Morgunblaðið - 22.06.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
29
Morgunblaðið/Silli
KISILGUR —— Nýlega voru liðin 25 ár síðan að fyrsti farmurinn af kísilgúr fór úr landi. Gestum
var boðið til hátíðarhalda í höfnina á Húsavík og fylgdust þeir m.a. með þeim tækninýjungum sem orðið
hafa frá upphafi við uppskipun kísilgúrs.
Fræðsla
Námskeið fyrir
verðbréfamiðlara
í HAUST hefst á vegum Prófnefndar verðbréfamiðlara námskeið
fyrir þá sem vilja öðlast leyfi til verðbréfamiðlunar. Námskeiðið
hefst í byijun september nk. og því lýkur í maí á næsta ári.
E
Kísilgúr íluttur út
fyrir 16,8 milljarða
ÞESS var minnst nýlega að 25 ár voru liðin síðan að fyrsti farmurinn
af kísilgúr fór úr landi. A þessum aldarfjórðungi er búið að flytja út
530 þúsund tonn að verðmæti 16,8 milljarðar krónur miðað við vísitölu
vöru og þjónustu.
Af þessu tilefni bauð Kisiliðjan,
Celite á ísiandi og Eimskipafélagið
til hátíðarhalda við Húsavíkurhöfn,
en svo stóð á að Reykjafoss lá þá
við bryggju fánum prýddur og var
að lesta kísilgúr. Fylgdust gestir með
hve allt er nú orðið tæknivætt og
breytt frá upphafi er pokunum var
fyrst raðað á bretti, poka fyrir poka,
og settir lausir í lestar skipanna. Þá
tók lestun nokkra daga og stundum
viku ef miklar rigningar voru því
pakkningin þoldi ekki mikla bleytu.
Síðar hófst sjálfvirk áfylling á pokum
°g ný gerð og lokunarbúnaðir poka
tekin í notkun. Þeir eru taldir 100%
þéttir svo rykmengun er nær óþekkt
í dag, en var um tíma nokkurt vanda-
mál.
Næst var farið að lesta kísilgúrinn
á pöllum í lestar skipanna og 1980
var farið að setja plasthjúp á hvern
pall. Frá 1986 hefur öll framleiðsla
Kísiliðjunnar verið flutt í gámum og
nú fyigir flutningunum ekkert ryk,
hvorki í skemmu eða skipi og hefur
þessi lausn mála hlotið margháttaða
viðurkenningu. Landflutningar á
milli Mývatnssveitar og Húsavíkur
voru í upphafi í höndum verksmiðj-
unnar, en frá 1986 hafa verktakarn-
ir Sniðill hf., Jón Gunnarsson og
Skipaafgreiðsla Húsavíkur séð um
flutningana. Auk þess sér skipaaf-
greiðslan um rekstur Völuskemmun-
ar á Húsavík.
Fyrstu árin sáu Eimskip og Haf-
skip um sjóflutningana, en frá árinu
1986 hafa sjóflutningar verið ein-
göngu á vegum Eimskips og sagði
stjórnarformaður í ræðu sinni að
Eimskip hefði veitt Kísiliðjunni mjög
góða þjónustu. Einnig þakkaði hann
ágætt samstarf við Skútustaðahrepp
og Húsavíkurkaupstað og fyrir hönd
Kísiliðjunnar og Celite á Islandi færði
hann hvorum þeirra að gjöf 25 3
metra háar aspir til gróðursetningar
þar, sem þeir teldu þær best fara.
Þegar Kísiliðjan var stofnuð árið
1966, var jafnframt stofnað sölufé-
lag, sem er alfarið í eigu hinna
bandarísku meðeiganda Kísiliðjunnar
hf. Var það fyrst í eigu Johns-Man-
ville Corporation og var þá nefnt
Manville hf. en hefur nú skigt um
eigendur og nefnist nú Celite ísland
hf. Hefur sölufélagið frá upphafi séð
um allan útflutning á framleiðslunni
og hefur ávallt verið gott samstarf
milli þess og Kísiliðjunnar.
