Morgunblaðið - 22.06.1993, Qupperneq 32
If^o\/a íán&pmi
m _ NCBWECISCnil
Lana BröýtnB
BJorske »drov&
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
Opið mót Sörla
Skyggnstinní
FIPO reglurnar
Sjö kepptu í úrslitum fimmgangs en þar sigraði Atli á Reyni, næst komu Hulda og Stefnir, Guðmundur
og Brimir, Sveinn og Andri, Sigurður og Hilda, Daníel og Spænir og Sigurbjörn og Vídalín.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
Tölt
1. Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá
Blönduósi, 7,39.
2. Elsa Magnúsdóttir á Kolbaki frá
Húsey, 7,11.
3. Atli Guðmundsson á Þráni frá
Gunnarsholti, 6,72.
4. Sveinn Jónsson á Hljómi frá Torfu-
nesi, 6,61.
5. Trausti Þór Guðmundsson á
Hrímu, 6,22.
6. Guðni Jónsson á Svarti frá Sól-
heimatungu.
Fjórgangur
1. Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá
Blönduósi, 6,90.
2. Atli Guðmundsson á Þráni frá
Gunnarsholti, 6,60.
3. Sveinn Ragnarsson á Koli frá
Vallanesi, 6,53.
4. Sveinn Jónsson á Hljómi frá Torfu-
nesi, 6,37.
5. Barbara Meyer á Háfeta frá Egils-
staðakoti, 6,30.
6. Adolf Snæbjörnsson á Glókolli frá
Hjaltastaðahvammi, 6,27.
Fimmgangur
1. Atli Guðmundsson á Reyni frá
Hólum, 6,62.
2. Hulda Gústafsdóttir á Stefni frá
Tunguhálsi, 6,24.
3. Guðmundur Einarsson á Brimi frá
Hrafnhólum, 6,09.
4. Sveinn Jónsson á Andra frá Steðja,
Hestar
Valdimar Kristinsson
Öllum sem fylgjast grannt með
keppni í hestaíþróttum og þar
með töldum gæðingakeppnum
og kappreiðum virðist ljóst að
mikil uppstokkun muni eiga sér
stað í uppbyggingu móta og
ií keppnisforms á næstu árum.
Eitt af því sem virðist blasa við
er að alþjóðlegu reglurnar
FIPO verði innleiddar að meira
eða minna leyti. Sörlamenn í
Hafnarfirði virðast vel meðvit-
aðir um þessa þróun sem í
vændum er og buðu því upp á
opið íþróttamót um helgina þar
sem keppt var eftir þessum
reglum.
Einnig er keppt eftir þessum regl-
um á heimsmeistaramótum svo
þama gafst heimsmeistaramóts
kandídötum gott tækifæri á að
æfa sig fyrir átökin í næsta mán-
uði. FIPO reglurnar eru nokkuð
frábrugðnar íslensku reglunum og
má þar nefna að leyfðar eru 300
gramma þungar hófhlífar í stað
250, röðun gangtegunda í for-
keppni er fijáls og vægi hæga
töltsins í töltkeppninni er ekki tvö-
faldað eins og hér er gert. Þá fær
keppandi í sjötta sæti úr B-úrslit-
um að taka þátt í A-úrslitum sem
gerir það að verkum að keppendur
þar verða sex. Á mótinu hjá Sörla
gerðist það hins vegar að í fimm-
gangi urðu tveir keppendur jafnir
í fimmta og sjötta sæti þannig að
sá sjöundi kom inn í A-úrslitin og
er þá orðinn þröngt setinn Svarf-
aðardalur og annríki hjá dóm-
urum. í úrslitunum var ekki raðað
í sæti heldur fékk hver keppandi
sína einkunn á sama hátt og í
forkeppninni. Samkvæmt áður-
nefndum reglum var aðeins keppt
í fullorðinsflokki og einungis kepp-
endum sextán ára og eldri heimil
þátttaka.
