Morgunblaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
7
STÆRSTA SKÚTA LANDSINS ER 38 FET OG í EIGU ÞRIGGJA KEFLVÍKINGA
Sameinar flesta kosti
keppnis- og ferðabáta
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
18 metra mastur
MASTRIÐ er 18 metra hátt á stærstu skútu landsins, Evu II., sem er
í eigu þriggja Keflvíkinga og var sjósett fyrir nokkrum vikum.
ÞRÍR Keflvíkingar, Áskell Agnars-
son, Anton Jónsson og Erlendur
Jónsson, eru eigendur að stærstu
skútu landsins, sem sjósett var fyr-
ir nokkrum vikum og hefur hlotið
nafnið Eva II. Hún var keypt notuð
frá Englandi og hefur verið siglt
nokkrum sinnum í nágrenni höfuð-
borgarinnar, en hún liggur við
bryggju skútueigenda í Reykjavík-
urhöfn. Á hveiju þriðjudagskvöldi
keppir skútan í siglingu við aðrar
íslenskar skútur og mun einnig
taka þátt í íslandsmótinu í sigling-
um sem verður í ágúst.
Eva II. er 38 feta löng og vegur
sjö tonn, en af þessari þyngd er kjölur-
inn þijú tonn, enda veitir ekki af vigt-
inni til að vega á móti hæð masturs-
ins því það er 18 metra hátt. Sjö
segl eru um borð, stórsegl, fjórar
stærðir af fokkum og tvo belgsegl
úr misþykku efni. Þá er afstaða mast-
ursins stillanleg, svo nýta megi vind-
töku í seglin betur en ella.
„Við völdum þessa skútu af því að
hún er góð blanda af keppnis- og
ferðabát. Það eru til bátar sem sigla
hraðar, en við hugsuðum dæmið
þannig að við gætum tekið fjölskyld-
uraar í lengri ferðir og haft góðan
umbúnað um borð,“ sagði Askell
Agnarsson, einn eigenda skútunnar í
samtali við Morgunblaðið.
„Við keyptum skútuna notaða frá
Englandi, þar sem þær fást núna á
góðum kjörum, og unnum baki brotnu
við að standsetja hana í vetur, eftir
að hún hafði verið flutt heim. Hún
I góðum byr
SIGMA 38-skútan klýfur öldurnar með Agnar, son eins af eigendum
við sljórnvölinn.
þurfti talsverðrar yfirhalningar við
og það hentaði vel að við erum smið-
ir. Þetta er minn sumarbústaður og
hann er með óendanlega stórri lóð!
Það er fátt skemmtilegra en sigla
skútu og elda svo góða máltíð að sigl-
ingu lokinni en um borð eru góð eld-
unartæki, salerni og sturta. Þá eru
öll nauðsynlegustu leiðsögutæki um
borð, bæði nútímatæki og þau sem
tilheyra gamla tímanum. Kaupin á
þessari skútu er í raun framhald af
tíu ára siglingasögu okkar, því við
áttum bát sem hét Eva og kepptum
á henni í níu ár. í fyrra tókst okkur
að krækja í fímm brons í stórmótun-
um en við stefnum hæraa í framtíð-
inni á nýju skútunni. Ég hef þó trú
á að þetta sumar fari í að læra á
skútuna,“sagði Áskell.
„Það tekur tíma að læra að nota
reiðann, sem er stillanlegur. Það þarf
reynslu til að nýta alla kosti hans.
Það eru til skútur sem henta betur
til keppni. Þessi skúta hefur mikla
sjóhæfni, en kannski minni hraða en
aðrar stórar kappsiglingaskútur, sem
eru sérsmíðaðar til keppni. Slíkir bát-
ar bjóða þá upp á einhæfa notkun á
meðan við getum skroppið hvert sem
er og gist í eigin bát með allt til alls,“
sagði hann ennfremur. G.R.
H Kynning 6 VISA
Einar S. Einarsson forstjóri
Meb VISA á sólarströnd
Sigmar B. Hauksson
H Portúgal
Ásta R. Jóhannesdóttir
Sjúkdómar ó sólarströnd
Ger&ur Jónsdóttir læknir
B Spónn
Örnólfur Árnason rithöfundur
KAFFIVEITINGAR
ituiiui i
FARKLÚBBUR VISA
UPPLÝSINGA- OG ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Höföabakka 9, 112 Reykjavík
Sími 91-671700, Fax 91-673462
yjmLWjVhi
Kynningarfundur
á Holiday Inn
fyrir Far- og
Gullkorthafa
fimmtudaginn
24. júní kl. 20:30