Síðastliðin fimm ár hefur útflutn-
ingurinn verið að meðaltali 23.500
tonn á ári. Mest var flutt út árið
1985, 27.700 tonn. Nokkurrar sölu-
tregðu gætti á síðasta ári, en þá
voru flutt út 19.000 tonn. En vonir
standa til að salan glæðist á þessu
ári.
Helstu viðskiptalönd verksmiðj-
unnar eru Þýskaland, Danmörk, ítal-
ía, - Bretland, Frakkland og Aust-
urríki, sem meðal annars sér um alla
sölu til Austur-Evrópu. Ennfremur
er nokkurt magn selt til Afríku og
Mið-Austurlanda.
Að lokinni athöfn við höfnina var
boðið til fagnaðar í Hótel Húsavík
og flutti þar fyrst ávarp og skýrði
starfsemi verksmiðjunnar í hin 25
ár stjórnarformaður, Pétur Torfason,
verkfræðingur. Aðrir ræðumenn
voru ráðherrarnir Jón Sigurðsson og
Halldór Blöndal, Einar Njálsson,
bæjarstjóri, Sigurður Rúnar Ragn-
arsson, sveitarstjóri, og Hörður Sig-
urgeirsson, forstjóri Eimskips og
færði hann Grunnskóla Skútustaða-
hrepps vandaða tölvu og útbúnað
henni viðvíkjandi. Heillaóskir bárust
með blómum, skeytum og fleiri gjöf-
um í tilefni tímamótanna.
Þegar Goðafoss lestaði fyrsta kís-
ilgúmum 12. maí 1968 var hafís svo
mikiil fyrir Norðurlandi og Skjálfandi
fullur af ís, svo skipið lá við bryggju
heila viku þrátt fyrir tilraunir til að
sigla gegnum ísinn.
Eftir nokkuð gott veður undan-
farna daga breytti um hátíðardaginn
og gekk á með dimmum éljum, þó
ís sé ekki í nánd.
- Fréttaritari.
Prófnefnd verðbréfamiðlara starf-
ar samkvæmt sérstakri reglugerð
frá árinu 1992, sem sett er með í
stoð í lögum um verðbréfaviðskipti
og verðbréfasjóði. Formaður nefnd-
arinnar er nú Davíð Þór Björgvins-
son dósent við lagadeild Háskóla
íslands, en aðrir nefndarmenn eru
Gísli S. Arason lektor við viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla íslands,
Gunnar Helgi Hálfdanarson fram-
kvæmdastjóri Landsbréfa, Jóhann
Albertsson lögfræðingur hjá Banka-
eftirliti Seðlabankans og Vilborg
Lofts aðstoðarframkvæmdastjóri
VÍB.
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta
að því er fram kemur í frétt frá
Prófnefnd verðbréfamiðlara. í A-
hluta, sem kenndur er á haustönn
1993, er áhersla lögð á lögfræði-
greinar, en kennslugreinar þar eru:
Islensk réttarskipan og fræðikerfi
lögfræðinnar, viðskiptabréfsreglur,
veðréttindi og þinglýsingar, ábyrgð-
ir, félagaréttur, viðfangsefni úr
fjármunarétti og ágrip úr réttar-
fari. Markmiðið með þessum hluta
námskeiðsins er að kynna fyrir
nemendum grunnatriði lögfræðinn-
ar og réttarreglur á þeim sviðum
sem kunna að varða starfssvið verð-
bréfamiðlara. í B-hluta, sem kennd-
ur verður á vorönn 1994, er lögð
áhersla á viðskiptagreinar, en
kennslugreinar þar eru: vaxtaút-
reikningur og vísitölur, fjármagns-
markaðurinn, greining ársreikninga
og mat trygginga, skattalög og
reikningsskil og leiðir til ávöxtunar
fjármagns. í C-hluta, sem einnig
verður kenndur á vorönn, er áhersl-
an lögð á séríslenskar aðstæður.
Kennslugreinar í þeim hluta eru:
Lagareglur um fjármagnsmarkað-
inn, réttindi og skyldur verðbréfa-
miðlara, verðbréfafyrirtækja og
verðbréfasjóða, tegundir innlendra
og erlendra verðbréfa, verðbréfa-
sjóðir og fjárvarsla og ráðgjöf.
