Morgunblaðið - 22.06.1993, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
Fleiri iðnaðarmenn án at-
vinnu nú en í fyrrasumar
VERULEGUR samdráttur í íslenskum byggingariðnaði veldur því
að mun fleiri iðnaðarmenn eru á atvinnuleysisskrá í sumar en
undangengin sumur. Sem dæmi má nefna að 60 trésmiðir eru á
atvinnuleysisskrá Trésmíðafélags Reykjavíkur og 8 múrarar á
atvinnuleysisskrá Múrarafélags Reykjavíkur. Samdráttarskeiðið
virðist hafa minni áhrif á atvinnuhorfur málara því nýlega tæmd-
ist atvinnuleysisskrá Málarafélags Reykjavíkur.
Sigurjón Einarsson, starfsmaður
Trésmíðafélags Reykjavíkur, sagði
að á meðal 8-900 vinnufærra og
útlærðra félagsmanna hefði at-
vinnuleysi verið mest upp úr ára-
mótum. Hefðu þá 140-150 manns
verið án atvinnu en smám saman
hefði dregið úr atvinnuleysinu og
nú væru um 60 félagsmenn á at-
vinnuleysisskrá.
Hann sagðist vona að allur þessi
-fjöldi fengi vinnu í sumar. Honum
kæmi hins vegar ekki á óvart þó
það gerðist ekki og færu atvinnu-
horfur að sjálfsögðu eftir ýmsum
þáttum í þjóðfélaginu, t.d. því hvort
fé yrði veitt til verklegra fram-
kvæmda.
Aðspurður sagði Siguijón að at-
vinnuleysisskrá hefði verið hreinsuð
upp í fyrrasumar. Einhveijir hefði
orðið eftir árið þar áður en í mörg
ár á undan hafi ekki verið atvinnu-
leysi á meðal trésmiða yfir sumar-
tímann.
Slæmar horfur
Helgi Steinar Karlsson, formaður
Múrarafélags Reýkjavíkur og
Múrarasambands íslands, sagði að
flestir hefðu múrarar verið atvinnu-
lausir í febrúar og mars eða 53 en
sú tala væri nú kominn niður í 8
og væru þá óútlærðir taldir með.
Hann sagði að atvinnuástand í
stéttinni hefðu verið mjög gott frá
árinu 1968 þangað til í fyrra ef frá
væru talin árin 1983 og 1984.
Uppgangur hefði aftur verið 1985-
1987 en nú hefðu nýbyggingar
dregist saman og aðeins hefðu ver-
ið hafnar framkvæmdir við 278 ný
hús í fyrra.
Um horfurnar sagði Helgi að þær
væru fremur dökkar. Það væri alls
ekki víst að atvinnuleysisskrá
tæmdist fsumar og sennilega myndi
snemma byija að draga úr atvinnu
í haust. Hann sagðist halda að
fremur gott atvinnuástand væri
meðal múrara á landsbyggðinni í
sumar.
Allir málarar í vinnu
Magnús Stephensen, varafor-
maður Málarafélags Reykjavíkur,
sagði að 20-23 málarar hefðu að
jafnaði verið atvinnulausir í vetur.
Úr atvinnuleysinu hefði svo smám
saman dregið í maí og nú væri at-
vinnuleysisskráin sem betur fer
tæmd.
Morgunblaðið/Alfons
.íu,..-. Bærinn fegraður
FJÖLMÖRG ungmenni vinna þessa dagana hörðum höndum að fegrun
Ólafsvíkur því nú fer aðal ferðamannatímabilið í hönd. Vilja þessi
ungmenni leggja sitt af mörkum til þess að ferðamenn og aðrir gest-
ir njóti verunnar í bænum. Þessi mynd var tekin af þeim stöllum Sig-
rúnu, Jóhönnu, Úlfhildi og Helgu, þar sem þær voru að gróðursetja
blóm við aðalgötu bæjarins. Sögðu þær að bæjarvinnan væri skemmti-
legt og ijölbreytt starf og ekki væri slæmt að vinna úti við og njóta
blíðviðrisins. Alfons.
VEÐUR
íDAG kl. 12.00
Heímitd: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 (gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 22. JUNI
YFIRLIT: Yfír landinu austanverðu er dálítið lægðardrag sem eyðist, en
hæðarhryggur á Grænlandshafi og færist heldur í aukana. Austur af
Nýfundnalandi er síðan 980 mb víðáttumikil og nærri kyrrstæð lægð.
SPÁ: Hæg vestlæg átt. Skýjað að mestu vestanlands og súldarvottur á
annesjum, en víðast nokkuð bjart veður í öðrum landshlutum og nánast
heiöskírt á Suðausturlandi. Hiti 10-18 stig. Hlýjast austan- og suðaustan-
lands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg VNV
læg eða breytileg átt á landinu en hafgola síðdegis. Með vestur- og
norðurströndinni veröur þokuioft en annars bjartviðrí. Hiti verður á billnu
7-19 stig, svalast á annesjum norðanlands og vestan en hlýjast (inn-
sveitum bæði sunnanlands og norðan.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
▼
Heiðskírt
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
•& -ts Q
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjaö
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.4
10° Hitastig
y súid
= Þoka
stig..
(KI.17.301 gær)
FÆRÐ Á VEGUM: í Langadal, á öxnadalsheiði, í Skaftártungu og á
milli Eldvatns og Klausturs er vegavinna í gangi og menn því beðnir um
að sýna aðgát. Ný klæðing er á vegínum á milli Klausturs og Núps-
staða. Vegavinna er á leiðinni milli Dalvíkur og Olafsfjarðar. Hálendisveg-
ir eru enn ófærir vegna snjóa nema hvað Djúpavatnsleið er opin.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ágrænnilínu, 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígæraðísl. tíma
hitt veður
Akureyri 14 alskýjaS
Reykjavfk 11 akskýjað
Bergen 12 hálfskýjað
Helsinki 17 skúr
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Narssarssuaq varnar
Nuuk 1 þoka
Ósló 12 akúr
Stokkhólmur 16 skruggur
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 23 skýjað
Amsterdam 19 léttskýjað
Barcelono 24 þokumöða
Berlín 18 skýjað
Chicago 18 alskýjað
Feneyjar 26 léttskýjað
Frankfurt 16 rigning
Glasgow 1* skýjað
Hamborg 16 skýjað
London 1B skýjað
LosAngeles 18 alskýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madríd 26 hálfskýjað
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 27 skýjað
Montreal 19 rigning
NewYork 23 þokumóða
Orlendo 26 léttskýjað
Parfc 21 skýjað
Madelra 19 skýjað
Róm 27 heíðskfrt
Vín 22 skýjað
Washlngton 23 þokumóða
Wlnnipeg 17 léttskýjað
Lánskjaravísitala
hækkar um 0,06%
LÁNSKJARAVÍSITALA 3.282 gildir fyrir júlí og er það 0,06%
hækkun frá mánuðjnum á undan að því er fram kemur í útreikn-
ingum Seðlabanka Islands. Umreiknað til eins árs hefur lánskjara-
vísitalan hækkað um 0,5% síðustu þrjá mánuði, 2,2% síðustu sex
mánuði og 1,6% síðasta ár.
Vísitala byggingarkostnaðar fyr-
ir júlí er samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar 190,1 stig og er það
um 0,2% hækkun frá fyrra mán-
uði. Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitalan hækkað um 0,8%, en und-
anfama þrjá mánuði hefur vísitala
byggingarkostnaðar lækkað um
0,4%, sem jafngildir 1,7% verð-
hjöðnun á ári.
Launavísitala fyrir júnímánuð er
0,1% hærri en launavísitala fyrri
mánaðar að því er fram kemur í
frétt frá Hagstofunni, og er vísital-
an 131,2 stig. Leiga fyrir íbúðar-
húsnæði og atvinnuhúsnæði, sem
samkvæmt samningum fylgir vísi-
tölu húsnæðiskostnaðar eða breyt-
ingum meðallauna hækkar því um
0,1% frá og með 1. júlí, og reiknast
þessi hækkun á þá leigu sem er í
júnímánuði. Leiga helst síðan
óbreytt næstu tvo mánuði, þ.e. í
ágúst og september.
Tómatar
lækka enn
í verði
TÓMATAR lækka enn í verði í
dag en undanfamar þijár vikur
hefur tómataframboðið verið í
hámarki. Að sögn Kolbeins
Ágústssonar sölustjóra hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna
lækkar heildsöluverðið í dag
úr 198 kr. kilóið í 139 kr., og
sagðist hann reikna með að
verðið færi aftur hækkandi í
næstu viku.
Þá hefur framboð á litaðri papr-
iku einnig aukist að sögn Kolbeins
og lækkar heildsöluverðið á þeim
úr 650 krónum kílóið í 550 krón-
ur. Verð á grænum paprikum er
hins vegar óbreytt eða 429 kr.
kílóið. Vel horfir með uppskeru á
útiræktuðu grænmeti og sagðist
Kolbeinn eiga von á að kínakál
kæmi á markaðinn fljótlega upp
úr næstu mánaðamótum, og blóm-
kál og hvítkál fylgdi svo fljótlega
í kjölfarið.
Truflanir
í símkerfi
í gær
SÍMNOTENDUR á höfuð-
borgarsvæðinu tengdir mið-
bæjarsímstöðinni urðu varir
við smá símatruflanir í gær.
Ragnar Benediktsson, yfir-
deildarstjóri þjá Pósti og
síma, sagði að truflanirnar
mætti rekja til galla í forritum
sem vitað var um, en ekki var
hægt að lagfæra fyrr en í gær.
Truflanirnar voru þrjár og
varaði hver í um eina til eina og
hálfa mínútu, að sögn Ragnars.
17 þúsund númer eru tengd mið-
bæjarstöðinni, þar á meðal mörg
fyrirtæki. Ragnar sagði að alltaf
hefði staðið til að laga gallana,
en Pósti og síma hefðu ekki bor-
ist breytingarnar í hugbúnaðin-
um fyrr en í gær. Unnið var að
lagfæringunum í gærdag og
gærkvöld.
Beint af
Tindum
í innbrot
TVEIR unglingar voru hand-
teknir í nótt eftir að hafa reynt
að bijótast inn. í söluturn í
Grímsbæ við Bústaðaveg. Lög-
regla stöðvaði bifreið mannanna
á Hverfisgötu og kom þá í Ijós
mikið magn þýfis í bílnum.
Við yfirheyrslur yfir þeim kom í
ljós að þeir höfðu brotist inn í sölu-
turn á Laugarásvegi. Annar drengj-
anna hafði fyrr um kvöldið strokið
af unglingaheimilinu að Tindum,
en hinn hefur margítrekað komið
við sögu hjá lögreglunni og tók
meðal annars þátt í eyðileggingu
sumarbústaða fyrr á árinu.