Morgunblaðið - 22.06.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
Fornleifafræðingar notuðu jarðsjá til að fylgjast með framkvæmdum á Arnarhóli
Mannvist-
arleifar á
3 stöðum
MÆLINGAR með jarðsjá
vegna jarðvegsframkvæmda
við Arnarhól benda til að mann-
vistarleifar sé ef til vill að finna
á þrem stöðum. Arbæjarsafn
hefur nú fornleifafræðing á
staðnum sem lítur eftir því að
ekkert sé eyðilagt að órannsök-
uðu máli.
Jarðsjármælingamar voru
framkvæmdar í fyrstu viku maí-
mánaðar. Nú hefur Bjami F. Ein-
arsson fomieifafræðingur hjá Ár-
bæjarsafni unnið úr mælingunum.
Meginniðurstaða þeirra er sú að
engar öruggar fomleifar komu í
ljós sem ekki var vitað um fyrir
mælingarnar. í skýrslu Bjama
kemur þó fram að þrjú snið gefa
vísbendingu um hugsanlegar
mannvistarleifar, garð frá tugt-
húsinu eða kofaleifar, útihús frá
býlinu á Arnarhóli, og leifar kofa
og garðs sunnanmegin við Amar-
hólstraðimar sem em friðaðar
samkvæmt þjóðminjalögum.
Framkvæmdir á Arnarhóli
NÝLEGA voru hafnar endurbætur á Arnarhóli og nánasta umhverfi. í byrjun maí fundust mann-
vistarleifar við rannsókn á skurði fyrir neðan Arnarhól á mótum Kalkofnsvegar og Hverfisgötu.
Er talið að þar séu komnir öskuhaugar tugthússins gamla sem nú er stjórnarráðshúsið. Vegna
fyrirhugaðra jarðvegsframkvæmda var ákveðið að fara með jarðsjá yfir valda staði á hólnum og
freista þess að finna vísbendingar um fomleifar.
Geitungar
áberandi
í sumar
ÞRÁTT fyrir mikla fækkun í
stofnum skordýra og meindýra í
ár vegna slæms tíðarfars er ljóst
að geitungum mun ekki fækka,
að sögn Erlings Ólafssonar, skor-
dýrafræðins. Hann segir stofn
geitunga hafi farið stækkandi hin
síðustu ár og að sú þróun muni
halda áfram á þessu ári.
Að sögn Erlings verður það fyrst
um mánaðamótin júlí/ágúst að veru-
lega fari að bera á geitungunum.
„Stofninn kemur mjög vel undan
vetri því hvorki hefur borið á frost-
hörkum né snjóþyngslum. Þetta
kalda vor hefur ennfremur lítil sem
engin áhrif á geitungana því þeir
fara svo seint af stað,“ sagði Erling-
ur. í máli hans kemur fram að bý-
flugnastofninn hafi aftur á móti lið-
ið fyrir hið kalda vorhret en sá sé
munurinn á býflugum og geitungum
að þær fyrrnefndu fari mun fyrr af
stað á vorin. „Geitungar hafa alla
burði til að halda áfram að fjölga
sér og vera áberandi því að hér á
landi eru engin dýr sem hafa þá að
fæðu,“ sagði Erlingur að lokum.
Litlar líkur á þorskveiðum
Islendinga í Barentshafi
Upplausnarástand í Rússlandi helsti þröskuldurinn
EKKI eru líkur á því að íslenskir frystitogarar muni hefja veiðar á
þorski í Barentshafi í bráð. Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri
Samheija hf. á Akureyri, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að helsti þröskuldurinn í vegi þess að samningar um veiðiheimildir
íslenskra togara í Barentshafi gætu tekist á milli íslenskra útgerðar-
aðila og Rússa, væri upplausnarástand það sem ríkti í Rússlandi.
Geislunarhiti sjávar
mældur til að fylgj-
ast með hafískomu
VEÐURSTOFAN hefur að undanförnu hagnýtt sér nýja gervi-
tunglatækni til að fylgjast með hafískomum, en með þeirri að-
ferð er unnt að gera hafískort innan þriggja tíma frá því að
örbylgjugögn berast, óháð veðri og skýjafari. Fram til þessa hef-
ur verið fylgst með hafískomum með könnunarflugi.
Guðjón Rúnarsson
Varð fyrir
bíl og lést
UNGUR maður beið bana
þegar hann varð fyrir bíl
við afleggjarann að Munað-
arnesi aðfaranótt sunnu-
dags.
Maðurinn var á gangi
ásamt öðrum manni þegar
slysið varð. Hann hét Guðjón
Rúnarsson til heimilis að Súlu-
kletti 6, Borgamesi.
Hann var fæddur 17. nóv-
ember 1974 og var því á nítj-
ánda aldursári.
Bjöm Erlingsson hafeðlisfræð-
ingur sagði að um væri að ræða
nema í gervitunglum sem skynja
geislunarhita yfirborðs sjávar á
vissum tíðnisviðum óháð veðri,
dagsbirtu og skýjafari. Með þess-
ari aðferð er unnt að fá upplýs-
ingar um þéttleika íssins, yfir-
borðsvindhraða yfír stóru haf-
svæði og auk þess margt annað.
Nákvæmari upplýsingar
Bjöm Erlingsson sagði að þessi
tækni væri ódýr, en upplýsingam-
ar bæmst reyndar hingað frá
Kanada. Merkin berast upp í gervi-
tunglið SSM/I sem Bandaríkja-
menn skutu á loft árið 1987. Merk-
in em tekin niður í Bandaríkjunum
og send sem úrvinnslugögn til
Kanada og þar em þau greind í
sundur.