Nokkrar breytingar urðu á röð
í A-úrslitum á mótum, í fjórgangi
höfðu ailir keppendur sætaskipti
nema Sigurbjörn Bárðarson á Oddi
frá Blönduósi en þeir voru í sér-
flokki bæði í tölti og fjórgangi.
Atli Guðmundsson á Þráni frá
Gunnarsholti vann sig upp í 2.
sæti úr 3., Sveinn Ragnarsson
vann sig upp úr 5. til 6, sæti í 3.
sæti, Sveinn Jónsson á Hljómi féll
úr 2. sæti í 4. Barbara Meyer á
Háfeta féll úr 4. sæti í það 5.
Adolf Snæbjörnsson var í 5. til
6. sæti en hafnaði í því 6. í töltinu
héldu Elsa Magnúsdóttir á Kolbaki
og Sigurbjörn 1. og 2. sæti en
Atli vann sig upp í það 3. Sveinn
Jónsson vann sig upp í fjórða
sæti og Trausti Þór féll úr 3. sæti
í 5. sætið. í fimmgangi hélt Atli
á Reyni 1. sætinu, Hulda Gústafs-
dóttir á Stefni vann sig upp í 2.
sæti og Guðmundur Einarsson féll
í 3. sætið, Sveinn Jónsson hélt 4.
sætinu á Andra, Sigurður Matthí-
asson á Hildu vann sig upp í 5.
sætið, Daníel Jónsson hafnaði í
6. sæti en Sigurbirni Bárðarsyni
tókst ekki að láta Vídalín brokka
og hlaut að launum 7. sætið.
Ágætir tímar náðust í 250
metra skeiðinu enda kominn úr-
tökuskjálfti í marga skeiðknapana.
Fjórir náðu tíma undir 23 sek. og
í aukaspretti náðust einnig góðir
tímar. Aðeins voru farnir tveir
sprettir eins og íslenskar reglur
segja til um en með réttu hefði
átt að fara fjóra spretti eins og
segir í FIPO reglunum og hefði
verið spennandi að sjá hvað þá
hefði gerst því margir þessara
þrautþjálfuðu vekringa bæta sig
oft þegar farnir eru svo margir
sprettir á einu móti.
Þótt margt gott megi finna í
FIPO reglunum má reikna með
sumt muni standa í íslendingum
að taka upp, svo sem eins og
þyngri fótabúnað en margir hest-
arnir á mótinu í Hafnarfirði virt-
ust þunglamalegir í hreyfingum.
Þá má setja spurningamerki við
einkunnagjöf í úrslitum því þótt
það komi sánngjarnara út fyrir
keppendur þá er það mun óað-
gengilegra fyrir áhorfendur. Þá
eru margir ósáttir við að 6. hestur
B-úrslita komi inn í A-úrslit. Slíkt
fyrirkomulag hleypir spennu í B-
úrslitin sem annars eru steindauð
og spennulaus. Það er ýmislegt
sem þarf að skoða áður en við
gleypum þessar reglur hráar eins
og sagt er. Framtak Sörlamanna
að bjóða upp á þessa keppni er
lofsverð og veitir mörgum betri
innsýn inn í FIPO reglurnar.
Sveinn Jónsson varð stigahæstur
keppenda á Andra frá Steðja, Sig-
urbjörn Bárðarson á Oddi sigraði
í íslenskri tvíkeppni og Atli Guð-
mundsson á Reyni sigraði í skeiðt-
víkeppni.
HATTIP
BAGERI
nii»n» na »lii«w»ii
Á 10 MÍN.
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR NÝBAKAÐ
HATTING brauöiö er fryst áður en það er fullbakað. Settu HATTING smábrauð eða
rúnstykki í ofninn og aðeins 10 mín. síðar er brauðið tilbúið, nýtt og rjúkandi á borðið.
bag
rmm
°AG Eri
WhedJ
Íeuheit
i?stk: