Morgunblaðið - 22.06.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
21
Nýtt veiðihús við Sogið
Selfossi.
NÝTT veiðihús var tekið í notkun við Sogið í Grímsnesi, í
svonefndri Ásabyggð. Það er Grímsneshreppur sem er eigandi
hússins en leigir það út með veiðiréttinum í Soginu. Leigutak-
inn er Stangveiðifélag Reykjavíkur sem gerði samning við
hreppinn til sjö ára um leigu á ánni og er leigugjaldið 2 millj-
ónir á ári.
í húsinu er fullkomin aðstaða
til þess að gera veiðimönnum
dvölina á staðnum sem þægileg-
asta. Það var Samtak hf á Sel-
fossi sem byggði húsið og var
byggingatíminn einungis tæpir
tveir mánuðir.
Húsið er hið vandaðasta að
allri gerð og að sögn Böðvars
Pálssonar oddvita kostaði það 8
milljónir.
Húsið stendur á fallegum stað
við ána þar sem er fagurt útsýni
ti.l allra átta.
Sig. Jóns.
Nýja veiðihúsið í Ásabyggð við Sogið. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
3 almanök frá
Snerruútgáfu
SNERRUÚTGÁFAN hefur gefið út
fjögur misstór almanök fyrir árið
1994. Hafa þau öll tekið breytingum
frá síðustu útgáfu. Almanökin prýða
fjölbreytt úrval mynda, sem teknar
eru af feðgunum Hauki og Snorra
Snorrasyni. íslenska almanakið er
með myndum frá byggðum sjávars-
íðu og náttúru landsins, íslenska
hestaalmanakið er 12 síðna almanak
með mynd af íslenska hestinum. Þar
eru myndir frá landsmótum, í ís-
lenska náttúrualmanakinu eru mynd-
ir úr náttúru íslands, m.a. af íslenzk-
um refí og himbrima og Stóra nátt-
úrualmanakið kemur út í þriðja
skipti. Þar eru m.a. myndir frá Land-
mannalaugum, Mývatni, Botnssúl-
um, Þvottárskriðum og víðar.
Heilsuhagfræði og nið-
urskurður heilsugæslu
PRÓFESSOR Gavin Mooney heldur fyrirlestur fimmtudaginn 24. júní
kl. 15-19 um hagnýtingu heilsuhagfræði við ákvarðanatöku um niður-
skurð í heilbrigðisþjónustu eða „The Use of Health Economics in Dec-
ision Making in Cost Cutting in Health Care“. Fyrirlestrarnir eru ætlað-
ir stjórnendum og fagfólki í heilbrigðisþjónustu og öðru áhugafólki
um heilsuhagfræði.
Gavin Mooney er prófessor í
heilsuhagfræði og forstöðumaður
rannsóknastofnunar í heilsuhagfræði
við Háskólann í Aberdeen. Hann er
þekktur fræðimaður á þessu sviði og
hefur starfað sem ráðgjafi við endur-
skipulagningu heilbrigðisþjónustu
víða um heim. Garvin Mooney er
höfundur og aðalkennari 30 vikna
fjarnáms í heilsuhagfræði, sem hefur
verið kennt um nokkurra ára skeið
á öllum Norðurlöndum, í samvinnu
við Samtök sjúkrahúsa á Norður-
löndum. 34 íslendingar hafa lokið
því námi hjá Endurmenntunarstofn-
un HI. Fyrirlestrarnir eru haldnir í
samvinnu Endurmenntunarstofnun-
ar Háskóla íslands og Félags um
heilsuhagfræði. Þátttökugjald er
2.200 kr. Skráning er á skrifstofu
Endurmenntunarstofnunar.
(Fréttatilkynning)
Háskóli íslands kýs tvo heiðursdoktora
405 kandídatar braut-
skráðir á laugardag
HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 26. júní
kl. 14. Athöfnin hefst með því að Strauss-kvartettinn flytur Vínarvalsa
eftir Jóhann Strauss. Þá verður kjöri tveggja heiðursdoktora lýst, en
þeir Ármann Snævarr, fv. hæstaréttardómari og háskólarektor og
Hans G. Andersen, fv. sendiherra, verða sæmdir heiðursdoktorsnafn-
bótum frá lagadeild.
