Morgunblaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
11
Karla- og kvennaliðum íslands gengur vel á Evrópumótinu í brids
Barist um verðlaunasæti
Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
BÆÐI íslensku liðin á Evrópumótinu í brids voru í toppbarátt-
unni í gærkvöldi. Karlaliðið var í 4. sæti þegar 20 umferðum
var lokið af 31 og kvennaliðið var í 2. sæti þegar 12 umferðum
var lokið af 21.
í opna flokknum voru Pólverjar
efstir með 384,5 stig, Danir í 2.
sæti með 374 stig, Hollendingar
höfðu 371 stig, Islendingar 370
stig, Norðmenn 359 stig, Frakkar
352 stig og Bretar 343,5 stig. í
kvennaflokknum leiddu Italir með
225,5 stigum, ísland hafði 224
stig, Finnar 217 stig, Frakkar
211, Svíar 206, Bretar 205 og
Þjóðveijar 200.
Það skiptust á skin og skúrir
hjá karlaliðinu yfir helgina. í
fýrsta leiknum á laugardag tapaði
liðið fyrir Rúmenum, 14-16 og í
næsta leik tapaði það fyrir Portúg-
al, 5-25. Bæði þessi lið eru neðar-
lega í röðinni en eins og fyrr í
mótinu virtust íslensku spilararnir
eiga erfiðara með að einbeita sér
veikari þjóðunum en þeim sterk-
ari. Þetta kom berlega í Ijós um
kvöldið þegar íslendingarnir unnu
stórsigur á Itölum í sýningarleik.
5.600 niður
Norður
♦ 7
V ÁK965
♦ D10876
♦ D8
Vestur Austur
♦ 1053 ♦ Á96
V D108743 V -
♦ 5 ♦ ÁKG42
♦ KG6 ♦ 105432
Suður
♦ KDG842
VG2
♦ 93
♦ Á97
Opinn salur
Vestur Norður Austur Suður
Versace Sævar Lauria Jón
pass 1 hjarta 2 tíglar 2 spaðar
pass 2 Gr pass 3 Gr///
-200
Lokaður salur
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Burgay Þorl. DeFalco
2 tíglar dobl 2 hjörtu 4 spaðar
pass pass dobl//
-1400
Spilin í leiknum voru villt, sér-
staklega í fyrri hálfleiknum, og
það hentar íslensku spilurunum
oftast vel. Þeim tókst hvað eftir
annað að dobla samninga ítalanna
og ná þeim niður en það var að
vísu ekki alveg ókeypis; einhver
reiknaði út að liðin tvö hefðu farið
samtals 5.600 niður í spilunum 12
í fyrri hálfleik. Fjórðungurinn kom
í þessu spili: Vestur/Allir
í opna salnum voru sagnir á
rólegri nótunum, aldrei þessu vant,
og Sævar fór 2 niður á 3 grönd-
um. Við hitt borðið hefur DeFalco
sjálfsagt verið að hugsa um hvort
hann ætti að reyna við slemmu
með suðurspilin eftir að norður
doblaði veika opnun Guðmundar,
en lét samt geimið duga. Hann
hefur því varla verið óanægður
með að sjá doblmiðann hjá Þorláki
enda grunlaus um hvað beið hans.
Guðmundur spilaði út tígli og Þor-
lákur tók á gosa og ás og spilaði
kóngnum. DeFalco trompaði, Guð-
mundur yfirtrompaði og spilaði
hjarta sem Þorlákur trompaði.
Hann spilaði laufi sem Guðmundur
fékk á kóng og spilaði hjarta sem
Þorlákur trompaði og spilaði tígli.
DeFalco stakk upp trompkóng og
spilaði trompdrottningu á ás Þor-
láks sem spilaði 5. tíglinum og
spaðatía Guðmundar var 8. slagur
varnarinnar. 5 niður!
Eftir þennan leik hélt sigur-
gangan áfram. íslendingar unnu
Finna 24-6 og Hvítrússa 22-8
og voru þá aftur komnir í 5. sæt-
ið eftir að hafa skoðað sig um í
8. sætinu um tíma. Og eftir 25-4
sigur á Grikkjum í 19. umferð
fóru þeir í 3. sætið. í 20. umferð
vann ísland Litháen, 23-7 og spil-
aði við Austurríki í 21. umferð í
gærkvöldi.