Kennsla er í höndum viðurkenndra
sérfræðinga á hverju sviði. Að lokn-
um hverjum hluta þreytir nemandi
skriflega próf úr námsefninu. Til
að standast próf þarf nemandi að
fá a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn og
ekki lægri einkunn en 5,0 í einstök-
um prófum.
Þeir sem lokið hafa lögfræðiprnfi
frá Háskóla Islands eru undanþegn-^
ir námskeiði og prófi í A-hluta. Þeir
sem hafa lokið viðskiptafræðiprófi
frá Háskóla íslands, eða öðru prófi
sem nefndin telur sambærilegt, eru
undanþegnir námskeiði úr B-hluta
að þluta eða öllu leyti.
A námskeiðinu er reynt að haga
kennslu og próftöku með þeim hætti
að henti þeiin sem eru í vinnu ann-
ars staðar á meðan þeir stunda nám-
ið. Samt sem áður er rétt að leggja
áherslu á að námið er töluvertryfir-
gripsmikið og krefst góðrar ástund-
unar eigi árangur að nást. Þátttöku-
gjald í námskeiðinu er kr. 90.000
fyrir hvora önn, eða samtals kr.
180.000 fyrir báðar annir. Skiptist
gjaldið í innritunargjald, kennslu-
gjald og prófgjald. Rétt er að taka
fram að gjald fyrir þátttöku í nám-
skeiðinu er óháð gjaldi sem þarf að
greiða fyrir leyfi til verðbréfamiðlun-
ar sem viðskiptaráðuneytið gefur út.
Það gjald er nú kr. 50.000.
Prófnefnd verðbréfamiðlara hefur
ráðið Kristján Jóhannsson lektor við
viðskiptadeild sem umsjónarmann
með námskeiðinu og annast hann
framkvæmd þess í samvinnu við
Endurmenntunarstofnun Háskóla
Islands. Munu þessir aðilar veita
frekari upplýsingar um námskeiði^.
9096 Mjólkurkanna
Verð: 2.850,-
VARIST EFTIRLIKINGAR
ALESSI
KRINGLUNNI S: 680633
Leiðrétting
Myndir af forstöðumönnum
Eimskips víxluðust
■ Vegna mistaka við vinnslu við-
skiptablaðs síðastliðmn fimmtu-
dag víxluðust myndir af tveimur
forstöðumönnum Eimskips, sem
tekið hafa við nýjum stöðum hjá
félaginu. Myndirnar eru því birtar
að nýju. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
MHÖSKULDUR H. Ólafsson,
sem verið hefur forstöðumaður
útflutningsdeildar Eimskips, mun
taka við starfí forstöðumanns
nýrrar rekstrar- og stórflutninga-
deildar.
MGARÐAR Jóhannsson tekur
við starfi Höskuldar sem forstöðu-
maður útflutningsdeildar Eim-
skips, en hann hefur verið for-
stöðumaður stórflutningadeildar
félagsins.
Höskuldur
Garðar
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1993
3. Uppboð - 22. júní 1993
Þriðja uppboð húsnæðisbréfa fer fram 22. júní n.k.
Frestur til þátttöku rennur út kl. 14:00 þann dag og
þurfa bindandi tilboð í bréfin að hafa borist Húsnæðis-
stofnun ríkisins. Húsnæðisbréf eru gefin út í tveimur
einingum, 1 m.kr. og 10 m.kr. að nafnverði. Hús-
næðisbréf eru verðtryggð með lánskjaravísitölu til 20
ára með 39 jöfnum greiðslum vaxta og afborgana.
Upplýsingarit ásamt tilboðsgögnum liggja frammi hjá
Húsnæðisstofnun nkisins, Suðurlandsbraut 24, Reykja-
vík og nánari upplýsingar um útboðið veitir verðbréfa-
deild stofnunarinnar.
ANDSAU
Q
Z
KIVSQMVH
HANDSAL H F
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKl • AÐILI AÐ VERÐBRÉFAhlNGI ÍSLANDS
ENGIATEIGI 9 ■ 105 REYKIAVÍK • SIMI 686111 • FAX 687611