Háskólarektor, Sveinbjörn Björns- skólabíós en sökum fjölda kandídata
son, ávarpar kandídata og að því og boðsgesta þeirra er ljóst að ekki
loknu afhenda deildarforsetar próf- komast allir hátíðargestir fyrir í saln-
skírteini. Brautskráðir verða rúmlega um. Því verður brugðið á það ráð
450 kadídatar frá átta af níu deildum að sýna beint frá hátíðinni í öðrum
Háskóla Islands. Að lokum syngur sýningarsal bíósins. Þá verður böm-
Háskólakórinn nokkur lög undir um hátíðargesta boðið upp á teikni-
stjórn Hákons Tuma Leifssonar. myndasýningu í einum af minni sýn-
Athöfnin fer fram í aðalsal Há- ingarsölunum.
Norræna nthöfundaráð-
ið mótmælir skatti á bækur
ÞEGAR söluskattur af bókum var afnuminn árið 1990 var því al-
mennt fagnað meðal rithöfunda og annarra sem að bókaútgáfu
standa og þótti mikið framfaraspor á bókmenntasviðinu, segir í sam-
þykkt Norræna rithöfundaráðsins,
júní sl.
Sumarferð
Varðar á Kjöl
SUMARFERÐ Landsmálafé-
lagsins Varðar I Reykjavík
verður farin laugardaginn 17.
júlí næstkomandi og verður
farið um Kjalveg norður í
land.
í frétt frá Verði kemur fram,
að sumarferðin hafi í áratugi
verið fastur liður í starfi félags-
ins. Að þessu sinni verði Kjal-
vegur ekinn norður í land og
farið til baka til Reykjavíkur um
þjóðveg 1. Stefnt sé að því að
á við Gullfoss og á Hveravöllum.
Farið verði frá Valhöll, Háaleit-
isbraut 1, snemma um morgun-
inn og komið til baka síðla
kvölds.
Fram kemur að fararstjóri í
ferðinni verði Höskuldur Jóns-
son, forseti Ferðafélags íslands,
en upplýsingar um verð og nán-
ari tilhögun ferðarinnar verði
kynntar síðar.
sem hélt ársfund í Reykjavík 13.
Ennfremur segir: „Á ársfundi
Norræna rithöfundaráðsins í Reykja-
vík var ráðinu tilkynnt að íslensk
stjórnvöld hefðu tekið ákvörðun um
að innleiða virðisaukaskatt á bækur
frá og með 1. júlí nk.
Nú eru þeir tímar að menningar-
legt sjálfstæði smáþjóða á í vök að
verjast m.a. vegna nýrrar tækni og
framþróunar í fjöimiðlum og enn-
fremur vegna pólitískra og efnahags-
legra samskipta. Við slíkar aðstæður
er skattlagning af þessu tagi sér-
stakt áhyggjuefni.
Norræna rithöfundaráðið skorar
þvi á íslensk stjórnvöld að hætta við
áætlanir sínar um álagningu virðis-
aukaskatts á bækur, blöð og tímarit."
C
•O
oð
C
SKEMMTILEG VERÐLAUNAGÁTA FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
AÐALVIMMINGUR
(g£) TOYOTA
Dregið 17. júlí
ÍÞRJÁDAGA <
.... ....... “SZgS’**
Komdu í Kringlukast ***
# " ** *» t* 1
Síðast gerðu margir ævintýralega góð kaup
*
65 fyrirtæki með yfir 300 tilboð á nýjum vörum
Stórafsláttur í þrjá daga
Nýjar vörur á útsöluverði
£
Sértilboð á veitingastöðum
Aðeins þessa þrjá daga
Priðjudag - IVIiðvikudag - Fimmtudag
Afgreiðslutfmi Kringlunnar:
Mánudaga tll flmmtudaga 10 -18.30,
föstudaga 10-19,
laugardaga 10-14, sumartfml
i
l
1
2