Konurnar spila vel
íslenska kvennaliðið hefur átt
hér skínandi leiki og ætlar sér að
taka þátt í baráttunni um verð-
launin. Liðið vann Belga, 24-6,
Króata 21-9 og Tyrki 25-5 og
var þá komið í 2. sæti, 2 stigum
á eftir Ítalíu. Þessar þjóðir spiluðu
saman í næstu umferð og var
leiknum skellt á sýningartöfluna.
ítalirnir græddu á 2 spilum í fyrri
hálfleik en ísland á ölluni hinum
og var 23 stigum yfir. í síðari
hálfleiknum juku íslensku konurn-
ar forustuna smám saman í 29
'SLig, en í fimm síðustu spilunum
Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson
Hjördís Eyþórsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir við verðlaunaafhend-
inguna þar sem þeim voru afhent bronsverðlaunin. Hjá þeim stendur
Niels Jensen, sænskur heiðursforseti evrópska bridssambandsins.
hrukku þær ítölsku í gang og náðu
að vinna leikinn naumlega, 16-14.
111. umferðinni í gærmorgun fékk
ísland svo fullt hús stiga gegn
írum, 25-5 og náði efsta sætinu
af ítölum um tíma. í 12. umferð
í gærdag spilaði ísland við Frakka
og gerði jafntefli, 15-15, eftir að
hafa leitt mestallan leikinn.
Allt íslenska kvennaliðið hefur
spilað vel það sem af er og hefur
vakið mikla athygli, sérstaklega
þó Hjördís Eyþórsdóttir og Ljósbrá
Baldursdóttir enda litríkar við
spilaborðið sem utan þess. Þær
bjuggu til slemmusveiflu í þessu
spili gegn Belgum:
Norður
♦ ÁD
♦ KD87
♦ ÁG106
♦ G54
Vestur Austur
♦ KG9532 ♦ 86
♦ 4 V G652
♦ 7432 ♦ KD8
♦ 73 ♦ 10862
Suður
♦ 1074
♦ Á1093
♦ 95
♦ ÁKD9
Vestur Norður LB Austur Suður HE 1 lauf
2 spaðar dobl pass 3 hjörtu
pass pass +1430 4 Gr 6 hgörtu/ pass 5 hjörtu
Sagnir tóku ekki langan tíma
og Hjördís var einnig fljót að vinna
spilið. Hún fékk út spaða og svín-
aði drottningunni og tók fjórum
sinnum tromp með svíningu fyrir
gosann. Þar sem vestur hlaut að
eiga 6-lit í spaða eftir sagnir spil-
aði Hjördís spaða á ásinn, tók fjór-
um sinnum lauf, spilaði tígli á
gosann og lagði upp því austur
átti ekki nema tígul eftir. Við hitt
borðið létu NS sér nægja 4 hjörtu
og unnu þau slétt. Þess má geta
að franski heimsmeistarinn Michel
Perron tapaði 6 hjörtum þrátt fyr-
ir að vestur hefði sagt 2 spaða sem
lofuðu annaðhvort spaða eða lág-
litunum.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskurferðafélagi
SUMARTILBOÐ TIL BARCELONA
Brottfarir:<0^ 3.júlí,íeina,tva3reðaþrjárvikur.
lo.júií, íeinaeðalværvikur.
17. júlí, íeinaviku.
Lágmarksdvöl: 7dagar.
Böm 2-11 ára greiða 50%, 9.295 kr. Ungaböm greiða 10%,1859 kr.
Bókunarlýrirvari enginn.
* Rugvallarskatlur, 1310 kr, er ekki innifalinn.
Barcelona
Nokkur verödæmi um hótel (m.v. tvíbýli):
2 stjörnu hótel, 1 vika, frá 40.450 kr.
3 stjörnu hótel, 1 vika, júlí/ágúst, frá 43.710 kr.
4 stjörnu hótel, 1 vika, e. 16. júlí, frá 46.330 kr.