Með þessu móti má kanna þétt-
leika íss, vindhraða og skýjafar
yfír opnu hafí. Bjöm sagði að þetta
væm nákvæmari upplýsingar en
með könnunarflugi að því leyti að
þær bæmst oftar og yfír stærra
svæði og væm þar af leiðandi rétt-
ari. Með flugi væri unnt að fá
nákvæma staðsetningu ísjaðarsins
en þær upplýsingar úreltust hins
vegar á einum til tveimum dögum.
Auk þess veitti þessi aðferð upp-
lýsingar um svæði norðan og sunn-
an við landið sem hafa áhrif á
þróunina hér við land.
Könnunarflug veita upplýsingar
um takmarkað svæði svo erfitt að
meta framþróunina fram í tímann
á gmndvelli þeirra.
Samheiji hóf á sl. hausti könnun
á því hvort hægt væri að semjá við
Rússa um þorskveiðiheimildir í Bar-
entshafi. „Menn eru bara að spyija
sjálfa sig að því hvort um einhveija
möguleika sé að ræða á veiðum
fyrir utan íslensku landhelgina,"
sagði Kristján um aðdraganda þess
að Samheiji hóf að skoða þennan
möguleika.
Samheiji sendi menn til Rúss-
lands í fyrrahaust til þess að kanna
þessa möguleika. Síðar kom sjávar-
útvegsráðherra Rússlands í heim-
sókn til íslands, og átti þá m.a.
viðræður við Samheijamenn á Ak-
ureyri. í kjölfar þess buðu nokkur
fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu og
Ákureyrarbær þremur Rússum til
Akureyrar, þar sem þeir kynntu sér
starfsemi fyrirtækja í þijá mánuði.
Það var Iðnþróunarfélag Eyjafjarð-
ar sem skipulagði heimsókn Rúss-
anna og gerðu menn sér vonir að
Annað skipið, sem fannst í fyrra
við Flatey, og var talið vera frá 19.
öld, er nú talið vera enn eldra að
sögn Guðmundar Magnússonar,
þjóðminjavarðar. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hópur sér-
fræðinga mundi fara í júlí til að
skoða bæði skipin og reyna að
bjarga lausum munum úr þeim þótt
lítið væri eftir af þeim, í mesta lagi
kjölurinn og viðarbútar.
Önnur verkefni Þjóðminjasafns-
ins í sumar verða áfram rannsóknir
við Bessastaði og einnig rannsóknir
á minjum við Stöng í Þjórsárdal.
Vilhjálmur Öm Viihjálmsson, forn-
leifafræðingur, stjómar rannsókn-
inni við Stöng. Á Stöng hefur að
sögn Vilhjálms fundist kirkja frá
11. til 12. öld, undir henni fannst
smiðja frá því fyrir árið 1000 og
í kjölfar þeirrar heimsóknar gæti
myndast grundvöllur að samning-
um á milli Rússa og Norðlendinga.
„Það er ekki hægt að ná samn-
ingum við Rússa um þessar mund-
ir, það er alveg ljóst. Það er algjört
upplausnarástand sem ríkir í Rúss-
landi og ekki nokkur maður sem
getur tekið ákvörðun um eitt eða
neitt þar,“ sagði Kristján.
Kristján sagði að Samheiji hefði
haft fullan hug á að kanna til þraut-
ar hvort það væri fært að senda
frystitogara til þorskveiða í Bar-
entshafí og hvort möguleiki væri
að ná samningum við Rússa um
slíkar veiðar, en enginn árangur
hefði enn verið af þeim könnunum
sem Samheiji hefði staðið fyrir.
„Ég vil nú kannski ekki segja
að hugmyndin um þorskveiðar í
Barentshafí sé komin út af borðinu
hjá okkur, en hún hefur alla vega
verið lögð til hliðar um stundarsak-
ir,“ sagði Kristján.
frá því um landnám.
Manna leitað
vegna hagla-
byssustuldar
LÖGREGLAN í Reykjavík leitaði
í gærkvðldi þriggja manna sem
taldir eru hafa brotist inn í
geymsluhúsnæði í Breiðholtinu í
gær og stolið þaðan haglabyssu.
Eigandinn uppgötvaði innbrotið
síðdegis og hvarf byssunnar og fékk
lögreglan vísbendingar um þijá
menn sem grunaðir eru um verkn-
aðinn.
í dag
Stærsta skuta landsins__________
Eva II, stærsta skúta landsins, alls
38 fet, hefur verið sjósett 7
Clinton eignast hálfbróöur
Upplýst var um helgina að Bill
Clinton Bandaríkjaforseti ætti ann-
an hálfbróður 22
Prestostefna____________________
Biskup íslands lagði áherslu á í
ræðu á prestastefnu að þjóðkirkjan
annist rekstur prestssetra 24
Leiðari
Sömu umræður-sama deiluefni 24
Aimt fiwyr komkin hafen \sstz
wanpi
Iþróttir
► Skagamenn burstuðu Vík-
inga 10:1 og hafa komið við
sðgu í fjórum stærstu sigrun-
um í 1. deild karla. Chicago
Bulls NBA-meistari þriðja árið
í röð.
Sokkin 17. aldar skip
við Flatey rannsökuð
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ mun í júlí senda hóp sérfræðinga til að skoða
tvö skip, sem áhugakafarar fundu við Flatey síðasta sumar. Annað
þessara skipa er talið vera hollenskt skip frá 17. öld. Þjóðmiiýasafn-
ið mun einnig vinna við rannsóknir á Bessastöðum og Stöng í Þjórs-
árdal. Árbæjarsafn mun vinna við rannsóknir í Aðalstræti og við
áframhaldandi rannsóknir í Viðey.
undir smiðjunni hafa fundist leifar