óskast sent auglýsingadeild Mbl. fyrir
föstudaginn 29. janúar nk. ásamt staðfest-
ingu á löggildingu, merkt: „Vigtun - 417“.
Veitingastaðurinn
Casablanca
Óskum eftir snyrtilegu fólki á bari, í dyra-
vörslu, fatahengi og sal.
Upplýsingar á staðnum á Skúlagötu 30,
mánudaginn 25. janúará milli kl. 18 og 20.
Casablanca,
- staðurinn í dag.
Reykjavík
Hjúkrunar-
deildarstjóri -
hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Staða hjúkrunardeildarstjóra á deild G-2 er
laus til umsóknar. Um er að ræða 100%
starf á nýuppgerðri hjúkrunardeild með góðri
vinnuaðstöðu. Unnið er eftir hjúkrunarskrán-
ingu. Hjúkrunarfræðingur með reynslu af
hjúkrun aldraðra óskast sem fyrst.
Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir á
heilsugæslu. Gert er ráð fyrir að tveir hjúkr-
unarfræðingar skipti með sér vöktum alla
daga vikunnar.
Hjúkrunarfræðing vantar á vaktir um helgar
og til afleysinga.
Tvær stöður sjúkraliða eru lausar til umsókn-
ar. Önnur staðan er 80% dagvinna virka
daga, en hin er 60% kvöldvaktir, vinnutími
kl. 15.30-22.30 aðra hvora viku.
Athygli er vakin á, að reykingar eru takmark-
aðar á Hrafnistu.
Upplýsingar um þessi störf veita ída Atla-
dóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 35262 og
Jónína Nielsen, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 689500.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri óskast til að reka skó-
verksmiðju á Skagaströnd.
Leitað er að aðila með reynslu af rekstri og
markaðsmálum, sem hefur áhuga á að sýna
árangur í starfi.
Fyrirtækið hefur sterka eiginfjárstöðu og
er fjármögnun lokið. Rekstraráætlun er fyr-
irliggjandi.
Hugmyndin er að ráða tvo stjórnendur; fram-
kvæmdastjóra fyrir rekstur og markaðsmál
og tæknimann fyrir framleiðsluna.
Milliganga verður höfð um útvegun hús-
næðis.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Hér er á ferðinni áhugavert tækifæri fyrir
drífandi aðila.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon í
síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Skóverksmiðja" fyrir
30. janúar nk.
RÁÐGARÐURHF.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88