Innif.: Flug, gisting, morgunv., flugvallarsk.
Sitges.
Fallegur, heillandi bær viö ströndina skammt frá
í Barcelona. Golfvöllur, vatnsskemmtigarður,
| vatnaíþróttir. 4 stjörnu vinalegt fjölskylduhótel: verð
í í viku í tvíbýli, 26. júní eða 3 júlí, 46.610 kr.
1 Innif.: Flug, gisting, morgunverður, flugvskattur.
Lloret De Mar.
5 Fjörugur ferðamannabær við fallega strönd.
Nokkur verðdæmi með brottför 26. júní:
Mjög gott íbúðahótel, 2 vikur, 4 í íbúð, 39.680 kr.
Verð í 3 vikur, 4 í íbúð, 47.700 kr.
Glæsilegar íbúðir, 2 vikur, 4 í íbúð, 49.270 kr.
Verö í 3 vikur, 4 í íbúð, 63.690 kr.
Innif.: Flug, gisting, flugvallarskattur.
Flug og bíll.
Flokkur A, 2 vikur, 4 í bíl, 34.800 kr.
Flokkur B, 2 vikur, 4 í bíl, 35.970 kr.
Flokkur C, 2 vikur, 4 í bíl, 38.200 kr.
Innif.: Flug, bíl|, kaskó, söluskattur, flugvallarskattur.
(rams
Hamraborg 1-3, sími 641522
Barcelona
Brottför alla laugardaga.
Verð: 7 nætur í júní, 50.010 kr. í tvíbýli - Hótel
Ateness
7 næstur í júlí og ágúst, 48.610 kr. í tvíbýli - Hótel
Ambassador
Innif. flug, gisting, morgunv., flugvsk. og forfallagj.
Flug og bíll
1 vika 36.160 kr., 2 vikur 44.810 kr., 2 í Opel Corsa.
Innifalið er flug, bíll, ótakmarkaður akstur, kaskó,
söluskattur, flugvallargjöld og forfallagjald.
Costa Dorada
Sitges
Skemmtilegur strandbær skammt frá Barcelona
Lúxushótel, verð í tvíbýli, 7 nætur, 52.410 kr.
Innifalið erflug, gisting, morgunverður,
flugvallarskattur og forfallagjald.
Salon
íbúðahótel Michaelangelo
2 vikur, brottför 3. júlí og 10. júlí
Verð 40.890 kr., 2 fullorönir og 2 börn 2ja-11 ára.
Verð 53.400 kr. 2 í íbúð.
Innifalið er flug, gisting, flutningur til og frá flugvelli,
flugvallarskattar og forfallagjald.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 16 101 REYKJAVÍK .
Á Costa Brava bjóðum við einstaka gistingu I
bænum Lloret De Mar, hótelíbúðir í Fanals Park.
íbúðahótelið er aðeins 200 metra frá ströndinni,
sundlaug. Líf og fjör í bænum og hin sanna Spánar-
stemmning.
Verðdæmi: 1 vika fyrir 4 manna fjölsk., 2 fullorðnir og
2 börn: Verð aðeins 29.990 kr. á mann. Innifaliö er
flug, gisting og öll flugvallargjöld.
Brottför3., 10. eða 17. júlí.
Barcelona.
Hótel Ambassador. Verð á mann: 43.900 kr. Inni-
falið er flug, flugvallargjöld, gisting í tveggja manna
herbergi og morgunverður í eina viku. Mjög gott 4ra
stjörnu hótel í hjarta Barcelona. Brottför3., 10. eða
17. júll.
Hótel Catalunya Plaza. Verð á mann: 49.900 kr.
Innifalið er flug, flugvallargjöld og gisting með
morgunverði í tveggja manna herbergi. Mjög gott 4ra
stjörnu hótel við göngugötuna frægu "Las Ramblas".
Brottför 3., 10. eða 17. júlí.
Bílaleigubíll í A flokki í eina viku.Verð: 18.800 kr.
Innifalið: Ótakmarkaður akstur, söluskattur og kaskó .
FERÐASKRIFSTOFAN
SÍMI 652266